Morgunblaðið - 10.01.2007, Side 22

Morgunblaðið - 10.01.2007, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. MATARVERÐIÐ VERÐUR KOSNINGAMÁL Eiga Íslendingar að sætta sigvið að verð á matvælum,helztu lífsnauðsynjum heimilanna, sé 62% hærra en að meðaltali í ríkjunum 15, sem mynduðu Evrópusambandið fram til 2004 – hins velmegandi hluta Evrópu? Að sjálfsögðu ekki. Neyt- endur eiga ekki og munu ekki sætta sig við það. Nú, þegar kosn- ingar fara brátt í hönd, munu þeir gera kröfu til stjórnmálaflokk- anna um að þeir útskýri hvernig þeir ætla að fara að því að lækka matvælaverðið. Þegar matvælanefnd forsætis- ráðherra var að störfum fyrr á árinu var gengið út frá tölum, sem sýndu að matarverð var 48% hærra en að meðaltali í aðildar- ríkjum ESB. Þetta voru tölur frá árinu 2003. Í fyrradag voru birtar tölur frá hagstofum ESB- ríkjanna, auk Sviss, Noregs og Ís- lands, sem sýna eins og áður segir að verðið hér sé 62% hærra en að meðaltali í gömlu ESB-ríkjunum. Hér í blaðinu í dag kemur fram hjá Rósmundi Guðnasyni hjá Hag- stofunni að breytingar á gengi krónunnar ráði mestu um þessa breytingu. Það útskýrir þessa miklu breytingu á stuttum tíma, en gerir verðmuninn ekki að neinu leyti þolanlegri. Samanburðurinn, sem birtur er í Morgunblaðinu í dag og gær, sýnir vel að þær aðgerðir, sem taka eiga gildi í marz til að lækka matvælaverð, munu ekki duga til að koma því í það horf, sem al- menningur getur sætt sig við. Þær duga kannski til að koma mat- arverði hér í svipað horf og í Nor- egi. Neytendur þar í landi hafa jafnríka ástæðu til að vera ósáttir og íslenzkir neytendur. Samstaða náðist ekki í matvæla- nefndinni um það hvaða leið bæri að fara til að lækka matvælaverð. Þrjár aðgerðir voru helzt til um- ræðu; að fella niður vörugjöld, lækka virðisaukaskatt og fella nið- ur tolla á innfluttum landbúnaðar- afurðum. Fulltrúar landbúnaðar- ins í nefndinni lögðust gegn því að síðastnefnda leiðin yrði farin. Þær aðgerðir, sem ríkisstjórnin náði síðan samstöðu um, samanstóðu fyrst og fremst af lækkunum á vörugjöldum og virðisaukaskatti. Hinni nauðsynlegu uppstokkun í úreltu landbúnaðarkerfi var enn og aftur frestað og þar með ár- angursríkustu leiðinni til að lækka matarverð á Íslandi. Þær tolla- lækkanir, sem Morgunblaðið greinir frá í dag að sé verið að semja um við Evrópusambandið, eru væntanlega ekki það miklar að þær muni breyta því. Það er engin tilviljun að hæsta matvælaverðið í Evrópu er á Ís- landi, í Noregi og Sviss, sem eru þau ríki sem leggja mestar hömlur á viðskipti með landbúnaðarvörur. Það mun lækka verð að draga úr þeim hömlum. Hins vegar má ekki beina sjón- um að landbúnaðinum eingöngu. Hver er til dæmis ástæðan fyrir því að hér eru ávextir dýrastir í Evrópu, þótt litlir sem engir tollar séu á þeim? Og af hverju er fiskur óvíða dýrari en hér? Hið háa verð- lag á landbúnaðarvörum getur spilað inn í. Fiskur er t.d. í sam- keppni við kjöt og þegar kjötið er dýrt gefur það fisksalanum litla hvatningu til að lækka hjá sér verðið. En það er líka full ástæða til að skoða verðlagningu og við- skiptahætti bæði heildsala og smásala á matvörumarkaðnum. Það þarf engar gáfulegar úttektir til að almenningur átti sig á að samkeppni er alltof lítil á mat- vörumarkaðnum. Samkeppnisyfir- völd þurfa að beita sér frekar en þau hafa gert til að ýta undir sam- keppni og gegnsæi í verðlagningu á þessum markaði. Fróðlegt er að skoða viðbrögð forystumanna stjórnmálaflokk- anna við fréttum um hinn gríð- arlega mun á matarverði í Morg- unblaðinu í dag. Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, og Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, virðast kjósa að stinga höfðinu í sandinn og neita að horfast í augu við að uppskurð- ur á landbúnaðarkerfinu er for- senda fyrir því að hér megi lækka matarverð verulega og varanlega. Forystumenn annarra flokka virð- ast hafa meiri vilja til þess að grípa til nauðsynlegra aðgerða. