Morgunblaðið - 28.11.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 325. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
ERUÐ ÞIÐ ÞARNA?
EILÍF MYNDATAKA OG MAS Í SÍMANN Á
TÓNLEIKUM OG KNATTLEIKJUM >> 39
FRÉTTASKÝRING
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
FLEST dýrustu lyfin sem notuð eru
vegna meðferðar við ýmsum sjúk-
dómum hér á landi eru svonefnd
s-merkt lyf. Þau eru eingöngu notuð
á sjúkrahúsum.
Fram kom í
Morgunblaðinu í
gær að lyfið
Tysabri, sem
gagnast við MS
og skráð var hér í
ágúst sl., stendur
sjúklingum ekki
enn til boða. Árs-
skammtur af lyf-
inu kostar um 2,7 milljónir króna.
Mörg s-merktu lyfjanna eru nýleg
og segir Sigurður B. Þorsteinsson,
yfirlæknir deildar lyfjamála á LSH,
að hvað verð snerti sé verið „að tala
um verðmiða sem við höfum ekki séð
hvað varðar lyf“.
Að hans sögn kosta dýrustu lyfin
sem gefin eru við krabbameini og bú-
ið er að heimila á bilinu 6-7 milljónir
króna á ári á hvern sjúkling. Þó
nokkur lyf kosti 3-4 milljónir á ári.
Sigurður bendir á að fjöldi sjúk-
linga sem taka hin dýru lyf sé mis-
mikill. Sjúklingahópar kunna að vera
1-2 á ári upp í tugi manna.
Sigurður segir mörg þessara lyfja
vera svonefnd líftæknilyf. Þau eru
búin til með erfðafræðilegum aðferð-
um. Þessi lyf séu notuð við ýmsum
illkynja sjúkdómum á borð við
krabbamein. Slík lyf eru einnig notuð
við bólgusjúkdómum eins og gigtar-
sjúkdómum, MS, augnsjúkdómum
og sjálfsofnæmissjúkdómum.
Sigurður segir það mjög viðkvæmt
mat þegar skoðað sé hvort taka eigi
tiltekið dýrt lyf í notkun. Spyrja
þurfi hversu árangur megi „vera
mikill til þess að verðskulda verðmið-
ann sem getur leikið á nokkuð mörg-
um milljónum fyrir ársmeðferð“. Oft
sé um að ræða sjúkdóma þar sem
meðferð standi árum saman. Þeir
sem komi að lyfjamálum á LSH hafi
fyrst og fremst hagsmuni sjúklinga í
huga. Enn sem komið er hafi engu
nýju lyfi verið hafnað vegna kostn-
aðar.
Kostnaður fram úr heimildum
Á þessu ári voru ætlaðar 1.986
milljónir króna til kaupa á s-merkt-
um lyfjum á Landspítala. Í október
var talan komin í 1.780 milljónir, að
sögn Rannveigar Einarsdóttur,
lyfjafræðings á deild lyfjamála hjá
Landspítala. Hún segir að kostn-
aðurinn verði líklega á bilinu 2,1-2,2
milljarðar. Í fyrra var hann 1.382
milljónir króna. Rannveig segir að
taka verði með í reikninginn að lyfja-
verð hækki almennt um 12-15% milli
ára í löndunum í kringum okkur.
Dýrustu
lyfin á 6-7
milljónir
2,2 milljarðar í
s-merkt lyf á árinu
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði um
2,44% í gær og hefur hún ekki verið
lægri síðan 5. janúar sl., á þriðja við-
skiptadegi ársins. Eins og svo oft áð-
ur á undanförnum vikum voru það
FL Group og Exista sem leiddu
lækkunina, FL Group lækkaði um
5,5% í gær og Exista um 3,8%.
