Morgunblaðið - 11.06.2005, Page 57

Morgunblaðið - 11.06.2005, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 57 MENNING Á sama tíma fluttist ýmis fagleg þjónusta, s.s. leikskólaráðgjöf, kennsluráð- gjöf, sálfræðileg þjónusta og innritun í leikskóla yfir á þjónustumiðstöðvar í hverfum sem eru staðsettar í: Vesturbæ: Vesturgarði, Hjarðarhaga 45-47 Laugardal/Háaleiti: Síðumúla 39 Breiðholti: Álfabakka 12 Árbæ/Grafarholti: Bæjarhálsi 1 Miðborg/Hlíðum: Skúlagötu 21 Grafarvogi/Kjalarnesi: Miðgarði, Langarima 21 Póstfang Menntasviðs: Fríkirkjuvegur 1 101 Reykjavík Sími: 411 7000 www.grunnskolar.is www.leikskolar.is Skrifstofa Menntasviðs er að Fríkirkjuvegi 1 (Miðbæjarskólanum). Þar eru: Þann 1. júní 2005 tók nýtt Menntasvið Reykjavíkurborgar við af Leikskólum Reykjavíkur og Fræðslumiðstöð Reykjavíkur Fagskrifstofur leik- og grunnskóla Fjármálastjórnun, bókhalds- og launaþjónusta leik- og grunnskóla og innheimta leikskólagjalda Starfsmannaþjónusta leik- og grunnskóla Upplýsingatækniþjónusta leik- og grunnskóla Skrifstofa sviðsstjóra (afgreiðsla, upplýsingadeild og gagnadeild) Menntasvið Reykjavíkurborgar! A u g lý si n g as to fa G u ð rú n ar Ö n n u V e l k o m i n á Sverrir Guðjónsson kontraten-órsöngvari hélt í gær ásamtfélögum sínum í sönghópnum Voces Thules og Gunnlaugi Briem slagverksleikara til Noregs, þar sem þeir syngja á styrktartón- leikum í nafni Nelsons Mandela á morgun. Í sumar bíða Sverris fleiri spennandi og óvenjuleg verkefni. „Mig langar að byrja á því að segja þér frá óperunni Fjórða söng Guðrúnar eftir Hauk Tómasson, sem hlaut Tónlistarverðlaun Norð- urlandaráðs í fyrra. Ég söng í frum- uppfærslu hennar í skipakví í Kaup- mannahöfn á sínum tíma, ásamt tónlistarfólki víðs vegar að. Það stóð til að flytja hana víðar, þar sem hægt yrði að komast í þetta risaum- hverfi utandyra sem óperan krefst. Rotterdam vildi setja verkið upp og Edinborg, en verkið er dýrt í upp- setningu og það varð ekki af þess- um uppfærslum. Nú höfum við hins vegar fengið boð frá Bostad í suður- Svíþjóð um að flytja verkið í tón- leikaformi á hátíð í sumar. Ég var eini íslenski söngvarinn í frumupp- færslunni, en nú hafa bæst við þær Ingibjörg Guðjónsdóttir og Ásgerð- ur Júníusdóttir, og Ágúst Ágústs- son sem syngur hlutverk Atla Húnakonungs.“ Sverrir segir afar ánægjulegt að Haukur skyldi hafa fengið tónlist- arverðlaunin og gaman að fá tæki- færi til að flytja verkið á ný. „Hauk- ur á þetta svo sannarlega skilið, – mér finnst hann gífurlega flinkur tónhöfundur. Mér fannst erfitt að læra tónlistina á sínum tíma, og það er ekkert auðveldara núna,“ segir Sverrir og hlær. „Ég hélt ég myndi þetta svo rosalega vel, af því við urðum að sjálfsögðu að læra þetta utanbókar á sínum tíma, en minnið kemur manni á óvart. Það er ekki nóg að syngja músíkina af blaðinu, – þetta sest betur í mann þegar maður fer að finna betur fyrir stemmningunni í kringum þetta.