Tíminn - 10.05.1986, Síða 2
Ferjubakkamálið:
Dauðsfallið
enn óupplýst
Rannsókn heldur áfram á því
hvernig dauða Gunnhildar Gunn-
arsdóttur bar að. Eins og fram
hefur komið í fréttum fannst hún
látin á heimili sínu að Ferjubakka
10 á þriðjudagsmorguninn og er
ekki enn vitað með hvaða hætti
það bar að. Vettvangsrannsókn
er nú lokið og yíirheyslur yfir
eiginmanni hennar halda áfram.
Pá er beðið eftir niðurstöðum
krufningar, en endanleg krufn-
ingarskýrsla ætti að fást í næstu
viku.
- gse
Akureyri:
Eldur
íVör
Eldur kom upp í plötusmiðju
skipasmíðastöðvarinnar Vör á Ak-
ureyri um klukkan korter fyrir eitt í
gærdag. Allir starfsmenn plötu-
smiðjunnar voru í hádegismat en
starfsmaður á trésmíðaverkstæði
sem er sambyggt smiðjunni varð var
eldsins og lét slökkviliið vita. Þegar
það kom að húsinu hafði eldurinn
læst sig í þakið og var það rofið til
að ráða niðurlögum eldsins. Slökkvi-
starfið gekk greiðlega og var því
lokið um hálf þrjú. Litlu mátti muna
að verr færi því í plötusmiðjunni
voru gashylki sem tókst að fjarlægja
í tíma.
Eldsupptök eru enn ókunn, en
líkur eru að því leiddar að neistar frá
rafsuðu hafi komist í eldfim efni.
Töluverðar skemmdir urðu af hita
og reyk, en tjón af eldinum er að
mestu bundið við lager plötusmiðj-
unnar.
-gse
Erfiðleikar
hraðfrystihúsanna:
i.Vel-
viljuð
athugun“
2 Tíminn
Laugardagur 10. maí 1986
Framsóknarflokkurinn:
íþróttafélögin greiði ekki
húsaleigu fyriræfingatíma
- og sitji við sama borð og nágrannasveitarfélögin
Skipstjóradeilan:
„Ofstæki
rökþrota
manna“
- segir Höskuldur
Skarphéðinsson
skipherra
„Ég hlýt að mótmæla þeim
áburði, sem þar er hafður í
frammi og vil benda á að ég hef
þau lýðréttindi að fá að vera í
stéttarfélagi og taka kjöri ef ég
er kosinn til trúnaðarstarfa fyrir
þetta félag. Undanfarna daga
hef ég eingöngu verið að vinna
að skylduverkum mínum fyrir
félagið og sem starfsmaður
Landhelgisgæslunnar hef ég
ekki boðað nein verkföll eða
neitað að vinna. Því lít ég svo á,
að þetta sé bara ofstæki rökþrota
manna,“ sagði Höskuldur
Skarphéðinsson formaður
Skipstjórafélags íslands í gær
aðspurður um viðbrögð við yfir-
lýsingu VSÍ og VMS frá því í
fyrrinótt. í yfirlýsingu vinnuveit-
enda segir, að lög hafi verið
þverbrotin þar sem Höskuldur
Skarphéðinsson, skipherra hjá
Landhelgisgæslunni, hafi verið í
forsvari fyrir Skipstjórafélaginu
í yfirstandandi deilu, en sam-
kvæmt lögunum mega starfs-
menn Gæslunnar „hvorki gera
verkfall né taka þátt í verkfalls-
boðun“. -BG
77/ hamingju - viltu giftast mér?
Ásdís Sigurðardóttir tvítug yngismær úr Fjölbrautaskóianum í Breiðholti var í fyrrakvöld. Ikosin Ungfrú Útsýn.
Myndin sýnir ívar Hauksson, sem sjálfur varð Herra Útsýn fyrir tveimur árum óska Ásdísi til hamingju, en þau
skötuhjúin opinberuðu trúlofun sína við þetta tækifæri, viðstöddum til óvæntrar ánægju. Á Útsýnarkvöldinu,
sem haldið var í Broadway, var einnig kosinn Herra Útsýn, en þann eftirsótta titil hlaut Einar Árnason 17 ára
húsasmíðanemi og vaxtarræktarmaður úr Reykjavík. (Tímamynd-Pciur)
í stefnuskrá Framsóknarflokksins
fyrir borgarstjórnarkosningarnar 31.
maí n.k. er ítarlega fjallað um
íþrótta- og æskulýðsmál. í henni
kemur fram, að Framsóknarflokkur-
inn vilji koma til móts við íþróttafé-
lögin í borginni í húsaleigumálum
með því, að framvegis þurfi þau ekki
að greiða húsaleigu fyrir æfingatíma
í íþróttasölum borgarinnar.
