Tíminn - 17.03.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminni
Föstudagur 17. mars 1989
Föstudagur 17. mars 1989
Tíminn 11
Borðtennis:
Landsliðið utan á
heimsmeistaramótið
- BTÍ gerir mikilvægan auglýsingasamning
íslenska landsliðið í borðtennis
æfir nú af kappi fyrir heimsmeistara-
London. 1 fyrrakvöld voru síð-
ari leikirnir í 8-liða úrslitum á Evr-
ópumótunum í knattspyrnu. í Evr-
ópukeppni meistaraliða vann Steaua
Búkaresat frá Rúmeníu 5-1 sigur á
Gautaborg og komst áfram. Real
Madrid komst áfram með 2-1 sigri á
PSV Eindhoven. Þá fór AC Mílan
áfram eftir að hafa gert eina markið
í leik gegn Werder Bremen. Marco
van Basten gerði sigurmark Mílan.
Tyrkneska liðið Galatasary kom
mjög á óvart með því að gera 1-1
jafntefli við Monaco og það dugði
liðinu til þess að komast áfram í
keppninni. Liðið er fyrst tyrkneskra
liða til að komast svo langt í Evrópu-
keppni.
London. Nottingham Forest og
Newcastle gerðu jafntefli 1-1 í ensku
1. deildinni í knattspyrnu í fyrra-
kvöld. Niegel Clough skoraði úr
vítaspyrnu fyrir Forest í fyrri hálf-
leik, en Kevin Brock jafnaði fyrir
Newcastle í síðari hálfleik.
mótið, sem hefst í Dortmund í
V-Þýskalandi 29. þessa mánaðar. I
riðlakeppninni sveita eru heima-
menn V-Þjóðverjar, Brasilíumenn,
Malasíumenn og Súdanir mótherjar
íslenska liðsins. í íslenska liðinu eru
þeir Tómas Guðjónsson, Kjartan
Briem, Kristinn Már Emilsson og
Kristján Jónsson.
Landsliðið æfir nú að jafnaði 2-3
tíma á dag undir stjórn landsþjálfar-
ans Steen Kyst Hansen, en hann
hefur þjálfað landsliðið frá 1984.
Um mótherja íslands í riðlakeppn-
inni í sveitakeppni sagði Hansen að
við ættum enga möguleika gegn
V-Þjóðverjum og Brasilíumönnum
og mjög erfitt yrði við Malasíumenn
að eiga og sigurlíkur okkar væri
hverfandi. Hansen sagði að ekkert
væri um lið Súdan vitað, þeir tækju
nú þátt í heimsmeistaramóti í fyrsta
sinn. Hann sagði að þann leik ætluðu
okkar menn að vinna hvað sem það
kostaði. Ekki er vitað hverjir mót-
herjar okkar manna verða í milli-
riðli, en það ættu að verða þjóðir í
svipuðum styrkleikaflokki og okkar
menn. Landsliðsþjálfarinn sagði að
besta sæti sem ísland gæti náð á
mótinu væri 48. sætið, en líklegt væri
að sæti milli 50-60 yrði okkar hlut-
skipti. Þær þjóðir sem verða í sætun-
um fyrir ofan 48 væru mjög sterkar
og leikmenn þeirra hreinir atvinnu-
Glíma:
menn sem æfðu lágmark 5-6 tíma á
dag. Borðtennis er mjög stór íþrótt
á alþjóðamælikvarða, þótt lítið fari
fyrir henni hérlendis og Alþjóða-
borðtennissambandið hefur innan
sinna vébanda 5. fjölmennasta iðk-
endafjöldann. Alls verða 72 þjóðir
sem taka þátt í karlakeppninni á
mótinu.
