Morgunblaðið - 28.11.2007, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2007 11
ALÞINGI
JÓLASÖFNUN Hjálparstarfs kirkj-
unnar hófst í fyrradag. Mikill fjöldi
deyr á ári hverju vegna vatnsskorts
og sjúkdómum honum tengdum. 1,1
milljarður manna hefur ekki að-
gang að hreinu vatni og er oftar en
ekki veikur af menguðu vatni. Gíró-
seðlum verður dreift á öll heimili og
söfnunarsíminn 907 2002 er opinn.
Íslendingar hafa brugðist fá-
dæma vel við kalli Hjálparstarfs
kirkjunnar á undanförnum árum
vegna gerðar brunna í Afríku.
Vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkj-
unnar er starfrækt í fjórum lönd-
um; Mósambík, Malaví, Eþíópíu og
Úganda. Alls staðar er fólki útveg-
að drykkjavatn en verkefnin eru
nátengd fræðslu og framkvæmdum
á sviði hreinlætis, fæðuöryggis og
betri afkomu.
Ekki þurfa nema 60 manns að
greiða gíróseðilinn, 2.500 kr. hver,
til að hægt sé að koma upp góðum
brunni. Hver brunnur getur þjónað
allt að 1.000 manns og endist ára-
tugum saman, segir í tilkynningu.
Vatnsskortur Beðið eftir vatni.
Söfnun fyrir
vatni í Afríku
GERT er ráð fyrir ríflega 2,2 milljarða króna rekstrarafgangi í tillögu að
fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2008, en hún var lögð fram til fyrri
umræðu í bæjarstjórn síðdegis í gær. Heildartekjur bæjarins árið 2008 eru
áætlaðar rúmir 17 milljarðar kr., en þar af er gert ráð fyrir 12 milljörðum kr.
í skatttekjur.
Heildarfjárfestingar á árinu 2008 eru áætlaðar 6,9 milljarðar kr. Af þeirri
upphæð er gert ráð fyrir að um 1,3 milljarðar kr. renni til byggingar íþrótta-
mannvirkja, tæpur milljarður kr. til byggingar skóla og leikskóla og rúmum
600 milljónum kr. verði varið til þjónustumiðstöðvar aldraðra í Boðaþingi.
Ríflega 2,2 milljarða afgangur
VERNHARÐ Guðnason, formaður
Landssambands slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna (LSS), lét af
embætti formanns á stjórnarfundi
sem haldinn var fyrir helgi. Hann
hefur verið ráðinn í starf slökkvi-
stjóra Skagafjarðar frá næstu ára-
mótum.
Sverrir Björn Björnsson hefur
tekið við embætti formanns LSS en
hann var áður varaformaður. Þá
réði LSS nýlega Valdimar Leó Frið-
riksson í starf framkvæmdastjóra.
Valdimar er fyrrverandi alþing-
ismaður og hefur starfað að fé-
lagsmálum hjá ungmennafélags-
hreyfingunni.
Nýr formaður
NORRÆN jólastemning mun ríkja í
Norræna húsinu í Reykjavík á að-
ventunni. Meðal atriða er lifandi
jóladagatal, sem verður dag hvern
klukkan 12.34 frá og með 1. desem-
ber. Hver gluggi mun bjóða upp á
lifandi uppákomu og munu margir
af þekktustu listamönnum þjóð-
arinnar koma þar fram.
Þrjár fyrstu helgarnar í desem-
ber verður boðið upp á dagskrá fyr-
ir börn. Lesið verður upp fyrir
börnin og kórar koma í heimsókn.
Jóladagatal
Í KÖNNUN sem gerð var meðal
foreldra á Seltjarnarnesi kom fram
að það var nær samdóma álit þeirra
að börnunum liði mjög vel á leik-
skólum á Nesinu. Rúmlega 90%
þeirra sem tóku afstöðu sögðust
vera ánægð eða frekar ánægð með
leikskóla barna sinna. Meirihluti
foreldra skoðar heimasíður leik-
skólanna og fylgist þannig vel með
því sem fram fer, segir í tilkynn-
ingu frá Seltjarnarnesbæ.
