Morgunblaðið - 14.11.2005, Qupperneq 18
18 MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | HEILSA
!"#$%&'()* +++,-.$-/-,%
Opið laugard. 11-16
Sunnudaga 13-16
Vandaðar hillusamstæður
verð frá kr. 166.500.-
Hillusamstæða verð kr. 189.000.-
Bolli Bjarnason, húðsjúk-dómalæknir hjá Útlits-lækningu, segir að aloevera vörur þurfi ekki að
vera ekta bara vegna þess að það
standi á pakkningunni: „Mesti
lækningamátturinn er sagður vera í
vörum með milli 10.000–20.000 fjöl-
sykrur á lítra. Sé IASC viðurkenn-
ingarmerki á pakkningunni segir
það að varan hafi verið metin og
samþykkt af alþjóðlegri aloa vera
vísindanefnd (International Aloe
Science Council) í Bandaríkjunum.
Þangað geta allir framleiðendur
sent vörur sínar til gæðamats.“
Bolli segir að þó að jurtin hafi
verið notuð til lækninga í aldaraðir
sé verkun hennar enn rannsókn-
arefni: „Í dag er hlaup jurtarinnar
meðal annars notað í lækninga- og
snyrtivörur. Það hefur verið notað
til að minnka bólgur og græða ým-
iss konar sár eins og brunasár, sár
í munnholi, fótasár og jafnvel
magasár. Menn hafa gengið svo
langt að reyna það til meðferðar á
alnæmi og hafa þar velt fyrir sér
mögulegum áhrifum á mótstöðu við
veirunni. Einnig hafa
menn beitt því gegn
krabbameini. Með því að
borða það er því haldið fram
að það geti læknað margt svo
sem þvagsýrugigt, hægðatregðu og
liðbólgur.
Aloe vera hlaupi hefur verið beitt
í tannlækningum til að minnka
verk og flýta græðslu sára eftir að-
gerðir. Dýrin hafa einnig fengið að
kynnast því en þar hefur það verið
notað við ofnæmi, sýkingum, bólgu
og kláða. Í snyrtivörugeiranum er
notkun hlaupsins mikil aðallega
vegna rakagjafar en það hefur
einnig verið notað í rakstursvörur
til að græða skurði. Nú virðist vera
í tísku að nota það í matvörur eins
og jógúrt, te og ýmsa heilsu-
drykki.“
Er ekki meðferðarúrræði
Bolli segir að enginn einn þáttur
sé hinn eini sanni í aloe vera hlaup-
inu og því velti menn vöngum yfir
hvort lækningamáttur plöntunnar
sé til kominn vegna samverkunar
eins eða fleiri þátta og þá sérlega
milli fjölsykra og þátta sem miðli
hinni lífrænu virkni hlaupsins.
Hann segir einnig að enn í dag
til dæmis að það sé
D-vítamín í því en
aðrir ekki.
„Fyrir græðslu
vefja byggist ein
tilgátan á því að
það sé hið háa
vatnshlutfall eða 96%
eða hærra sem hjálpi
græðslunni með því að
gera vatn aðgengi-
legt fyrir vefina
án þess að
loka fyrir
súrefn-
isflæði til
þeirra. Þessi kenning gæti skýrt
út fljótleg kælandi áhrif sem
hlaupið hefur á bruna en ekki lang-
tímaáhrif á græðslu vefja. Sumir
hafa sagt græðsluna vera tilkomna
vegna sútunarsýru og fjölsykrulíks
efnis. Margir líta á aloe vera ein-
göngu sem rakagjafa sem nýtist
þannig vel í snyrtivörur en margir
hafa velt fyrir sér bólgueyðandi
áhrifum, aðallega af fjölsykrum og
sykurpróteini.
Einnig hafa menn látið í veðri
vaka að jurtin geti haft verkjastill-
andi áhrif og hafa menn velt þar
fyrir sér áhrifum salisýlats, mjólk-
ursýru og málminum magnesíum.
Salisylöt eru þekkt að því að vera
verkjastillandi en margir hafa ekki
viljað sleppa þeirri hugmynd að
magnesíum geti einnig verkað
verkjastillandi með eða án sal-
isýlatsins,“ segir Bolli og tekur
fram að aloe vera hlaupið sé aldrei
meðferðarúrræði sem megi seinka
viðeigandi meðferð læknis.
HEILSA | Ágreiningur um hvað sé
nákvæmlega í aloe vera hlaupi
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Úrvalið af vörum með aloe vera hefur aukist gríð-
arlega og má nefna krem og hlaup, pillur, drykki,
jógúrt, skyr, sjampó, salernispappír og sængur.
Bolli Bjarnason húðsjúkdómalæknir sagði Ing-
veldi Geirsdóttur að þótt jurtin hefði verið
notuð í aldaraðir væri hún enn rannsóknarefni.
Ekki alltaf
ekta aloe vera
Morgunblaðið/Ásdís
Aloa vera er notað í ýmsar
matvörur, m.a. í jógúrt.
greini menn á hvað nákvæmlega sé
í aloe vera hlaupinu, að sumir trúi
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
ERFITT getur reynst að koma lík-
amsrækt fyrir í önn dagsins. Á
heilsuvef MSNBC eru gefin ráð
um hvernig hægt er að halda sér í
formi þrátt fyrir langan vinnudag.
Í fyrsta lagi þarf maður að
passa upp á að borða og drekka
hollt og vel yfir daginn, að sögn
næringarfræðingsins Molly Kim-
ball sem vitnað er í. Vökvaskortur
og orkuleysi getur látið mann
finna fyrir þreytu og lítilli löngun
til að fara út að hlaupa eða í
ræktina.
Kimball mælir með að borða á
þriggja tíma fresti, og passa að
máltíðin innihaldi eitthvert pró-
tein og heilkorn.
Síðdegishressing fyrir æfingu
er sérstaklega mikilvæg. Þá er
hægt að fá sér heilhveitihrökk-
brauð með osti, ferskan ávöxt og
kotasælu, epli eða blöndu af hnet-
um og þurrkuðum ávöxtum.
Sjö til níu tíma svefn
Svefn er einnig mikilvægur og
til að forðast síðdegissyfju verður
maður að fá 7-9 tíma svefn á
nóttu. Sófinn getur freistað þegar
komið er heim úr vinnunni en
gott ráð við því er að fara beint í
ræktina úr vinnunni en stoppa
ekki heima á leiðinni. Kimball
mælir jafnvel með að skipta um
föt í vinnunni áður en lagt er af
stað svo að maður freistist ekki til
að fara bara heim.
Gott er að hafa félaga í hreyf-
ingunni, t.d. vinnufélaga, sem
hjálpar manni að standa við þjálf-
unaráætlun. Einnig er æskilegt að
stefna að einhverju, þ.e. að
styrkja líkamann fyrir eitthvert
tilefni eða að lækka blóðþrýsting-
inn.Morgunblaðið/Kristján
Síðdegishressing fyrir leikfimina
HREYFING