Morgunblaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 28
Fréttir á SMS 28 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FERÐALÖG Heimsókn í Belém-hverfið í út-jaðri Lissabon er ómissandiþáttur ferðamanna á þess- um slóðum og jafnnauðsynlegt er að tylla sér niður á Pasteis de Belém með ekta kaffi og Belém-kökur. Bak- arí þetta var stofnað árið 1837 og hef- ur því starfað í heil 168 ár. Það er einkum frægt fyrir einkar ljúffengar Belém-kökur með vanillukremi inni í sem gestir sjá svo sjálfir um að strá á flórsykri og kanil eftir smekk hvers og eins. Til Belém fara borgarbúar sjálfir til að slaka á og spássera í ró og næði á sunnudögum og þar eru líka skokkarar og hjólreiðamenn. Hverfið liggur meðfram ánni Rio Tejo, sem stundum er nefnd Tagus og þar eru bæði grænir og sérlega vel hirtir al- menningsgarðar svo og skútuhöfn með snekkjum af öllu tagi. Í Belém er bleikmálaður bústaður Portúgalsforseta og í Belém lifna við minningar um portúgalska sæfara og landafundi. Risastórt minnismerki, Monumento aos Descobrimentos, í líki skipsstefnis um landafundina og landkönnuðina gnæfir yfir ána í aust- urátt sem reist var árið 1960 í tilefni þess að 500 ár voru liðin frá því að Hinrik sæfari lést. Stórt landakort er fyrir framan minnismerkið sem Suður-Afríkubúar gáfu Portúgölum á þessum tímamót- um og sýnir það ártöl og hvar Portú- galar námu lönd á öldum áður. Hinrik sæfari, sem uppi var á ár- unum 1394 til 1460, er einn þekktasti landkönnuðurinn frá öldum áður, en hann sigldi niður með vesturströnd Afríku og allt suður til Sierra Leone. Hann var frændi konungsins, sem þá ríkti í Portúgal og stofnaði jafn- framt fyrsta siglingaskóla, sem vitað er um, á Sagres-höfðanum í Algarve. Hann og hans menn fundu Madeira 1419, Azoreyjar 1432 og Grænhöfða- eyjar 1456 og urðu þessir landafundir upphafið að nýlenduveldi Portúgala. Nokkrum árum síðar fóru portú- galskir landkönnuðir að leggja upp frá Lissabon og er Vasco da Gama án efa einn frægasti landkönnuðurinn sem Portúgalar hafa alið. Hann var uppi á árunum 1460 til 1524 og var fyrstur til að sigla sjóleiðina til Ind- lands fyrir Góðravonarhöfða eða suð- urodda Afríku árið 1498. Heimssýn- ing var haldin í Lissabon árið 1998 í tilefni þess að 500 ár voru liðin frá því að hann steig á land í Kalkútta á Ind- landi og grunnur var lagður að við- skiptaveldi Portúgala. Kirkja, klaustur og safn Í Belém er líka Jerónimosar- klaustrið og sambyggð Santa María- kirkja auk listasafns. Hafist var handa við byggingu klaustursins, sem er á Heimsminjaskrá UNESCO, árið 1501, eftir tilskipun Dom Manuel konungs til minningar um landafund- ina og fyrir þann auð, sem fylgdi þeim. Byggingarstíllinn er kenndur við Manuel konung og kallaður „manuelíski“ stíllinn. Byggingin er mjög fögur á að líta og minna skreyt- ingar, að utan jafnt sem innan, allar á sjó og sæfara. Í klausturgarðinum liggja m.a. líkamsleifar Fernando Pessoa, sem var uppi á árunum 1888 til 1935 og er talinn vera eitt helsta nútímaljóðskáld Portúgala. Belém-turninn, sem stendur við ána, var reistur á árunum 1512 til 1521, samkvæmt konungsskipun og undir stjórn arkitektsins Francisco de Arruda. Turninn átti að verja Lissabonhöfn fyrir óvinaherjum. Turninn var not- aður sem fangelsi á árunum 1580 til 1828, en í jarðskjálftanum mikla 1755 féll stór hluti hans svo að gera hefur þurft hann upp. Við turninn stendur nú líkan af fyrstu flugvélinni, sem flaug yfir Suður-Atlantshaf. Mynd- arleg menningarmiðstöð, Centro Cultural de Belém, var svo reist í Bel- ém árið 1988 þegar Portúgalar tóku að sér að vera í forsvari fyrir Evrópu- bandalagið, en nú er byggingin nýtt fyrir alls konar ráðstefnur, fundi og menningarviðburði af öllu tagi. Með sæförum í anda í Belém  PORTÚGAL join@mbl.is Séð yfir Belém-hverfið, sem tilheyrir Lissabon. Bleikmálaður bústaður forseta Portúgals er í Belém. Sunnudagur í Belém, úthverfi frá Lissabon, er ávísun á góðan dag. Jóhanna Ingvarsdóttir spókaði sig í Belém og borðaði Belém-kökur í eldgömlu bakaríi. Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga Bílar frá dkr. 1.975 vikan Bílaleigubílar Sumarhús í DANMÖRKU www.fylkir.is sími 456-3745 Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. (Afgreiðslugjöld á flugvöllum.) Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna og minibus, 9 manna og rútur með/ án bílstjóra. Sumarhús Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum stærðum, frá 2ja manna og upp í 30 manna hallir. Valið beint af heimasíðu minni eða fáið lista. Sendum sumarhúsaverðlista; Dancenter sumarhús Lalandia orlofshverfi Danskfolkeferie orlofshverfi Hótel. Heimagisting. Bændagisting. Ferðaskipulagning. Vegakort og dönsk gsm-símakort. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is Vika íDanmörku hertzerlendis@hertz.is 19.350 kr. - ótakmarkaður akstur,kaskó, þjófavörn, flugvallargjaldog skattar.*Verð á viku miðað við 14 daga leigu.* Opel Corsa eða sambærilegur ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 27 70 7 03 /2 00 5 50 50 600 Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta Aðstandendur árlegrar bjórhá-tíðar sem haldin er í Berlínstáta sig af lengsta bjórgarði í heimi. Hátíðin, sem nefnd er „Bier- meile“, eða Bjórmílan, fer fram á tveggja kílómetra löngu svæði á Karl Marx-stræti í austurhluta borg- arinnar að sumri til. Bjórhátíðin hef- ur vaxið hratt síðan síðan hún var fyrst haldin árið 1997. Árið 2003 komu 750 þúsund gestir, og Hilmar Bürger, blaðafulltrúi hátíðarinnar, segir að fjöldinn hafi verið enn meiri sl. ár. Á hátíðinni bjóða 240 bjórframleið- endur frá 80 löndum upp á 1.700 bjórteg- undir. Erlendir gestir, einkum Norðurlandabúar, eru smám saman að uppgötva þessa há- tíð sem var í fyrra haldin í áttunda sinn. Þjóðverjar eru eins og við er að bú- ast mest áberandi í hópi gesta og bjór- framleiðandanna sem kynna og selja vöru sína. Á hverju ári er sérstök áhersla lögð á bjóra frá einu héraði Þýskalands. Meðal þýskra bjóra sem voru vin- sælir hjá hátíðargestum á hátíðinni í fyrra má nefna Katharina-bjórinn, sem kenndur er við Katharina von Bora, eiginkonu Marteins Lúthers. Lúther var að sögn ákaflega hrifinn af bjórgerð konu sinnar, og lét færa sér bjórinn um langan veg ef hann var að heiman. Afkomandi Katrínar í fjórtánda lið hófst fyrir nokkrum árum handa við að brugga bjórinn að nýju og hefur hann notið vinsælda og hlotið góða dóma. Sem kunnugt er var kona Lúthers fyrrum nunna, og starfs- stúlkurnar í bjórtjaldinu voru því klæddar sem kaþólskar nunnur og veittu veigarnar í leirkrúsum. Bjór frá fjarlægari stöðum var einnig í boði, meðal annars nepalskur Gúrka-bjór, „Voodoo dark“ frá Afr- íkuríkinu Benín, Póker-bjór frá Kól- umbíu, að ónefndum belgískum kirsuberjabjór. Einnig voru tékk- neskar, enskar og pólskar bjórteg- undir áberandi. Lítið fór fyrir nor- rænum bjór, ef undanskilið er finnska „Lappagullið“, Lapin Kulta. Safna bjórflutningabílum Víða um hátíðarsvæðið var flutt lif- andi tónlist. Auk þess voru matsölu- tjöld þar sem boðið var upp á þýskar pylsur og aðrar kjötvörur, en einnig osta og ýmsa sérrétti frá þeim lönd- um sem voru að kynna bjóra á svæð- inu. Flestir þýsku bjórframleiðandanna bjóða til sölu ýmiss konar minjagripi með merki sínu, til dæmis bjórkrúsir, Bjórmílan í Berlín nýtur vinsælda  ÞÝSKALAND Vinsældir Bjórmílunnar í Berlín hafa aukist stöðugt síðan hún var fyrst haldin fyrir níu árum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.