Morgunblaðið - 10.01.2007, Side 29

Morgunblaðið - 10.01.2007, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 29 ✝ Súsanna RegínaGunnarsdóttir fæddist í Reykjavík 30. mars 1954. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað 2. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Sigurlaug Ísabella Eyberg, f. 16. apríl 1926, d. 16. mars 1995, og Gunnar Sigurður Ástvalds- son, f. 11. sept. 1930, d. 13. júlí 1984. Fósturfaðir hennar, sem hún ólst upp með, er Þorgeir Jónsson, f, 6. feb. 1932. Systkini Súsönnu sam- mæðra eru Jónas Hannes, f. 24. okt. 1956, Anna Dóra, f. 23. júní 1958, og Þór, f. 1. júní 1963. Systk- ini Súsönnu samfeðra eru Stein- dór, f. 14. apríl 1954, Katrín, f. 25. maí 1955, Kolbeinn, f. 19. okt. 1956, og Eyvindur, f. 19. des. 1964. Súsanna giftist Adolfi Erni Kristjánssyni, f. 6. sept. 1952. Son- son, f. 16. jan. 1977, börn þeirra eru Vilhjálmur Árni, f. 2. mars 2004, og Kristrún Lilja, f. 19. júlí 2006. Þau voru skilin. Síðar giftist Súsanna Einari Jóhanni Herberts- syni, f. 7. apríl 1954, sonur þeirra er Jónas Hannes Eyberg, f. 22. júní 1982, maki Ester Guðjónsdóttir, f. 8. nóv. 1984. Barn þeirra er Hel- ena Eyberg, f. 28. maí 2006. Þau skildu. Súsanna var gagnfræðaskóla- menntuð frá Miðbæjarskólanum við Tjörnina. Síðar var hún í námi í Námsflokkunum við Miðbæj- arskólann og útskrifaðist þaðan sem sjúkraliði árið 1979. Hún starfaði sem sjúkraliði, lengst af á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund og við heimahjúkrun Reykjavík- urborgar. Hún hafði í langan tíma mikinn áhuga á andlegum mál- efnum, svo sem heilun og reiki og var sjálf reikimeistari. Hún lagði fyrir sig spámennsku og hjálpaði mörgum og hughreysti hvort sem fólk var veikt eða átti í erf- iðleikum. Síðustu árin bjó hún á Kleppsveginum í Reykjavík ásamt yngsta syni sínum Jónasi og fjöl- skyldu hans. Útför Súsönnu verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. ur þeirra er Þorgeir Kristján Eyberg, f. 18. nóv. 1971, maki Þórdís María Blomst- erberg, f. 12. nóv. 1969. Fyrir átti Þor- geir soninn Sigurð, f. 25. sept. 1990. Börn Þórdísar úr fyrri sambúð eru Erna Ýr, f. 12. feb. 1989, Írena Líf, f. 20. okt. 1991, og Heiðar Atli, f. 1. nóv 1995. Þau skildu. Súsanna giftist síðar Árna Sævari Gunn- laugssyni, f. 8. des 1950, d. 13. nóv. 1987. Börn þeirra eru Einar Haf- steinn, f. 22. ágúst 1975, maki Kar- en Hilmarsdóttir, f. 1. feb. 1977. Fyrir á Einar börnin Árna Sævar, f. 11. sept. 1997, og Maríu Sigríði Ísabellu, f. 26. jan. 2000. Börn Ein- ars og Karenar eru Birgitta Hrönn, f. 21. jan. 2005, d. 21. jan. 2005, og Sólrún Brynja, f. 6. júní 2006. Sigurlaug Ísabella, f. 5. apríl 1979, maki Ragnar Valgeir Jóns- Mig langar hér í örfáum orðum að minnast Súsönnu æskuvinkonu minnar. Súsý eins og hún var jafn- an kölluð var mikil dugnaðarkona og gleðigjafi. Fyrst þegar leiðir okkar lágu saman vorum við báðar ungbörn í vagni. Mæður okkar voru vinkonur og bjuggu hlið við hlið og eignuðust okkur með tveggja vikna millibili þar sem ég var eldri. Eftir að við stálpuðumst og okkur óx fiskur um hrygg var Súsanna for- inginn í hópnum. Hún var ótrúlega uppfinningasöm og áræðin í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Þeg- ar líða tók á barnaskóla skildi leiðir og við fluttum hvor í sinn bæj- arhlutann. Mæður okkar héldu áfram sambandi og þannig frétti ég reglulega af skini og skúrum í lífi Súsönnu. Hún eignaðist fjögur mannvænleg börn, lauk sjúkraliða- skólanum og vann sem sjúkraliði meðan heilsan leyfði. Hún var ein- staklega hláturmild, fjörug og skemmtileg manneskja sem lífgaði upp á umhverfið hvar sem hún kom. Síðustu árin átti Súsanna við mikið heilsuleysi að stríða, en hún mætti þeim örlögum sínum með æðruleysi og bjartsýni eins og hennar var von og vísa. Ég vil þakka Súsönnu samfylgd- ina, hlýhug í minn garð, öll jóla- kortin og afmæliskveðjurnar í gegnum árin. Aðstandendum henn- ar votta ég mína dýpstu samúð. Þórunn Ólafsdóttir (Tóta). Súsanna Regína Gunnarsdóttir Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson.) Ég minnist þessarar fal- legu og góðu konu. Kveðja, Vilborg. HINSTA KVEÐJA ✝ Ósk DagbjörtGuðmundsdóttir fæddist á Akranesi 13. janúar 1951. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík 2. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar eru Anna Dagbjört Þor- leifsdóttir, f. 22.9. 1930 og Guðmundur Sigurður Sigurðs- son, f. 24.9. 1926, d. 3.5. 2003. Systkini Óskar eru: Frímann, f. 13.12. 1951, Fann- ey, f. 20.3. 1953, Sigurður, f. 8.12. 1954, Sigurjón, f. 11.3. 1957, Ing- unn, f. 12.9. 1958 og Lárus, f. 28.12. 1960. Hálfbróðir sammæðra er Elí- as Rúnar Elíasson, f. 9.2. 1949 og hálfsystir samfeðra er Guðrún, f. 26.8. 1950. Ósk giftist árið 1970 Reimari urdóttir hennar Sandra Ósk Karls- dóttir, f. 13.6. 1990. C) Magnea Vala, f. 17.12. 1980. Dóttir hennar og Bjarna Gunn- arssonar, f. 7.4. 1981, er Thelma Ósk, f. 17.9. 1997. Ósk ólst upp á Hellissandi. Eftir grunnskóla 1967 fór hún í hús- mæðraskóla að Varmalandi. Vorið 1969 fór Ósk til starfa á Hótel Búð- um þar sem hún kynntist eig- inmanni sínum Reimari Magn- ússyni. Þau giftu sig 1970 í Búðarkirkju. Hófu þau saman bú- skap á Búðum ásamt föður hans, Magnúsi Einarssyni. 1976 urðu þau fyrir því áfalli að íbúðarhúsið brann til kaldra kola. Fluttu þau þá til Hellissands og starfaði Ósk þar við fiskvinnslu og sá um mötuneyti í Landsbanka Íslands. Árið 1991 fluttust Ósk og Reimar til Reykja- víkur. Ósk starfaði í Goða og sá hún um rekstur og mat í eldhúsi. Í ársbyrjun 1996 slitu Ósk og Reim- ar samvistum. Ósk bjó í Reykjavík til æviloka. Ósk verður jarðsungin frá Graf- arvogskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13. Magnússyni, f. 8.6. 1948. Hann er sonur Magnúsar Valdimars Einarssonar, f. 28.9. 1899, d. 2.12. 1991 og Guðnýjar Ólafar Oddsdóttur, f. 18.6. 1906, d. 16.5. 1969. Þau skildu 1996. Dæt- ur Óskar og Reimars eru: A) Guðný Ólöf, f. 25.6. 1970, gift Guð- jóni Jónssyni, f. 22.5. 1967, börn þeirra Maríanna Ósk, f. 31.12. 1992, og Jón Ingi, f. 10.6. 1994. B) Inga Lára, f. 18.3. 1974, unnusti Hilmar Þór Elefsen, f. 22.1. 1973, sonur þeirra Andri Snær, f. 8.6. 2004. Fyrri sam- býlismaður Ingu Láru, Karl Frí- mann Ólafsson f. 7.9. 1965, d. 7.8. 2000. Sonur þeirra Anton Freyr Karlson, f. 11.10. 1998 og fóst- Fyrir nokkrum árum fór pabbi okkar að búa með Ósk og með okkur og henni tókst strax mikill vinskapur. Við minnumst allra heimsóknanna til þeirra, ferðanna í Skorradal og fleiri ferðalaga. Ósk var okkur alltaf góð. Það er erfitt að kveðja og við trúum því ekki enn að við eigum ekki aftur eftir að hitta Ósk þegar við förum í Sóleyjarrima til pabba, þangað sem var alltaf svo glatt á hjalla og gaman að koma. Við þökkum fyrir þau ár sem við fengum að þekkja hana og biðjum guð að styrkja pabba, Guð- nýju, Ingu Láru, Magneu, krakkana þeirra og alla hina sem syrgja. Guð veri með ykkur. Helga Lilja og Jón Bjarni. Ég man vel þegar ég hitti bróður- dóttur mína í fyrsta sinn en þá kom hún sem barn til Hellissands með Guðmundi föður sínum sem nú er lát- inn. Komu þau heim til foreldra okkar Guðmundar þar sem þau dvöldu um tíma meðan Guðmundur var að jafna sig eftir alvarlegt slys. Ósk var fal- legt, gott og ljúft barn og man ég hvað það var gaman að fá hana til okkar á heimilið og lékum við okkur mikið saman og skipti engu þótt ég væri að- eins eldri. Nokkrum árum síðar fluttist Ósk ásamt foreldrum sínum frá Akranesi til Hellissands. Kynntist ég þá Ósk frænku enn betur og áttum við marg- ar góðar stundir saman. Eftir að ég fluttist til Reykjavíkur og hafði eign- ast börn gætti Ósk þeirra, þá ung- lingsstúlka. Hún var hörkudugleg eins og hún á kyn til