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, vill að hluta kenna krónunni um hið háa matarverð. Það er rétt að krónan getur valdið sveiflum í verðlagi, en þær geta auðvitað verið bæði upp og niður á við. Upptaka evru er ekki töfralausn á háu matarverði frekar en öðrum efnahagsvanda; það skiptir til dæmis miklu máli á hvaða gengi krónan yrði fest við evruna. Hitt er svo annað mál að sameiginlegur gjaldmiðill getur auðveldað verð- samanburð á milli landa og aukið aðhald og samkeppni. Það er ekki óeðlilegt að gjaldmiðilsmálin séu rædd í þessu samhengi. Það er vafalaust rétt hjá Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra að ekki sé rétt að fara neina koll- hnísa í t.d. skatta- og tollalækk- unum í því skyni að lækka mat- arverð. Það mun ekki gerast strax. En það mun skipta kjós- endur máli í kosningabaráttunni, sem í hönd fer, að flokkarnir geti sýnt fram á að þeir séu með áætl- un, sem dugir til að lækka mat- arverð og gera lífskjör hér á landi að þessu leyti sambærileg við það sem gerist annars staðar í Vestur- Evrópu. Á fjögurra ára fresti gefst tæki- færi til að minna stjórnmálamenn á að neytendur, skattgreiðendur og kjósendur eru sama fólkið. Skoðanir forystumannastjórnmálaflokkanna eruskiptar á gildi talna Euros-tat sem sýna hátt mat- arverð á Íslandi samanborið við lönd innan Evrópusambandsins. Þeir eru þó á einu máli um að matvælaverð hér á landi sé of hátt og það þurfi að lækka. „Gildi þessa samanburðar sést best á því, að þegar fátæk lönd bæt- ast við Evrópusambandið þá eykst þessi mismunur, án þess að nokkur verðbreyting hafi endilega orðið á Íslandi á þeim tíma. Með öðrum orð- um; þarna er um hlutfallslegan sam- anburð á algerlega ósambærilegum löndum að ræða,“ segir Jón Sigurðs- son viðskipta- og iðnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins. Hann segir nærtækara að bera verðlag á Íslandi saman við helstu nágrannalönd, t.d. Noreg, og þá komi í ljós um 10 prósenta munur. „Ef við erum að bera okkur saman við önnur suðlæg og fjarlæg lönd, þá verðum við að taka marga fleiri þætti inn í myndina eins og t.d. kaupmátt og kaupgetu almennings. Þetta sýnir að þessi samanburður hefur út af fyrir sig gildi ef þú ert að bera saman framvindu á milli ára en hefur ákaflega lítið gildi og eiginlega ekki neitt ef þú ætlar að bera saman lífkjör og lífsaðstöðu almennings,“ segir Jón og bætir við að þá þurfi að taka m.a. mið af markaðsstærð og fjarlægðum í vöruflutningum o.fl. „Ég legg áherslu á að menn gæti sín og að almenningur fylgist vel og rækilega með þróuninni og viðhafi hið virka verðlagseftirlit almenn- ings,“ segir hann. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, segir að ekki hafi verið gengið nógu langt í aðgerðum til að lækka það háa mat- vælaverð sem hér er. „Samfylkingin setti fram tillögur um það í vetur að tekið yrði á tollamálunum samhliða breytingu á virðisaukaskattinum,“ segir hún. „Við töldum að það væri alger forsenda þess að ná hér niður matarverði að tekist yrði á við toll- verndina, sem ég held að eigi mjög stóran þátt í því að halda hér uppi hærra matarverði en í öðrum lönd- um.“ Samfylkingin kynnti tillögur sínar sl. haust um aðgerðir til að lækka matvælaverð sem fólust í að vöru- gjöld af matvælum yrðu felld niður. Innflutningstollar á matvæli yrðu felldir niður í áföngum þannig að 1. júlí nk. yrði helmingur felldur niður en afgangurinn ári síðar. Virð- isaukaskattur á matvæli yrði lækk- aður um 50% og teknar yrðu upp tímabundnar greiðslur til bænda og umhverfisstyrkir. Ingibjörg Sólrún segir á því byggt, að samið verði við bændur um aðlögunartíma til að takast á við áhrif þessara breytinga. „Það er ekki hægt að líta fram hjá því að innflutningstollar eru mjög stór þáttur í okkar háa matarverði. Það er líka mjög líklegt að miklar gengissveiflur endurspeglist í vöru- verðinu. Sá kostnaður sem samfara að vera með veikan miðil endurspeglast bæði í v inu og vöxtunum. Við búum 60% hærra matvælaverð og 100% hærri vexti en gilda a staðar í Evrópu. Það eru ek fyrirtækin og efnamennirn íslenskur almenningur sem þennan fórnarkostnað vegn unnar. Samfylkingin hefur mjög skýrt í þessum málum hafa aðrir flokkar ekki gert finnst að þeir verði að stand skil á afstöðu sinni í þessum um.