Tíminn - 10.05.1986, Síða 19
Laugardagur 10. maí 1986 Tíminn 19
Tveir af landsliðsmönnumá Norðurlandamótinu í sumar, Sigurður Sverrisson og Jón Baldursson, spila við Björn
Eysteinsson og Guðmund Hermannsson. Það er Sigurður sem er að teygja sig í bakkann. 'iimamynd: Sverrir
ÍSAL skorar á landsliðið
Landsliðið sem fer á Norðurlanda-
mótið ætlar að verja heiður sinn
gegn úrvalsliði ÍSAL um helgina og
verður leikurinn í skólastofunum á
Loftleiðum á sunnudaginn.
Hjá íslenska álfélaginu hf. hafa
starfað og starfa ágætir bridgespilar-
ar, þar á meðal er Sigurður Sverris-
son sem er einn liðsmanna landsliðis-
ins, ÍSAL fitjaði upp á því fyrir
tveim árum að skora á landsliðið í
einvígisleik fyrir Ólympíumótið í
Seattle og „lagði á leikinn" þannig
að Bridgesamband íslands fékk fjár-
upphæð í ferðasjóð landsliðsins í
réttu hlutfalli við árangur landsliðs-
ins í einvígisleiknum. Þessi leikur
fór 17-13 fyrir landsliðið eftir tölu-
vert basl.
ÍSAL-liðið hefur í vetur spilað
einvígisleik við sveit Samvinnu-
ferða, sem ÍSAL vann og einnig
hefur ÍSAL sent sveitir á mót í
vetur, bæði í fyrirtækjakeppnina og
Flugleiðabikarinn.
Það gæti því verið spennandi að
fylgjast með leiknum á sunnudag, en
liðin verða skipuð þessum spilurum:
Landsliðið: Jón Baldursson, Sigurð-
ur Sverrisson, Þórarinn Sigþórsson,
Þorlákur Jónsson, fyrirliði er Örn
Arnþórsson.
ÍSAL: RagnarHalldórsson, Hannes
R. Jónsson, Jakob R. Möller, Stefán
Pálsson, fyrirliði Þórarinn Sófusson.
Samvinnuferðasveitinni
boðiðtil Hollands
Sveit Samvinnuferða/Landsýnar
hefur verið boðið í vikuferð til
Hollands á vegum Sporthuscentrum
og Arnarflugs um næstu mánaða-
mót. Sveitin mun búa í sumarhúsum
í Kempervennen og tekur þar þátt f
sérstöku móti sem sett hefur verið
upp fyrir sveitina, en einnig munu
landslið yngri spilara Holiands,
kvennalandslið Hollands og sterk
atvinnumannasveit spila á mótinu.
I Samvinnuferðasveitinni eru Jón
Baldursson, Sigurður Sverrisson,
Aðalsteinn Jörgensen og Valur Sig-
urðsson.
Frá Bridgefélagi Akureyrar
Halldórs-mótinu hjá Bridgefélagi Ak-
ureyrar er lokið, með sigri sveitar Harðar
Blöndal. Með honum voru: Grettir Frí-
mannsson, Þórarinn B. Jónsson og Páll
H. Jónsson.
Sveitin hafði forystu allt mótið, en
undir lokin hrelldu þeir Páls menn Páls-
sonar sigursveitina.
Halldórs-mótið er árlegt mót sem hald-
ið er til minningar um Halldór Helgason.
Útibú Landsbankans á Akureyri gaf verð-
laun til þessa móts. 17 sveitir tóku þátt í
því.
Röð efstu sveita varð annars þessi:
Hörður Blöndal ...................298
Páll Pálsson ......................294
Stefán Sveinbjörnsson .............280
Jón Stefánsson ....................278
Rögnvaldur Ólafsson ..............275
Stefán Vilhjálmsson................274
Keppnisstjóri var Albert Sigurðsson.
Þetta var síðasta reglulega keppnin hjá
félaginu á þessu starfsári, en næstu þriðju-
daga verður Opið hús í Félagsborg, þar
sem væntanlega verður gripið í spil, verði
áhugi fyrir hendi.
Bridgekeppnin að byrja
Bridgesambandið minnir á þátttoku-
tilkynningar á Bikarkeppni Bridgesam-
bands íslands. Fresturinn rennur út mið-
vikudaginn 21. maí n.k., kl 16 og sama
dag verður dregið til fyrstu umferðar.
Þátttökugjaldið er aðeins kr. 4.000 pr.
sveit, sem greiðist við upphaf keppni, til
BSÍ pósthólf 156 210 Garðabæ eða til
Ólafs Lárussonar beint.
