Morgunblaðið - 11.06.2005, Side 49

Morgunblaðið - 11.06.2005, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 49 Kennsla Sumarnámskeið í dönsku talmáli ætlað 9-10 ára börnum, verður í Norræna húsinu 20.-23. júní nk. Gert er ráð fyrir tveimur hópum. A) Kl. 9:00-12:00 og B) kl. 13:00-16:00. Kennarar: Lisa María Kristjánsdóttir, B.ed. og Casper Vilhelmsen, B.ed. Námskeiðsgjald kr. 5.000. Skráning í Norræna húsinu hjá Ingibjörgu Björnsdóttur, s. 551 7030 eða í tölvupósti agni@nordice.is www.nordice.is Styrkir Tungumálakennarar athugið! Evrópumerkið/European Label árið 2005 Evrópumerkið er viðurkenning framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins og menntamála- ráðuneytisins fyrir nýbreytniverkefni í tungumálanámi og tungumálakennslu. Að jafnaði hlýtur eitt íslenskt verkefni Evrópu- merkið á ári hverju og er ráðgert að viðurkenn- ingin verði í ár veitt á Evrópskum tungumála- degi 26. september nk. Umsóknarfrestur um Evrópumerkið árið 2005 er til 30. júní nk. Umsóknir berist Alþjóðaskrif- stofu háskólastigsins á sérstökum eyðublöðum sem finna má á eftirfarandi slóðum: http://www.mrn.stjr.is/mrn/mrn.nsf/pages/ althjodlegt. www.ask.hi.is Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um Evrópumerkið. Einnig má nálgast umsóknar- eyðublöð á Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins og í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins. Framkvæmdastjórn ESB hefur ákveðið eftirfar- andi forgangssvið á árinu 2005: 1. Kennsla erlendra tungumála fyrir unga nemendur (Early language learning) 2. Námsgreinabundin tungumálakennsla (Content and language integrated learning, CLIL). Forgangssviðin eru ekki bindandi Nánari upplýsingar gefur Ragnhildur Zoega á Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, sími 525 5813. Netfang: rz@hi.is. www.ask.hi.is Bandalag kvenna í Reykjavík Námsstyrkir Bandalag kvenna í Reykjavík auglýsir til um- sóknar styrki úr Starfsmenntunarsjóði ungra kvenna fyrir skólaárið 2005-2006. Tilgangur sjóðsins er að hvetja og styðja við bakið á ungum konum í Reykjavík til að leita sér aukinnar menntunar. Einstæðar mæður, sem ekki eiga kost á námsláni, hafa forgang. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöð- um, sem afhent verða á skrifstofu Bandalags kvenna í Reykjavík á Hallveigarstöðum milli kl. 16.00 og 18.00 dagana 20. til 24. júní. Umsóknir þurfa að berast fyrir 20. júlí 2005 til Bandalags kvenna í Reykjavík, Túngötu 14, 101 Reykjavík, merktar: „Námsstyrkir“. Félagslíf 12.6. Tröllakirkja. Brottför frá BSÍ kl. 08:00. Fararstj. Tómas Þröstur Rögnvaldsson. V. 3.500/ 4.100 kr. 16.-19.6. Núpsstaðarskógar. Brottför frá skrifstofu Útivistar á eigin bílum kl. 18:00. Fararstj. Jósef Hólmjárn. V. 12.900/ 14.800 kr. 17.6. Föstudagur. Leggja- brjótur. Brottför frá BSÍ kl. 10:30. Fararstj. Tómas Þröstur Rögnvaldsson. V. 2.900/3.400 kr. 24.-26.6. Jónsmessunætur- ganga Útivistar Verð í tjaldi 11.900/13.500 kr. í skála 13.300/15.200kr. www.utivist.is Raðauglýsingar 569 1100 Raðauglýsingar sími 569 1100 ÞAÐ var árið 1979 að fyrsta Ís- landsmótið í skólaskák var haldið og varð Jóhann nokkur Hjartarson þá hlutskarpastur í eldri flokki en Hall- dór Grétar Einarsson í þeim yngri. Frá upphafi hefur fyrirkomulag keppninnar verið þannig að landinu er skipt í átta kjördæmi og úr hverju þeirra vinna grunnskólanemendur sér rétt til að taka þátt í landsmótinu. Eldri flokkinn skipa nemendur sem eru í 8.