Morgunblaðið - 10.01.2007, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 10.01.2007, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR AFAR kalt var í veðri á öllu landinu í gær og samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands verður ekk- ert lát á frosti út þessa viku, þó að heldur dragi úr því. Heldur bætir í vind með deginum í dag og búast má við snjókomu eða éljagangi sunnan til. Skíðafólk á Suðurlandi ætti að kætast því útlit er fyrir að hægt verði að opna í Bláfjöllum á næstunni. Áfram frost MAÐUR var fluttur á slysa- deild til eftirlits skömmu eftir klukkan eitt í gær eftir að hann hafði ekið á ljósa- staur á Kringlu- mýrarbraut í Fossvogi. Mað- urinn var talinn lítið meiddur, en bíllinn var óökufær og var dreginn burt með kranabíl. Þá vill lögregla koma á framfæri lýsingu á manni sem tók fartölvu ófrjálsri hendi í íbúð á Leifsgötu í hádeginu í gær. Maðurinn mun vera dökkhærður með stutt hár, hann var klæddur svartri úlpu og er líklega á milli tví- tugs og þrítugs. Tölvan er af gerð- inni PowerMac og í rauðu fartölvu- hulstri. Þegar komið var að manninum við innbrotið var hann að tala í far- síma og sagði við viðmælanda sinna að „nú gæti hann borgað“. Ók á ljósastaur í Reykjavík ÁÆTLAÐ er að viðgerðarskipið Pacific Guardian verði komið á bil- unarstað CANTAT-3 sæstrengsins 13. janúar nk., og að viðgerð ljúki 22. janúar. Stöðva þarf alla fjarskiptaum- ferð um strenginn 12. janúar og þar til viðgerð lýkur. Vegna erfiðra að- stæðna og veðurskilyrða kunna dagsetningar þessar að breytast. Gert við CANTAT-3 SAMKVÆMT bráðabirgðatölum var innvigtun mjólkur árið 2006 117.066.169 lítrar. Á vef Bænda- samtakanna kemur fram að þetta sé þriðja mesta innvigtun sem skráð hefur verið á almanaksári frá árinu 1959. Metár var árið 1978 þegar innvigtun náði 120,2 millj- ónum lítra og 117,2 milljónum lítra árið 1979. Mjög góð sala hefur verið í mjólk- urvörum undanfarin misseri og hafa bændur verið hvattir til að auka framleiðslu eins og þeir geta. Þriðja mesta mjólkurfram- leiðsluárið hinn mikli aðskilnaður kynjanna. „Á safninu voru konurnar sem tóku á móti okkur alveg huldar með blæju þegar við mættum í fylgd karlmanna og tóku þær ekki niður fyrr en við vorum komnar inn fyrir og úr augsýn karlanna. Konur og ókvæntir karlmenn mega heldur ekki vera á safninu á sama tíma,“ segir Sól- veig sem lýsir staðháttum sem af- ar framandi. Sendinefndin er nú stödd í Jed- dah og mun m.a. heimsækja kvennaskóla og funda með stjórn verslunarráðs borgarinnar. „Þar eiga nokkrar konur sæti og for- vitnilegt verður að ræða við þær og heyra sjónarmið þeirra.“ SENDINEFND Íslands sem um þessar mundir er stödd í op- inberri heimsókn í Sádi-Arabíu, átti í gærdag fund með utanrík- isráðherra landsins. Þar afhenti Sólveig Pétursdóttir, forseti Al- þingis, honum bréf frá utanrík- isráðherra Íslands þar sem óskað er eftir stuðningi við framboð Ís- lendinga til öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna. „Ég kynnti fram- boðið og ráðherrann tók vel í málið og var jákvæður gagnvart stuðningi,“ segir Sólveig. Sendinefndin heimsótti í gær Sögumiðstöðina í Riyadh sem kennd er við Abdul konung og í kjölfarið þjóðminjasafn Sádi- Araba. Þar kom bersýnilega í ljós Formlega óskað eftir stuðningi Sádi-Araba ALMENNT tjáum við okkur ekki um málefni einstakra sjúklinga í fjölmiðlum þar sem það myndi brjóta gegn trúnaði lækna við sjúklinga sína,“ sagði Ófeigur Þorgeirsson, yfirlæknir á bráðamóttöku LSH í Fossvogi, er hann var innt- ur eftir viðbrögðum við frásögn Sigurlínar Mar- grétar Sigurðardóttur Morgunblaðinu í gær. Sigurlín mældist með mjög hátt blóðsykurs- gildi og var farið með hana á bráðamóttöku LSH. Hún hafði verið í skoðun á sömu bráðamóttöku tveimur vikum fyrr og var þá tekin úr henni blóðprufa. Við athugun á þeirri prufu sást að blóðsykursgildið var þá þegar mjög hátt. Sigurlín hafði gefið upp gsm-númer sitt og tölvupóstfang svo hægt væri að koma til hennar skriflegum boðum en hún er heyrnarlaus. Það hafði ekki verið gert. Ófeigur sagði að sjúklingum sem hefðu kvart- anir fram að færa væri bent á að hafa samband við yfirlækni þeirrar deildar sem stýrði starfsem- inni eða beint við lækningaforstjóra. „Eftir að kvörtunin berst fer yfirlæknir gaumgæfilega yfir sjúkraskrár og biður um greinargerðir viðkom- andi heilbrigðisstarfsmanna sem komu að mál- inu. Finnist eitthvað athugavert eftir þessa at- hugun eru gjarnan haldnir fundir með læknum þar sem úrræða er leitað til að fyrirbyggja óhöpp. Að því loknu er rætt við þann er bar fram kvörtunina og málin skýrð. Ef sá sem kvartar sættir sig ekki við framangreint er honum bent á að hafa samband við embætti landlæknis sem sinnir kvörtunum vegna heilbrigðisþjónustu.