“ Sverrir hefur nýlokið við að taka upp plötu sem hann kallar Hel- söngva. „Það er músík sem ég hef að hluta til frumflutt. Þráðurinn í gegnum verkin er svefninn, sem tákn dauðans. Ég gróf upp plötur sem ég söng inn á sem barn og valdi eina vögguvísu sem rammar verkið inn. Það er söngur sakleysisins. Ég er búinn að taka allt upp, og á end- anum þurfti ég að stroka út það sem mér fannst ekki alveg styðja við þráðinn, og það fannst mér gott. Platan verður heilsteyptari fyrir vikið.“ Meðal verkanna eru Rökk- ursöngvar eftir Óliver Kentish, Bæn eftir Áskel Másson og söngvar eftir Jón Leifs. „Ég valdi söngva sem Jón samdi í tengslum við Sögu- sinfóníuna. Ég fann líka kver hans með rímnalögum og valdi fimm lög þaðan sem tengjast svefni, dauða og missi. Ég fékk vini mína í Voces Thules líka til að syngja fimmunda- söngva Jóns.“    Í dag er Sverrir í Tromsø í Nor-egi, en verkefni þeirra Voces Thules manna þar er allsérstakt. „Gunnlaugur Briem slagverksleik- ari var að vinna að tónlist sem hann kallar Earth Affair, og þar er hann meðal annars að leika sér með Gregorsstef sem hann setti inn í hluta verksins. Þetta erum við bún- ir að taka upp og platan hefur farið víða. Í kjölfarið bauðst okkur að koma til Tromsø og syngja á þess- um Norðurskautstónleikum, en verndari þeirra er Nelson Mandela. Þarna verða stór nöfn: U2, Eurythmics og Peter Gabriel, sem ég hef alla tíð haldið mikið upp á. Ég spurði Gulla hvort vernd- ardýrlingur okkar, Þorlákur helgi, ætti ekki að leggja blessun sína yfir tónleikana með því að við syngjum kafla úr Þorlákstíðum í verkinu, – okkur fannst þetta falla vel að verk- inu. Við syngjum þetta í kyrrð sem vex yfir í þann rytma sem er í Earth Affair.“    Voces Thules hafa nú að sögnSverris lokið upptökum á síð- asta hluta Þorlákstíða, en plöturnar eru þá orðnar fjórar alls. „Við stefnum á að gefa þetta úr í nóv- ember, en nú í júlí ætlum við í tón- leikaferð um landið og syngja Þor- lákstíðir í öllum dómkirkjum landsins, í Kristskirkju og að lík- indum í Þorlákskirkju í Þorláks- höfn. Við leituðum vandlega að hljómburði fyrir upptökurnar og á daginn kom að með réttri uppstill- ingu reyndist Hallgrímskirkja best. Útkoman er mjög falleg.“    Undanfarna mánuði hefurSverrir Guðjónsson unnið að enn einu verkefni, en það er íslensk listreisa til Japans. „Mér barst sú ósk, að ég tæki að mér listræna stjórn prógramms – sviðsettra tón- leika, sem fluttir yrðu í 15 borgum í Japan. Japanir bjóða 15 íslenskum listamönnum að koma, og þeir skipuleggja tónleikahaldið sjálft. Japanir eru reyndar mjög skipu- lagðir og verkefnin eru unnin langt fram í tímann. Ég þurfti að senda helst fullbúið prógramm út um ára- mótin, en tónleikaferðin hefst ekki fyrr en 25. nóvember og tekur þá mánuð. Þeir vildu hafa allar upplýs- ingar klárar hálfu ári fyrir tón- leikaferðina.