-10. bekk en í þeim yngri geta nemendur sem eru í 1.-7. bekk tekið þátt. Skáksamband Íslands hefur yf- irumsjón með keppninni en sú hefð hefur skapast að kjördæmin skiptast á að halda mótið. Í ár var komið að Vesturlandi að gera það og féll verk- efnið í skaut Skákdeildar UMSB. Keppnin fór fram í Varmalandsskóla í Borgarfirði og tóku alls 24 ung- menni þátt, tólf í hvorum flokki. Í eldri flokki var Kópavogsbúinn Atli Freyr Kristjánsson (1.680) alltaf í forystuhlutverkinu enda vann hann fyrstu tíu skákirnar sem hann tefldi og hafði tryggt sér sigurinn fyrir lokaumferðina. Þá mætti hann Ingv- ari Ásbjörnssyni (1.565) sem hafði ekki tapað skák á mótinu en gert fjögur jafntefli. Ingvar tryggði sér annað sætið og jafntefliskóngstitil- inn á mótinu þegar hann og Atli skiptu vinningnum á milli sín. Loka- staða flokksins varð þessi: 1. Atli Freyr Kristjánsson (Helli) 10½ vinn- ingur af 11 mögulegum 2. Ingvar Ásbjörnsson (Fjölni) 8½ v. 3.-4. Ólafur Evert Úlfsson (SA) og Helgi Brynjarsson (Helli) 8 v. 5.-6. Sverrir Þorgeirsson (Haukar) og Bjarni Jens Kristinsson (Tafld. Austurlands) 6½ v. 7. Einar Sigurðsson (TR) 5½ v. 8. Gylfi Davíðsson (Hellir) 4½ v. 9. Arnar Páll Gunnlaugss. (Taflf. Selfoss) 3 v. 10. Tinna Kristín Finnbogad. (UMSB) 2½ v. 11. Davíð Arnarsson (SA) 2 v. 12. Ólafur Ólafsson (SA) ½ v. Líkt og Atli Freyr vann Hjörvar Steinn Grétarsson (1.580) í yngri flokknum hvern andstæðinginn á fætur öðrum og hafði fullt hús vinninga að tíu umferðum loknum. Svanberg Már Páls- son (1.705) fylgdi Hjörvari hinsvegar eins og skugginn og hafði fyrir lokaum- ferðina 9½ vinning. Þeir tefldu því hreina úrslitaskák um sigur- inn á mótinu. Eins og í öðrum skákum sínum tefldi Hjörvar hratt og eftir um 20 leiki átti hann 40 mínútur eftir en Svanberg aðeins þrjár. Staða Svan- bergs var þó að mati áhorfenda talin betri og átti hann þess kost að fara í endatafl peði yfir. Hann kaus hinsvegar að fórna manni fyrir sókn en hún stóðst ekki og Hjörvar innbyrti í framhaldinu vinn- inginn. Það var glæsilegt hjá Hjörv- ari að vinna flokkinn með fullu húsi og virðist hann í mikilli framför um þessar mundir. Lokastaða flokksins varð annars þessi: 1. Hjörvar Steinn Grétarsson (Helli) 11 vinn- ingar af 11 mögulegum 2. Svanberg Már Pálsson (TG) 9½ v. 3. Hörður Aron Hauksson (Fjölni) 8½ v. 4. Hallgerður H. Þorsteinsd. (Helli) 7½ v. 5. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (Helli) 6½ v. 6.-7. Jóhann Óli Eiðsson (UMSB) og Aron Ellert Þorsteinsson (TR) 6 v. 8. Alexander Arnar Þórisson (SA) 5 v. 9. Ingimar Jóhannsson (Taflf. Austurlands) 3 v. 10. Mikael Jóhann Karlsson (SA) 2 v. 11. Anton Vignir Guðjónsson (Taflf. Selfoss) 1 v. 12. Auður Eiðsdóttir (UMSB) 0 v. Í mótslok afhenti forseti Skák- sambandsins, Guðfríður Lilja Grét- arsdóttir, verðlaun en sigurvegar- arnir hlutu forláta riddara í sigurlaun og úttekt í Pennanum. Fjórir af sjö verðlaunahöfum komu frá Reykjavík en Garðabær, Kópa- vogur og Akureyri áttu sinn hvern verðlaunahafann. Eins og venja er fengu allir keppendur viðurkenning- arskjöl og að verðlaunaafhendingu lokinni buðu heimamenn öllum upp á grill úti í skógi. Skákstjórar á þessu skemmtilega móti voru landsmóts- stjórinn, Haraldur Baldursson, Gylfi Þórhallsson og Páll Sigurðsson. Jafnt í atskákeinvígi Adams og Leko Dagana 2.