Er á það bent, að í nærliggjandi
sveitarfélögum þekkist það ekki, að
íþróttafélögin greiði húsaleigu fyrir
æfingatíma.
í stefnuskránni kemur einnig
fram, að Framsóknarflokkurinn vill
gera sérstakt átak í málefnum
íþróttafélaganna í Breiðholtshverf-
með starfsemi sína nánast á götunni.
Vill Framsóknarflokkurinn, að þessi
félög verði aðstoðuð sérstaklega
strax, þar sem mikið er í húfi, að
börn og unglingar í Breiðholtshverf-
um hafi sömu möguleika og jafnaldr-
ar þeirra annarsstaðar f borginni til
að stunda íþróttir í sínum eigin
hverfum.
um. Þar segir m.a.: „Ljóst er, að í
úthverfum borgarinnar, þar sem
íþróttafélög eru að hasla sér völl,
verður að gera sérstakt átak til að
koma þeim yfir byrjunarörðugleika.
Er ekki vansalaust, að í Breioholts-
hverfunum, sem nú eru fullbyggð,
búa 25 þúsund manns, með tvö
íþróttafélög, Leikni og ÍR, sem eru
Hljómtækjakaup Reykjavíkurborgar:
Gefur fjármálaráðherra
borginni 10 milljónir?
Rætt hefur verið um það innan
borgarkerfisins að sækja um niður-
fellingu á aðflutningsgjöldum vegna
hljómtækjanna umtöluðu sem
Reykjavíkurborg ákvað nýverið að
kaupa vegna afmælishátíðahald-
anna. Samkvæmt heimildum Tímans
hefur það jafnvel verið fullyrt af
hálfu embættismanna borgarinnar
að borgin muni sleppa við þessi
gjöld. Hvorki Geir Haarde aðstoð-
armaður fjármálaráðherra né Sig-
urgeir A. Jónsson yfirmaður tolla-
deildar könnuðust þó við það í gær
að slík beiðni hefði borist. Sigfús
Jónsson forstjóri Innkaupstofnunar
Reykjavíkur kvaðst heldur ekki vita
til að slík umsókn stæði til.
Niðurfelling þessara gjalda mundi
þýða 10 milljóna sparnað borgarinn-
ar, miðað við áætlaðan kostnað
vegna þessara tækjakaupa í upphafi.
Spurningin er hins vegar hvort
fjármálaráðherra er tilbúinn til þess
fyrir hönd ríkissjóðs, að gefa þessar
10 milljónir eftir.
Kaup þessara hljómtækja hafa
verið harðlega gagnrýnd af hálfu
minnihlutaflokkanna, bæði á þeim
forsendum að þau séu óhæfilega dýr
og eins vegna þess að við ákvörðun
um kaupin og þar með um meðferð
20 milljóna króna hafi verið gengið
framhjá borgarráði, en afmælis-
nefndinni falið að taka ákvörðun í
málinu. Ekki náðist í Davíð Odds-
son né Þorstein Pálsson í gær.
- fer fram segir
forsætisráðherra
Ríkisstjórnin ræðir nú hugsanlega
heimild til lántöku handa Byggða-
sjóði og Fiskveiðasjóði til þess að
koma þeim frystihúsum til hjálpar
sem eiga í hvað mestum erfiðleikum.
„Petta er í mjög velviljaðri athug-
un, því við teljum ákaflega brýnt að
koma í veg fyrir að þessi frystihús
stöðvist. Ákvörðun um þetta verður
tekin í næstu viku og ég er ákaflega
vongóður um að þessi heimild verði
veitt,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra, en hann ásamt
fjármálaráðherra og sjávarútvegs-
ráðherra funduðu um vanda frysti-
húsanna í gær og munu halda því
áfram á mánudag.
Ekki er vitað nákvæmlega hversu
mörg frystihús þyrftu að fá fyrir-
greiðslu en að sögn Steingríms gæti
verið um 12 frystihús að ræða.
Byggðastofnun vinnur nú að könnun
á fjárhag frystihúsanna.
ABS