Morgunblaðið - 14.11.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 33
Stóra svið
Salka Valka
Fi 17/11 kl. 20 Fi 24/11 kl. 20
Fö 25/11 kl. 20 Su 4/12 kl. 20
Su 11/12 kl. 20
Woyzeck
Fö 18/11 kl. 20 Lau 19/11 kl. 20
Lau 26/11 kl. 21 Su 27/11 kl. 21
Mi 30/11 kl. 20 UPPS Fi 1/12 kl. 20
Fö 2/12 kl. 20 Fi 8/12 kl. 20
Kalli á þakinu
Su 20/11 kl. 14 L au 26/11 kl. 14
Su 27/11 kl. 14 Su 4/12 kl. 14
Su 11/12 kl. 14 Má 26/12 kl. 14
Id - HAUST
Wonderland, Critic ´s Choice?
og Pocket Ocean
Su 20/11 kl. 20 Mi 23/11 kl. 20
Aðeins þessar sýningar!
Nýja svið/Litla svið
Lífsins tré
Fö 18/11 kl. 20 Lau 19/11 kl. 20
Fö 25/11 kl. 20 Lau 26/11 kl. 20
Lau 3/12 kl. 20
Alveg brilljant skilnaður
Su 20/11 kl. 20 UPPSELT
Su 27/11 kl. 20 UPPSELT
Má 28/11 kl. 20 UPPSELT
SU 4/12 kl. 20 AUKAS.
Síðustu sýningar!
Manntafl
Fi 17/11 kl. 20 Fi 24/11 kl. 20
GJAFAKORT
GEFÐU EFTIRMINNILEGA
UPPLIFUN
GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA
ENDALAUST
BENJAMIN
BRITTEN
th
e turn of the screwef t i r
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
PARS PRO TOTO - DANSVERKIÐ VON
BOREALIS ENSABMLE - ÁRÓRA BOREALIS
Von, dansverk eftir Láru Stefánsdóttur, framleitt af Pars Pro Toto &
Áróra Bórealis, brot úr nýju verki á gömlum merg, framleitt af Borealis Ensemble.
Tvö ný sviðsverk frumsýnd í Íslensku óperunni;
Laugardaginn 19. nóv. kl. 20 & Sunnudaginn 20. nóv. kl. 17
Ath! Aðeins þessar tvær sýningar
Miðaverð kr. 2.000.-
18. SÝN. FÖS. 18. NÓV. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
19. SÝN. LAU. 19. NÓV. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
20. SÝN. FÖS. 25. NÓV. kl. 20 nokkur sæti
21. SÝN. LAU. 26. NÓV. kl. 20 nokkur sæti
22. SÝN. FÖS. 02. DES. kl. 20
23. SÝN. LAU. 03. DES. kl. 20
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
Fullkomið brúðkaup kl. 20
Fim. 17.nóv. Örfá sæti AUKASÝNING
Fös. 18.nóv UPPSELT
Lau. 19.nóv kl. 19 UPPSELT
Lau. 19.nóv kl. 22 AUKASÝN. UPPSELT
Sun. 20.nóv AUKASÝNING UPPSELT
Fim. 17.nóv. AUKASÝNING
Fim. 24.nóv. AUKASÝNING
Fös. 25.nóv. Örfá sæti
Lau. 26.nóv. kl. 19 Örfá sæti
Lau. 26.nóv. kl. 22 Nokkur sæti Í sölu núna
2/12, 3/12, 9/12, 10/12, 16/12, 17/12
Á AKUREYRI á dögunum voru sett-
ar upp tvær litlar sýningar sem ekki
tengdust hvor annarri á neinn hátt
nema hvað þær kölluðust skemmti-
lega á bæði sjónrænt séð og hvað
varðaði markmið þeirra. Hér var þó
ekki um tilviljun að ræða heldur voru
þær báðar afsprengi tíðarandans og
tilheyra þeirri grein samtímalista
sem beina sjónum sínum fyrst og
fremst að skynjun og upplifun áhorf-
andans, gerir hana beinlínis að inni-
haldi verksins. Á yfirborðinu segir
list af þessum toga engar sögur, hún
birtir engar myndir heldur lætur
áhorfandanum það eftir að skapa sín-
ar eigin myndir. Hún er tvíbent þessi
list, hún stýrir áhorfandanum á mjög
ákveðinn og úthugsaðan máta en um
leið stígur hún skref til baka og segir
eins og barn í leik; Nú þú, nú átt þú að
gera. Þessi tegund listar tengist
gjarnan áhuga listamanna á and-
legum málefnum ýmislegum og upp-
lifun áhorfandans tengist jafnvel
trúarlegri upplifun. Það má tengja
þessa list í margar áttir, trúarlegum
málverkum, birtu steindra glugga,
Stonehenge, sýrutrippum hippatím-
ans, leiðslukenndum textum rithöf-
unda fyrr og nú, svo mætti áfram
halda. Hún hefur ekkert ákveðið útlit,
en hér á landi þekkjum við best inn-
setningar Ólafs Elíassonar sem eru
mjög í anda upplifunarstefnunnar ef
svo má kalla fyrirbærið. En líka
mætti tala um tónlist Sigur Rósar og
almennt séð allt það í umhverfinu
sem fær okkur til þess að loka á vissa
þætti og fókusera á aðra.
Lýsing á slíkri upplifun fylgdi inn-
setningu Elínar Hansdóttur í Gallerí
Boxi á Akureyri, en þar vitnar hún í
Grundvallarþætti sálfræðinnar eftir
William James þar sem hann út-
skýrir hvað gerist þegar við beinum
athygli okkar að einhverju ákveðnu.
