Morgunblaðið - 14.11.2005, Side 14
14 MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Amman. AFP. | Yfirvöld í Jórdaníu
sögðu í gær, að þau hefðu hand-
tekið íraska konu, sem hefði ætlað
að taka þátt í og fylgja manni sín-
um í dauðann í hryðjuverkaárás-
unum í Amman, höfuðborg lands-
ins, á miðvikudag í síðustu viku.
Marwan Moasher, aðstoðarfor-
sætisráðherra Jórdaníu, sagði á
blaðamannafundi, að handtaka kon-
unnar væri mikill áfangi í rannsókn
málsins en í sjálfsmorðsárásunum,
sem gerðar voru á þrjú hótel,
týndu 57 menn lífi og meira en 100
særðust.
Moasher sagði, að konan, Sajida
Mubarak al-Rishawi, og maður
hennar, Ali Hussein al-Shammari,
hefðu verið í fjögurra manna, írösk-
um hópi en hinir tveir voru Raw-
wad Jasem Muhammed Abed og
Safa Mohammed Ali. Hefðu þau
hjónin tekið leigubíl á Radisson
SAS-hótelið og hefði Rishawi verið
uppáklædd eins og hún ætlaði að
taka þátt í brúðkaupsveislu, sem
þar fór fram.
Uppáklædd og
með sprengjubelti
„Þau fóru inn í hótelið og þar
reyndi Rishawi að sprengja sig
upp. Það tókst þó ekki og þá
neyddi maður hennar hana til að
forða sér burt og sprengdi síðan
sjálfan sig upp,“ sagði Moasher.
Sagði hann, að Rishawi hefði verið
með sprengjubelti um sig miðja og
mikið af kúlum úr kúlulegum til að
valda sem mestu manntjóni.
Moasher sagði, að bróðir Rishawi
væri náinn samstarfsmaður Jórd-
anans Abu Musab al-Zarqawis,
æðsta manns al-Qaeda-hryðju-
verkasamtakanna í Írak, en þau
stóðu á bak við hermdarverkin í
Amman.
Abdullah II., konungur Jórdaníu,
sagði í gær, að hingað til hefði
gengið vel að uppræta jórdanskar
hryðjuverkasellur og þess vegna
hefði Zarqawi notast við útlend-
inga. Við því yrði brugðist af
hörku.
Yfirlýsing al-Qaeda
kom upp um Rishawi
Það var raunar yfirlýsing al-
Qaeda um ábyrgð á árásunum, sem
varð til þess, að Rishawi var hand-
tekin, en í henni sagði, að „písl-
arvottarnir“, árásarmennirnir,
hefðu verið fjórir. Þá vissi jórd-
anska leyniþjónustan um þrjá og
herti því leitina að þeim fjórða, sem
reyndist vera Rishawi.
Vonast er til, að Rishawi geti
gefið upplýsingar um starfsemi al-
Qaeda í Írak og jafnvel um dval-
arstað Zarqawis. Jórdanskir emb-
ættismenn óttast hins vegar, að
Zarqawi bregðist við handtökunni
með fleiri árásum í landinu og gegn
hagsmunum Jórdaníu erlendis.
Handtóku íraska konu
í hryðjuverkahópnum
Fór með manni sínum á SAS-hótelið í Amman en sprengjurnar sprungu ekki
Reuters
Sajida al-Rishawi kom fram í jórdanska sjónvarpinu í gær og játaði, að hún
hefði reynt að fremja hryðjuverk. Sýndi hún hvernig hún hefði fest á sig
sprengjubeltið, sem ekki sprakk.
VÍSINDAMENN í Víetnam
héldu því fram í gær, að ban-
væna fuglaflensuveiran hefði
stökkbreyst og ætti nú auðveld-
ara með það en áður að fjölga
sér í spendýrum. Þetta hefur þó
ekki verið staðfest af Alþjóða-
heilbrigðisstofnuninni, WHO.
Frá þessu var skýrt í víet-
namska netdagblaðinu vnex-
press og vitnað í því sambandi í
Cao Bao Van, yfirmann sam-
eindalíffræðideildar Pasteur-
stofnunarinnar í Víetnam, en
þar fara fram rannsóknir á
fuglaflensunni. Sagði hann, að
24 sýni af veirunni úr hænsnum
og mönnum sýndu, að hún hefði
breyst.
Van sagði, að eggjahvítuefni á
yfirborði veirunnar hefðu breyst
en þær breytingar geta leitt til
þess, að hún fari að berast á milli
manna og verði að faraldri. Þá
hefði einnig orðið breyting á ein-
um arfbera veirunnar, PB2, en
talið er, að hann framleiði hvata,
sem örvi hýsilinn til að framleiða
fleiri veirur.
Ekki kom fram við rannsókn-
ina, að veiran bærist auðveldleg-
ar en áður milli manna en hins
vegar hefur hún nú meira mót-
stöðuafl en áður gegn lyfjunum
Amatadine og Rimantadine.
