Morgunblaðið - 28.11.2007, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
RANNSÓKNARNEFND umferðarslysa mun
afla allra gagna um bílslysið austan við Vík sl.
sunnudag þar sem karlmaður missti bifreið sína út
í Höfðabrekkutjarnir. Þetta segir Ágúst Mog-
ensen, forstöðumaður Rannsóknarnefndar um-
ferðarslysa. Eins og greint hefur verið frá sat öku-
maðurinn fastur í bíl sínum í a.m.k. klst. og náði
vatnið honum í herðar þegar björgunarsveit kom
að.
Maðurinn var orðinn mjög kaldur er honum var
bjargað. Hann var fluttur á Landspítalann og
hafður þar í öndunarvél. Hann er nú kominn af
gjörgæsludeild og á almenna deild. Að sögn lækn-
is er maðurinn á batavegi og fer líðan hans hægt
batnandi.
Í Morgunblaðinu í gær kom fram að hátt í
klukkustund hefði liðið frá því tilkynning vegfar-
anda barst til Neyðarlínunnar
þess efnis að bíll væri í Höfða-
brekkutjörnum þar til björg-
unarsveitin Víkverji í Vík fékk
útkall. Spurður hver beri
ábyrgð á því að fara ofan í
verkferla viðbragðsaðila segir
Ágúst það m.a. vera hlutverk
nefndarinnar. „Rannsóknar-
nefnd umferðarslysa skoðar
þátt viðbragðsaðila. Það helg-
ast einfaldlega af því að nefndin hefur til skoð-
unar alla þætti sem verða til þess að fólk meiðist,
slasast eða deyr og þar á meðal eru þættir sem
tengjast viðbúnaði og viðbrögðum. Það hefur sýnt
sig í rannsóknum að því fljótari sem menn eru á
vettvang og því betri sem verklagsreglurnar eru
þeim mun meiri líkur eru á að menn nái að koma í
veg fyrir meiðsli og skaða sem hljótast af slys-
um.“
Alltaf hægt að kalla mannskap til baka
Eftir því sem blaðamaður kemst næst er það
almenn verklagsregla að sé tilkynnt um bíl í
vatni, hvort sem vitað er að manneskja sé enn í
bílnum eða ekki, séu strax bæði lögregla, slökkvi-
lið og björgunarsveitir kallaðar út. Þegar þetta
er borið undir Ágúst segist hann eðlilega hvorki
geta tjáð sig um atvikið við Vík né um verklag
Neyðarlínunnar og lögreglunnar en tekur fram
að almennt séu viðbrögð við slysum ávallt meiri
heldur en minni. „Það er alltaf gert ráð fyrir hinu
versta og brugðist við samkvæmt því, vegna þess
að það er alltaf hægt að kalla til baka mannskap.“
Rannsóknarnefndin mun
skoða þátt viðbragðsaðila
Ágúst Mogensen
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá Þórhalli
Ólafssyni, framkvæmdastjóra Neyð-
arlínunnar, og Dagnýju Halldórs-
dóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra
Neyðarlínunnar:
„Að morgni sunnudagsins 25. nóv-
ember bárust Neyðarlínunni boð um
að bifreið væri úti í vatni og að óskað
væri eftir þjónustu lögreglu. Engin
vísbending var gefin um annað af
innhringjanda þó að eftir því væri
leitað. Ekki var því tilefni til að boða
út aðra viðbragðsaðila. Viðbrögð
Neyðarlínunnar, miðað við upplýs-
ingar frá innhringjanda, voru sam-
kvæmt verkferlum.“
Viðbrögð
voru sam-
kvæmt
verkferlum
„AÐ MÍNU mati þurfa Bandaríkin
að taka meira tillit til öryggishags-
muna á N-Atlantshafi þar sem flutn-
ingur á olíu og gasi frá Noregi og
Rússlandi til Bandaríkjanna er að
aukast.“ Þetta sagði Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra í ræðu sem
hann flutti í Belfer Center í Har-
vard-háskóla í Bandaríkjunum, en
þar fjallaði hann m.a. um loftslags-
breytingar og hlut Íslands í öryggis-
málum á Norður-Atlantshafi.
Björn minnti á að í árlegri stefnu-
ræðu sinni hefði Bush Bandaríkja-
forseti varað við því að innflutningur
á olíu gerði það að verkum að þjóðir
sem styddu hryðjuverk og hryðju-
verkamenn gætu valdið Bandaríkj-
unum miklum skaða með því að ráð-
ast á olíuskip. Þetta gæti hækkað
verð á olíu og valdið efnahag Banda-
ríkjanna skaða.
Björn fjallaði um brottför banda-
ríska varnarliðsins frá Íslandi og
taldi hana bera
vott um skamm-
sýni með hliðsjón
af miklum hags-
munum Banda-
ríkjamanna af því
að fyllsta öryggis
sé gætt á sigl-
ingaleiðum olíu-
og gasflutninga-
skipa. Hann
hvatti til þess að samstarf yrði aukið
milli landhelgis- og strandgæslna á
N-Atlantshafi.