Innsetning Elínar fólst í því að mála
Boxið, sem er klefi á að giska tveir
sinnum tveir, svart að innan. Í loftinu
var kastari sem varpaði ljóshring á
gólfið. Inni í Boxinu lifnuðu síðan um-
hverfishljóð Gilsins á Akureyri við –
furðu mikil umferð. Og hugsanir,
þessar hugsanir áhorfandans sem
fylla þá umgjörð sem verkið er inni-
haldi. Þetta verk minnir á tankaæðið
sem gekk yfir fyrir þónokkrum árum,
en þá var hægt að kaupa sér aðgang
að einskonar baði inni í hljóðeinöngr-
uðum tönkum. Vatnið hafði hátt salt-
innihald sem auðveldaði flotið, þetta
átti að minna á móðurkvið og gekk út
á að skapa ákveðna upplifun, jafnvel
ofskynjanir. Þetta fyrirbæri er án efa
enn til. Einnig minnist ég þess að
boðið hafi verið upp á einhvers konar
andlega hreinsun í indíánatjaldi uppi í
Blesugróf fyrir ekki mjög löngu,
margt fleira í þessum dúr er í boði í
samfélaginu.
Svarti kubburinn hennar Elínar
kallast síðan skemmtilega á við lita-
innsetningu Hlyns Hallssonar í Há-
skólabókasafni Akureyrar, þar sem
hann hefur komið fyrir lituðu plasti í
rúðum lestrarhornsins og litar þann-
ig skynjun áhorfandans af umhverfi
sínu. En hér er þó í raun annars kon-
ar hugsun á ferð. Í list sinni leitast
Hlynur, líkt og Elín, ávallt við að
vekja athygli áhorfandans á upplifun
sinni af umhverfinu, en nálgun hans
inniheldur ekki þá leiðslukenndu til-
finningu sem innsetningar Elínar
geta gert. Hann virkjar hugsun
áhorfandans en fær hann ekki til að
gleyma sér í innra sjálfi. Verk Hlyns
fær okkur til þess að horfa út en inn-
setning Elínar beinir sjónum okkar
að innra manni. Hlynur er samfélags-
lega þenkjandi í verkum sínum en El-
ín setur upplifun einstaklingsins í for-
grunninn. Ef til vill er hér líka um
kynslóðabil að ræða. Sama má segja
um mismunandi viðhorf Sykurmol-
anna og Sigur Rósar. Molarnir voru
hluti af fyrirbærinu Smekkleysa sem
veitti t.a.m. Smekkleysuverðlaun
þeim sem höfðu verið óvenju smekk-
lausir í framkomu sinni í samfélaginu.
Sigur Rós blandar sér hins vegar
varla í málefni samfélagsins nema að
afar takmörkuðu leyti. Það eru til
margar leiðir til þess að breyta heim-
inum, sumir ganga í klaustur, aðrir í
stjórnmálaflokk.
Verk þeirra Elínar og Hlyns eru
lýsandi dæmi um þá einlægu ósk
margra samtímalistamanna að ná
sambandi við áhorfendur og breyta
heiminum. Þau vita að án okkar
áhorfenda hafa verk þeirra takmark-
aðan tilgang.
Nú þú
Frá sýningu Hlyns Hallssonar á bókasafni Háskólans á Akureyri.
Frá sýningu Elínar Hansdóttur í
Galleríi Boxi.
MYNDLIST
Gallerí Box, Akureyri
Elín Hansdóttir
Sýningunni er lokið.
Bókasafn Háskólans á Akureyri
Hlynur Hallsson
Sýningunni er lokið.
Ragna Sigurðardóttir
Árlegir styrktartónleikar á veg-
um Vina Indlands verða haldnir
í Salnum, tónlistarhúsi Kópa-
vogs, þriðjudaginn 15. nóvember
nk. kl. 20.
Fram kemur fjölmargt af ást-
sælasta tónlistarfólki landsins;
Karlakórinn Fóstbræður undir
stjórn Árna Harðarsonar,
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleik-
ari leikur verk eftir Paganini og
Sarasate, undirleikari er Geritt
Schuille píanóleikari. Þá mun
Hörður Torfason trúbador taka
nokkur lög og stórsöngvararnir
Elín Ósk Óskarsdóttir sópr-
ansöngkona og Jóhann Friðgeir
Valdimarsson tenórsöngvari
syngja við undirleik Geritt
Schuille píanóleikara og Örn
Árnason syngur við undirleik
Jónasar Þóris organleikara. Að
lokum mun Melkorka Frey-
steinsdóttir, félagi í Vinum Ind-
lands, segja frá ferð sinni til
Indlands í sumar í máli og
myndum.
Félagið Vinir Indlands er
þáttur í starfi Húmanistahreyf-
ingarinnar og markmið þess er
að styðja við menntun barna í
Suður-Indlandi, m.a. með fjár-
söfnun af ýmsu tagi. Styrkt-
artónleikarnir eru stærsta fjár-
öflunarleið félagsins og því
mikilvægir enda ræðst félagið
nú í sitt stærsta verkefni til
þessa, en það er bygging heim-
ilis fyrir munaðarlaus börn sem
misstu foreldra sína í flóðunum í
desember síðastliðnum.
Allir listamenn gefa vinnu
sína til styrktar málefninu og
rennur söfnunarféð því óskipt til
verkefna í Tamil Naduhéraði í
Indlandi.
Miðaverð er 2000 kr. Hægt er
að nálgast miða í Salnum Kópa-
vogi (s. 5700 400) eða á netinu
www.salurinn.is eða hjá félögum
í Vinum Indlands.
Styrktartónleikar
Vina Indlands
Elín Ósk
Óskarsdóttir
Jóhann Friðgeir
Valdimarsson
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Ýmislegt áhugavert
fyrir safnara
WWW.NOWFOODS.COM
Góð heilsa gulli betri