Kreppan sem hófst á fjármála-
mörkuðum heimsins snemma á
þriðja ársfjórðungi hefur bitnað
hlutfallslega langverst á þessum
tveimur félögum og hefur markaðs-
virði þeirra lækkað mikið á undan-
förnum mánuðum. Þannig hefur
verðmæti FL Group lækkað um 91
milljarð króna frá 1. júlí sl. og verð-
mæti Exista um 118 milljarða. Þessi
félög eru þó fráleitt þau einu sem
lækkað hafa að markaðsvirði á tíma-
bilinu. Sem dæmi má nefna að mark-
aðsvirði Kaupþings hefur rýrnað um
tæplega 104 milljarða á tímabilinu,
Straums um tæplega 21 milljarð og
Spron um tæpa 30 milljarða síðan fé-
lagið var skráð fyrir rúmum mánuði.
Eðlileg lækkun
Gylfi Magnússon, dósent við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla Ís-
lands, segir lækkun undanfarinna
vikna á íslenskum hlutabréfamark-
aði ekki óeðlilega. „Markaðurinn
hefur hækkað mjög mikið undanfar-
in ár þannig að þótt það komi eitt ár
þar sem hækkunin er lítil eða jafnvel
lækkun þá er það bara gangur lífsins
á þessum mörkuðum,“ segir Gylfi.
Hann segir ómögulegt að spá fyrir
um hvar botninn er að finna. „Mark-
aðurinn gæti lækkað heilmikið í við-
bót en þrátt fyrir það væru fjárfestar
búnir að fá mjög góða ávöxtun að
jafnaði þegar litið er yfir lengra
tímabil.“
Athygli vekur að bæði Exista og
FL Group lækkuðu töluvert í gær
þrátt fyrir að verðmætustu eignir fé-
laganna á erlendum mörkuðum hafi
hækkað í verði. Gylfi segir að sveifl-
ur í verði hlutabréfa eigi sér ekki
alltaf augljósar hagrænar skýringar
og að oft geti þær verið aðrar, t.d.
stemning á markaðnum sem ekki
alltaf fylgir fréttum. „Það getur líka
verið að veðköll hafi átt sér stað sem
auka framboðið,“ segir hann.
Mikil lækkun á markaði
!
!
Úrvalsvísitalan hefur ekki verið lægri síðan 5. janúar Exista og FL Group
leiddu lækkun gærdagsins Ekkert óeðlilegt að markaðir lækki segir dósent við HÍ
Leikhúsin í landinu
Öll leikhúsin
á einum stað. >> 37
Allir fá þá
eitthvað
fallegt
Sendu jólakortin
og jólapakkana
tímanlega!
LEKI kom að frystiskipinu
Axel er það var á siglingu
rétt utan við Norðfjarðar-
horn seint í gærkvöldi.
Björgunarskip Slysavarna-
félagsins Landsbjargar,
Hafbjörg frá Neskaupstað,
var kallað út um klukkan
23.30 með dælur, þegar
beiðni barst um aðstoð þar
sem skipið var farið að taka
inn sjó. Einnig var björg-
unarbátur sendur á staðinn. Var verið að kanna lekann þegar Morgunblaðið fór
í prentun og virtist hann vera minni en í fyrstu var talið. Taka átti ákvörðun í
kjölfarið um hvort skipinu yrði siglt til Neskaupstaðar eða áfram til Akureyrar.
Axel strandaði rétt fyrir utan Hornafjörð í gærmorgun með fullfermi af fiski.
Tókst að draga skipið á flot og sigldi það fyrir eigin vélarafli í fylgd varðskips til
Fáskrúðsfjarðar þar sem skemmdir á skipinu voru skoðaðar. | 6
Leki kom að Axel
Morgunblaðið/Kristinn Ben.
KEITH Reed og kór hans æfa fyrir söfnunartónleika fyrir ABC-barna-
hjálp, sem haldnir verða í Grafarvogskirkju nú á föstudaginn. Auk kóra og
hljómsveitar koma ýmsir landsþekktir listamenn fram á tónleikunum.
Miðaverðið dugar til að sjá fyrir barni í Pakistan í einn mánuð. Allir lista-
mennirnir gefa vinnu sína svo að allur aðgangseyrir rennur óskertur til
góðgerðarmálanna.
120 kórsöngvarar og 30 manna hljómsveit safna fyrir ABC-barnahjálp
Morgunblaðið/Kristinn
Hljómlist í
þágu barna