Tíminn - 25.01.1986, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Tíminn 13
HUCMYNDA-
STEFNA
Framkvæmdamenn og
hugmyndasmiðir hittast
lönaöarráöuneytið hefur ákveðið aö gangast fyrir
hugmyndastefnu ef næg þátttaka fæst.
Fyrirhugað er að sýna á hugmyndastefnunni upp-
finningar og framleiðsluhæfar hugmyndir, sem til-
búnar eru til markaðsfærslu af hálfu höfunda.
Sýningunni er fyrst og fremst ætlað að miðla fram-
leiðsluhugmyndum til þeirra sem hafa hug á að fram-
leiða, fjármagna eða setja á markað nýjungar í iðn-
aði en einnig er henni ætlað að veita upplýsingar um
þjónustu og fyrirgreiðslu opinberra aðila við ný-
sköpun í atvinnulífinu.
Þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í hugmynda-
stefnunni er bent á að snúa sértil Iðnaðarráðuneytis-
ins er veitir allar nánari upplýsingar. Þátttökutilkynn-
ingum ber að skila til Iðnaðarráðuneytisins fyrir 10.
febrúar nk. á þar til gerðum eyðublöðum sem fást í
ráðuneytinu. Þátttökugjald verður auglýst síðar.
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
ER SJÁLFSKIPTINGIN
í BÍLNUM ÞÍNUM
FARIN AÐ SNUÐA?
Ef svo er, ættirðu að kynna þér tilboð okkar,
og þú munt komast að raun um að það borgar
sig að taka því - frekar en að láta
sjálfskiptinguna skemmast.
Tilboðið nær til allra bílaog í því felst
skoðun á eftirfarandi 10 atriðum
(varahlutir ekki innifaldir í verði):
* olía tekin af skiptingu
% skipt um pakkningu á pönnu
* ventlahús þrifiö
* panna þrifin.skipt um síu
* skiptikambur athugaður og
stilltur
* bremsuband stillt
* nýr vökvi settur ó skiptingu
* stjórnbarkar og tengi stillt
* vakúmskipting athuguð
* bifreiðinni reynsluekið
Allt þetta færðu fyrir kr. 2488
Þetta er tilboð okkar!
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA-9 SÍMI 687300
p
r
GM
ÞJONUSTA
Laugardagur 25. janúar 1986
Laugardagur 25. janúar 1986
ÍÞRÓTTiR llllllllllll
Verður Bryan Robson með? Hvað gerist ef hann verður méð? Robson er fæddur í Sunderland.
Hann er ágætur.
Mót í frjálsum
Meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum innanhúss fer fram dag-
ana 8. og 9. febrúar næstkomandi.
Keppni hefst kl. 10 laugardaginn 8.
og verður síðan framhaldið í Bald-
urshaga kl. 14.
Þátttökutilkynningar þufa að hafa
borist skrifstofu FRÍ, á þar til gerðum
skráningarspjöldum, í síðasta lagi
miðvikudaginn 5. febrúar. Þátttöku-
gjald er kr. 200.- á grein.
Keppni í stangarstökki fer fram
sunnudaginn 16. febrúar í KR-
heimilinu við Frostaskjól.
Heimsbikarkeppnin á skíðum:
- Það er álit upphafsmanns keppninnar - Verður einungis
keppt í svigi og bruni næstu árin ?
Serge Lang, sá sem fann upp og
skipuleggur heimsbikarkeppnina á
skíðum, hefur mælst til þess að veru-
legar breytingar verði gerðar á
keppninni. Lang vill færri mót, færri
keppendur og að verðlaunafé verði í
fyrsta sinn úthlutað sigurvegurun-
um.
Lang sem er forseti heimsbikar-
nefndarinnar, leggur til að verð-
launaféð verði greitt út í lok tíma-
bilsins til þeirra sem stigahæstir eru,
en ekki í lok hvers móts.
