Morgunblaðið - 14.11.2005, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 17
DAGLEGT LÍF | HEILSA
Umbo›s- og sölua›ili
sími: 551 9239
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
RAUTT EÐAL GINSENG
Skerpir athygli - eykur þol
Virkar m.a. gegn: Einbeitingarskorti,
streitu, þreytu og afkastarýrnun
Einnig gott fyrir aldraða!
www.ginseng.is
S-kóreska ríkið leggur sérstaka rækt við að
viðhalda gæðum og orðspori Rauðs
eðalginsengs.
Eingöngu eru notaðar sérvaldar 6 ára
gamlar rætur í besta gæðaflokki.
Kjörlendi er frátekið fyrir Rautt Ginseng.
Jörðin er hvíld í 10 ár eftir uppskeru til að
ná upp fyrri frjósemi.
Vinnslan er mun vandasamari en með henni nást eftirfarandi markmið:
1. Meiri virkni.
2. Mun meiri andoxunarefni.
3. Minni líkur á aukaverkunum.
4. Meiri stöðugleiki og mun lengra geymsluþol eða 10 ár samanborið
við 3ja ára geymsluþol hvíts ginsengs.
Það er óþarfi að
eldast um aldur fram
Líkamlegt þrek, úthald,
vær svefn og léttari lund.
Fríhöfnin
· Árangur í samræmi við gæði.
· Formúla og vinnsla
sem þú getur treyst.
www.celsus.is
Ég held ég geti viðurkenntþað að ég er nokkuð dug-leg að hreyfa mig og er
alltaf á fartinni. Þótt við konur telj-
um okkur gjarnan vera fitt og flott-
ar er maður ekki tvítugur lengur
þannig að regluleg hreyfing er
bráðnauðsynleg til að við getum
haldið okkur í góðu formi og and-
lega hliðin skipir ekki síður máli en
sú líkamlega,“ segir Margrét Krist-
mannsdóttir, sem er mjög svo önn-
um kafin kona, en segist þó gera
sér fyllilega grein fyrir því að
hreyfingin verði að vera ofarlega á
forgangslistanum til að láta sér líða
vel, andlega jafnt sem líkamlega.
Margrét starfar sem fram-
kvæmdastjóri Pfaff-Borgarljósa og
er auk þess formaður FKA, félags
kvenna í atvinnurekstri, og vara-
formaður FÍS, félags íslenskra
stórkaupmanna. Hún er einnig eig-
inkona og tveggja barna móðir,
þrettán ára stráks og tíu ára
stelpu.
Þegar Margrét er spurð nánar út
í hreyfinguna svarar hún því til að
hún fari nokkuð reglulega í rækt-
ina og svo út að ganga með
hundana sína, Mána og Fróða, þess
á milli.
Ræktin þrisvar í viku
„Ég byrjaði á því að kaupa mér
þriggja mánaða kort í World Class í
Laugum og stóð mig afskaplega
vel. Keypti mér síðan árskort, sem
rennur út í janúar næstkomandi og
verður örugglega endurnýjað þeg-
ar þar að kemur. Það er engin
spurning.“
Hve oft ferðu og hvernig stund-
arðu hreyfinguna?
„Sko, markmiðið er að fara í
ræktina þrisvar í viku, mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga. Sumar
vikur gengur planið mjög vel upp,
en stundum mæti ég tvisvar í viku,
en afar sjaldan bara einu sinni í
viku. Það er oftast ekki mikið átak
að hafa sig af stað. Ég nota morgn-
ana í þetta. Fer alltaf á morgnana
áður en ég fer í vinnuna. Annars
myndi ég aldrei fara. Ég verð að
byrja daginn á þessu. Ég kem börn-
unum í skólann klukkan átta og fer
síðan að púla og lyfta. Venjulega er
ég inni í tækjasalnum í fjörutíu
mínútur og svo þarf maður auðvit-
að að „sjæna“ sig fyrir daginn.
Þetta er algjörlega nauðsynlegt
fyrir líkama og sál.“
Margrét segist ekki mæla með
því að taka sér langt frí frá líkams-
ræktinni í einu. „Það er voðalega
hættulegt að taka sér gott sumarfrí
frá ræktinni. Ég stundaði þetta til
dæmis ekkert í júlí og ágúst í sum-
ar og var alveg svakalega lengi að
koma mér í gírinn á ný í haust,“
segir Margrét, sem er 43 ára göm-
ul.
Hundarnir með í vinnuna
Heimilishundarnir Máni og Fróði
þurfa líka sína hreyfingu og er það
alfarið hlutverk húsmóðurinnar að
fara með þá út í labbitúra oft í viku.
„Þessir félagar mínir fylgja mér
reyndar allan daginn. Þeir bíða
stilltir úti í bíl á meðan ég er í rækt-
inni og fara svo með mér í vinnuna.
Hundarnir eru auðvitað áhugamál
fjölskyldunnar allrar þótt ég sé sú
sem sinni þeim. Ætli mér sé ekki
óhætt að segja að göngutúrar með
hundana teljist að meðaltali vera
fjórir til fimm á viku. Hundarnir
þola það að fara ekki út á hverjum
degi þannig að ég er ekkert að pína
mig í kulda og trekki.“
HREYFINGIN|Lyftir og púlar í ræktinni og labbar þess á milli
Morgunblaðið/Ásdís
Margrét Kristmannsdóttir með hundana sína Mána og Fróða, sem fylgja henni allan daginn.
Bráðnauðsynlegt
fyrir líkama og sál
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111