í báðar ættir og annaðist hún börnin mín vel. Nú er skarð fyrir skildi, þegar hún hefur kvatt frekar óvænt, en örlögin verða ekki flúin þegar veikindi sækja að. Það var vitað með stuttum fyr- irvara hvert stefndi en það kemur alltaf á óvart þegar nánir ættingjar kveðja. Elsku Anna mín, missir þinn er mik- ill þegar þú sérð á eftir fyrsta barni þínu sem komst til fullorðinsára. Ég sendi þér, dætrum Óskar, barnabörn- um hennar og öllum aðstandendum, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi Guð styrkja ykkur í sorginni. Blessuð sé minning hennar. Sigrún Sigurðardóttir. Við viljum minnast með nokkrum orðum Óskar Guðmundsdóttur sem var sambýliskona sonar okkar Óskars Jónssonar. Hún kom eins og sólar- geisli inn í líf hans og féllu þau vel hvort að öðru og áttu margt sameig- inlegt. Þau ferðuðust töluvert um landið og fórum við hjónin eitt sinn með þeim á hennar æskustöðvar á Snæfellsnesi og dvöldum með þeim og foreldrum hennar. Að lokum vilj- um við þakka samfylgdina þó hún hafi verið allt of stutt. Við vottum fjöl- skyldu Óskar, ættingjum hennar og vinum, okkar dýpstu samúð og biðj- um guð að færa þeim styrk. Blessuð sé minning hennar. Katrín Marteinsdóttir og Jón Óskarsson. Ósk Dagbjört Guðmundsdóttir ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI HERMANN FINNBOGASON, Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtudag- inn 11. janúar kl. 13.00. Brynhildur Bjarnadóttir, Guðmundur B. Aðalsteinsson, Ólafur Kr. Hermannsson, Ragnheiður B. Brynjólfsdóttir, Guðbjörg Jóna Hermannsdóttir, Gunnsteinn Sigurðsson, Anna Sigrún Hermannsdóttir, Kristjana M. Hermannsd. Bjordal, Jan Arild Bjordal, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR JÓNSSON, Grænutungu 7, Kópavogi, sem lést sunnudaginn 31. desember verður, jarð- sunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 12. janúar kl. 13:00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á hjúkrunarheimili aldraðra í Sunnuhlíð í Kópavogi. Anna Sigríður Gunnlaugsdóttir, Bjarni Ólafsson, Kristín Indriðadóttir, Anna Ólafsdóttir, Björn Jónsson, Hafdís Ólafsdóttir, Guðmundur Einarsson. barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR JÓHANNSSONAR húsasmíðameistara, Hraunbæ 103, Reykjavík. Einnig viljum við þakka Frímúrarareglunni og Meist- arafélagi húsasmiða fyrir þann sóma, sem félögin sýndu honum við útför hans, og starfsfólki elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar fyrir góða umönnun frá haustdögum. Margrét Guðmundsdóttir, Friðrik Ágúst Helgason, Jóhann Bogi Guðmundsson, Gerður Guðmundsdóttir, Þór Whitehead, Dröfn Guðmundsdóttir, Sigurður Skúlason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN KRISTINN ÞORSTEINSSON, Bollatanga 16, Mosfellsbæ, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi þriðjudaginn 2 janúar, verður jarðsunginn frá Bústaðarkirkju föstudaginn 12. janúar klukkan 13:00. Þórey Ásthildur Kolbeins, Sveinn Friðrik Jónsson, Sigríður Svanhvít Halldórsdóttir, Hildur Elísabet Jónsdóttir, Lárus Þorsteinn Þórhallsson, Þorsteinn Þorvaldur Jónsson, Kristjana Sölvadóttir, Leiknir Jónsson, Guðbjört Kvien, Hilmir Þór Jónsson, Ragnheiður Vídalín Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, dóttir, systir og mágkona, JÓHANNA BJÖRNSDÓTTIR læknir, Bergþórugötu 9, Reykjavík, sem lést laugardaginn 30. desember, verður jarð- sungin frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 11. janúar kl. 15:00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð líknardeildar LSH, sími 543 1159. Ásta Ásbjörnsdóttir, Hulda Ásbjörnsdóttir, Jónína Ósk Pétursdóttir, Pétur Björnsson, Margrét Þorvaldsdóttir, Hólmsteinn Björnsson, Þorgerður Ása Tryggvadóttir, Guðrún R. Björnsdóttir, Lilja V. Björnsdóttir, Jón Ómar Finnsson, Birna Björnsdóttir, Ríkharður Reynisson og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.