“ Sigurlín kvaðst hafa reynt að fara í blóðsykurspróf hjá Heilsugæslunni í Garðabæ en verið sagt að læknir þyrfti að biðja um það. Þeg- ar hún bað um tíma hjá heimilislækni var biðtím- inn 12 dagar. Heimilislækna skortir í Garðabæ Bjarni Jónasson, yfirlæknir Heilsugæslunnar í Garðabæ, sagði helstu skýringuna á þessu vera að of fáir heimilislæknar væru í Garðabæ. Ef er- indi sjúklings þætti brátt væri eftir fremsta megni reynt að sinna því samdægurs en biðin yrði í mesta lagi tveir dagar í slíkum tilvikum. Ef óskað væri eftir venjulegum viðtalstíma gæti bið- in orðið jafnlöng og Sigurlín var sagt. Hún gæti líka verið miklu styttri. Varðandi pöntun á blóðsykursprófi sagði Bjarni að læknar þyrftu ætíð að biðja um slíkar rannsóknir. Í beiðnunum væru meinatæknum gefin fyrirmæli um hvað ætti að rannsaka. Tjá sig ekki um málefni einstakra sjúklinga Mikill skortur á heimilislæknum í Garðabæ skýrir langa bið eftir viðtalstíma SIGURLÍN taldi í viðtalinu lítinn skilning hafa ríkt á samskiptalegum að- stæðum sínum hjá Læknavaktinni. Sér þætti niðurlægjandi að starfsfólk mót- töku Læknavaktarinnar hefði átt að meta hvort panta ætti táknmálstúlk eða ekki, hvað sem liði lögum um réttindi sjúklinga. Atli Árnason, læknir og stjórnarformaður Læknavaktarinnar, sagði engan ágreining vera um túlkun laga um réttindi sjúklinga. Hann kvaðst telja rétt- indi sjúklinga til túlkaþjónustu mjög mikilvæg en jafnframt væri nauðsynlegt að sú þjónusta væri rétt notuð. Atli sagði útköll túlka vegna heilsugæslu utan dagvinnutíma ekki í nógu föstum farvegi og reglur um þau skorti frá heil- brigðisráðuneytinu. Atli benti á að Læknavaktin ynni utan dagvinnutíma. Hann sagði það ekki vera í verkahring starfsfólks móttöku Læknavaktarinnar að ákveða hvort kalla ætti til túlka utan dagvinnutíma, heldur læknanna sem þar starfa. Í þeim tilvikum sem kalla þarf út túlk utan dagvinnutíma kosti sú þjónusta 18.200 krónur, þótt túlkunin taki að- eins stuttan tíma. Hann sagði Læknavaktina ekki vilja sjálfkrafa setja það í vald þeirra sem velja að koma utan dagvinnutíma hvort viðkomandi þurfi túlk eða ekki. Í sumum tilvikum megi nota aðrar leiðir til samskipta eða vísa sjúklingi á heilbrigðisþjónustu á dagvinnutíma væri þörfin ekki brýn. Læknar meta þörf fyrir túlkun Sigurlín Margrét Sigurð- ardóttir greindist með sykursýki nýverið. SAKBORNINGARNIR þrír í olíu- málinu svonefnda tjáðu sig ekki um sakarefnið við þingfestingu málsins í gær fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þegar þeir mættu ákæruvaldinu sem ber þá sökum um meint brot gegn samkeppnislögum og fleira. Ákærðu eru Einar Benediktsson, forstjóri Ol- íuverzlunar Íslands, Geir Magnússon, fyrrverandi forstjóri Olíufélagsins, nú Kers, og Kristinn Björnsson, fyrr- verandi forstjóri Skeljungs. Eru þeir ákærðir fyrir meint brot gegn sam- keppnislögum, fyrir að hafa haft ólög- mætt samráð, ýmist sjálfir eða fyrir milligöngu undirmanna, með það að markmiði að hafa áhrif á og koma í veg fyrir samkeppni. Verjendur ákærðu lögðu fram frá- vísunarkröfu við þingfestinguna og kröfðust þess jafnframt að allur sak- arkostnaður yrði lagður á ríkissjóð. Helstu röksemdir verjendanna eru þær að ákæra í málinu sé ekki í sam- ræmi við lög um meðferð opinberra mála. Verknaðarlýsing sé óskýr hvað varðar hlut sakborninga í ætlaðri refsiverðri háttsemi. Ákæran sé hlað- in skriflegum útlistunum og málflutn- ingi um ætlaða refsiverða háttsemi þeirra félaga sem ákærðu stýrðu sem ekki á heima í ákæruskjali. Í kröfunni segir jafnframt að einstaklingum verði ekki gerð refsing við þeirri hátt- semi sem lýst sé í ákæru. Ákæran sé ekki reist á viðhlítandi rannsókn sak- argifta. Við rannsókn málsins og við útgáfu ákæru hafi verið brotið gegn reglum um réttarstöðu sakborninga með þeim hætti að ekki verður bætt úr undir rekstri málsins. Útgáfa ákæru í málinu sé andstæð jafnræð- isreglu stjórnarskrárinnar. Þá sé refsikrafa í málinu andstæð banni við því að leggja oftar en einu sinni refs- ingu á aðila fyrir sömu háttsemi. Málflutningur um kröfuna fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur 26. janúar nk. og verður úrskurður kveðinn upp í framhaldinu. Ákærðu krefjast frávísunar í olíumálinu Morgunblaðið/G.Rúnar Tjáðu sig ekki Ákærðu tjáðu sig ekki um sakarefnið í héraðsdómi í gær og fer málflutningur um frávísunarkröfu þeirra fram síðar í mánuðinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.