Morgunblaðið - 10.01.2007, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 10.01.2007, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Magnús ÞórMagnússon fæddist í Reykjavík 27. júní 1942. Hann lést á heimili sínu á Seltjarnarnesi 29. desember síðaastlið- inn. Foreldrar hans voru Magnús Hann- esson rafvirkja- meistari frá Stóru- Sandvík í Flóa, f. 2.12. 1905, d. 30.5. 1981, og Guðrún M. Þorsteinsdóttir frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal, f. 12.2. 1907, d. 20.11. 1995. Systkini Magnúsar eru Hannes N., f. 8.4. 1939, d. 20.4. 1992, maki Ásta Valdimarsdóttir, þau eiga tvö börn og Margrét O., f. 17.5. 1949, maki Stefán Hreið- arsson, þau eiga þrjú börn. Hinn 6. apríl 1968 gekk Magnús að eiga Hrefnu M. Proppé Gunn- arsdóttur, f. 24.12. 1944. For- eldrar hennar voru Gunnar K. Proppé, f. 23.9. 1915, d. 9.6. 2006, og Áslaug E. Árnadóttir Proppé, f. 8.1. 1919, d. 30.6. 1991. Börn Magnúsar og Hrefnu eru: 1) Ás- laug María, f. 18.4. 1967, maki Haukur Birgisson, börn þeirra eru Magnús Már, Inga María og Daníel Þorri. 2) Þorsteinn Ingi, f. 28.10. 1970, maki Jóhanna Guðrún Pálmadóttir, sonur þeirra Hugo Þorri. 3) Katrín Lillý, f. 4.7. 1973, maki Gylfi Þór Þór- isson, sonur þeirra Ingi Hrafn. Magnús ólst upp í vesturbæ Reykjavík- ur. Hann gekk í Melaskóla og síðan Gagnfræðaskóla Hringbrautar. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykja- vík 1962. Hann út- skrifaðist sem rafmagnsverkfræðingur frá Tec- hnische Universität (TU) í Braunschweig í Þýskalandi 1969. Hann vann að rannsóknarverk- efnum á sviði háspennurofa í Mil- waukee í Bandaríkjunum 1969– 1972. Hann sneri síðan aftur til Braunschweig og lauk þaðan doktorsprófi (Dr.Ing.) í rafmagns- verkfræði frá TU 1977. Auk dokt- orsnámsins stundaði hann kennslu við TU. Magnús flutti heim með fjöl- skyldu sína 1977 og hóf þá störf í Volta ehf. við hlið föður síns. Eftir andlát föður síns 1981 sá hann al- farið um rekstur fyrirtækisins þar til það var selt á vordögum 2006. Magnús verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Það er aldrei auðvelt að kveðja en fátt er eins erfitt og að kveðja föður sinn. Það er margt sem kemur upp í huga okkar systkina þegar við hugs- um til baka, ljúfar minningar sem við munum geyma í hjörtum okkar. Pabbi var mjög vel gefinn og mikill fræðimaður í eðli sínu. Honum lét vel að leggja á ráðin, stjórna og finna bestu leiðirnar til að ná settum markmiðum. Hann var vanur að segja að lausnin kæmi ekki af sjálfu sér. Sýn hans á lífið var skýr og lagði hann mikla áherslu á nákvæmni, sjálfsögun og samviskusemi í uppeldi okkar. Það hefur reynst okkur gott veganesti. Pabba fannst gott að sækja messu á sunnudagsmorgnum og var Hall- grímskirkja í miklum metum. Þar fann hann oft lausnir við ýmsum vandamálum undir predikun og fögr- um tónum sálma og tónverka. Hann var reglumaður mikill og allt það sem hann tók sér fyrir hendur gerði hann af mikilli nákvæmni og fullkomnun. Það sýndi sig best í dag- legum störfum hans og tómstunda- iðkun. Heiðarleiki var ein af hans dyggðum sem hann lagði mikla áherslu á í eigin fari og annarra. Pabba leið alltaf best heima í stof- unni þar sem hann gat hlustað á fal- lega tónlist og notið einstaks útsýnis sem honum þótti fallegra en nokkurt málverk. Fjölskyldufyrirtækið Volti átti stóran þátt í lífi hans. Hann vann alla tíð mikið. Við systkinin höfum öll starfað í Volta og fengum við því að kynnast honum í starfi, hvert á sinn hátt. Vinnusemi hans var óþrjótandi. Síðustu ár pabba voru honum erfið vegna heilsubrests og þeirrar ákvörðunar því fylgjandi að selja Volta. Við systkinin erum þakklát fyrir að hafa