Morgunblaðið - 10.01.2007, Page 33

Morgunblaðið - 10.01.2007, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 33 menning Eitt af því sem getur veriðblekkjandi við að búa í fá-mennu þjóðfélagi, eins og ís- lensku, er að ímynda sér að allir viti allt um alla og séu með á nótunum um hvernig hátti til í hverju koti. En þessi blekking stenst ekki dags- ljósið, og gerði það ekki einu sinni áratugina áður en bilið milli ríkra og fátækra jókst svo mjög að úr varð Ísland eitt og tvö. Ég velti því fyrir mér sem ég skrifa þessar línur hversu margir af þeim sem lesi þær þekki til dæmis eitthvað af því fátæka fólki sem sannanlega er til í landinu, sam- kvæmt tölfræðinni. Okkur hinum lítt sýnilegt – og ósýnilegt ráðamönnum sem bera ábyrgð á því hvar það er – úti á guði og gaddinum. Ekki þyrfti miklar flækjur til að bæta kjör mjög margra, nánar til- tekið eitt pennastrik, þar sem hin hneykslanlega lágu skattleysismörk væru hækkuð. Þetta er auðvitað að- eins eitt úrræði af mörgum hugs- anlegum, en svo djúpt er á úrræðum hjá þeim sem taka það að sér hvert kjörtímabilið á fætur öðru að stjórna einni ríkustu þjóð heims að þeir láta það niðurlægjandi form mannlífsins sem fátækt er viðgangast í furðulega stórum stíl miðað við efni og ástæð- ur.    Meðan svo langt gengur aðsjálfsritskoðandi (ef ekki hálf- ritskoðaðir) fjölmiðlar sem ekkert misjafnt mega vita um langbesta land í heimi eru farnir að fjalla um þessa fátækt halda íslenskir við- skiptajöfrar áfram að verða moldrík- ari með degi hverjum. Og kalla með því yfir sig svo tilfinningaþrungin viðbrögð að úr verða langvarandi, óskiljanleg og dýr Baugsréttarhöld (í anda Réttarhaldanna hjá Kafka, en ekki eins vel skrifað, og gott ef ekki líka í anda séríslenskra landa- merkjadeilna). Svo vel gengur ís- lenskum bissnissmönnum að meir- aðsegja vinirnir á Norðurlöndum sjá sig knúna til að sýna á sér miður snotrar hliðar og leggjast í subbu- lega blaðamennsku um orsakir og afleiðingar íslenska viðskiptaund- ursins. Englendingar virðast hins vegar ekki líta á það sem sára raun að Ís- lendingum gangi vel í verslun og við- skiptum. A.m.k. var viðtalið við Jón Ásgeir Jóhannesson í BBC World fyrir nokkrum dögum laust við komplexa og heift. Þetta var alvöru- viðtal við alvörubissnissmann. Spurt hver væri lykill að velgengninni, hvernig hann færi að þessu. Þarna var gaman að sjá til Jóns Ásgeirs, sem svaraði spurningum tilgerðarlaust og blátt áfram. Ekki vottur af því að slá um sig eða að falla í minnimáttar-mikilmennsku- gjána sem á það til að opnast þegar Íslendingur er spurður um sig.    Mér finnst það vera aðdáun-arefni hvað margir Íslend- ingar hafa á síðustu árum náð frá- bærum árangri í viðskiptum. Varla hefur þar minna dugað til en frum- kvæði, sköpunarkraftur og dugn- aður. Sem ætti að vera alveg sérstök áminning um að Íslendingar eru sín helsta auðlind. Og betri fjárfesting væri þá ekki til en að stuðla að vexti og viðgangi fólksins með öllum til- tækum ráðum, og þá sérstaklega með öflugra og markvissara mennta- og velferðarkerfi. Þau kerfi þyrftu líka að halda vel utan um nýbúana sem hafa tekið að sér að auðga Ísland með því að setj- ast þar að. Tölur um það hver fáir þeirra sækja framhaldsmenntun í háskóla benda hins vegar ekki til þess að rétt sé að þeim búið. Þar með bætist við enn einn þáttur sem stuðlar að því að skipta Íslandi í númer eitt og tvö. Ísland eitt og tvö » Og betri fjárfestingværi