Morgunblaðið - 10.01.2007, Síða 10

Morgunblaðið - 10.01.2007, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Mjög háþróuð og ósvífinfjársvikaaðferð hefurstungið niður fæti hér-lendis með því að svindlarar senda í tölvupósti sakleys- islega hlekki sem eru í raun stór- varasamar gildrur sem skanna af ótrúlegri nákvæmni tölvuna ef smellt er á hlekkina. Þetta nægði til þess að íslenskur tölvunotandi fékk tvær rukkanir sendar inn í heimabanka án þess að hafa gefið einum né neinum upp kortanúmer sín, heldur ein- göngu forvitnast um sendingu sem virtist vera leiðarvísir inn á tölvuleik á tiltekinni heimasíðu. Hafði hann ekki ímyndunarafl til að átta sig á því að um leið og hann smellti á hlekkinn tókst fjársvikamönnum að skanna tölvuna hans og senda honum rukk- un upp á tæpa 20 bandaríkjadali á kreditkortið í heimabankann. Þessar upphæðir eru hafðar frekar lágar til að fela þær innan um aðrar færslur á kreditortum í þeim tilgangi að kort- hafar finni ekki tilfinnanlega fyrir stungunni. Svindlaðferðin virtist allt að því fullkomin. Með háþróuðum tölvubúnaði tókst svikurunum að út- búa tölvupóst með tilvísun á netsíð- una Steamgames.com og þegar ís- lenski tölvunotandinn ákvað að smella á síðuna gerðist ekkert. Hann reyndi aftur og sagan endurtók sig. Hann nennti þessu ekki lengur og eyddi póstinum. En ekki löngu síðar fór hann sem oftar inn í heimabank- ann sinn og sá þá tvær rukkanir þar komnar inn á kreditkortið, hvora upp á 9,99 dali og varð honum ljóst að svindlað hafði verið á honum í tölvu- póstinum. Hann tilkynnti málið strax til kreditkortafyrirtækis síns og er það nú í athugun þar. Fjallað er um háþróuð tölvusvindl- kerfi í bandaríska blaðinu The New York Times á mánudag þar sem þau eru nefnd botnets. Segir þar að nú bregði svo við að þetta vandamál sé að breiðast út af meiri hraða en áður hafi þekkst. Auk þess sé nýlunda hin mikla nákvæmni sumra kerfanna í að skanna tölvur hvort heldur er um að ræða vegna persónulegra upplýsinga í tölvum eða fyrirtækjaupplýsinga, að ekki sé talað um bankamilli- færslur. Sérfræðingar lýsa þessu sem hinum fullkomna glæp með lítilli áhættu en mikilli gróðavon. Talað er um að útbreiðsla botnet- kerfanna hafi náð til 11% af þeim 650 milljónum tölva sem tengdar eru Netinu í dag. Haft er eftir sérfræð- ingi að almenningur geri sér enn ekki grein fyrir umfangi þessa vanda og það sé skelfilegt hvað sé auðvelt að brjótast inn í vinsælar almenn- ingstölvur, með Windows-forriti. Önnur forrit, Linux og Macintosh, hafa eitthvað orðið fyrir barðinu á botnetárásum en þó eru það einkum Windows-kerfin sem herjað hefur verið á. Svindlkerfin eru yfirleitt búin til að fámennum hópum forritara í Austur-Evrópu og víðar, og síðan dreift með mismunandi hætti, s.s. í tölvupóstsviðhengi, og ef grunlausir viðtakendur hlaða þeim niður er voð- inn vís. Vitað er um kerfi sem náði að skanna gögn af mörg hundruð tölv- um á skipulagðan hátt í 30 daga og safna þeim á leynilegan stað þar sem svindlarinn gat gengið að þeim vís- um. Þar voru fleiri hundruð stolin kreditkoranúmer og truflaði þessi svikastarfsemi m.a. yfir 1.200 fyr- irtæki. Hafa sérfræðingar nú áhyggjur af því að svindlkerfin þróist hraðar en kerfi sem ætlað er að verja tölvur gegn þessum árásum sem eru svo gegndarlausar að sumir hafa lýst því sem svo að baráttan fyrir því að tryggja öryggi á Netinu sé töpuð. Íslenskur tölvunotandi varð illilega fyrir barðinu á netsvindlurum með háþróað svikaforrit Morgunblaðið/Ómar Gildra Hlekkur á leikjasíðu í ruslpósti getur verið gildra sem skannar tölvu viðtakanda með mikilli nákvæmni. Fékk 20 dala