„Varanleg vera bandaríska flotans
á N-Atlantshafi er afar mikilvæg til
að vernda öryggishagsmuni Nató,
tryggja að farið sé eftir alþjóðlegum
reglum og til að hafa áhrif á þróun al-
þjóðamála. Evrópusambandið hefur
ekki sett fram neina öryggisáætlun
fyrir N-Atlantshaf,“ sagði Björn.
Björn ræddi í ræðu sinni um vax-
andi hlutverk borgaralegra stofn-
ana, lögreglu og landhelgisgæslu, við
öryggisgæslu á sjó og landi. Ekki
væri skynsamlegt að beita herflota
við að gæta öryggis á siglingaleiðum
eða til að leysa úr deilum um yfirráð
á Norðurpólnum.
Skoðaði strandgæslustöð
í Boston
Í ræðunni gerði Björn grein fyrir
flugi rússneskra herflugvéla við Ís-
land og ræddi um yfirlýsingar Rússa
um að halda þessu flugi áfram. Hann
fjallaði um samninga sem Ísland
hefði gert við Dani og Norðmenn um
samvinnu í öryggismálum og einnig
minntist hann á viðræður sem ís-
lensk stjórnvöld hefðu átt við Bret-
land, Bandaríkin, Kanada og Þýska-
land um þessi mál.
Í gær heimsótti Björn stöð banda-
rísku strandgæslunnar í Boston en
hún starfar í nánum tengslum við
Landhelgisgæslu Íslands.
Brottför varnarliðsins
ber vott um skammsýni
Björn Bjarnason
HÓPUR stúlkna af Laufásborg brá sér í vett-
vangsferð niður á Fríkirkjuveg. Þær nutu
greinilega útiverunnar enda svo vel klæddar að
víst að eins vel viðri til vettvangsferða seinna í
vikunni þótt þessar stúlkur láti slæmt veður
örugglega ekki aftra sér.
ekki hefur væst um þær. Gert er ráð fyrir hægu
veðri víðast hvar á landinu í dag en heldur á að
hvessa þegar líður að helginni. Það er því ekki
Morgunblaðið/Golli
Vettvangsferð var farin frá Laufásborg í stillunni
Hoppað í tröppum
Pantaðu áskrift á veffanginu
icelandreview.com
eða í síma 512 75 75
ICELAND REVIEW hefur í meira en 40 ár
verið eina tímaritið á ensku um Ísland og
Íslendinga. Blaðið er þekkt fyrir frábærar
ljósmyndir af stórbrotnu landslagi en það er
fleira íslenskt en landslagið og fornsögurnar.
Blaðið fjallar líka um strauma í viðskiptum,
menningu, vísindum og stjórnmálum.
Vinsæl jólagjöf
Gjafaáskrift að Iceland Review er vinsæl
jólagjöf til vina og viðskiptavina erlendis.
Með því að gefa áskrift að blaðinu
tryggja menn að vinirnir fylgist stöðugt
með á Íslandi, auk þess sem blaðið minnir
á gefandann fjórum sinnum á ári.
Áskrift kostar aðeins 3.400 kr
(2.982 án vsk).
Innifalinn er sendingarkostnaður til útlanda.
gjafabréf
Hverri áskrift fylgir gjafabréf sem sent er til
viðtakenda þar sem fram kemur hver gefur.
Auk þess sendum við nýjum áskrifendum
litla bók að gjöf, Memories of Reykjavík,
með ljósmyndum eftir Pál Stefánsson.
Iceland Review
icelandreview.com
g j a f a á s k r i f t
BRYNDÍS
Hlöðversdóttir,
stjórnarformað-
ur Orkuveitu
Reykjavíkur,
kynnti í gær til-
lögu um að fallið
verði frá fyrri
ákvörðun um að
leita tilboða í
Gagnaveitu
Reykjavíkur.
Tillagan var kynnt á stjórnarfundi
OR.
Í greinargerð með tillögunni
segir að núverandi meirihluti sé
andvígur sölu fyrirtækisins og
nauðsynlegt sé að hætta undirbún-
ingi til að eyða óvissu. Gagnaveit-
an var stofnuð sem svið innan OR í
janúar 2005 en breytt í hlutafélag
1. janúar sl. Hún nefndist áður
Lína.net.
Mikil eindrægni um niður-
stöðuna hjá nýjum meirihluta
Björn Ingi Hrafnsson tjáði sig
um tillöguna á vefsvæði sínu og
fagnar hann niðurstöðunni. „Þessi
ákvörðun er í fullu samræmi við
málflutning okkar framsóknar-
manna í tíð fyrri meirihluta, en þá
kom fram ágreiningur Framsókn-
arflokks og Sjálfstæðisflokks
vegna málsins. Innan nýs
meirihluta í borgarstjórn ríkir
mikil eindrægni um þessa niður-
stöðu.“
Gagnaveit-
an verði
ekki seld
Bryndís
Hlöðversdóttir