“ Tilefni að íhuga frekari „Þessar tölur, sem eru al ar, koma frekar á óvart mið eldri tölur sem við vorum a með og voru m.a. notaðar ti unar í matvælaverðsnefndi ir Árni M. Mathiesen fjár- málaráðherra. „Þessi niðurstaða undirs hversu mikilvægt það er að anir okkar um lækkun mat Á einu máli um að ma „Þessi niðurstaða undir- strikar hversu mikilvægt það er að fyrirætlanir okk- ar um lækkun mat- vælaverðs [ ...] takist vel til,“ segir Árni M. Mathie- sen fjármálaráðherra. „Það er ekki hægt að líta fram hjá því, að innflutn- ingstollar eru mjög stór þáttur í okkar háa mat- arverði,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formað- ur Samfylkingarinnar. „Þa leg leg um Sig her sók Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þ essi munur skýrist nær alfarið af breytingum á gengi krónunnar,“ sagði Rósmundur Guðnason, deildarstjóri vísitöludeildar Hagstofu Íslands, þegar hann var spurður hvers vegna munur á matvælaverð á Ís- landi og öðrum Evrópulöndum var meiri árið 2005 en árið 2003. Árið 2003 reyndist verð matvæla vera 48% hærra á Íslandi en í 15 eldri Evrópusambandsríkjum. Mæling fyrir árið 2005 sýnir að þessi mun- ur er þá kominn í 62%. Meðalgengi evru gagnvart krón- unni var 87 krónur árið 2003. Það breyttist sáralítið árið 2004, en árið 2005 styrktist krónan mikið. Með- algengi evru var 78,40 krónur það ár. Í fyrra var meðalgengi evru 82 krónur. Verðlagið var 48% hærra árið 2003 en 62% árið 2005 Rósmundur sagði að þessar gengisbreytingar árið 2005 skýrðu að langstærstum hluta að matar- verð á Íslandi mældist hærra þá í samanburði við ESB en árin þar á undan. „Það hefur ekkert gerst á markaði hér heima á þessu árabili annað en að gengi krónunnar var óvenjulega sterkt á árinu 2005. Þetta er sama niðurstaða og áður, sem sé að við erum áfram með hæsta verðlagið. Við erum þarna í hópi með Sviss og Noregi sem eru þau ríki sem eru með mestar höml- ur í landbúnaðarmálum.“ Í skýrslu sem Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri skilaði forsætisráðherra í júlí á síðasta ári um matvælaverð hér á landi er í kafla um helstu ástæður hás mat- vælaverðs hér á landi einmitt vikið að áhrifum gengis á verðsaman- burð milli landa. Þar segir að tölur fyrir árið 2003 sýni að verðlag sé 48–49% hærra á Íslandi en í 15 eldri ríkjum ESB. „Áætlun um hlutfallslegt verðlag fyrir 2004 sýn- ir svipaða niðurstöðu og fyrir árið 2003. Hins vegar gefa áætlanir fyr- ir árið 2005 til kynna að talsvert meiru muni milli verðlags á Íslandi og í nágrannaríkjunum en það má að verulegum hluta rekja til hás gengis íslensku krónunnar á því ári.“ Mikil hækkun á kjötverði Í skýrslu Hallgríms segir að verð á kjöti árið 2003 hafi verið talsvert lægra hér á landi en í Nor- egi og aðeins 8% hærra en í Dan- mörku. Á þessum tíma var mjög óvenjulegt ástand á kjötmarkaði hér á landi. Verð á svínakjöti hafði lækkað um 50% á einu ári og verð annarra kjöttegunda hafði lækkað mikið. Kjötverð hefur síðan hækk- að verulega hér á landi. Samkvæmt tölum Eurostat, sem birtar eru á vef dönsku Hagstofunnar, á kjöti á Íslandi 86% hæ 2005 en meðalverð á kj ESB-ríkjum. Árið 2003 v hlutfall 43%. Verð á kjöti Gengi krónu skýrir Sterkt gengi íslensku krónunnar skýrir að mestu að verðlag á Íslandi mældist hærra árið 2005 en árið 2003 í samanburði við verðlag í 15 ríkjum ESB. Nið- urstaða Egils Ólafssonar er að við séu áfram með dýrasta kjöt, brauð, fisk og föt á Norðurlöndunum. *0  4)0   !"#$ " " 11 11 %&*&,$ -,& ,,03" -,$0 11 ,,11                        !     98   ?6       9     ?   .    $ *)&,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.