Morgunblaðið - 14.11.2005, Page 10
10 MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
á morgun
Umræðan
Daglegt
málþing
þjóðarinnar
ÚRSLITIN í prófkjöri Framsókn-
arflokksins í Kópavogi vegna bæj-
arstjórnarkosninganna næsta vor
eru bindandi fyrir efstu sex sæti
listans þar sem þau skiptust jafnt á
milli kvenna og karla. Niðurstaða
prófkjörsins telst aðeins bindandi ef
jafnt kynjahlutfall er í sex efstu
sætunum.
Ómar náði fyrsta sæti
Gríðarlega spenna ríkti þegar at-
kvæði voru talin á laugardagskvöld.
Ómar Stefánsson varð í 1. sæti en
keppinautur hans, Samúel Örn Erl-
ingsson, fékk rúmlega 70 færri at-
kvæði í efsta sætið og hafnaði í 2.
sæti. Una María Óskarsdóttir, sem
einnig bauð sig fram í 1. sæti, hafn-
aði í 3. sæti en aðeins munaði átta
atkvæðum á henni og Samúel Erni í
2. sætið. Í fjórða sæti varð Linda
Bentsdóttir en hún hlaut 56 færri
atkvæði en Una María í 3. sætið.
Linda hlaut hins vegar flest atkvæði
í prófkjörinu í heild en Samúel Örn
næstflest. Líkt og þeir sem lentu of-
ar á listanum hafði Linda boðið sig
fram í 1. sætið.
Í kosningunum 2003 fékk Fram-
sóknarflokkurinn þrjá menn kjörna
í bæjarstjórn. Af núverandi bæjar-
fulltrúum flokksins gaf aðeins Ómar
Stefánsson kost á sér í prófkjörinu.
Þrír varabæjarfulltrúar voru í kjöri
og var Una María sú eina af þeim
sem hlaut brautargengi í eitt af sex
efstu sætunum.
Þetta var í fyrsta skipti sem
Framsóknarflokkurinn heldur opið
prófkjör. Alls greiddu 2.556 manns
atkvæði í prófkjörinu, 2.450 atkvæði
voru gild en 106 ógild. Í kosning-
unum 2003 greiddu 3.776 Kópa-
vogsbúar flokknum atkvæði sitt,
rúmlega 1.200 fleiri en tóku þátt í
prófkjörinu.
$123
12
4312
'$$&
'$
&
(//
-.0
++5
-0-
6/,
0/
./
-5.
)+
//
)5
/,
+)
),
!"
#$%#&
%
#&
' (%
")
4
& *
&
7
8
3
9
%4
"
*
$
: ;:
4';%<
&1
##'
= !
!3
*
> #'
&1 *
A
3
A
(B
-B
+B
)B
/B
6B
5B
.B
0B
(,B
((B
(-B
(+B
()B
(B 2
(B3-B
2
(B+B
2
(B)B
2
(B/B
2
(B6B
2
$
$!%
$
$
!
&!
#
%
%#$
#
&&
$
%
%
$#
!&
(66
-5.
-/5
+6)
(55
+,(
-0,
(((
5+
5)
(-6
65
.,
.6
%#
'&
'#&
%
!
#
#
&
#
(5+
(0-
-(.
++5
(0(
+--
(/+
(()
(-/
0(
(+/
(+)
(5+
0-
'&
'!$!
'!$
'!
#!
$!
$&
$
!%!
!
$%
%
(+(
--(
(/.
--(
(/)
+,,
(5+
(+6
-)5
(+/
(/-
(65
(,/
(/,
'
'$#
'$%
'&!
'!
#&
&$
$%
&
$
!
!&
(-(
()0
()/
(5,
(-(
-50
-),
(+-
-+)
().
(..
(5-
(60
(.-
'
'#!
'&$!
'%
'!#
$&
#%
#!!
&&&
&
$ #
$&!
$$
-B 2 +B 2 )B 2 /B 2 6B 2
Jafnt kynjahlutfall
í sex efstu sætunum
2.556 manns greiddu atkvæði í prófkjöri Framsóknar-
flokksins í Kópavogi. Ómar Stefánsson varð efstur
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ÓMAR Stefánsson bæjarfulltrúi, sem var kosinn í 1.
sæti í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi á laug-
ardag, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að
hann væri að sjálfsögðu himinlifandi með árangur
sinn og þá góðu þátttöku sem var í prófkjörinu.
„Þetta tókst frábærlega, það tóku tæplega 2.600
manns þátt í þessu sem er ævintýralegt. Að mitt í
umræðunni um að Framsóknarflokkurinn sé í and-
arslitrunum í Reykjavík skulum við í Kópavogi fá
þessa gríðarlegu þátttöku.“
Aðspurður sagði hann að að sjálfsögðu hefði verið
mikið um smölun, það segði sig sjálft, og allir frambjóðendur hefðu ver-
ið duglegir við hana. Það hefði bara gert prófkjörið skemmtilegra. Það
væri þó ekki hægt að gera ráð fyrir að allir sem tóku þátt í prófkjörinu
myndu kjósa Framsóknarflokkinn í næstu kosningum. Það væri þó svo
að mun fleiri hefðu kosið flokkinn í kosningum 2003 en tóku þátt í próf-
kjörinu. Stefnan væri sett á að halda þremur fulltrúum og sjá til hvort
hægt væri að ná einum manni inn til viðbótar. „Þetta er mjög fram-
bærilegur listi og ég hlakka til að fara í kosningarnar,“ sagði Ómar
Stefánsson.