I einstaklingskeppninni er ekki
ljóst hverjir mótherjar íslensku
borðtennismannanna verða, en
dregið verður í keppninni þegar
keppendur mæta á staðinn. Lands-
liðið heldur utan þann 27. þess
mánaðar. Gunnar Jóhannsson for-
maður borðtennissambandsins verð-
ur fararstjóri í ferðinni, en hann
mun sitja þing alþjóðasambandsins
og ársfund Evrópusambandsins í
ferðinni.
Auglýsingasamningur
Borðtennissambandið hefur gert
auglýsingasamning við fyrirtækið
Rönning hf. Sambandið mun aug-
lýsa fyrir fyrirtækið og fá í staðinn
mjög fullkomna myndbandsupp-
tökuvél. Að sögn Gunnars Jóhanns-
sonar formanns sambandsins, þá
hefur þá borðtennismenn lengi
dreymt um að eignast slíka vél, en
hún er mjög mikilvæg í allri þjálfun
og hjálpar mikið til við aukinn
árangur í greininni. BL
Ólafur Haukur sigradi í
Skjaldarglímu Ármanns
Glímukappinn kunni úr KR, Ólaf-
ur Haukur Ólafsson, lagði alla
London. í keppni bikarhafa
komst Sampdoria áfram á marki á
útivelli, gegn Dinamo Búkarest frá
Rúmeníu, en liðin gerðu markalaust
jafntefli í fyrrakvöld. CSKA Sofía
frá Bulgaríu sigraði Roda JC frá
Hollandi í vítaspyrnukeppni, en
báðum leikjum liðanna hefði lyktað
með 2-1 sigri heimaliðsins. Mechel- •
en frá Belgíu komst áfram með því
að sigra Frankfurt 1-0 og Barcelona
fór áfram eftir 1-0 sigur á Árhus frá
Danmörku. Fyrri leik liðanna lauk
með markalausu jafntefli.
London. Bayern Múnchen
komst áfram í UEFA-keppninni
með 2-0 sigri á Hearts frá Skotlandi.
Dynamo Dresden frá A-Þýskalandi
komst einnig áfram, en liðið vann
stórsigur, 4-0, á Victoria Búkarest
frá Rúmeníu. Þá fór Napólí áfram
eftir 3-0 sigur á Juventus, en Diego
Maradona var meðal markaskorara
Napólí í leiknum.
New York. í fyrrakvöld vann
lið San Antonio Spurs loks sigur í
NBA-deildinni í körfuknattleik, en
úrslit leikja kvöldsins urðu þessi:
Cleveland Cava.-Chicago Bulls....115-91
Philadelphia ’76ers-N.J.Nets.....100-96
Utah Jazz-Portland Trailbl.......102-95
S.A. Spurs-Milwaukee Bucks......110-108
Golden State-Dallas Mavericks .... 113-100
Miami Heat-L.A. Clippers ....... 109-103 j
keppinauta sína í Skjaldarglímu
Ármanns, sem fram fór í íþróttahúsi
Kennaraháskólans síðastliðinn laug-
ardag.
Ólafur hafði mikla yfirburði á
mótinu og keppinautar hans sáu
ekki við vel útfærðum brögðum
hans. Helgi Bjarnason KR, glímdi
til úrslita á móti Ólafi en varð að láta
í minni pokann. Ólafur lagði Helga
með vel útfærðu leggjarbragði með
vinstri fæti. Helgi hafði sótt að Ólafi
með utanfótar hælkrók með hægri
fæti, en Ólafi tókst að snúa sig út úr
bragðinu og sækja mótbragði.
Úrslit í Skjaldarglímunni urðu þessi:
1. Ólafur Haukur Ólafsson KR ... 5 vinn.
2. Helgi Bjarnason KR........4 vinn.
Glíma:
32 glímdu
um
3. Ásgeir Víglundsson KR.........2 vinn.
4. Jón B. Valsson KR............. 1 l/2v
5. Orri Björnsson KR.............1 l/2v
6. Alfons Jónsson Á..............0 vinn.
BL
Bikarglíma GLÍ fór fram fyrr í
þessum mánuði. Keppt var með
útsláttarfyrirkomulagi í þremur
aldursflokkum og opnum flokki 20
ára og eldri. Alls voru 32 keppendur
skráðir í glímuna.