átt svona traustan föður. Við erum líka þakklát fyrir það að hann gat verið heima þar til yfir lauk, á þeim stað sem honum leið best í ást- ríkri umsjá mömmu. Við viljum minnast hans með broti úr vísu sem hann söng oft fyrir okkur sem börn: Ég er kominn heim í heiðardalinn, ég er kominn heim með slitna skó, kominn heim til að heilsa mömmu, kominn heim í leit að ró … (Loftur Guðmundsson) Hvíl í friði. Áslaug, Þorsteinn og Katrín. Það eru rúmlega tuttugu ár síðan ég kynntist Áslaugu eiginkonu minni og dóttur Magnúsar tengdaföður míns. Við Magnús vorum þannig ferðafélagar í gegnum lífið þessi ár. Magnús og fjölskylda hans tóku vel á móti mér frá byrjun og fyrir það ber að þakka. Magnús hafði ákveðnar skoðanir á lífinu og því hvernig hlut- irnir áttu að vera og sá ég fljótt að þarna fór maður sem var mjög vinnusamur, heiðarlegur, góður yf- irmaður í fyrirtæki sínu og sem var annt um starfsfólk sitt. Við Áslaug vorum við nám í Skotlandi í nokkur ár og á ég góðar minningar frá heim- sóknum hans og Hrefnu tengdamóð- ur minnar til okkar þar. Eftir dvölina í Skotlandi lá leiðin til Íslands og þá kynntist ég því hvernig Magnús stundaði áhugamál sín eins og tennis og veiði af sömu virðingu og ná- kvæmni og hann stundaði vinnuna. Sem gamall badmintonspilari fannst mér gaman að spila tennis við Magn- ús og við áttum líka góðar stundir saman í veiðiferðum. Eftir nokkur ár á Íslandi fluttum við Áslaug til Þýskalands, þá komin með tvö börn og við tóku heimsóknir tengdafor- eldra minna þangað. Í Þýskalandi var Magnús tengdafaðir minn á heimavelli en hann bjó þar í mörg ár bæði við nám og kennslu. Ég hafði lúmskt gaman af því hversu mikla virðingu hann bar fyrir því hvernig Þjóðverjar vildu hafa allt í röð og reglu. Eftir sex ára dvöl í Þýskalandi fluttum við Áslaug og nú með þrjú börn heim til Íslands á síðasta ári. Tengdafaðir minn var þá orðinn mjög veikur og ekki séð fram á að við myndum fá að njóta hans mikið leng- ur. Hann kvaddi 29. desember síð- astliðinn. Guð blessi minningu tengdaföður míns og hafi hann þökk fyrir sam- fylgdina. Haukur Birgisson. Í dag kveð ég tengdapabba minn. Stórmerkilegur maður, er það sem kemur í hugann þegar hugsað er til baka. Ég naut þess tíma sem ég hafði með honum, sérstaklega er mér minnisstæð veiðiferðin okkar um ár- ið. Tengdapabbi var vinnusamur og áræðinn maður sem kenndi börnum sínum slíkt hið sama og kemur það greinilega fram í dugnaði og árangri þeirra allra. Tengdapabbi skilaði góðu lífsstarfi og við munum öll sakna hans. „Hverjar eru þínar framtíðaráætl- anir?“, spurði hann mig þegar ég bað um hönd yngstu dóttur hans á haust- mánuðum árið 2001. Ég svaraði hon- um af einlægni og var hann sáttur við áætlanir mínar og gaf sitt leyfi, stolt- ur. Það sem okkar fór á milli þetta haustkvöld mun ég standa við og hugsa vel um litlu Kötuna þína, allt- af. Takk fyrir þann tíma sem ég fékk með þér tengdapabbi, líf mitt er betra á eftir. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Hrefna, Áslaug, Þorri og Kata mín, megi guð styrkja ykkur og okkur öll á þessum erfiða tíma. Gylfi Þórisson. Elsku Magnús afi. Þegar mamma og pabbi sögðu mér að þú værir dáinn varð ég mjög sorg- mædd. Ég hafði daginn áður en þú lést heimsótt þig og ömmu og þá sá ég að þú varst orðinn mikið lasinn. Þegar ég fór þá gaf ég þér einn góð- an „lúllukoss“ á kinnina en það var ég alltaf vön að gera þegar þú varst þreyttur og lagðir þig inn í herbergi og þá brostir þú blítt til mín. Ég mun geyma þessa minningu í hjarta mínu, elsku afi minn. Ég var eina afastelpan þín og þú kallaðir mig oft „dúkkuna“ þína. Nú ertu orðinn fallegur engill á himnum