-5. júní fór fram 8 skáka einvígi milli tveggja af fremstu skák- manna heims, Englendingsins Mich- ael Adams (2.737) og Ungverjans Peter Leko (2.763). Einvígið var haldið í borginni Miskolc sem er í austurhluta Ungverjalands. Hvor keppandi fékk 25 mínútur í umhugs- unartíma ásamt 5 sekúndna viðbót- artíma fyrir hvern leik. Tefldar voru tvær skákir á dag og hófst fyrsta skák einvígisins rólega. Eins og oft áður saumaði Adams hægt og síg- andi að andstæðingnum sem greip síðan til þess örþrifaráðs að fórna manni. Adams, sem hafði hvítt, tefldi ekki öruggustu leiðina til vinnings í framhaldinu og þegar hann hafði leikið sínum 45. leik kom eftirfarandi staða upp: Staðan er að öllum líkindum unnin á hvítt en til þess þarf að ganga langa leið. Leko stytti hana umtalsvert með því að leika 45... Ke8?? sem var svarað með 46. Dd8#. Óvenjuleg mistök hjá hinum frábæra varnar- skákmanni og til að bæta gráu ofan á svart þurfti hann í næstu viðureign að leggja niður vopnin eftir 25 leiki með hvítu. Enn seig á ógæfuhliðina hjá honum þegar Adams vann einnig þriðju skákina. Fjórða skákin mark- aði hinsvegar batnandi tíð en þá vann Leko lærdómsríkan sigur í spænska leiknum. Adams tefldi fimmtu skák- ina passíft og Leko tókst að svíða hann í drottningarendatafli. Staðan hafði því breyst úr 3-0 fyrir Adams í 3-2 og í næstu skák þjarmaði Leko að Adams allt frá upphafi skákarinnar. Þegar Leko, með hvítt, hafði leikið sinn 29. leik, var hann kominn peði yfir í eftirfarandi stöðu: Sjá stöðumynd Taflið er hartnær tapað á svart þar sem eftir 29...Rxe4?? 30. Bxe4 Dxe4 mátar hvítur eftir 31. Dd8+!. Í atskák er hinsvegar alltaf hægt að berjast og hefði leikur eins 29...Da7 boðið upp á slíkt þar sem 30. Dd8 yrði þá svarað með 30...Re8. Adams lék hinsvegar 29... g6? og eftir 30. f5! Rxe4 31. Bxe4 Dxe4 32. Rg4! gafst hann upp þar sem hann tapar óum- flýjanlega manni eða drottningu. Þetta þýddi að fyrir lokadaginn þar sem síðustu tvær skákirnar voru tefldar var staða einvígisins orðin jöfn. Þær skákir enduðu báðar með bræðrabyltu og einvíginu lauk því með jafntefli, hvor keppandi fékk fjóra vinninga. Snorri sigrar með fullu húsi í Bikarsyrpu Eddu útgáfu Bikarsyrpa Eddu útgáfu og Tafl- félagsins Hellis er í fullum gangi en á þriggja vikna fresti er mót haldið í syrpunni á skákþjóninum ICC á Netinu. FIDE-meistarinn Snorri G. Bergsson vann mót í syrpunni sem haldið var 5. júní sl. og tókst það sem engum hefur tekist um langa hríð, að vinna mótið með fullu húsi. Annar varð Magnús Örn Úlfarsson en hann er jafnframt efstur í syrpunni með 14½ vinning en á hæla hans þar kem- ur Arnar Þorsteinsson sem hefur 13 vinninga. Arnar lenti í þriðja sæti á mótinu en alls voru keppendurnir 31. Nánari upplýsingar um lokastöðu mótsins er að finna á vefsíðunni www.skak.is. Næsta mót er fyrir- hugað 26. júní en syrpunni lýkur hinn 20. nóvember þegar Íslands- mótið í netskák fer fram. Atli Freyr Kristjánsson Hjörvar Steinn Grétarsson SKÁK Varmalandsskóli í Borgarfirði LANDSMÓTIÐ Í SKÓLASKÁK 2005 3.-5. júní 2005 daggi@internet.is Atli og Hjörvar Íslands- meistarar í skólaskák HELGI ÁSS GRÉTARSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.