Morgunblaðið - 10.01.2007, Page 37

Morgunblaðið - 10.01.2007, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 37 dægradvöl 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7. Bg5 a6 8. Ra3 b5 9. Rd5 Be7 10. Bxf6 Bxf6 11. c3 O-O 12. Rc2 Bg5 13. a4 bxa4 14. Hxa4 a5 15. Bb5 Re7 16. Rcb4 Bh3 17. Rxe7+ Dxe7 18. Bc6 Hac8 19. Hxa5 Bxg2 20. Hg1 Bh3 21. Dh5 Bh4 22. Dh6 g6 23. De3 Be6 24. Ha7 Df6 25. Bd5 Hb8 26. Ha6 Hfc8 27. Hc6 Hxc6 28. Bxc6 h5 29. Bd5 Bg4 30. Kf1 Kg7 31. Ke1 Bg5 32. Dg3 Bf4 33. Dd3 Bxh2 34. Hh1 Dg5 35. Kf1 Bf4 36. f3 Bd7 37. Dc2 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Pamplona á Spáni. Alexei Shirov (2720) hafði svart og tryggði sér sigur gegn Oleg Korneev (2657) með snaggaralegum hætti: 37 … Hxb4! 38. cxb4 Dg3 39. De2 Be3 hvítur ræður nú ekki við hótanir svarts. 40. b3 Bh3+ og hvítur gafst upp enda verður hann mát í næstu tveimur leikjum. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. Minningarmót. Norður ♠G965 ♥ÁD1042 ♦9 ♣1086 Vestur Austur ♠ÁK ♠1074 ♥K63 ♥G95 ♦D1065 ♦432 ♣G542 ♣ÁKD7 Suður ♠D832 ♥87 ♦ÁKG87 ♣93 Suður spilar 2ª og fær út tígul. Í minningarmóti BR um Hörð Þórð- arson fengu sigurvegararnir toppskor fyrir að spila tvo spaða og vinna fjóra. Vestur vakti á tígli, Páll Valdimarsson í norður kom inn á hjarta, austur passaði og Sverrir Kristinsson sagði spaða, sem Páll hækkaði í tvo. Útspilið var heppilegt – tígull upp gaffalinn. Sverrir tók strax þrjá slagi á litinn og henti tveimur lauf- um úr borði. Svínaði svo hjartadrottn- ingu, tók hjartaás og spilaði síðasta lauf- inu frá blindum. Austur drap og skipti yfir í tromp, þar sem vestur tók ÁK og spilaði síðan tígli. Sverrir stakk frá með gosa og trompaði hjartað frítt. Trompaði lauf í borði og spilaði hjarta úr blindum í tveggja spila endastöðu. Austur gat ekk- ert nýtt sér tromptíuna, því rauðu spil sagnhafa voru frí á báðum höndum. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Krossgáta Lárétt | 1 heimsku, 8 ólyfjan, 9 gefa koss, 10 umfram, 11 sárar, 13 út, 15 matarsamtíningur, 18 vegna, 21 aula, 22 hvinur, 23 áa, 24 föt. Lóðrétt | 2 viðurkennum, 3 líkamshlutar, 4 poka, 5 sleifin, 6 skynja, 7 hafði upp á, 12 for, 14 askur, 15 frásögn, 16 stétt, 17 landið, 18 sjá eftir, 19 þekktu, 20 sefar. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fámál, 4 fágæt, 7 látin, 8 ólmar, 9 dýr, 11 iðra, 13 gróa, 14 undin, 15 harm, 17 álar, 20 enn, 22 lyfið, 23 ertan, 24 tunna, 25 tuðra. Lóðrétt: 1 fálki, 2 mátar, 3 lund, 4 flór, 5 gómar, 6 terta, 10 ýldan, 12 aum, 13 Gná, 15 hollt, 16 rifan, 18 látið, 19 renna, 20 eðla, 21 nekt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 1Danska hagstofan birti sam-anburð á mat- og drykkjar- vöruverði víða í Evrópu og Ísland trón- aði á toppnum. Hvað var matarverð á Íslandi miklu hærra en meðaltalið í löndunum sem könnunin náði til? 2Magnús Magnússon, útvarps-maður hjá BBC, fræðimaður, þýð- andi og þáttastjórnandi er látinn. Fyrir hvað er hann frægastur? 3 Fjórar þingkonur eru nú á faralds-fæti í fjarlægu landi. Hvar? 4 Auglýst hefur verið til sölu einbýlis-hús í stærra lagi við Sunnuflöt í Garðabæ. Hvað er það stórt í fm? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Íslendingur hefur verið tilnefndur til Bo- dil-verðlaunanna dönsku fyrir besta leik í aukahlutverki í danskri kvikmynd. Hver er hann? Svar: Friðrik Friðriksson. 2. Deilur hafa staðið um vegarstæði við skóg í Þorskafirði. Hvað heitir skógurinn? Svar: Teigsskógur. 3. Erkibiskup í Póllandi hefur sagt af sér vegna samvinnu sínnar við leyni- þjónustu landsins í tíð kommúnistastjórn- arinnar. Við hvaða borg er erkibiskupsemb- ættið kennt? Svar: Varsjá. 