Morgunblaðið - 14.11.2005, Page 32
32 MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn einbeitir sér að því að reyna
að ganga á eldi (í óeiginlegri merkingu)
en aðrir standa hjá af ótta við að brenna
á sér fæturna. Sýndu þeim hvernig á að
bera sig að: hratt og með stóran skammt
af trú í farteskinu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Óljós og langsótt tilfinning rýfur einbeit-
ingu nautsins fyrir hádegi, sinntu ein-
földum verkefnum á meðan. Þú áttar þig
á sérstöðu þinni í kvöld. Saga þín hjálpar
öðrum, það er ef þú deilir henni með
öðrum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburanum finnst hann upphafinn
vegna útsýnisins, eða finnst honum út-
sýnið gott af því hann er upphafinn? Það
er sama hvort er, lundin hefur lyfst og
það gildir. Hjálpaðu öðrum til að ná því
sama.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Dulinn og óformlegur samskiptamáti
sem gengur yfirleitt gagnvart ástvinum
og vinum klikkar allt í einu. Tjáskipti
verða að vera skýr, nákvæm og nógu ít-
arleg svo ekkert fari milli mála.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Dramatík er hluti af lífi allra en ein-
hverra hluta vegna er meira um hana
hjá ljóninu en öðrum. Í dag verður hún
ekki til neins nema að spilla vinnu-
friðnum, haltu þig frá sápuóper-
uuppákomum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Bara það að sækjast eftir stöðu gerir
hana raunverulega í þínum augum. Nú
þarftu bara að ákveða hverju þú vilt
fórna í staðinn. Finnst eitthvað sem þú
myndir afþakka?
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin syngur með fuglunum, ekki af því
hún hafi eitthvað til þess að syngja um,
eins og söngfuglarnir, heldur af því að
hún hefur það ekki. Hamingja og sköp-
unargleði eru einfaldlega hennar sanna
eðli.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Aðstæður í vinnunni eru flóknar. Það
leysir ekki málin að vera í vinnunni á
hverjum degi. Stundum er nóg að
spyrna í botn til þess að verða fremstur,
stundum kemst maður lengra með því
að vera kyrr. Það á við í dag.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hvað ef hugmyndir þínar um sjálfan þig
hafa ekki verið nógu miklar? Ástvinir
renna stoðum undir það sem þú trúir.
Þannig að ef þú segist ekki geta eða geta
eitthvað, staðfesta þeir það.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er nóg að breyta einu litlu atriði í
daglegum háttum til þess að breyta hlut-
unum til batnaðar. Hvernig væri að búa
til og hafa grænmetissúpu í kvöldmat-
inn, í stað hinnar hefðbundnu óhollustu?
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Fólk sem þú vinnur með álítur að þú
hafir hæfileika á einu sviði. Þú ert lík-
lega sá eini sem veist að þú hefur líka
hæfileika á allt öðru sviði – sem verð-
skuldar nánari athugun.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þaggaðu efasemdir um einhvern niður
innra með þér, annars yfirtekur viðkom-
andi einkalíf þitt. Vinurinn sem um ræð-
ir er ekki vammlaus, en ekki heldur svo
slæmur. Vertu hlutlaus, í bili að minnsta
kosti.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Fullt tungl í nauti er yf-
irvofandi. Orka nautsins
beinist að líkamlegum
þörfum, en orka sporðdrekans, sem einn-
ig kemur við sögu, andlegum. Er hægt að
fullnægja báðum með sömu athöfninni.
Leitum að tengingunni milli þess sem við
viljum og þess sem við þörfnumst.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 högni, 4 lít-
ilfjörlega persónu, 7
kompa, 8 furða, 9 tvennd,
11 efnislítið, 13 orka, 14
játa, 15 listi, 17 dægur,
20 espa, 22 kipps, 23
þreytuna, 24 ok, 25
hindri.