íþróttir helgarinnar
Frekar rólegt er á vígstöðv-
um íþróttanna um helgina.
Tveir úrvalsdeildarleikir í
körfu eru þó á dagskrá. Fyrri
leikurinn er í Keflavík í dag
þar sem heimamenn taka á
móti ÍR-ingum kl. 14.00. Á
morgun keppa svo Reykja-
víkurliðin KR og Valur í
Ilagaskóla og hefst viður-
eignin kl. 20.00.
Þórsarar frá Akurcyri
heimsækja höfuðstaðinn og
leika tvisvar í 1. deildar-
kcppninni í körfu. I dag leika
þeir gegn ÍS í Hagaskóla kl.
14.00 og á morgun mæta þeir
nýkrýndum íslandsmeistur-
um Fram í Hagaskóla kl.
14.00.
í 1. deild kvenna keppa
Keflavík og ÍR í Keflavík kl.
15.30 í dag.
Fimleikar:
Bikarmeistaramót FSÍ
hefst í dag kl. 14.30 í Laugar-
dalshöllinni og verður frani-
haldið á morgun kl. 13.30.
Skíði:
Stórsvigsmót Ármanns fer
fram um hclgina í Bláfjöllum.
Þar er keppt i karla- og
kvennaflokki.
Stefán efstur
Stefán Konráðsson úr Stjörnunni
er enn efstur að stigum í punkta-
keppni Borðtennissambands íslands
en heldur hefur munurinn minnkað
milli hans ogTómasar Guðjónssonar
KR-ings. Þessir tveir hafa yfirburð-
arforskot enda lang snjöllustu borð-
tennismenn landsins.
Stefán hefur hlotið 99 punkta það
sem af er og Tómas er með 84
punkta. Næstir eru Kristján Jónas-
son úr Víkingi og Kristinn Emilsson
KR-ingur. Báðir hafa hlotið 23
punkta. Albrecht Ehmann, Stjörn-
unni, er svo fimmti með 15 punkta.
Hann er einnig á því að, í stað þess
að halda 71 mót á tímabilinu eins og
nú er, ætti heimsbikarkeppnin að
einskorðast við 24 mót sem haldin
yrðu um helgar.
Á þessu tímabili hefur nú þegar
þurft að fresta eða færa til hátt í
tuttugu mót, eða rúmlega helming-
inn af keppnunum. Ástæðan? Jú.
annað hvort er snjórinn of lítill elleg-
ar veðrið of slæmt - hlutir sem ís-
lendingar kannast vel við.
„Heimshikarkeppnin er ofhlaðin
og eitthvað verður að gera til að auka
áhugann fyrir henni,“ segir Lang og
bendir á að færri mót og takmörkun
keppenda við töluna 60 muni auka
áhugann hjá sjónvarpsstöðvum og
þar af leiðandi hjá styrktaraðilum
keppninnar.
„Skíðasambönd allra landa eru
samþykk þessum breytingum og
þetta má gera á fimm mínútum.
Vandinn er hins vegar sá að ekkert
skíðasamband vill minnka við sína
eigin dagskrá," segir Lang. Þar
stendur hnífurinn í kúnni að áliti
Langs.
Aðrar leiðir hafa verið ræddar sem
gætu reynst auðveldari í
framkvæmd. Má nefna tillögu um að
liafa hvorki stórsvig né risasvig á
dagskrá hcimsbikarkeppninnar, en
keppt er í risasvigi í fyrsta sinn á
þessu tímabili og gefur það stig í
keppninni.
Lang er sammála þessum leiðum
því þá er, að hans sögn, hægt að ein-
beita sér betur að þeim greinum sem
koma betur út í sjónvarpi og njóta
meiri hylli þ.e. bruni og svigi.