90% ánægð
FRÉTTIR
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ÞAÐ ER gott að búa á Íslandi en er
það endilega gott fyrir alla? Um það
var rætt á Alþingi í gær þegar Guð-
finna S. Bjarnadóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, gerði niðurstöður
Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, sem birtar voru í gær, að um-
talsefni en Ísland trónar þar efst á
lista þegar kemur að lífsgæðum í 177
löndum. Stjórnarliðar fögnuðu nið-
urstöðunni ákaft og það sama gerðu
framsóknarmenn sem jafnframt ósk-
uðu Samfylkingunni til hamingju
með að hafa tekið við svo góðu búi af
Framsókn.
„Það sem er merkilegt við þessa
niðurstöðu er að ekki er eingöngu
mældur kaupmáttur eða fjárhags-
legur hagur viðkomandi landa held-
ur einnig önnur atriði sem áhrif hafa
á velmegun viðkomandi þjóðar,“
sagði Geir H. Haarde forsætisráð-
herra og Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir utanríkisráðherra sagði Íslend-
inga vera forréttindafólk. „Þetta
leggur okkur líka miklar skyldur á
herðar og mikla ábyrgð, ekki síst í
loftslagsmálum,“ sagði Ingibjörg og
vildi ekki að stjórnvöld hreyktu sér
um of því enn ætti heilmikið eftir að
gera til að jafna lífskjörin.
Efstu sætin utan ESB
Illugi Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, sagði niðurstöð-
urnar til marks um að vel hefði tekist
til við að tvinna saman kosti lýðræð-
isins og hins frjálsa markaðar. „Þó
vil ég nefna eitt sem hlýtur að vekja
töluverða athygli þingmanna, þær
tvær þjóðir sem hæst tróna á þessum
lista eru báðar utan ESB,“ sagði Ill-
ugi.
Jón Magnússon, þingmaður
Frjálslynda flokksins, sagði hins
vegar að kominn væri „afgerandi
velferðarhalli í þjóðfélaginu“. „Mikil
skil eru á milli þeirra sem eiga allt og
miklu meira en allt og hinna sem
hafa ekkert fyrir sig að leggja,“ sagði
Jón og vakti athygli á bágri stöðu
sumra þjóðfélagshópa og á því að
fimm þúsund árangurslaus fjárnám
hefðu verið gerð á árinu á innheimtu-
svæði Tollstjórans í Reykjavík.
Þá gerði Kolbrún Halldórsdóttir,
þingmaður VG, dekkri hliðar skýrsl-
unnar að umtalsefni og sagði Ísland
tróna í efstu sætum í losun gróður-
húsalofttegunda jafnt sem í notkun
rafmagns.
Ísland kannski bara
best fyrir suma?
Morgunblaðið/Ómar
Gott að vera utan ESB? Illugi Gunnarsson benti á að löndin sem eru efst á
lífsgæðalistanum, Ísland og Noregur, eru hvorugt í Evrópusambandinu.
EES-mál með hraði
Utanríkisráðherra mælti fyrir tveimur
þingsályktunartillögum á Alþingi í
gær sem báðar fela í sér að tilskip-
anir Evrópuþingsins og -ráðsins á
sviði umhverfismála verði felldar inn
í EES-samninginn. Önnur lýtur að
vatnsmálum en hin að viðskiptum
með gróðurhúsalofttegundir. Í máli
bæði Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Bjarna Benediktssonar komu fram
áhyggjur af því að mál sem þessi fái
oft of lítinn tíma til þinglegrar með-
ferðar. Utanríkisráðherra tók undir
áhyggjurnar og sagði að málin ættu
að geta komið fyrr á borð þing-
nefnda. Þingið væri hins vegar í tals-
vert „seldri stöðu“. Ef það hafnaði
tilskipunum Evrópusambandsins
setti það EES-samninginn í uppnám.