Lóðrétt | 1 hestur, 2
ólyfjan, 3 lund, 4 durgur,
5 smákvikindi, 6 líkams-
hlutirnir, 10 útskagi, 12
greina frá, 13 ambátt, 15
kalviður, 16 hirða um, 18
viljugt, 19 nes, 20 óska
eftir, 21 bára.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fólskuleg, 8 leiti, 9 dugur, 10 pár, 11 suddi, 13
annan, 15 holls, 18 hrúts, 21 ein, 22 lofti, 23 alveg, 24
dapurlegt.
Lóðrétt: 2 ómild, 3 skipi, 4 undra, 5 engin, 6 glás, 7 hrín,
12 dul, 14 nár, 15 hali, 16 lyfta, 17 seigu, 18 hnall, 19 út-
veg, 20 segl.
Myndlist
BANANANANAS | Hildigunnur Birg-
isdóttir – Hring eftir hring III, lífið er lott-
erí. Til 26. nóv.
Byggðasafn Árnesinga | Á Washington–
Eyju og Grasjurtir. Til nóvemberloka.
Café Cultura | Róbert Stefánsson. Myndir
teknar á Hróarskeldu 2004. Síðustu sýn-
ingardagar.
Café Karolína | Aðalheiður S. Eysteins-
dóttir sýnir ný verk og lágmyndir úr tré.
Til 2. des.
Energia | Kolbrún Róberts. Allt fram
streymir. 13 abstrakt olíumálverk. Út nóv-
embermánuð.
Gallerí + | Haraldur Ingi Haraldsson til 27.
nóvember.
Gallerí 101 | Haraldur Jónsson sýnir til
26. nóv. Opið fim.–lau. 14 til 17.
Gallerí I8 | Þór Vigfússon sýnir til 23.
des.
Gallerí Lind | Ólöf Björg Björnsdóttir er
listamaður nóvembermánaðar.
Gallerí Sævars Karls | Guðrún Nielsen.
Skúlptúr „Tehús og teikningar“ til 17. nóv.
Gel Gallerí | Jóhannes Rúnar til 25. nóv.
GUK+ | Hartmut Stockter til 16. janúar.
Hafnarborg | Jón Laxdal til 31. des.
Hrafnista Hafnarfirði | Guðfinna Eugenía
Magnúsdóttir sýnir málverk í Menning-
arsalnum, 1. hæð, til 6. des.
Ís-café | Bjarney Sighvatsdóttir til 15. nóv.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýn-
inguna „Týnda fiðrildið“ til loka apríl
2006. sjá: www.oligjohannsson.com.
Kling og Bang gallerí | Örn J. Auðarson –
Miðgarður – Blárauður – Afgirtur reitur.
Opið fim–sun. kl. 14–18. Til 4. des.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýn-
ing.
Listasafnið á Akureyri | Helgi Þorgils
Friðjónsson til 23. des.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist II
– Um rými og frásögn. Sýning á verkum 13
ísl. samtímalistamanna. Til 12. febrúar
2006.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Tími
Romanov-ættarinnar. Til 4. des.
Listasafn Reykjanesbæjar | Húbert Nói,
til 4. des.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning. Til
2006.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Bernd Koberling til 22. janúar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Guð-
rún Vera Hjartardóttir til 30. des. Erró til
23. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá
fæðingu málarans. Til 19. mars.
Saltfisksetur Íslands | Hermann Árnason
– Himinn haf og allt þar á milli. Til 20. nóv.
Opið alla daga frá kl. 11–18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Hraun-
blóm til 27. nóv.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Lars Tun-
björk til 20. nóv.
Listasmiðjan Þórsmörk Neskaupstað | 10
listakonur frá Neskaupstað sýna á Egils-
staðaflugvelli. Sýningin stendur fram jan-
úar 2006.
Næsti Bar | Sýning um Gamla bíó. Hug-
myndir listamanna. Til miðs nóvember.
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða
Frægð | Þorsteinn Otti Jónsson, sýnir
„Börn Palestínu“.
Þjóðarbókhlaðan | Brynjólfur Sveinsson
til áramóta.
Þjóðmenningarhúsið | Í veitingastofu sýn-
ir Hjörtur Hjartarson málverk.
