Morgunblaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 19
|miðvikudagur|10. 1. 2007| mbl.is daglegtlíf Fáir þekkja til Tomatis- tækninnar á Íslandi, en hún hafði mikil áhrif á heyrn Sól- veigar M. Diðriksdóttur. »20 heilsa Við eigum að gera meira af því að halda græna penn- anum á lofti segir Jørn Eskildsen. »21 menntun Það er um að gera að missa ekki trúna á sjálfan sig þegar reynt er að sigrast á reyking- arfíkninni. »21 hollráð Ég er ákaflega fastur fyrirog er ekkert mikið fyrirbreytingar. Þetta erörugg og góð vinna og ég er búinn að starfa í Sorphirðunni í Reykjavík í fimmtíu ár og einum degi betur. En þegar ég kom hingað upphaflega þá var það ekki ætlun mín að starfa við þetta, af því að þá var litið niður á ruslakarla. Ég forð- aðist lengi að segja nokkrum frá því að ég væri í þessari vinnu, ég sagðist bara vera í bæjarvinnunni. En mér hlýtur að hafa liðið vel fyrst ég er búinn að vera hér öll þessi ár,“ segir Þórólfur V. Þorleifsson bílstjóri og flokksstjóri hjá Sporhirðu Reykja- víkur þar sem hann tyllir sér í tíu kaffinu með nestið sitt sem hann smyr alltaf sjálfur og hefur gert í þessa hálfu öld sem hann hefur sinnt starfi sínu af trúmennsku. Borg- arstjóri ætlar að heiðra Þórólf í dag fyrir tryggðina og dugnaðinn. Fékk bullandi vöðva „Þegar ég var sextán ára, í jan- úarmánuði 1957, þá sótti ég um í bæjarvinnunni af því ég var frekar latur við að vera í skóla. Ég hafði verið að vinna á Eyrinni en for- eldrum mínum þótti það heldur lé- legt af mér og hvöttu mig til að fara í bæjarvinnuna. Ég gerði það en ég vildi fara í allt annað sem þar var í boði heldur en sorpið. En það vant- aði fólk í ruslið svo ég lét til leiðast og hef verið hér síðan. Fyrsta árið var ég venjulegur ruslakarl vestur í bæ og þá voru aðstæður allt aðrar en þær eru í dag. Þá voru engar léttar plastruslafötur heldur voru rosalega þungir og erfiðir járnstampar með föstu loki og einnig voru olíutunnur. Við vorum með sorptrillur til að komast með þetta á milli húss og bíls. Þetta var hörkuvinna og ég fékk bullandi vöðva. Áður fyrr var unnið fram á kvöld og líka laugar- daga fram að hádegi. En núna mæti ég um klukkan sex að morgni og ég er búinn að leggja bílnum rúmlega þrjú og fer þá heim.“ Frægir menn í öskunni Þórólfur hefur sinnt ýmsum störf- um innan sorphirðunnar en hann hefur verið flokksstjóri og bílstjóri á sama bílnum undanfarin fimmtán ár. „Ég er búinn að umgangast fjölda fólks í þessu starfi og það er mikið af unglingum sem sækir í starfið í sum- arvinnu. Einn þeirra sem starfaði hjá mér sem unglingur fyrir mörg- um árum, hann kemur alltaf út og heilsar okkur þegar við sækjum ruslið hjá honum núna. Mér þykir vænt um það. Svo hafa líka nokkrir frægir menn verið í sorpinu með okkur þegar þeir voru strákar. Til dæmis Rúnar Gunnarsson skemmti- kraftur, Eiríkur Hauksson rokkari, Björgvin Gíslason gítarleikari og sjálfur ríkislögreglustjórinn.“ Þórólfur segir að karlmenn séu í meirihluta í starfinu en þó komi allt- af nokkrar stúlkur öðru hvoru. „Fyrsta stúlkan sem starfaði hjá okkur í sorpinu var frænka mín hún Guðbjörg Gróa sem kom árið 1974.“ Þórólfur á góðan samstarfsfélaga og vin, Óskar Ágústsson, sem hefur verið honum samferða í öll þessi ár, utan eitt. „Hann Óskar á fimmtíu ára starfsafmæli eftir rúmt ár og það er skemmtilegt að pabbarnir okkar báðir voru líka starfsmenn í öskunni á sínum tíma. Við höfum verið miklir félagar og stunduðum bíóin saman í gamla daga.“ Breyttar aðstæður Losað úr ruslabalanum í öskubílinn á fjórða áratugnum. Þorleifur Eyjólfsson faðir Þórólfs er til vinstri, Halldór Oddsson félagi hans til hægri. Hefur hirt upp rusl eftir okkur í hálfa öld Morgunblaðið/Árni Sæberg Vinir Þórólfur og Óskar eru samhentir í sorpinu og aðeins vantar rúmt ár upp á að samanlagt hafi þeir unnið hjá Sorphirðunni í heila öld. Hann ætlaði sér aldrei að vinna í sorpinu enda var litið niður á ruslakarla þegar hann var ungur. Kristín Heiða Krist- insdóttir hitti sorphirðu- mann sem borgarstjóri mun heiðra í dag. Eiríkur Hauksson rokkari, Björgvin Gíslason gít- arleikari og lögreglustjór- inn hafa unnið í sorpinu. LÍFIÐ getur verið sannkölluð rússíbanareið, jafnt hjá stjórnmálamönnum sem öðrum, og víst er að portrett frönsku forsetaframbjóðendanna sem hér sjást (f.h.) Jean-Marie Le Pen, Nicolas Sarkozy, Segolene Royal og Franco- is Bayrou eiga eftir að rúlla um einhver biljarðborð á næstunni. En fyr- irtækið Chevillotte hefur nú framleitt 500 eintök af 14 kúlu setti með kúlu- númeri á annarri hliðinni en mynd af frönskum stjórnmálamanni á hinni. Skotið á forseta?                                          khk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.