í flokki 10-12 ára sigraði Ólafur
Sigurðsson HSK, en í öðru sæti varð
félagi hans Lárus Kjartansson.
Tryggvi Héðinsson HSÞ sigraði í
flokki 13-15 ára, en félagi hans
Sigurður Kjartansson varð í öðru
sæti. í flokki 16-19 ára sigraði Jón B.
Valsson KR, en í öðru sæti varð
Ingibergur J. Sigurðsson UV. Ólafur
Haukur Ólafsson KR sigraði í flokki
fullorðinna. 1 öðru sæti varð Jóhann-
es Sveinbjörnsson HSK. BL
Körfuknattleikur:
ÍBK-KR
á morgun
Á morgun verður stórleikur
í körfuknattleiknum. Fyrri
leikur Keflvíkinga og KR-inga
í úrslitum íslandsmótsins, fer
fram í íþróttahúsinu í Keflavík
og hefst kl.17.00.
Keflvíkingar eru nú í úrslit-
um mótsins í fyrsta sinn og
verða áreiðanlega harðir í horn
að taka. Þeir slógu Valsmenn
nokkuð létt út i undanúrslitun-
um. KR-ingar hafa ekki leikið
til úrslita um titilinn síðan úr-
slitakeppni var tekin upp, en
liðið hefur marg oft hlotið
titilinn, þó nokkuð langt sé
síðan þeir gerðu það síöast.
Það kom flestum á óvart að
liðið sló Njarðvíkinga út í
tveimur leikjum, með eins og
þrettán stiga sigrum. Þeir ætla
sér stóra hluti í ár KR-ingar og
því má búast við hörku viður-
eignum þessara liða um titilinn.
Síðari leikur liðanna verður í
íþróttahúsi Hagaskóla á mánu-
dagskvöld kl.20.00. en komi til
aukaleiks, þá verður hann á
miðvikudagskvöld í Keflavík.
BL
Körfuknattleikur:
Drengjalandslið íslands í körfuknattleik, ásamt þjálfara sínum Jóni Sigurðssyni.
Tímamynd Árni Bjarna.
1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 1
Get-raunir!!!
Úrslit voru enn nokkuð óvænt í
getraununum um síðustu helgi og
enginn náði því að vera með 12
rétta. Potturinn er því þrefaldur um
helgina og gera má ráð fyrir að
eitthvað á fimmtu milljón verði í
pottinum.
1. vinningur í síðustu viku var
2.140.344 kr. sem er met hvað
varðar tvöfaldan pott. Varla er því
við öðru að búast en að sá þrefaldi
verði einnig metpottur. Þrefaldur
pottur er nú í boði í fjórða sinn á
þessu tímabili. Sjö tipparar náðu 11
réttum og hver þeirra fær í sinn hlut
79.692 kr.
BlS-hópurinn hefur enn forystu í
hópleik getrauna, hefur 91 stig. í
öðru sæti eru FÁLKAR með 89 stig,
BIGGI hefur 87 stig ásamt ROZ og
FYLKISVEN. f 6.-10. sæti með 86
stig eru GETOG, SLÉTTBAKUR,
DJÁKNARNIR, BOND og
JUMBÓ.
FYLKIR skaust í efsta sætið í
áheitum í síðustu viku. Félagið var
með 17,93% af öllum áheitunum.
FRAM var í öðru sæti með 12,64 %,
en önnur félög voru nokkuð langt
undan.
Tíminn skaut öðrum fjölmiðlum
ref fyrir rass í síðustu viku og var
miðla getspakastur. Þessi árangur
blaðsins þarf ekki að koma á óvart
því nýtt spáforrit var tekið í notkun
á blaðinu frá og með 10. leikviku.
