Morgunblaðið - 10.01.2007, Page 30

Morgunblaðið - 10.01.2007, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Spádómar Heilsa REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI Notuð er m.a. dáleiðsla og EFT (Emotional Freedom Techniques). Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur, sími 694 5494, www.EFTiceland.com . Húsnæði í boði 3ja herbergja íbúð í Mosfellsbæ. Laus. Til leigu rúmgóð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð miðsvæðis í Moso. Laus strax. Leiga 100 þús. á mán. 3 mán fyrirfram. Sími 615 1226. Glæsileg 3ja herbergja íbúð í Mos. Fráb. útsýni, lyfta, bílageym. 122 m² með nýjum ísskáp, uppþvottavél og þvottavél. 120 þ. + 13,5 þ., hús-sj./mán. E. kl. 19 s. 565 6985 eða abjornsson@ossur.com. Glæsileg 3ja herbergja íbúð. Til leigu 80 fm íbúð í Breiðholti. 90.000 kr. á mánuði + rafmagn og hiti. Laus strax. Uppl. í síma 899 1782 eftir kl. 16:00 á daginn. Húsnæði óskast Lítil íbúð óskast í Vesturbæ/ mið- bæ. Reyklaus, 27 ára kona sem vinn- ur sem deildarstjóri á leikskóla leitar lítillar íbúðar til leigu í vesturbæ eða miðbæ. Hafið samband í síma 896 5580. Atvinnuhúsnæði Til leigu nýinnréttuð skrifstofu- herbergi í 104 Rvík. Securitas- öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð samnýting. Uppl. í síma 896 9629. Námskeið Grunnnám í silfursmíði 13. og 14. jan. í Reykjavík. Innritun hafin fyrir Akureyri, Egilsstaði, Ísafjörð og Vestmannaeyjar. www.listnám.is, Súðavogur 26, Kænuvogsmegin 104 Reykjavík, sími 695 0495 Meditation for this Age. Pierre Stimpling verður með kynningu á einstakri hugleiðsluaðferð. Opið hús miðvikud. 10. jan. kl. 19.30, Reykjavíkurvegi 64, 2. hæð, Hf. Nánari upplýsingar 845 8858. Upledger höfuðb. og spjald- hryggjarmeðf. Kynningarnámskeið á Upledger höfuðbeina og og spjald- hryggjarm. verður haldið 13. jan. næstk. á Hótel Sögu í Rvík. Upplýsingar í síma 466 3090 eða á www.upledger.is Tómstundir HPI Savage X RTR fjarstýrður bensín torfærutrukkur, nú með tilboðs aukahluta-pakka. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600 www.tomstundahusid.is Þrívíddar klippimyndir á tilboði. Allt að 20% afsláttur. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600 www.tomstundahusid.is Útivist Fjölskyldutjald óskast. Vantar stórt, vandað og vel með farið fjölskyldutjald. Guðlaug, s. 861 6855. Til sölu Útsala - Útsala - Útsala Mikið úrval af gjafavöru. Slóvak Kristall, Dalvegur 16 b, Kópavogur s. 5444331 Ýmislegt Herrakuldaskór í úrvali úr mjúku leðri og gæruskinnfóðraðir. Verð: 6.500.- 8.950.- 10.500- 12.500.- Herraskór úr leðri með kröftugum sóla, innleggi og höggdeyfi. Verð: 7.885.- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Bátar 30 rúmlesta skipstjórnarnám. Fjarnám við Framhaldsskólann í Aust- ur-Skaftafellssýslu. Skráning á vefn- um www.fas.is og í síma 470 8070. Umsóknarfrestur til 18. janúar. Bílar Ford árg. '02, ek. 56 þús. km. Ford F-350 Lariat útgáfa, leður, rafmagn í öllu, skuggðar rúður, dráttarkúla, 4 hjól að aftan, fótstig. Sem nýr. 7,3L Powerstroke diesel vél með kubb = 315hö. S. 861 9064. Samgöngumál fyrir vestan. Hefur þú áhuga á samgöngumálum á Vest- fjörðum? Þú ættir að skoða Þingeyr- arvefinn, thingeyri.is. Þar er líka margt annað forvitnilegt. Vestfirska forlagið. Toyota árg. '98 ek. 150 þús. km Toyota Avenis árg. ‘98 er til sölu.1600 vél, 5 dyra, beinskiptur og ekinn aðeins 150 þús. km. Ef frekari upplýsinga er óskað þá vinsamlegast hafið samband í s. 846 2537 (Daniel). Hjólbarðar Insa Turbo negld vetradekk. 