rukkun á kreditkortið Ískyggilega háþróuð tölvusvindlkerfi gera svik- urum kleift að skanna venjulegar tölvur ef grun- lausir viðtakendur opna ruslpóst sem þeim berst. Örlygur Steinn Sigurjónsson kynnti sér málið. orsi@mbl.is Í HNOTSKURN »Svindlkerfi eru send út írusltölvubréfum sem inni- halda vægast sagt varasöm skönnunarforrit og verður viðtakandinn að opna forritin til að bragðið heppnist hjá svikurunum. »Almenningur gerir sér ennekki grein fyrir alvöru málsins og vinsælar almenn- ingstölvur eru næsta auðveld bráð að þessu leyti. »Vitað er um a.m.k. einn ís-lenskan tölvunotanda ný- lega sem opnaði skjal grun- laus um að 20 dollara rukkun yrði sett laumulega inn á kreditkortið hans. FOKKER 50-vél Flugfélags Íslands lenti í Keflavík í gærmorgun vegna þess að mælar vélarinnar gáfu til kynna að bremsubúnaðurinn virk- aði ekki sem skyldi. Vélin lenti á sama stað sl. sunnudag af sömu sök- um. Í gærmorgun var vélin á leið frá Reykjavík til Ísafjarðar með 30 far- þega. Árni Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags Íslands, segir að þegar mælarnir hafi gefið bilunina til kynna hafi verið ákveð- ið að gæta ýtrasta öryggis og lenda í Keflavík. Önnur vél hafi verið send þangað til að fljúga með far- þegana til Ísafjarðar og hafi það gengið snurðulaust fyrir sig en biluðu vélinni hafi verið ferjuflogið til Reykjavíkur þar sem hún fari í nákvæma skoðun. Á sunnudag var vélin á leið til Reykjavíkur frá Akureyri með 41 farþega, en þegar vart varð við bil- unina var ákveðið að lenda í Kefla- vík. Árni segir að skipt hafi verið um bilaða útbúnaðinn og hann yf- irfarinn. Í prófunum að því loknu hafi komið í ljós að allt væri með eðlilegum hætti og því hafi vélin verið sett aftur í umferð á mánu- dag. Hins vegar hafi kerfið brugð- ist fljótt aftur og það kalli á enn frekari skoðun, en hugsanlega lægju orsakirnar í einhverju öðru en því sem bilaði. Árni áréttar að engin hætta hafi verið á ferðum. Í báðum tilvikum hafi verið um mjög eðlilega lend- ingu að ræða og í raun hafi ekkert verið því til fyrirstöðu að lenda í Reykjavík en ákveðið hafi verið að fara til Keflavík til að gæta ýtrasta öryggis. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Vélar Flug Flugfélags Íslands hefst alla jafna og lýkur á Reykjavík- urflugvelli, en sama vél hefur lent í Keflavík með stuttu millibili. Bremsubúnaður vélar bilaði aftur FÉLAG ábyrgra feðra gengst í kvöld fyrir fundi um sátt í skilnaði og forsjárdeilum og er hann liður í fundaröð félagsins. Sálfræðingarnir Gunnar Hrafn Birgisson og Jóhann Loftsson hafa framsögu á fundinum sem verður haldinn í félagsmiðstöð- inni í Ársskógum 4 í Breiðholti og hefst klukkan 20. Jón Gunnar Hannesson læknir stofnaði félagið fyrir áratug. Hann situr í stjórninni og segir að fé- lagsmenn og aðrir áhugamenn um málefni félagsins hittist á fundum mánaðarlega, þar sem félagið fái framsögumenn til að ræða um helstu mál. Í desember hafi Aðalsteinn Sig- fússon fjallað ýtarlega um forsjár- deilur og ákveðið hafi verið að fylgja því eftir með því að fá sérfræðinga til að tala um sátt í skilnaði og forsjár- deilum. Mikilvægt málefni Gunnar Hrafn Birgisson og Jó- hann Loftsson eru sérmenntaðir í forsjármálum og hafa starfað hjá sýslumannsembættunum í landinu frá árinu 2000. Jón Gunnar segir að þeir vinni mjög þakklátt starf við það að koma á umgengni við börn þegar foreldrar skilja og starf þeirra sé gríðarlega mikilvægt. Margar rann- sóknir sýni geysilega aukningu á óheppilegu líferni barna sem lendi í því að foreldrarnir skilji. Þar megi t.d. nefna margfalda sjálfsvígstíðni, brottfall úr