Fréttablaðið - 01.11.2007, Page 44
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
„Ég er bara orðin spennt að vakna á sjö-
tugsaldri,“ segir Gunnhildur Hrólfs-
dóttir rithöfundur glettin þegar orð er
haft á sextugsafmælinu hennar í dag.
Hún er líka eins og unglamb og stund-
ar bæði starf og háskólanám. „Ég byrj-
aði í sagnfræði við Háskóla Íslands í
haust. Sem rithöfundur hef ég sótt í
þjóðlegan fróðleik enda hef ég áhuga
á að miðla sögunni áfram til barna og
unglinga og með því að kynna mér
sagnfræði tel ég mig eiga enn betri
möguleika á því,“ segir hún. „Gaman?
Mér finnst ég ganga um gleðinnar dyr
á hverjum degi! Ég lauk stúdentsprófi
fyrir fáum árum og í því námi dreifð-
ist orkan í mörg fög sem ég vissi að ég
þyrfti aldrei að nota. En þetta er allt
í sama farvegi og innan míns áhuga-
sviðs.“ Auk háskólanámsins vinnur
Gunnhildur skrifstofuvinnu hálfan
daginn. „Þetta er óneitanlega strangt
því það er mikill lestur í sambandi við
námið,“ viðurkennir hún.
Tæp þrjátíu ár eru síðan Gunnhild-
ur hóf skriftir. Eftir hana liggur fjöldi
bóka fyrir börn og unglinga enda
hefur hún hlotið viðurkenningar fyrir
framlag sitt til barnamenningar. Einn-
ig hefur hún skrifað eina fullorðins-
sögu auk leikrita bæði fyrir svið og út-
varp. Hún kveðst eiga handrit að sögu-
legri barnabók sem bíði útgáfu en hins
vegar sé kafli eftir hana í nýrri bók
sem nefnist Skemmtilegt athafnafólk.
Þar skrifi hún um Marentzu Poulsen.
„Það var mjög skemmtileg samvinna,“
segir Gunnhildur.
Hún er fædd og uppalin í Vestmanna-
eyjum og bjó þar fram að Heimaeyjar-
gosi 1973 en æskuslóðir hennar fóru
allar undir hraun. „Á næsta ári eru liðin
35 ár frá því gosið hófst en sá dagur er
mér ljóslifandi,“ segir hún og kveðst
hafa brennandi áhuga á að koma upp
safni í Eyjum sem geymdi fróðleik um
þennan horfna hluta bæjarins, íbúana
sem þar bjuggu og að sjálfsögðu gosið.
„Ég sé fyrir mér byggingu sem líktist
hraunhelli með líkönum, sögum, mynd-
um og sýndarveruleika,“ segir hún og
lýsir hugmynd sonar hennar að að-
komunni að safninu. „Þar sem hraunið
var stöðvað með dælum væri við hæfi
að hafa nokkurs konar brunaslöngur
að framanverðu sem dældu stöðugt
á hraunvegginn. Gosminjasafnið er
minn draumur og margra annarra og
ég vona að hann verði að veruleika.“
„Það er í raun mun auð-
veldara að skrifa um hluti
sem eru erfiðir. Hver vill
heyra um það hvað þú ert
hamingjusamur?“
Samkynhneigð í sjónvarpi
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Guðbrandur Jónsson
áður til heimilis að Langholtsvegi 2,
Reykjavík,
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn
27. október. Útförin verður gerð frá Fossvogskirkju
föstudaginn 2. nóvember kl. 15.00.
Elín Jósefsdóttir
Jóna Sesselja Guðbrandsdóttir Ásbjörn Einarsson
Einar Jón Ásbjörnsson Elísabet Reykdal
Jóhannesdóttir
Elín Björk Ásbjörnsdóttir Gísli Jóhann Hallsson
og barnabarnabörn.
Minningarathöfn um ástkæran eiginmann
minn, föður, tengdaföður, afa, og langafa
Sigmann Tryggvason
frá Hrísey,
sem lést að Hrafnistu Reykjavík sunnudaginn
28. október, verður haldin í Fossvogskirkju í dag
1. nóvember kl. 11.00. Jarðsungið verður frá Hríseyjar-
kirkju þriðjudaginn 6. nóvember kl. 14.00.
Lilja Sigurðardóttir
Sigurður Sigmannsson Henný Pétursdóttir
Hanna Sigmannsdóttir Jakob Þorsteinsson
Margrét Sigmannsdóttir Guðmundur Skarphéðinsson
Tryggvi Sigmannsson
Gísli Viðar Sigmannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ása Eiríksdóttir
frá Dvergsstöðum, til heimilis að
Helgamagrastræti 6 Akureyri,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Seli föstudaginn
26. október, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 5. nóvember kl. 13.30.
Ragnar Skjóldal
Kristín S. Ragnarsdóttir Jakob Jóhannesson
Ragnar S. Ragnarsson Inga Úlfsdóttir
barnabörn og langömmustrákarnir.
Ástkær fósturfaðir okkar og bróðir,
Sigurður Alexandersson
frá Suðureyri við Súgandafjörð,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
föstudaginn 2. nóvember kl. 13.00.
Hilmar Harðarson
Jóhannes Þór Hilmarsson
Jóhann Alexandersson
Björgvin Alexandersson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gylfi Kristjánsson
blaðamaður, Steinahlíð 5h, Akureyri,
lést þann 29. október. Útförin verður auglýst síðar.
Birna Blöndal, börn, tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabarn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, bróðir og frændi,
Erlingur Bertelsson,
Unnarbraut 13b, Seltjarnarnesi,
lést á heimili sínu, mánudaginn 29. október. Jarðarför
verður auglýst síðar.
Marga Thome, Katrín Erlingsdóttir, Kristján Freyr
Einarsson, Erlingur Snær Kristjánsson
og aðrir aðstandendur.
Elskulegi eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, fósturfaðir, afi og bróðir,
Sveinn Ingvi Þorsteinsson
Deildarási 1,
lést 26. október á Krabbameinsdeildinni við
Hringbraut. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju,
föstudaginn 2. nóvember kl. 15.00. Blóm og kransar
afþakkað, en þeim sem vilja minnast hans er beint á
minningarsjóð Karitas S. 551 5606 milli 9 og 11 eða
Krabbameinsfélagið.
Jónína Kristín Vilhjálmsdóttir
Þröstur Sveinsson Guðrún Eiríksdóttir
Óla Laufey Sveinsdóttir
Þorsteinn Sveinsson Keelie Walker
Jóna Denný Sveinsdóttir
Vilhjálmur Örn Halldórsson Svanfríður Ásgeirsdóttir
systkini og barnabörn.
Við sendum innilegar þakkir til allra
þeirra, sem veittu okkur huggun með
samúð og vinarhug við andlát elskulegs
föður okkar, unnusta, sonar, bróður og
mágs,
Markúsar Kristjánssonar,
Holmestrand í Noregi.
Kristján Fannar Markússon
Svanur Bergsteinn Markússon
Eyjólfur Bragi Lárusson
Nina Askerud
Kristján Þorkelsson Sigríður Markúsdóttir
Kristján Sigurður Kristjánsson Súsanna Þorgrímsdóttir
Rafn Áskell Kristjánsson Sue Kristjánsson
Alma Sif Kristjánsdóttir Kristmundur Þór Ólafsson