4 stk. 205/70 R 15 + vinna 39.000 kr. Kaldasel ehf. , Dalvegur 16b, Kópavogur, s. 544 4333. Ökukennsla Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla - akstursmat. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '06, 696 0042/566 6442. Gylfi K. Sigurðsson Suzuki Grand Vitara, 892 0002/568 9898. Snorri Bjarnason BMW 116i, 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '06 892 4449/557 2940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Smáauglýsingar sími 569 1100 FRÉTTIR Í GREIN um Myndlistaskólann í Reykjavík, sem birtist í aukablaði Morgunblaðsins, Menntun, síðastlið- inn laugardag, var farið rangt með staðreyndir, sem full ástæða er til að leiðrétta. Í greininni stendur að Svavar Guðnason hafi kennt í Myndlista- skólanum. Svo var ekki. Hins vegar kom fjöldi þekktra myndlist- armanna að kennslu við skólann þessi fyrstu ár, meðal annarra voru þeir Ásmundur Sveinsson, Ragnar Kjartansson og Þorvaldur Skúlason. Þá er sagt í greininni að haldin séu „námskeið fyrir unglinga en að sjálf- sögðu megi áhugasamir kennarar líka koma“. Þetta er ekki rétt með farið. Hið rétta er að síðastliðið ár voru haldin námskeið fyrir myndlist- arkennara, sem að sögn Ingibjargar Jóhannsdóttur, skólastjóra Mynd- listaskólans, voru mjög vel heppnuð, og að í ár verði annað námskeið haldið, sérstaklega ætlað þessum hópi sem kallað sé „Myndlist“ rokk- ar – endurmenntun. Ragnar Kjart- ansson og Ásdís Sif Gunnarsdóttir hafi síðan haustið 2005 kennt þetta námskeið, sem hefur sérstaklega verið ætlað ungu fólki – kennarar sýndu því áhuga og skólinn brást við með því að bjóða sérstakt námskeið ætlað myndlistarkennurum. Ingi- björg bætir því við að þetta nám- skeið sé einnig kjörinn vettvangur fyrir t.d. sögukennara og heimspeki- kennara til að kanna nýjar lendur. Í greininni kom fram að við skólann væri einungis ein föst staða, staða skólastjóra. Það er rangt. Við skól- ann starfa 13 fastráðnir starfsmenn í hlutastarfi, auk skólastjórans sem er eini starfskrafturinn í fullu starfi. Allir starfsmenn og kennarar skól- ans eru starfandi myndlistarmenn og hönnuðir. Frumkvöðull Þorvaldur Skúlason við kennslu á fyrstu árum Myndlista- skólans í Reykjavík, en hann var einn þeirra listamanna sem kom til liðs við hann á fyrstu árum skólans. LEIÐRÉTT Grein um Myndlista- skólann í Reykjavík leiðrétt STJÓRN Félags íslenskra fótaað- gerðarfræðinga mótmælir harð- lega skrifum um fótaaðgerðarskóla í Menntablaði Morgunblaðsins 6. janúar sl. Í yfirlýsingunni frá stjórninni segir, að Snyrtiakademían reki ekki skóla í fótaaðgerðum og hafi ekki leyfi til þess. Vilyrði það, sem menntamálaráðherra hafi veitt skólanum, hafi verið afturkallað í nóvember sl. Ekki verði hægt að hefja nám í fótaaðgerðum á Íslandi fyrr en Starfsgreinaráð heilbrigð- isgreina hafi sett saman námskrá og ekki sé ljóst hvenær það verði. „Það er mjög slæmt þegar svona rangar upplýsingar eru birtar. Áhugi á námi í fótaaðgerðum er mikill og því mjög nauðsynlegt að upplýsingar séu réttar. F.h. Félags íslenskra fótaað- gerðafræðinga, Sólrún Ó. Siguroddsdóttir for- maður.