EF þetta nýja forrit reynist jafn vel
á næstu vikum má fastlega búast við
því að það verði í notkun áfram og
jafnvel eitthvað fram á vorið. TÍM-
INN var með 7 rétta, en með 6 voru
DV og STJARNAN. 5 rétta í fjöl-
miðlaleiknum höfðu MBL, og RUV,
en ÞJÓÐVILJINN, DAGUR,
BYLGJAN og STÖÐ 2 voru með 4
rétta. Staðan í keppni fjölmiðlanna
er nú þessi: MBL 53, DV 52,
BYLGJAN 50, ÞJÓÐVILJINN 42,
RÚV og STÖÐ 2 40, STJARNAN
38 og TIMINN og DAGUR 37.
Sjónvarpsleikurinn að þessu sinni
er sannkallaður stórleikur. Man-
chester United og Nottingham For-
est mætast á Old Trafford í Man-
chester í 8-liða úrslitum ensku bikar-
keppninnar. Þessi lið hafa bæði stað-
ið sig mjög vel að undanförnu í 1.
deildinni, en þar eru liðin bæði í
fremstu röð. Fastlega má búast við
auðum strætum í bæjum landsins
meðan á leiknum stendur. Kjörið
tækifæri til að skapa alvöru bikar-
stemningu með öllu tilheyrandi.
En lítum á leikina á seðlinum, 11.
leikvika.
Liverpool-Brentford: 1
Lífið er púl og brennt barn forðast
eldinn. Því má fastlega búast við
sigri Liverpool í þessum leik.
Man. United-Nottingh. Forest: 1
Stórleikur helgarinnar og mjög erfitt
að sjá fyrir úrslit. Heimavöllurinn
gæti reynst þungur á metunum og
því er ráðlegt að setja 1 við þennan
leik. Og eftir leikinn þá vitum við
allt um þennan leik.
West Ham-Norwich: 2
Þriðji bikarleikurinn á seðlinum.
Þessi leikur endar með útisigri.
Norwich liðið er mun sterkar og ætti
að tryggja sér auðveldan sigur.
Coventry-Tottenham: 2
Tottenham-liðið hefur verið næsta
óútreiknanlegt í vetur og nú kemur
liðið á óvart með sigri á Coventry á
á heimavelli þeirra síðarnefndu.
Þessi leikur er í 1. deild, eins og
næstu leikir á seðlinum.
Luton-Sheffield Wednesday: x
Siggi Jóns. og félagar ná í 1 stig á
gervigrasinu á Kenilworth Road,
heimavelli Luton.
Middlesbro-Derby: 2
Lið Boro hefur ekkert að gera í
stuðlið Derby. Auðveldur útisigur í
þessum leik.
MiIIwall Aston Villa: 1
Millwall-liðið er með þeim bestu í 1.
deild og lið Aston Villa verður þeim
ekki nein hindrun. Heimasigur.
Bournemouth-Swindon: 1
Það er ekki heiglum hent að sækja
stig til Bournemouth og það reynast
orð að sönnu þegar lið. Swindon
bíður þar ósigur í 2. deildinni.
Næstu leikir á seðlinum eru einnig úr
2. deild.
Bradford-Watford: 2
Watfordliðið er með þeim efstu í 2.
deild, en Bradford er í neðri kantin-
um. Úrslitin ættu að verða sam-
kvæmt bókinni og útisigur.
Crystal Palace-Sunderland: 1
Bæði þessi lið er um miðja 2.
deildina og hart verður áreiðanlega
barist í þessum leik. Það eru allar
líkur á heimasigri í leiknum. Það tel
eg næsta víst.
Manchester City-Chelsea: x
Efstu lið 2. deildar mætast í stórleik
2. deildar. Jafnteflis merkið x hefur
orðið fyrir valinu á þennan leik, en
óvitlaust væri að bæta við merkjum
á leikinn, svona til öryggis.