Fíkniefnadjöfullinn
Samhljómur var um gildi forvarna og
ljótleika fíkniefnavandans í utandag-
skrárumræðum í gær þó að deilt
væri um hvort
réttar leiðir væru
fetaðar í barátt-
unni. Jákvæðnin í
umræðunum
sneri að ágætum
árangri sem hefur
náðst í forvarna-
málum en nei-
kvæðnin m.a. að
rekstrarvanda
SÁÁ og mögu-
legum afleiðingum af að selja léttvín
og bjór í búðum. Grétar Mar Jóns-
son, Frjálslyndum, hafði jafnframt
áhyggjur af því að aðild að Schengen
hefði verið af því slæma hvað eftirlit
og leit á Keflavíkurflugvelli varðar.
Dagskrá þingsins
ÞINGFUNDUR hefst klukkan 13.30 í
dag með hefðbundnum fyrirspurn-
artíma en kl. 15.30 fer fram
utandagskrárumræða um samning
um framleiðslu dagskrárefnis fyrir
RÚV.
Grétar Mar
Jónsson
ÞETTA HELST …
VEIÐAR í atvinnuskyni munu ná
yfir þá starfsemi þegar eigandi eða
útgerð báts tekur gjald af þeim sem
nýtir bátinn til veiða, ef frumvarp
sem sjávarútvegsráðherra hefur
lagt fram á Alþingi verður að lög-
um. Á Íslandi er leyfilegt að veiða
sér til matar á handfæri en aflann
má ekki selja eða koma í verð á
annan hátt.
Að því er fram kemur í grein-
argerð með frumvarpinu er orðið
nokkuð um það að fyrirtæki og ein-
staklingar, sem eiga eða gera út
báta, bjóði fólki upp á sjóferðir á
bátnum. Stundum sé aðaltilgang-
urinn fiskveiðar en stundum séu
þær aðeins einn liður í afþreyingu
sem er boðið upp á. „Hvað sem því
líður er ljóst að umræddir bátar eru
nýttir í atvinnuskyni og eru fisk-
veiðar þáttur í þeirri nýtingu,“ seg-
ir í greinargerðinni þar sem jafn-
framt kemur fram að ástæða sé til
að ætla að atvinnustarfsemi sem
þessi aukist á næstu árum.
Með frumvarpinu er því lagt til
að veiðar sem þessar séu skil-
greindar sem atvinnuveiðar og
bátaeigendurnir þurfi þ.a.l. að hafa
aflaheimild og aflinn sem veiðist
dragist frá henni.
Veiðar í atvinnuskyni
LEGSTEINAR í Hólavalla-
kirkjugarði við Suðurgötu segja
sögu um fólkið sem lifði og bjó í
Reykjavík, sagði Ásta R. Jóhann-
esdóttir, þingmaður Samfylking-
arinnar, þegar hún mælti fyrir
þingsályktunartillögu um varð-
veislu kirkjugarðsins.
Tillagan hefur verið lögð fram
nokkrum sinnum áður en í grein-
argerð segir að það sé þýðingar-
mikið fyrir sögu Íslands og menn-
ingu að varðveita kirkjugarðinn
enda sé hann með þeim merkustu
á Íslandi og jafnvel þótt víðar
væri leitað í
Norður-Evrópu.
Garðurinn hafi
að mestu leyti
verið látinn
óhreyfður og sé
heimild um „list-
og táknfræði,
persónusögu og
ættfræði og
stefnur í bygg-
ingarlist“. Þá
kemur fram að í garðinum sé á
annað hundrað plantna sem vert
sé að rannsaka.
Varðveisla kirkjugarðsins
Ásta R.
Jóhannesdóttir
FJÓRIR þingmenn Vinstri grænna
hafa lagt fram þingsályktunar-
tillögu þess efnis að utanríkis-
ráðherra kalli heim íslenska frið-
argæsluliða sem eru í Afganistan. Í
greinargerð kemur fram að for-
sendur fyrir þátttöku í verkefnum
NATO þar í landi séu hæpnar með
tilliti til nýrra laga sem segja að öll
verkefni íslensku friðargæslunnar
eigi að vera borgaraleg.