4. Sögusagnir eru um að fræg bresk hljómsveit muni koma saman á ný, 30 árum eftir útgáfu smáskífusmellsins Roxanne. Hvaða hljóm- sveit er þetta? Svar: Police. Spurt er … ritstjorn@mbl.is    HALLVARÐUR Ásgeirsson hefur gefið út frumraun sína, Lífsblómið. Hér er á ferð diskur með frumsömdu efni sem auðveldast er að skilgreina sem framúrstefnulega klassík. Átta lög skrýða Lífsblómið og eru þau af- ar ólík. Áhrif má finna úr ýmsum átt- um en eins og áður sagði er klassíkin í fyrirrúmi. Ég hef áður hlustað á plötur sem þessa. Það er að segja plötur sem blanda saman sígildri tónlist og raf- rænum hljóðum. Hallvarði tekst ágætlega að skapa stemningu og það á vandaðan hátt. Það er með Lífs- blómið eins og margar aðrar plötur af þessu tagi að hún höfðar ekki til margra. Hún er full af tilvísunum í tónlist og hlustandinn þarf að vera afskaplega vel að sér til þess að skilja hvað hér er á seyði. Lögin eru ekki sérstaklega lík venjulegum lög- um heldur er hvert þeirra einstakt verk og ber hlustandanum að upplifa þau sem slík. Það koma margir hljóðfæraleik- arar fram á Lífsblóminu og er hljóm- ur plötunnar ágætur, mig grunar reyndar að hún sé tekin upp á hljóm- leikum, að minnsta kosti að hluta til. Hallvarður hefur næmt eyra fyrir melankólíu og skilar það sér í því að hún dreifir sér yfir hvert einasta lag og verður einskonar þema fyrir plöt- una. Þrátt fyrir að Lífsblómið sé afar vandað verk er ekki laust við að það sé erfitt að fylgja því eftir og skilja hvert Hallvarður ætlar sér með því. Kannski myndi ég skilja þetta betur ef ég hefði lært tónfræði nýlega eða væri á kafi í nútímaklassík en svo er ekki þannig að tilviljanakennd hljóð- notkunin þurfti lengri tíma en ella til þess að síast inn og verða skiljanleg. Á köflum þótti mér Lífsblómið af- skaplega fallegt og einlægt verk en á móti kemur að stundum þótti mér hún tilgerðarleg og svo yfirgengi- lega djúp að mér fannst ég vera að ráðast inn á persónulegt svæði ein- hvers með hlustuninni einni, ef ég hefði tekið þessar djúpu tilfinningar til mín. Þrátt fyrir að ég hlustaði og hlustaði á Lífsblómið tókst mér aldr- ei almennilega að verða hluti af stemningunni. Það er eins og hún hafi átt sér stað við upptökur eða þegar tónlistin var samin. Til mín sem hlustanda skilaði hún sér ekki nægilega vel. Engu að síður er hún vönduð og þá var ég sérstaklega hrifin af píanó- og strengjaútsetn- ingunum. Ef þú ert á kafi í nútímaklassík og tónfræðipælingum þá er þessi plata fyrir þig, fyrir viðvaninga og venju- lega poppara er hún líklega helst til flókin en vel þess virði að spreyta sig á. Plötur eins og Lífsblómið kenna hlustendum alltaf að tónlist getur verið miklu meira en það sem við heyrum í útvarpinu, en aðgengilegar eru þær ekki. Tilviljanakennd melankólí Helga Þórey Jónsdóttir TÓNLIST Geisladiskur Geisladiskur Hallvarðs Ásgeirssonar, nefndur Lífsblómið. Hallvarður leikur sjálf- ur á gítar, píanó, orgel og hljóðgervla. Auk hans leika á plötunni þau Guð- mundur St. Gunnarsson, Halldór Úlfar Arnarsson, Þórunn Valdimarsdóttir, Hall- grímur Jónas Jensson, Páll Ívan Pálsson, Sabine Hill, Aðalheiður M. Gunnarsdóttir, Þóra Gerður Guðrúnardóttir, Gestur Guðnason, Gróa Valdimarsdóttir, Gunn- hildur Daðadóttir, Andrea Brahmer, Júlía Mogensen, Áki Ákason, Al Doughly Dit Al Doghri, Ingi Garðar Erlendsson, Charles Ross, Magnús A. Jensson, Helgi Hauks- son, Úlfar Ingi Haraldsson, Snorri Har- aldsson, Grímur Helgason, Elena Jega- lena, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Jóhannes Wollertsen, Kristín Þóra Har- aldsdóttir, Ernir Óskar Pálsson, Sigurður Már Valsson, Ólafur Björn Ólafsson, Valdi- mar Kolbeinn Sigurjónsson og Óttar Sæ- mundsson. Upplýsingar um upptökur, upptökustjórn og annað slíkt vantar í upplýsingarnar sem fylgja disknum. Para- digms Recordings gefa út. Hallvarður Ásgeirsson – Lífsblómið  Hallvarður Ásgeirsson Leikur sjálfur á gítar, píanó, orgel og hljóðgervla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.