Portsmouth-Stoke: 1
Lið Portsmouth er harðskeytt á
heimavelli og Stokarar fara ekki
varhluta af því og fara á brott án
stiga. skúli lúðvíks.
FJÖLMIÐLASPÁ
LEIKIR 18. MARS ’89 J m 2 > Q Z Z 2 f— Z z —i > Q O 2 DAGUR RÍKISÚTVARPIÐ BYLGJAN STÖÐ2 STJARNAN SAMTALS
1 X 2
Liverpool - Brentford 1 1 1 1 1 1 1 1 1 9 0 0
Man. Utd. - Notth. For. X 1 1 1 X 1 1 1 1 7 2 0
West Ham - Norwich X 2 2 2 1 X 2 1 2 2 2 5
Coventry - Tottenham 1 X 2 1 1 1 X 2 X 4 3 2
Luton - Sheff. Wed. 1 1 X 1 1 1 1 X X 6 3 0
Middlesbro - Derby X 1 2 X 2 X X 2 2 1 4 4
Millwall - Aston Villa 1 1 1 1 1 1 1 2 1 8 0 1
Bournemouth - Swindon 2 1 1 1 1 1 1 1 1 8 0 1
Bradford - Watford 2 X 2 2 X 1 2 1 2 2 2 5
C. Palace - Sunderland 1 1 1 1 1 1 1 1 1 9 0 0
Man. City - Chelsea HS I* 2 X X X 1 X 1 X 2 6 1
Portsmouth - Stoke 1 1 X X X 1 X X 4 5 0
Drengjalandslidid
gegn Englendingum
Hjörtur Harðarson .
Jón Arnar Ingvarsson
Eggert Garðarsson . .
Pétur Sæmundsen . .
Benedikt Sigurðsson
Hermann Hauksson .
Óskar Kristjánsson .
Sigurður Jónsson . . .
Bergur Hinriksson . .
Marel Guðlaugsson .
. . IBK 180sin
Haukum 185sm
. . ÍR 195sm
. . Val 179sm
. . KR I90sm
. . KR 193sm
. . KR 192sm
. . KR 177sm
UMFG 188sm
UMFG 193sm
íslenska drengjalandsliðið í körfu-
knattleik, skipað leikmönnum 17
ára og yngri, hélt til Englands í gær
og leikur tvo landsleiki gegn heima-
mönnum, í kvöld og á morgun.
Leikirnir eru liður í lokaundirbún-
ingi liðsins fyrir Evrópukeppnina í
Belgíu í næsta mánuði, en þar eru
íslendingar í riðli-með Bdgum,
Hollendingum og Frökkum. Keppn-
in í Belgíu fer fram dagana 5.-7.
apríl n.k.
12 leikmenn hafa verið valdir til
að taka þátt í lokaundirbúningnum,
en 10 leikmenn fara á EM. Þessir
leikmenn eru í hópnum:
Nökkvi Már Jónsson . . . ÍBK 195sm
Birgir Guðfinnsson .... ÍBK 194sm
Bergur og Marel eru leikreyndast-
ir drengjanna með 6 landsleiki, en
aðrir hafa leikið 3 landsleiki. Þeir
Benedikt og Hermann eru þó nýliðar
í landsliðinu.
Þjálfari drengjanna er Jón Sig-
urðsson og leikirnir fara fram í
Crystal Palace íþróttamiðstöðinni,
en hún mun vera sú stærsta sinnar
tegundar í Englandi. BL
ÞREBUBUR
nmuR!
Nú ertil mikils aö vinna í íslenskum Getraunum.
Á síðustu tveimur vikum hefur engin röð komið fram með 12 réttum.
Þess vegna er þrefaldur pottur
- og þreföld ástæða til að vera með! ,7
Láttu nú ekkert stöðva þig. /
Getraunaseðillinn er líka fyrir þig. '
- ekkibara heppni
mj ■
(4
ft