Morgunblaðið - 14.11.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 37
KEFLAVÍKÁLFABAKKI KRINGLAN
Óskarsverðlaunhafinn Al
Pacino er í essinu sínu og
hefur aldrei verið betri.
Enn eitt snilldarverkið frá Tim Burton (“Charlie and the
ChocolateFactory”). Með hinum eina sanna Johnny Depp. Ein
frumlegasta mynd ársins.En auk hans fara þau Matthew McConaughey („Sahara“)
og Rene Russo („The Thomas Crown Affair“)
á kostum í kraftmikilli mynd
M.M.J. / Kvikmyndir.comRoger Ebert
Kvikmyndir.is
S.V. / MBL
DOOM kl. 8
PERFECT CATCH kl. 8
TWO FOR THE.. kl.8 - 10 B.i.12
FLIGHT PLAN kl. 10
MUST LOVE DOGS kl. 8
AKUREYRI
CHICKEN LITTLE Ensku tali kl.6 - 8 -10.10
LITLI KJÚLLIN Ísl. tal kl. 6
TWO FOR THE MONEY kl. 8 - 10.30 B.i. 12
KISS KISS BANG BANG kl. 8 - 10.10 B.i. 16
WALLACE & GROMIT Ísl. tal kl. 6
Val Kilmer
KynLíf.
MoRð.
DulúÐ.
Velkomin í
partýið.
Ó.Ö.H / DV
L.I.B. / topp5.is
H.J. / Mbl.
Robert Downey Jr.
Er frábær staður til að uppgötva sjálfan sig upp á nýtt.
ELIZABETH TOWN kl. 5.30 - 8 - 10.30
ELIZABETH TOWN VIP kl. 8 - 10.30
Litli Kjúllin Ísl. tal kl. 4 - 6
Litli Kjúllin Ísl. tal VIP kl. 4 - 6
CHICKEN LITTLE Ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10.10
TWO FOR THE MONEY kl. 8 - 10.30 B.i. 12 ára.
CORPSE BRIDE kl. 4 - 6 - 8 - 10.10
KISS KISS BANG BANG kl. 10.30 B.i. 16 ára.
FLIGHT PLAN kl. 8.15 B.i. 12 ára.
WALLACE AND GROMIT Ísl. tal kl. 4
THE 40 YEAR OLD VIRGIN kl. 6 B.i. 14 ára.
DV
topp5.is
S.V. / MBL
Ný kvikmyNd frá leikstjóra “jerry maguire” og “almost famous”
með þeim heitu stjörNum orlaNdo Bloom (“lord of the riNgs”)
og kirsteN duNst (“spider-maN”).
ÁRLEGIR Frostrósatónleikar verða haldn-
ir hinn 10. desember í Laugardalshöll.
Reiknað er með að tónleikarnir verði þeir
stærstu í sögu jólatónleika hér á landi en
rúmlega 150 manna kór, saman settur af
Karlakór Fóstbræðra, Léttsveit Reykjavík-
ur, Kammer- og Stúlknakór Bústaðakirkju
ásamt tuttugu manna stórhljómsveit, mun
leika undir söng íslensku Frostrósanna,
þeirra Ragnhildar Gísladóttur, Margrétar
Eirar, Guðrúnar Árnýjar, Védísar Her-
varar, Regínu Óskar, Völu Guðna og Jó-
hönnu Vigdísar.
Í fréttatilkynningu segir að þetta sé í
síðasta sinn sem Frostrósatónleikar með ís-
lensku dívunum verða haldnir og því hafi
sérstaklega verið vandað til verksins í ár
og nýuppgerð Laugardalshöllin meðal ann-
ars færð í stórglæsilegan jólabúning
Uppselt hefur verið á alla Frostrósa-
tónleika undanfarin ár.
Miðasala hefst með lokaðri forsölu föstu-
daginn 18. nóvember en almenn miðasala
hefst laugardaginn 19. nóvember.
Hluti þeirra söngkvenna sem skipa Frostrós-
ir: Regína Ósk, Margrét Eir, Jóhanna Vigdís,
Védís Hervör og Guðrún Árný.
Tónlist | Frostrósatónleikar í
Laugardalshöll
Dívurnar sjö
RAGNAR Bjarnason gerir það ekki enda-
sleppt í söngbransanum, enda í toppformi
sem marka má af umsvifum við útgáfu á
hljómplötum að undanförnu, sem hlotið hafa
góðar undirtektir. Í tilefni af sjötugsafmæli
hans í fyrrahaust kom út platan Vertu ekki
að horfa, og nú í vor gaf Ragnar út plötuna
Með hangandi hendi, en báðar hafa þessar
hljómplötur náð góðri útbreiðslu og selst vel.
Fyrir það voru Ragnari afhentar platínu- og
gullplötur í gyllta salnum á Hótel Borg síð-
astliðið föstudagskvöld.
Í tilefni dagsins ákvað Ragnar að efna til
tónleika á Borginni og var húsfyllir og góð
stemning svo sem vænta mátti. Valið á Hótel
Borg var ekki tilviljun því Raggi ólst upp í
næsta húsi, faðir hans Bjarni Böðvarsson
stjórnaði hljómsveit á Borginni í mörg ár og
sjálfur söng Raggi þar með hljómsveit Björns
R. Einarssonar á sínum tíma. Það var því ljóst
að Raggi var á heimavelli þetta kvöld.
Hljómsveitina skipuðu gamlir félagar
Ragga úr KK sextettinum, þeir Árni Schev-
ing á bassa, Jón Páll Bjarnason gítar og Guð-
mundur Steingrímsson á trommur. Auk
þeirra var Þorgeir Ástvaldsson við flygilinn,
en hann var jafnframt kynnir. Guðrún Gunn-
arsdóttir söngkona og Bergþór Pálsson
óperusöngvari stigu einnig á svið og lífgaði
það mjög upp á stemninguna í salnum, sem
óhætt er að segja að hafi verið afar góð. Tón-
leikagestir sungu með í flestum laganna enda
lagavalið kunnuglegt og spannaði feril Ragn-
ars frá upphafi til þessa dags.
Í lok tónleikanna afhentu Þorgeir Ást-
valdsson og Ómar Ragnarsson söngvaranum
platínu- og gullplöturnar, en Ómar hafði
samið íslenskan texta við lagið Wéll meet
again, undir heitinu Hittumst á ný og tók sal-
urinn hressilega undir í laginu.
Það skemmtu sér allir vel í salnum og mikil stemning myndaðist.
Ragnar Bjarnason kom fram ásamt fríðu föruneyti í til-
efni þess að honum voru veittar gull- og platínuplötur.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Helga Guðjónsdóttir, Hilmar Jónsson, Guðrún Bergmann og Andreas Bergmann.
Glatt á
hjalla hjá
Ragga