“ Í hópnum sem Sverr- ir hefur valið eru bæði dansarar og tónlistarmenn. „Í fyrri hluta pró- grammsins verður forni tónninn ríkjandi, en ég vil gjarnan setja nýja hugsun í músík við hliðina á fornu tónlistinni. Einn hluta tón- leikanna kalla ég Dans norðurljós- anna. Japanir eru mjög heillaðir af norðurljósunum og ég fékk til liðs við okkur Jóhann Ísberg ljósmynd- ara sem hefur tekið myndir af þeim. Mig langar líka til að fara í Sturl- ungu, því við í Voces Thules höfum líka verið að taka upp tónlist tengda henni. Við verðum með þátt sem eru draumar og fyrirboðar fyrir Örlygsstaðabardaga. Þar verður allt blóðugra og þar viljum við nota myndefni af hrauni, sem tákn blóðs- ins sem rann og rennur enn í öllum þeim stríðum sem við heyjum. Ástin verður svo þema tónleikanna eftir hlé. Þetta verkefni er því byggt kringum þráðinn frá stríði til ástar og friðar.“ Lagt í víking myrkurs og birtu, stríðs og friðar ’Þarna verða stór nöfn:U2, Eurythmics og Peter Gabriel, sem ég hef alla tíð haldið mikið upp á. ‘ AF LISTUM Bergþóra Jónsdóttir Morgunblaðið/Eyþór Sverrir Guðjónsson kontratenór syngur forna tónlist og nýja. begga@mbl.is NORRÆNA Akvarellusafnið í Skärhamn í Svíþjóð festi nýverið kaup á tíu verkum Hafsteins Aust- manns. Myndirnar eru frá árunum 1957 til 1960. Í tilefni af því að myndirnar eru á leið úr landi er efnt til sýningar á þeim ásamt síðari tíma verkum hans. Hafsteinn hefur unnið öt- ullega að myndlist allt frá sinni fyrstu sýningu í París 1955. Haf- steinn hefur lengi verið talinn einn fremsti vatnslitamálari landsins. Sýningin verður opnuð í dag og stendur til 30. júní. Listhús Ófeigs er opið á verslunartíma, lokað á sunnudögum. Hafsteinn sýnir hjá Ófeigi BORGARLEIKHÚSIÐ og söng- og leiklistarskólinn Sönglist standa fyrir leiklistarnámskeiðum í sumar. Skólinn hjá Sönglist hefur verið starfræktur síðan 1998, þar af tvö síðustu árin í Borgarleikhúsinu. Borgarleikhúsið var með leiklist- arnámskeið síðasta sumar og verð- ur nú leikurinn endurtekinn í sam- vinnu við Sönglist. Kennsla fer fram í leikhúsinu sjálfu. Hvert námskeið er í fimm daga og er kennt frá 10:00-16:00. Hægt er að fá gæslu frá kl. 8:45. Aldur þátttakenda er 8-13 ára og er ald- urskipt í hópa. Í yngri hópnum eru þátttakendur 8-10 ára, en 11-13 ára í þeim eldri. Kennd verða undirstöðuatriði í einbeitingu, trausti, raddbeitingu og leikgleði. Unnið er markvisst að því að virkja sköpunarkraft nem- enda og að efla sjálfstraust þeirra. Þó svo að kennslan byggist að- allega á leiklistaræfingum verður einnig sungið. Undirstöðuatriði í réttri söngtækni verða kennd og lög æfð. Í lok hvers námskeiðs verð- ur opin kennslustund þar sem for- eldrar og aðstandendur koma og fylgjast með afrakstri vinnunnar. Kennarar í sumar eru Agnar Jón Egilsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Kolbrún Anna Björnsdóttir, Krist- björg Kari Sólmundsdóttir, Sigríð- ur Eyrún Friðriksdóttir og Svava K. Ingólfsdóttir. Námskeiðin verða sex, hið fyrsta hefst 20. júní og lok- anámskeiðið er 25. júlí. Skráning á námskeiðin er þegar hafin. Fer hún fram í miðasölu Borgarleikhússins. Leik- og söngnámskeið í Borgarleikhúsinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.