Heimsbikarkeppninni var hleypt
af stokkunum árið 1966 og er því
tímabilið nú það tuttugusta í röð-
inni. Á þessum tíma hefur keppnin
þróast upp í nokkurs konar
„skrímsli" sem allir eru sammála um
að þurfi að minnka eigi kcppnin að
halda vinsældum sínum meðal al-
mennings, og ekki síður, eigi hún að
laða að sér sjónvarpið og styrktar-
áðila.
McEnroe f er í f rí
Tenniskappinn John McEnroe,
sem sleginn var út úr Masters-keppn-
inni í tennis í fyrstu umferð um dag-
inn hefur ákveðið að taka sér frí frá
tennisleik um nokkurn tíma. Ástæð-
una segir hann vera til að komast í
gott líkamlegt og ekki síst andlegt
ástand. Hann mun þó taka þátt í
nokkrum sýningarleikjum sem hann
hefur þegar skrifað undir samninga
um í janúar og febrúar.
Erika Hess og annað skíðafólk gæti þurft að láta sér nægja að keppa í eins og 24 mótum á keppnistímabilinu ef tillögur Lang ná fram að ganga
Enska knattspyrnan:
Sigrar Sunderland?
Fyrir tíu árum stjórnaði Lawrie McMenemy
liði Southampton til sigurs gegn Man.Utd í úr-
slitaleik ensku bikarkeppninnar og voru það
mjög svo óvænt úrslit þar sem Southampton var
á þessum tíma frekar óþekkt 2. deildarlið.
McMenemy er nú snúinn aftur upp til norð-
austur Englands þar sem hann ólst upp. Þar
stjórnar hann liði Sunderland en einmitt í dag
tekur þetta fornfræga félag á móti stórliðinu
Man.Utd á sjálfum Roker Park leikvellinum í
Sunderland.
Hinir tryggu og fjölnrennu stuðningsmenn
Sunderland vonast nú eftir að McMenemy leiði
lið þeirra til sigurs gegn Manchesterliðinu líkt
oghann gerði með Southampton fyrir tíu árum.
Það gæti hins vegar orðið erfitt. Sunderland
er nefnilega fyrir neðan miðju 2. deildar um
þessar mundir og leikur ekki sannfærandi knatt-
spyrnu. Ekki bætir úr skák að fimm aðalleik-
menn liðsins eru meiddir. Þessir eru David
Hodgson, sem áður lék með Liverpool, Gary
Bennet, Eric Gates, sem fór upp eftir til Sund-
erland frá Ipswich, Howard Gayleogfyrirliðinn
Shauri Elliot.
Aðalvandamál Ron Atkinson fram-
kvæmdastjóra Man. Utd snýst einnig um
meiðsli. Hann verður að ákveða hvort Bryan
Robson fyrirliði enska landsliðsins, verði í byrj-
unarliði ellegar ei í dag. Robson hefur verið
meiddur nær allt keppnistímabilið en kom heill
út úr leik með varaliði Man. Utd. gegn Barnsley
á miðvikudagskvöldið. Líklegt þykir að Atkin-
son hafi hann á varamannabekknum í dag.
Chelsea mætir Liverpool á morgun og er
þetta stórleikurinn í fjórðu umferð bikarsins.
Leiknum verður sjónvarpað um allt Bretland.
Altrincham, eina utandeildarliðið sem eftir
er í slagnum, leikur gegn liði Jórvíkurborgar og
á möguleika á að koma enn einu sinni á óvart.
Hins vegar er eins gott fyrir Peter Shreeve
framkvæmdastjóra Tottenham að ekkert komi á
óvart þegar lið hans leikurgegn 3. deildarliðinu
Notts County. Verði tap uppá teningnum fær
Shreeve sjálfsagt að fjúka.
Mæðir á Stefáni
- Hann er leikreyndastur landsliðsfólksins í borðtennis
íslenska landsliðið í borðtennis
heldur utan nú um helgina til þátt-
töku í Evrópukeppni landsliða í C-
riðli. Steen Kyst Hansen landsliðs-
þjálfari hefur valið eftirtalda kepp-
endur tjl fararinnar:
Stefán Konráðs., Stjornunni 57 landsl.