skóla, hegðunarvanda og fleira. Jón Gunnar leggur áherslu á að fundir félagsins séu öllum opnir og aðgangur ókeypis. Sátt í skiln- aði og for- sjárdeilum Fundur í fundaröð Félags ábyrgra feðra MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Þorsteini Vilhelmssyni og Þóru Hildi Jónsdótt- ur. Fyrirsögnin er þeirra. „Eftir að þær aðstæður sköpuðust í lífi okkar hjóna að geta veitt fólki, fé- lagasamtökum eða sérstökum verk- efnum fjárhagslega aðstoð höfum við víða lagt hönd á plóg en ávallt forðast að gera það að umfjöllunarefni fjöl- miðla. Nýlegur stuðningur okkar við tilraunaverkefni fyrir yngstu nem- endur í grunnskóla okkar hverfis í Kópavogi hefur hins vegar ratað inn í fjölmiðla og verið settur þar ranglega í samhengi við umsókn okkar um byggingarlóð. Lengst gengur Frétta- blaðið í þeim efnum þegar það þakkar sér sl. sunnudag fyrir að hafa vakið athygli á málinu, fullyrðir að um sé að ræða „greiða á móti greiða“ og segir umfjöllun undanfarinna daga „gott dæmi um það aðhald sem fjölmiðlar geta veitt“. Með því að setja styrk- veitingu okkar til Lindaskóla í þetta samhengi er veist að okkur með afar ósanngjörnum hætti og óhjákvæmi- legt er að biðja þá fjölmiðla sem fjallað hafa um þetta mál á undan- förnum dögum að koma eftirgreindu á framfæri: Hinn 14. september sl. barst tölvu- bréf frá aðstoðarskólastjóra Linda- skóla þar sem óskað var eftir styrk vegna tilraunaverkefnis í ensku- kennslu fyrir yngstu nemendur skól- ans. Fram kom að leitað yrði til fleiri aðila auk þess sem bæjarfélagið kæmi með sérstaka fjármuni til verkefnis- ins. Eins og oft áður þegar um stærri styrkveitingar er að ræða ákváðum við að taka beiðnina til umfjöllunar í fjölskyldufyrirtæki okkar, Ránarborg hf. Stjórn þess félags kom saman 16. október sl. og samþykkti að styðja verkefnið með þrjú hundruð þúsund króna framlagi á ári í þrjú ár. Um þessa ánægjulegu ákvörðun var að- stoðarskólastjóranum tilkynnt sam- dægurs. Skrifað var undir formlegan samning um styrkveitinguna hinn 14. desember sl. Það er rétt að í október sl. sóttum við um lóðina Austurkór 159 í Rjúpna- hæð og var henni úthlutað til annars umsækjanda hinn 21. nóvember sl. Mörgum þykir væntanlega sú af- greiðsla tala skýru máli um að engin tengsl voru á milli styrkveitingarinn- ar annars vegar og lóðarumsóknar- innar hins vegar. Sannleikurinn máls- ins er augljós – en óbrenglaður er hann ekki tilefni til fjölmiðlaumfjöll- unar. Mánuði eftir úthlutun lóðarinn- ar, eða 19. desember sl., bentum við á þann möguleika að bæta mætti einni byggingarlóð við í Austurkór og lýst- um áhuga okkar á að byggja þá lóð fengist hún skipulögð. Vafalaust er þetta hvorki í fyrsta né síðasta skipti sem sveitarstjórn fær álíka ábend- ingu um mögulega landnýtingu. Það erindi, rétt eins og fyrri lóðarumsókn okkar, hefur aldrei verið sett í sam- hengi við styrkveitingu til Lindar- skóla, hvorki af okkar hálfu, ráða- manna skólans né bæjarfélagsins. Sem betur fer hefur orðið mikil vakning á undanförnum árum um samfélagslega ábyrgð atvinnulífs og einstaklinga sem með margvíslegum hætti leggja smærri og stærri verk- efnum fjárhagslegt lið eða veita þeim stuðning með öðrum hætti. Á sama tíma og fjölmiðlar leggja þar sitt af mörkum með víðtækum áhrifum sín- um á hverjum degi verða þeir jafn- framt að gæta þess að það „aðhald“ sem Fréttablaðið stærir sig af sl. sunnudag verði ekki til þess að fæla fólk og fyrirtæki frá vel meintum stuðningi af ótta við útúrsnúning og afbökun í ábyrgðarlausri fjölmiðla- umfjöllun.“ Samfélagsleg ábyrgð og „aðhald fjölmiðla“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.