Vakin er sérstök athygli á samþykkt
stjórnar Bridgesambandsins þess eðlis
,að sigurvegarar í þessari Bikarkeppni
öðlast rétt til þátttöku í Evrópubikar-
keppni eða sambærilegri keppni á þeim
kjörum sem Evrópusambandið býður upp
á.
Dagsetningar í keppninni eru þessar:
1. umferð skal vera lokið fyrir 18. júní
2. umferð (32 sveita úrslit) skal vera
Iokið fyrir 16. júlí
3. umferð (16 sveita úrslit) skal vera
lokið fyrir 18. ágúst
4. umferð (8 sveita úrslit) skal vera Iokið
fyrir 31. ágúst
Undanúrslit og úrslit verða svo spiluð
6. og 7. september á vegum Bridgesam-
bandsins.
Spiluð eru 40 spil í fjórum lotum í
keppninni. í undanrásum eru spiluð 48
spil í fjórum lotum og í úrslitum 64 spil
milli sveita í fjórum lotum.
Guðmundur
Hermannsson
FRÉTTASTJÓRI
Sumarbridge í Reykjavík 1986
Sumarspilamennskan í Reykjavík hefst
þriðjudaginn 20. maí n.k. að Borgartúni
18 (hús Sparisjóðs vélstjóra).
Spilað verður alla þriðjudaga og
fimmtudaga í sumar og hefst spila-
mennska að venju upp úr kl. 18 og í
síðasta lagi kl. 19.30.
Umsjónarmenn Sumarspilamennsku
verða þeir Ólafur Lárusson og Hermann
Lárusson.
Sumarspilamennska í Reykjavík er
opin öllu áhugafólki um bridge. Þar gefst
tækifæri til að grípa í spil, tvisvar í viku í
óbundinni keppni, þar sem hvert kvöld er
sjálfstæð keppni. Spilamennskan í sumar
verður aðskilin, þriðjudaga og fimmtu-
daga, þannig að í raun verða tvær keppnir
í gangi í einu.
Bridgeferð til Luxemborgar
Ferðaskrifstofan Úrval efnir til hóp-
ferðar til Luxemborgar í tengslum við hið
alþjóðlega bridgemót sem þar verður
haldið í lok júní.
Ferðaáætlun er þessi:
29. júní Flogið til Luxemborgar kl.
07:15 frá Keflavík.
29. júní Akstur frá flugvelli að Hótel
Intercontinental þar sem gist
verður meðan á mótinu
stendur.
29/6-7/7 Dvalið á Hótel Intercontinent-
al.
7. júlí Akstur frá hótelinu til flugvall-
ar.
7. júlí Flug frá Luxembourg til Kefla-
víkurkl. 15:00.
Hægt er að framlengja dvölina í Lux-
embourg og/eða taka sér bílaleigubíl
og/eða sumarhús víðsvegar í Þýskalandi
eða Frakklandi.
Verðpr.mannítvíbýli kr. 23.830,-
Verð pr. mann í einbýli kr. 32.820,-
Innifalið: Flugfar, gisting, continental
morgunverður og akstur milli flugvallar
og hótels erlendis.
Ekki innifalið: Flugvallarskattur kr. 750,-
á mann og aukagjald fyrir „buffet" morg-
unverð kr. 750,- á mann.
Bridgefélag Reykjavíkur
Tveimur spilakvöldum af þremur er
lokið í Monrad sveitakeppni. Lansliðið
heldur áfram sigurgöngunni og er
langefst. Margar sveitir berjast síðan um
annað sætið. Staða efstu sveita er þessi:
Landsliðið...........................93
Sigurður B. Þorsteinsson.............69
Uglan ...............................68
Sigtryggur Sigurðsson................65
Samaris..............................62
Keppninni og þar með vetrarstarfinu
lýkur næsta miðvikudag.
Heilsubridge
Hin árlega heilsubridge í tvímenningi
verður haldin laugardaginn 17. maí í
Domus Medica. Hefst keppnin kl. 13 og
stendur yfir til kl. 18. Þátttakaer ókeypis,
en skilyrði fyrir þátttöku er að annar eða
báðir þátttakendur vinni við heilbrigðis-
stofnun. Allir þátttakendur munu fá út-
skrift af spilunum í lok keppi. Keppnis-
stjóri verður Agnar Jörgensen og Vigfús
Pálsson sér um tölvuútreikninga. Þátttaka
tilkynnist til Sigurðar B. Þorsteinsson á
Landspítalanum s. 29000 eða Hauks Inga-
sonar hjá Delta h.f. s. 53044. Munu þeir
jafnframt hafa milligöngu um myndun
para ef óskað er. í fyrra urðu sigurvegarar
Sigurður B. Þorsteinsson og Þórður
Harðarson.