Kristján Jónasson, Víkingi 9 landsl.
Hilmar Konráðsson, Víkingt 27 landsl.
Sigrún Bjarnadóttir, UMSB 7 landsl.
Gunnar Valsson fslandsmeistari í
unglingaflokki fer einnig með liðinu
en Gunnar leikur með Stjörnunni.
í riðli með fslendingum eru Malta,
Jersey, Guernsey, San Marino,
Portúgal ogeyjan Mön. íslenska lið-
ið stóð sig mjög vel í heimsmeistara-
keppninni í borðtennis s.l. vor, þar
sem það lyfti sér upp um 12 sæti, en
vara verður við of mikilli bjartsýni á
þessu móti því fyrirkomulagið er allt
annað.
Mikið mun sjálfsagt mæða á okkar
leikreyndasta manni Stefáni Kon-
ráðssyni sem leika mun alla einliða-
leikina og einnig tvíliða- og
tvenndarleik. Hann ætti þó að geta
staðið sig vel enda átt bestu gengi ís-
lenska borðtennismanna að fagna á
mótum erlendis í gegnum tíðina.
Það veikir óneitanlega nokkuð lið-
ið að Tómas Guðjónsson kemst ekki
með í ferðina en hann fékk sig ekki
lausan úr vinnu.
Er allt á útopnu?
- Framhaldsskólanemar áhugasamir í íþróttunum
í dag halda Iþróttasamtök
mennta- og fjölbrautaskóla á íslandi
(í.m.f.f.) borðtennismót í Fossvogs-
skóla og stendur það yfir frá kl. 10-
17.
Mótið er einungis opið aðildar-
skólum í.m.f.í. sem eru samtals 17.
Búast má við spennandi ogskemmti-
legri keppni því þarna verða saman-
komnir flestir efnilegustu borð-
tennisspilarar landsins. Keppt verð-
ur í karla og kvenna flokki og er um
riðlakeppni að ræða.
íþróttanefnd Fjölbrautaskólans í
Breiðholti mun hafa umsjón með
mótinu.
í.m.f.í. voru stofnuð á síðasta ári
og er markmið þeirra að auka og efla
íþróttaiðkun í framhaldsskólum og
einnig auka samstarf þeirra á milli.
Aðildarskólar samtakanna skipta
mcð sér verkefnum, scm eru hin
ýmsu íþróttamót ásamt blaðaútgáfu
o.fl.
Borðtcnnismótið á laugardaginn
er fyrsta mótið af fjölmörgum sem
(yrirhuguðeru í vetur. Fyrirhugaðer
að halda handboltamót, fótbólta-
mót, körfuboltamót, skíöamót,
badmintonmót, bridgemót og
blakmót. Það er því augljóst að sam-
tök þessi eru gífurleg lyftistöng fyrir
íþróttalíf í framhaldsskólum og er
vonandi aö þau veröi sem langlífust.
Kópavogshlaup
Hið árlega Kópavogshlaup verdur
hád í 13. sinn í dag kl. 14.00.
Hlaupið verdur frá Vallar-
gerðisvelli og eru kílómetarnir sex
alls i karlaflokki en 3,5 í kvenna-
flokki og drengjaflokki.
Verðlaun verda veitt fyrir fyrstu
þrjú sætin í öllum flokkum og auk
þess fá sigurvegarnir farandgrip til
varögveislu i eitt ár. Gripina gefur
Sparisjóður Kópavogs.
öllum er heimil þátttaka og fer
skráning fram á stadnum frá kl.
13.00.
Bandaríska karfan
Á fimmtudagskvöld fóru fram
nokkrir leikir í NBA-körfuboltanum
bandariska. Bullets sigruðu Suns
114-112 Rockets unnu Kings 124-
107, Jazz töpudu fyrir Nets 105-106
og Supersonics lágu fyrir TraU Blaz-
ers 107:117.