Morgunblaðið - 14.11.2005, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 7
FRÉTTIR
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is
Hvers vegna
var Höddi ekki
settur í markið?
Innbúskaskó TM
Dæmi um hvað Innbúskaskó TM bætir:
// Tjón á verðmætum sem teljast hluti af almennu innbúi
fólks, s.s. fartölvu, myndavél, gleraugum og öðrum
dýrummunum, færðu bætt.
Hámarksupphæð tjóns er 250.000 kr.
// Tjón af völdum skyndilegra og ófyrirsjáanlegra atburða
er bætt, s.s. ef hlutur á heimilinu fellur í gólf eða það
hellist yfir hann.
Dæmi um hvað Innbúskaskó TM bætir ekki:
// Ef þú týnir, gleymir eða skilur verðmæti eftir á
almannafæri færðu þau ekki bætt.
// Ef tjónið er af völdum eðlilegs slits, ófullnægjandi
viðhalds eða framleiðslugalla fæst það ekki bætt.
// Tjón sem verður af völdum þjófnaðar úr ólæstum
híbýlum, bílum, tjöldum eða fellihýsum fæst ekki bætt.
Við sumum spurningum fást bara engin svör.
Óhöpp henda okkur og við því er ekkert að gera.
En þú getur brugðist við strax með því að tryggja hjá tryggingarfélagi sem gefur þér skýr
svör og leggur áherslu á hraðvirkan frágang tjónamála.
Ef gleraugun þín brotna í hita leiksins er gott að vera vel tryggður. Innbúskaskó TM bætir
tjón á hlutum sem ekki fást bættir með Fjölskyldutryggingu. Vertu við öllu búinn og
bættu Innbúskaskóinu við Fjölskyldutryggingu TM.
Það tekur enga stund að ganga frá því.
Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á.
Hringdu í síma 515 2000 eða farðu áwww.tryggingamidstodin.is og fáðu skýr svör.
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
TM
I
28
60
5
11
/2
00
5
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt tæplega fertugan karl-
mann í 18 mánaða fangelsi fyrir al-
varlegar hótanir í garð barnsmóður
sinnar og fjölskyldu hennar, fyrir að
leggja til lögreglumanna með flug-
beittum hnífi og fyrir skemmdar-
verk. Í dómnum segir m.a. að atlag-
an að öðrum lögreglumanninum hafi
verið sérstaklega hættuleg og tilvilj-
un hafi ráðið því að ekki hlytist mikið
líkamstjón af.
Stórhættuleg atlaga
að mati héraðsdóms
Maðurinn á tvö börn með barns-
móður sinni. Í dómnum kemur fram
að þau slitu samvistum árið 1993 og
hefur konan og fjölskylda hennar
síðan orðið fyrir miklu ónæði af völd-
um mannsins. Einnig kemur fram í
dómnum að maðurinn er með geð-
hvarfasýki, drekkur stundum ótæpi-
lega þrátt fyrir fyrirmæli lækna um
hið gagnstæða og ofnotar kvíðastill-
andi lyf. Hann hefur greinst með
persónuleikaröskun og geldur fyrir
þungt höfuðhögg sem hann hlaut í
bílslysi árið 1980, þá á 14 aldursári,
og fleiri áverka sem hann hefur hlot-
ið síðan. Hann var engu að síður tal-
inn sakhæfur og í bréfi frá geðlækni
segir m.a. að hann hafi brotið af sér í
skjóli þess að vera með geðhvörf en
andfélagslegur persónuleiki, höfuð-
áverki og áfengis- og fíkniefnaneysla
spiluðu meira inn í.
Lögreglumennirnir sem maðurinn
réðst að voru að handtaka hann fyrir
að kasta stórum hnullungi inn um
eldhúsglugga á íbúð bróður barns-
móður sinnar og fyrir að rispa bíl
hans. Maðurinn hafði komist inn í
íbúð sína og neitaði að hleypa lög-
reglu inn þegar hún knúði dyra. Hót-
aði hann lögreglumönnum lífláti
reyndu þeir inngöngu. Þegar lög-
reglumennirnir voru komnir inn
réðst hann að tveimur þeirra með
hnífi og náði að stinga annan þeirra
tvívegis í nárastað. Hnífurinn gekk í
gegnum hlífðarfatnað lögreglu-
mannsins og gerði gat á nærbuxur
en ekki kom skráma á húð. Í dómn-
um segir að atlagan hafi verið stór-
háskaleg enda hafi hún beinst að
svæði þar sem stórar slagæðar liggja
undir húð. Maðurinn var ennfremur
dæmdur fyrir að hóta barnsmóður
sinni lífláti með því að senda sms-
skilaboð í síma hennar og fyrir að
hóta foreldrum hennar og bróður
barsmíðum. Einnig fyrir að hóta
bróður hennar lífláti.
Símon Sigvaldason kvað upp dóm-
inn. Sigríður J. Friðjónsdóttir sótti
málið og Kristján Stefánsson hrl. var
til varnar.
18 mánaða fangelsi
fyrir árás á lögreglu-
menn og hótanir
VEGFARANDI á Raufarhöfn til-
kynnti lögreglu um helgina að reyk
legði úr lúkar mb. Ásdísar SH 300
sem bundin var við bryggju.
Slökkvilið kom fljótt á vettvang og
slökkti eldinn. Reykkafari var send-
ur niður og báturinn síðar reykræst-
ur. Einhverjar skemmdir urðu af
eldi, vatni og reyk, en hægt var að
forða stórtjóni.
Mb. Ásdís er í eigu Magnúsar Sig-
urðssonar útgerðarmanns sem
keypti bátinn í september sl. En
þess er að geta að hann var eigandi
mb. Hildar, sem sökk í Þistilfirði 18.
maí sl.
Morgunblaðið/Erlingur Thoroddsen
Eldur kviknaði í bát
sem lá við bryggju
Neskaupstaður | Rjúpnaskyttur á
ferð um Víkurheiði milli Reyðar-
fjarðar og Vöðlavíkur gengu á dög-
unum fram á hreindýrstarf sem var
illa flæktur, með horn sín og annan
afturfótinn í vír af gamalli símalínu
sem þar liggur.
Til að byrja með voru skytturnar
heldur ragar við að nálgast dýrið til
að reyna að leysa það úr prísund
sinni, enda tarfarnir voldugar
skepnur með sín stóru horn. Í róleg-
heitum nálguðust þær tarfinn sem
reyndist hinn spakasti og leyfði
þeim að losa fótinn án nokkurrar
mótspyrnu. Ekki þótti vænlegt að
losa hornin með sömu aðferðum og
var því brugðið á það ráð að draga
vírana með lagni úr hornunum.
Aldrei verður of oft brýnt fyrir
fólki að láta ekki spotta, víra og net
liggja á víðavangi á hreindýrasvæð-
um, en nokkuð er um að dýrin festi
horn sín í slíkum flækjum og drep-
ist. Að sögn skyttnanna liggja víða
ónýtar gamlar símalínur á þessu
svæði þar sem hreindýrin ganga tíð-
um.
Rjúpnaskyttur
bjarga hreindýri