þá ekki til en að stuðla að vexti og viðgangi fólksins með öllum tiltækum ráðum, og þá sérstaklega með öflugra og mark- vissara mennta- og velferðarkerfi. steinunn@mac.com FRÁ PARÍS Steinunn Sigurðardóttir Íslenska þjóðin Ein þjóð eða tvær? Greinarhöfundur veltir að þessu sinni stéttaskiptingunni fyrir sér. Morgunblaðið/Brynjar Gauti ÞAÐ GÆTI farið svo að framlag Bretlands til Söngvakeppni Evr- ópskra sjónvarpsstöðva í ár verði samið af sjálfum Morrissey. Sjónvarpsstöðin BBC hefur stað- fest að viðræður við þennan fyrrver- andi söngvari The Smiths séu í gangi og ekki aðeins um að semja lagið heldur mögulega flytja það líka. Morrissey sýndi því fyrst áhuga að taka þátt í söngvakeppninni þeg- ar breska lagið Teenage Life eftir Daz Sampson lenti í fimmta neðsta sæti í fyrra. „Það var hræðilegt að horfa upp á þennan slaka árangur Bretlands en hann kom kannski ekki á óvart. Hvers vegna spurðu þeir ekki mig?“ sagði Morrissey. Talskona sjónvarpsstöðvarinnar tók fram á fréttavef BBC í gær að ekkert væri staðfest á þessu augna- bliki um þátttöku Morrissey. BBC hefur einnig rætt við nokkra aðra hátt skrifaða tónlistarmenn til að reyna að krækja í söngvara sem væri sigurstranglegur í keppninni sem fer fram í maí í Finnlandi. En til að komast þangað þarf Morrissey að vinna forkeppni í heimalandi sínu. Tekur Morrissey þátt í næstu Evróvisjónkeppni? Morrissey Færi eflaust létt með að taka titilinn í Finnlandi. Reuters  Ársalir - fasteignamiðlun  Ársalir - fasteignamiðlun  Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Símar 533 4200 og 892 0667 Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar: Ársalir ehf. - fasteignamiðlun Höfum kaupendur að öllum stærðum og gerðum atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Staðgreiðsla í boði. ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST! FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI ÓSKAST MIÐSVÆÐIS Mér hefur verið falið að leita eftir skrifstofuhúsnæði miðsvæðis í Reykjavík. Æskilegt að húsnæðið hafi a.m.k. 10 skrifstofur, móttöku og fundarherbergi. Kaup eða leiga koma til greina. Áhugasamir vinsamlegast hafi samband og ég mun veita allar nánari uppl. Hákon Svavarsson, löggiltur fasteignasali, 898 9396. Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Fyrsti konsert er frír SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS Ómur framtíðar FIMMTUDAGINN 11. JANÚAR KL. 19.30 Hljómsveitarstjóri ::: Esa Häkkilä Einleikari á fiðlu ::: Eygló Dóra Davíðsdóttir Einsöngur ::: Egill Árni Pálsson, tenór Einleikari á klarinett ::: Grímur Helgason tónleikar í háskólabíói Gioacchino Rossini ::: Wilhelm Tell, forleikur Gerald Finzi ::: Klarinettukonsert Giuseppe Verdi ::: Aríur úr I Lombardi, Rigoletto og La Traviata Max Bruch ::: Fiðlukonsert í boði FL Group og Sinfóníuhljómsveitarinnar Á hverju ári gefst þeim tónlistarnemum sem skarað hafa fram úr í sérstakri forkeppni, einstakt tækifæri til að spreyta sig með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þetta eru tónleikar eldmóðs og spilagleði. www.valholl.is www.nybyggingar.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00. Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.Sími 588 4477 Garðabæ – frábær lóð Höfum til sölu stóra lóð á einum besta stað í Akralandi. Frábær staðsetning. Upplýsingar veitir Bárður Tryggvason á skrifstofunni. Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.