Ómar Stefánsson
Þátttakan í próf-
kjörinu ævintýraleg
„ÞAÐ er ljóst
að ég náði ekki
takmarki mínu,
ég ætlaði að
verða efstur,“
sagði Samúel
Örn Erlingsson
sem hafnaði í 2.
sæti í prófkjöri
framsóknar-
manna. Hann
sagðist þó ekki geta annað en verið
ánægður með úrslitin. Framan af
hefði hnífsegg skilið hann og Ómar
Stefánsson að í baráttunni um 1.
sætið og á endanum aðeins munað
rúmlega 70 atkvæðum. „Að sjálf-
sögðu óska ég Ómari til hamingju
með glæsilegan sigur,“ sagði hann
Sjálfur gæti hann í sjálfu sér vel
við unað að halda 2. sætinu því
endasprettur Unu Maríu Ósk-
arsdóttur, eins og hann kom fram í
talningu atkvæða, hefði verið með
ólíkindum og í raun væri útkoma
fjögurra efstu í prófkjörinu glæsi-
leg.
Samúel Örn sagði að það hefði
háð sér að hann hefði í sjálfu sér
ekki haft bakland í flokknum þeg-
ar hann bauð sig fram en reitt sig
á almennt fylgi og góð tengsl við
bæjarbúa. Að sjálfsögðu hefði ver-
ið smölun og keppinautur hans um
1. sætið verið mjög duglegur í
henni. Það hefði unnið með Ómari
að hann væri sitjandi bæjarfulltrúi,
fyrrum varabæjarfulltrúi og lengi
starfað innan flokksins, auk þess
sem hann væri starfsmaður bæj-
arins.
Aðspurður sagði Samúel Örn að
eðlilegt væri að flokkurinn stefndi
að því að ná fjórum bæjarfulltrú-
um enda væri listinn gríðar-
sterkur.
Samúel Örn Erlingsson
„Ætlaði
mér að verða
efstur“
„ÞETTA er
sterkur listi,
maður er í
stjórnmálum til
að hafa áhrif
og starfa af
hugsjón. Ef
það velst gott
fólk á listann
þá á það að
vera gott fyrir
Framsóknarflokkinn sem hér hef-
ur staðið í eldlínunni,“ sagði Una
María Óskarsdóttir, varabæj-
arfulltrúi sem lenti í 3. sæti í próf-
kjöri flokksins á laugardag. „Ég
stefndi á 1. sætið en þetta var nið-
urstaðan.“
Hún sagði að prófkjörið hefði
farið drengilega fram og góður
andi ríkt milli frambjóðenda. „Það
er alltaf gott því þá er miklu auð-
veldara að byrja að starfa saman
aftur. Það er mikill kostur og
styrkir listann enn meira,“ sagði
hún.
Þau sem lentu í fjórum efstu
sætunum stefndu öll að efsta sæti
listans. Una María sagði að í ljósi
fráfalls Sigurðar Geirdals, sem
var oddviti framsóknarmanna, og
að Hansína Björgvinsdóttir sem
var í 2. sæti fyrir síðustu kosn-
ingar ákvað að gefa ekki kost á
sér, hefði verið eðlilegt að margir
hefðu sett stefnuna á 1. sætið.
Una María Óskarsdóttir
Baráttan fyrir
prófkjörið drengileg
SIGURÐUR Eggerz
Þorkelsson, fyrrver-
andi skólastjóri
Gagnfræðaskólans í
Keflavík, lést í Kefla-
vík 11. nóvember síð-
astliðinn.
Sigurður fæddist
20. nóvember árið
1940. Hann lauk stúd-
entsprófi frá stærð-
fræðideild Mennta-
skólans í Reykjavík
árið 1960, hóf þá nám
í verkfræði en tók síð-
ar kennarapróf, flutt-
ist til Keflavíkur og
hóf kennslu við Gagnfræðaskólann
þar. Kennsla og skólastjórn varð
því lífsstarf hans. Sig-
urður varð skólastjóri
Gagnfræðaskólans í
Keflavík (síðar Holta-
skóla) árið 1976 og
gegndi hann því starfi
fram til ársins 2003.
Hann sat um tíma í
bæjarstjórn fyrir
Framsóknarflokkinn í
Keflavík og gegndi
mörgum trúnaðarstörf-
um fyrir flokkinn.
Eftirlifandi eigin-
kona Sigurðar er Hild-
ur Harðardóttir, kenn-
ari, og hann lætur eftir
sig þrjú börn, þau Melkorku, Þor-
kötlu og Þorkel Snorra.
Andlát
SIGURÐUR E.
ÞORKELSSON