“ Athugasemd vegna Snyrti- akademíu FYRSTA Hrafnaþing ársins verður haldið í dag, miðvikudag, kl. 12.15 í sal Möguleikhússins við Hlemmtorg. Þar mun Snorri Baldursson líffræð- ingur og forstöðumaður á Nátt- úrufræðistofnun fjalla um náttúru og náttúruvernd umhverfis Vatna- jökul en fyrir Alþingi liggur frum- varp umhverfisráðherra um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Þjóðgarð- urinn verður skv. því í fyrstu 13,4 ferkílómetrar að stærð, þar af eru 8,2 ferkílómetrar huldir jökli en 5,2 er jökullaust land tengt jöklinum. Náttúrufræðistofnun hefur á und- anförnum árum tekið saman upplýs- ingar um náttúrufar jökullausra svæða umhverfis Vatnajökul og lagt mat á verndargildi helstu nátt- úruminja, s.s. landslags, jarðminja, gróður- og dýralífs, á þessum svæð- um. Snorri mun í erindinu gera grein fyrir aðdraganda að stofnun þjóðgarðsins, vinnulagi við hana og fjalla um fyrirhuguð og æskileg mörk garðsins með tilliti til lands- lagsheilda, jarðminja og lífríkis. Hrafnaþing er öllum opið. Sjá nán- ar: http://ni.is/midlun-og-thjonusta/ hrafnathing/greinar//nr/485 Náttúra Vatna- jökuls á Hrafnaþingi AFKOMENDUR Jóhannesar úr Kötlum skálds vilja koma eftirfar- andi leiðréttingu á framfæri vegna fréttar Stöðvar 2 um áramótaauglýs- ingu Alcans þ. 4. janúar sl.: „1. Í fréttinni var sagt: ,,Í stað Kaldalóns var í hinni umdeildu ára- mótaauglýsingu Alcans flutt gamalt þjóðlag við ljóðið Hátíð fer að hönd- um ein sem er eftir einn fyrrum for- mann Félags byltingarsinnaðra rit- höfunda Jóhannes úr Kötlum.“ 2. Þetta er ekki rétt. Hátíð fer að höndum ein er gömul þjóðvísa, sem Jón Ólafsson frá Grunnavík skrifaði í orðabók sína á 18. öld. – Hins vegar orti Jóhannes, fyrir vin sinn Sigur- svein D. Kristinsson söngstjóra, fjögur erindi í viðbót við þjóðvísuna. – Ef þær vísur hefðu verið sungnar í auglýsingu Alcans hefði það verið gert í óþökk afkomenda Jóhannesar úr Kötlum enda erum við viss um að Jóhannes hefði aldrei samþykkt slík- an flutning í þágu álvers á Íslandi, eins mikill náttúruunnandi og hann var og ekki síður en Sigvaldi Kalda- lóns. 3. Hvernig fréttin um að Jóhannes hafi verið fyrrum formaður Félags byltingarsinnaðra rithöfunda tengist frétt um að hann eigi hlut í jólasálm- inum ,,Hátíð fer að höndum ein“ skiljum við ekki, en við getum samt vel hugsað okkur hann sem foringja byltingarmanna gegn álverum á Ís- landi og þeirri eyðileggingu á nátt- úru Íslands sem þau hafa í för með sér,“ segir í yfirlýsingunni. Yfirlýsing INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, og frambjóðendur flokksins í norð- vestur-, norðaustur- og suður- kjördæmum, efna til opinna funda í janúar um sókn fyrir Ísland allt. Yf- irskrift fundanna er Jöfn tækifæri – sókn fyrir Ísland allt. Allir eru velkomnir á fundina en dagskrá þeirra er sem hér segir: Akureyri 10. janúar kl. 20, Hótel KEA, Húsavík 11. janúar kl. 20, Veitingahúsið Salka, Borgarnes 16. janúar kl. 20, Hótel Borgarnes, Sel- foss 17. janúar kl. 20, Hótel Selfoss, Ísafjörður 18. janúar kl. 20, Ed- inborgarhúsið, Reykjanesbær 22. janúar kl. 20, Víkin, Sauðárkrókur 23. janúar kl. 20, Kaffi Krókur, Vestmannaeyjar 25. janúar kl. 20, Alþýðuhúsið, Egilsstaðir 29. jan- úar, kl. 20, Hótel Hérað. Opnir fundir Samfylking- arinnar Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.