Þjóðminjasafn Íslands | Tvær ljós-
myndasýningar. Konungsheimsóknin 1907
og Mannlíf á Eskifirði 1941–1961. Til 27.
nóv.
Þrastalundur, Grímsnesi | Reynir Þor-
grímsson.
Leiklist
Loftkastalinn | Stúdentaleikhúsið sýnir
„Blóðberg“ eftir P.T. Andersson í Loftkast-
alanum kl. 20. Agnar Jón Egilsson sér um
leikstjórn og leikgerð. Blóðberg fjallar um
hvernig líf ólíkra einstaklinga tvinnast
saman og hvernig örlögin og tilviljanir
vefja fléttur sem við öll erum þræðir í.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga
handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja-
safnið – svona var það, Fyrirheitna landið,
íslenskt bókband. Hægt er að panta leið-
sögn fyrir hópa. Veitingastofan Matur og
menning býður alhliða hádegis- og kaffi-
matseðil.
Þjóðmenningarhúsið | Sýnt er íslenskt
bókband gert með gamla laginu, jafnframt
nútímabókband og nokkur verk frá nýaf-
staðinni alþjóðlegri bókbandskeppni. Sýn-
ingin er afar glæsileg og ber stöðu hand-
verksins fagurt vitni. Félagsskapur
bókbindara sem kallar sig JAM-hópinn
setti sýninguna upp.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni
Íslands eru fjölbreyttar og vandaðar sýn-
ingar auk safnbúðar og kaffihúss. Opið
alla daga vikunnar nema mánudaga kl. 11–
17.
Fréttir
Aðalþjónustuskrifstofa Al–Anon | Opinn
afmælis- og kynningarfundur AL-ANON
samtakanna verður haldinn föstudaginn,
18. nóv. kl. 20.30, í Háteigskirkju. Kaffi-
spjall að fundi loknum. www.al-anon.is.
Fundir
Kristilegt félag heilbrigðisstétta | Fé-
lagsfundur kl. 20 á Háaleitisbraut 58–60.
Laura Scheving Thorsteinson fjallar um
efnið: Bænin í lífi mínu.
Fyrirlestrar
Alliance Francaise | Gilles Elkaïm heldur
fyrirlestur í Öskju (náttúrufræðahús HÍ),
stofu 132 17. okt. kl. 17.15–19.15. Fyrirlest-
urinn er í boði Alliance française og
franska sendiráðsins á Íslandi. Elkaïm er
eðlisfræðingur og þekktur fyrir könn-
unarleiðangra sína. Árið 2000 lagði hann
einn í 3 ára ferð frá Norðurhöfða í Noregi
til Beringssunds (12.000 km) á hunda-
sleða og kajak. Á fyrirlestrinum mun hann
m.a. sýna kvikmynd sem hann tók á þessu
ferðalagi og kynna hana. Fyrirlesturinn fer
fram á ensku.
Kennaraháskóli Íslands | Á degi íslenskr-
ar tungu verður dagskrá um skáldskap,
málfar og málstefnu í Bratta, Kennarahá-
skóla Íslands við Stakkahlíð, 16. nóv. kl.
16.15–17.15. Dagskráin verður send beint
út á vefsjónvarpi KHÍ http://sjon-
varp.khi.is.
Námskeið
Norræna félagið | Nordklúbburinn heldur
byrjendanámskeið í rússnesku 7., 14. og
21. nóv. kl 19–20.45. Námskeiðin eru
ókeypis fyrir félaga Norræna félagsins,
nýir félagar eru velkomnir. Ársgjaldið er
950 kr. fyrir fólk undir 27 ára. Skráning
fyrir 7. nóv. í síma 551 0165.
Uppákomur
Bókasafn Reykjanesbæjar | Blásið til nor-
rænnar bókasafnaviku. Slökkt verður á
rafmagnsljósunum kl. 18 í upphafi nor-
rænnar bókasafnaviku. Texti ársins verður
lesinn við kertaljós. The Angels syngur
norræna söngva. Árni Sigfússon bæj-
arstjóri fræðir gesti um Víkingaheima við
Fitjar. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111