og nú líður þér vel. Ég mun alltaf hugsa til þín þegar ég horfi á engla- safnið mitt uppi í hillu. Takk fyrir þig, elsku afi minn. Þín afastelpa, Inga María. Það er eilítið sérkennileg tilfinning að setjast niður í annað sinn og skrifa minningaorð um mág sinn. Eldri bróðir eiginkonu minnar, Hannes N. Magnússon, lést árið 1992, aðeins 53 ára að aldri og í dag kveðjum við hinn yngri, Magnús Þór, sem var á 65. aldurári, er hann lést. Við þessar að- stæður vakna upp ýmsar minningar úr fortíðinni, sem hér eru rifjaðar upp. Þó að Magnús Þór hafi verið kom- inn vel á þrítugsaldur, þegar ég kynntist systur hans, finnst mér ég hafa þekkt hann frá barnæsku. Fjöl- mörg myndbrot úr lífi hans birtust mér í tilhugalífinu: Glaður strákur, sem með bróður sínum dröslaði litlu systur sinni um vesturbæinn, fyrst í barnakerru og síðan á reiðhjóli; jafnt á KR-leiki sem ómerkari atburði. Bróðir, sem lagði svo mikið til upp- eldis systurinnar að hvert foreldri gæti verið stolt af. Ungur drengur sem var lagður í rúmið vegna sjúk- dóms í mjöðm og gekk síðan í göngu- grind á þeim aldri, sem fótbolti og eltingaleikur er eðlilegra afhæfi; tók Magnús Þór Magnússon ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR ÓLAFSSON frá Kollsá II, Safamýri 44, Reykjavík, lést á heimili sínu mánudaginn 8. janúar. Fyrir hönd aðstandenda, Ólöf Björnsdóttir. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, HÓLMFRÍÐUR GÍSLADÓTTIR fyrrverandi talsímakona frá Seyðisfirði, síðast til heimilis á Brekkugötu 14, Vogum, andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð fimmtudag- inn 4. janúar. Útförin fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn 12. janúar kl. 13.00. Guðmundur Sigurðsson, Kolbrún Dagbjört Sigurðardóttir, Gísli Örn, Guðmundur Rúnar, Sveinn Gumi, Sigurður Hólmar og Elísabet Rósa. ✝ Móðir okkar, EYRÚN JÓHANNESDÓTTIR, Fannborg 8, Kópavogi, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 29. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum sýnda samúð og góðar vinarkveðjur. Árni Ólafsson, Vilmunda Guðbjartsdóttir, Egill Ólafsson, Jóhanna Guðríður Sigurðardóttir, Gunnar Ólafsson, Ástríður Ebba Ragnarsdóttir, Kjartan Ólafsson, Magnea Guðmundsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Ástkær bróðir okkar og mágur, SÆVAR NÍELSSON, Melgerði, Fáskrúðsfirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað föstu- daginn 5. janúar. Jarðsungið verður frá Fáskrúðsfjarðarkirkju föstu- daginn 12. janúar kl. 14.00. Fyrir hönd aðstaðenda, Aðalbjörg Níelsdóttir, Georg Einarsson, Guðrún Níelsdóttir, Eiríkur Ólafsson. ✝ Okkar ástkæri, JÓN ÆGISSON, Tunguvegi 6, Njarðvík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 3. janúar. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 12. janúar kl. 14.00. Susanna Valsdóttir, Ástþór Ingi Jónsson, Berglind Jónsdóttir, Ægir Guðlaugsson, Stefán Ægisson og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, MARÍA GUÐMUNDA ÞORBERGSDÓTTIR frá Efri-Miðvík í Aðalvík, lést á öldrunardeild Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði sunnudaginn 7. janúar. Útför hennar verður gerð frá Ísafjarðarkirkju laugar- daginn 13. janúar kl. 14.00. Snorri Hermannsson, Auður H. Hagalín, Jóhanna Hermannsdóttir, Jónas Guðmundsson, Helga Hermannsdóttir, Trausti Hermannsson, Sólveig Ólafsdóttir, ömmu- og langömmubörnin. ✝ Elsku sonur okkar, bróðir og barnabarn, BENJAMÍN ÁRNASON, lést af slysförum sunnudaginn 7. janúar. Hansína Kristjánsdóttir, Jón Árni Guðmundsson, Sara Árnadóttir, Ásta Benjamínsdóttir, Kristján Jónsson, Valgerður Jónsdóttir, Guðmundur Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.