Banvæna fuglaflensuveiran,
H5N1, hefur fundist í níu af 64
héruðum Víetnams og hafa alls
92 menn smitast. Þar af eru 42
látnir.
Segja
H5N1-
veiruna
stökk-
breytta
London. AFP. | Læknar í Bretlandi
hafa hvatt mann nokkurn, Andrew
Stimpson að nafni, til að gefa sig
fram svo unnt sé að gera á honum
fleiri tilraunir og sanna, að það sé
rétt, að hann sé fyrsti maður í heimi
til að vinna bug á HIV-veirunni.
Veldur hún alnæmi eins og kunnugt
er.
Stimpson greindist HIV-jákvæð-
ur í ágúst 2002 en við athugun 14
mánuðum síðar virtist veiran vera
horfin úr líkama hans. Sagði Stimp-
son í viðtali við tvö bresk dagblöð, að
hann hlyti að njóta sérstakrar bless-
unar fyrst hann hefði „læknast“ og
bauðst til að vinna með læknum að
rannsókn á þessum gleðilega at-
burði.
„Fyrir skömmu horfðist ég í augu
við dauðann en nú hef ég kvatt hann
að sinni,“ sagði Stimpson í viðtali við
News of the World.
Læknar við Chelsea og West-
minster-sjúkrahúsið í London, sem
meðhöndluðu Stimpson, höfðu samt
allan fyrirvara á í gær og vildu ekki
staðfesta, að hann væri með öllu laus
við veiruna.
Talsmaður sjúkrahússins stað-
festi hins vegar, að fyrri niðurstaðan
hefði verið jákvæð en sú síðari nei-
kvæð. Hefði það komið öllum mjög á
óvart og því hefði Stimpson verið
beðinn að koma í frekari rannsókn
en það hefði hann ekki viljað enn.
Merkileg tíðindi ef rétt eru
Dagblaðið The Mail on Sunday
sagði í gær, að vitað væri um tvö til-
felli þar sem manneskja hefði fyrst
greinst jákvæð en síðan neikvæð en í
báðum tilfellunum léki grunur á, að
blóðsýni hefðu ruglast.
Doktor George Kinghorn, alnæm-
issérfræðingur við Royal Hallam-
shire-sjúkrahúsið í Sheffield, sagði í
gær, að hefði Stimpson í raun losnað
við veiruna, væru það mikil og
merkileg tíðindi.
„Ef við getum komist að því hvað
gerst hefur í líkama Stimpsons, þá
gæti það hjálpað okkur í baráttunni
við sjúkdóminn,“ sagði Kinghorn.
Virðist hafa
unnið bug á
HIV-veirunni
Læknar hafa þó allan fyrirvara
á og vilja meiri rannsóknir
ÞRIÐJA alþjóðlega maraþonhlaupið
í Beirút í Líbanon fór fram í gær og
bar Kenýamaðurinn Francis Kamau
sigur úr býtum á 2 klst., 19 mínútum
og 20 sekúndum. Í öðru sæti varð
Eþíópíumaðurinn Eshetu Bekele á
18 sekúndum lakari tíma. Meira en
17.000 manns frá 77 löndum tóku
þátt í hlaupinu en í fyrra voru kepp-
endur 11.000 frá 66 löndum.
Maraþon í Beirútborg
Kaíró. AFP. | Hugsanlegt er, að meira
en 30.000 erlendir hermenn verði
kallaðir heim frá Írak fyrir mitt
næsta ár. Kom þetta í gær fram hjá
Muwaffaq Rubaie, þjóðaröryggis-
ráðgjafa Íraksstjórnar, er hann var
staddur í Kaíró í Egyptalandi.
„Um mitt næsta ár verða meira en
30.000 erlendir hermenn fluttir frá
Írak,“ sagði Rubaie eftir fund með
Hosni Mubarak, forseta Egypta-
lands. „Við vonum, að fyrir árslok
verði 60.000 hermenn farnir heim og
verði undir 100.000 að tölu á árinu
2007.“
Nokkru áður en Rubaie lýsti
þessu yfir, sagði Jalal Talabani, for-
seti Íraks, í viðtali við bresku sjón-
varpsstöðina ITV1, að Bretar ættu
að geta flutt sinn her frá Írak fyrir
lok næsta árs. Talabani sagði hins
vegar, að tafarlaus brottflutningur
erlendra herja frá landinu myndi
enda með ósköpum.
John Reid, varnarmálaráðherra
Bretlands, sagði í viðtali við BBC,
breska ríkisútvarpið, í gær, að vel
væri hugsanlegt að byrja brottflutn-
ing breska herliðsins á næsta ári og
undir það tók Sir Mike Jackson, yf-
irmaður breska hersins.
Fækkað í
erlendum
her í Írak?