Brídgedeild Breiðfirðinga
Sl. fimmtudagskvöld var spilaður eins
kvölds tvímenningur, spilað var í tveimur
riðlum, efstu pör urðu:
Gunnar Þorkelsson-Óskar Þór Þráinsson 126
Magnús Oddsson-Sveinn Sigurgeirsson 124
Karen Vilhjálmsd.-Þorvaldur Oskarsson 123
Jóhann Jóhannsson-Kristján Sigurgeirsson 119
Baldur Ásgeirsson-Magnús Halldórsson 102
Ingibjörg Halldórsd.-Sigvaldi Þorsteinss. 100
Ólafur Ingimundars ,-Sverrir Jónsson 88
Næsta fimmtudagskvöld verður spilað
eins kvölds tvímenningur. Verður það
síðasta spilakvöldið á þessu vori. Spilað
er í Hreyfilshúsinu og hefst spilamennska
kl. 19:30.
^RARIK
Hk. N RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í eftirfarandi:
RARIK-86008: 75 stk. 25 KVA einfasa stauradreifispennar.
Opnunardagur: Þriöjudagur 10. júní 1986, kl. 14:00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi
118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuö á sama
stað aö viöstöddum þeim bjóöendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Lauga-
vegi 118,105 Reykjavík, frá og með mánudegi 12. maí 1986og kosta
kr. 300,- hvert eintak.
Reykjavík 07. maí 1986
Rafmagnsveitur ríkisins
Tveir góðir
Tveir hvolpar hressir og afar fallegir, sem fæddust
3. apríl sl. eru tilbúnir að fara á góð heimili.
Collie/bl. ísl. Upplýsingar í síma 91-26231.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd byggingardeildar ósk-
ar eftir tilboöum í fullnaðar frágang á Grand- og Selárskóla.
Innifaliö í útboöi þessu er málun, dúkalögn allar innréttingar, léttir
innveggir hreinlætistæki raflagnir loftræstilögn og fleira. Byggingarstig
er frá húsunum tilbúnum undir tréverk í fullgerð hús.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík
gegn kr. 10.000 skilatryggingu.
Tilboöin veröaopnuöásama staðfimmtudaginn22. maí nk. kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGA&'1
Fríkirkjuvagi 3 — Sími 2S800
t
Systir okkar
Sigríður Sveinbjarnardóttir
Ystaskála Vestur Eyjafjöllum
andaöist á heimili sínu 6. maí.
Útförin verur auglýst síöar.
Systkini hinnar látnu.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför
eiginkonu minnar
Sigríðar Jónsdóttur
Frá Lundi.
Gísli Brynjólfsson og aðrir aðstandendur.
+
Hugheilar þakkir fyrir auösýnda samúð og vinsemd við sviþlegt andlát
og útför eiginmanns míns, fööur okkar, sonar og bróður
Kristjáns Birnis Sigurðssonar
Ármúla
Gerður Kristinsdóttir
Sigurður Kristjánsson Sigurborg Kristjánsdóttir
Heiðar Birnir Kristjánsson Víkingur Kristjánsson
Júlía Hrönn Kristjánsdóttir
Sigurður Sveins Guðmundsson
Sóley Sigurðardóttir
Magnús Sigurðsson
Hlynur Kristjánsson
AðalheiðurTryggvadóttir
Guðmundur Sigurðsson
Heiðar Sigurösson
Ólafur G. Sigurðsson
+ Móöir okkar, fósturmóðir, tengdamóöir, amma og langamma
Ólöf Dagbjartsdóttir er lést 4. maí, verður jarðsungin frá Hagakirkju á Barðaströnd
mánudaginn 12. maí kl. 4.00 Steingrímur Friðlaugsson Dagný Þorgrímsdóttir
Ásta Þorvaldsdóttir Ármann Brynjólfsson
Bergur Þorvaldsson Ásdís Sigurðardóttir
Vigdís Þorvaldsdóttir Bragi fvarsson
Bjarni Þorvaldsson Sigurbjörg Ólafsdóttir
Guðrún Halldórsdóttir GunnarSigurðsson Þórður Marteinsson
barnabörn og barnabarnabörn