Liðana heim
BORIST hefur eftirfarandi frá Egg-
ert Kristjánssyni hf.
„Vegna kæru Neytendasamtak-
anna á hendur Eggert Kristjánssyni
hf. í gær vil ég koma eftirfarandi á
framfæri:
Síðasta vor kvartaði samkeppnis-
aðili okkar við Umhverfissvið
Reykjavíkurborgar yfir því að Rautt
Royal Ginseng innihéldi í raun ekki
rautt ginseng, heldur hvítt. Við
brugðumst skjótt við og kröfðum
framleiðanda vörunnar um að varan
yrði rannsökuð af óháðri og viður-
kenndri rannsóknarstofu og það
staðfest að hún innihéldi rautt
ginseng. Í framhaldi af þessu barst
okkur vottorð frá Korean Advanch-
ed Food Research Institute
(„KAFRI“), sem vinnur eftir opin-
berum staðli í upprunalandi vörunn-
ar, þess efnis að varan innihéldi
sannarlega rautt ginseng. Við lögð-
um vottorðið fram hjá Umhverfis-
sviði Reykjavíkurborgar og óskuð-
um eftir að þeir úrskurðuðu um
málið sem fyrst. Svar barst loks í
ágúst sl. og komst Umhverfissviðið
að þeirri niðurstöðu, með vísan til
álits Umhverfisstofnunar, að ekki
væri ástæða til „frekari aðgerða að
svo komnu máli“. Engar brigður
voru bornar á gildi vottorðsins frá
KAFRI, en Umhverfisstofnun efna-
greindi ekki vöruna sjálf og vísaði til
þess að hvorki væru til íslenskir né
evrópskir staðlar. Eggert Kristjáns-
son hf. lýsti sig ósátt við þá nið-
urstöðu og taldi að Umhverfissviði
hefði borið að staðreyna og stað-
festa að vottorðið frá KAFRI sýndi
að varan, Rautt Royal Ginseng, inni-
héldi rautt kóreskt ginseng sam-
kvæmt opinberum stöðlum í upp-
runalandi vörunnar.
Eggert Kristjánsson hf. þekkir
ekki til þess fyrirtækis sem vísað er
til í kvörtun Neytendasamtakanna
sem viðurkenndrar rannsóknar-
stofu, en telur niðurstöðu þessa
fyrirtækis athyglisverða í ljósi
fullyrðinga frá Umhverfissviði
Reykjavíkurborgar þess efnis að
engir evrópskir staðlar séu til sem
varði rautt kóreskt ginseng, sem og
það að niðurstaðan stangast á við
niðurstöðu KAFRI sem enginn hef-
ur vefengt. Þá sætir það furðu og
veldur vonbrigðum að Neytenda-
samtökin skuli ekki hafa sett sig í
samband við okkur vegna meintra
kvartana svo við gætum brugðist við
og komið okkar sjónarmiðum á
framfæri. Þannig virðast samtökin
ekki hafa haft hugmynd um
KAFRI-vottorðið heldur stokkið til
og lagt í rannsókn á þýskri rann-
sóknarstofnun að okkur forspurðum
og án þess að fá sýnishorn af vör-
unni hjá okkur. Það er sannarlega
dapurlegt eftir gott og farsælt sam-
starf okkar með samtökunum allt
frá stofnun þeirra.
Eftir stendur að vottorðið frá
KAFRI sýnir og sannar að okkar
vara er rautt ginseng samkvæmt
opinberum stöðlum frá uppruna-
landi hennar.
F.h. Eggerts Kristjánssonar hf.,
Gunnar Aðalsteinsson.“
Yfirlýsing frá Eggert
Kristjánssyni hf.
SEX þingmenn úr öllum flokkum
hafa lagt fram tillögu til þings-
ályktunar um að fela ráðherrum
sjávarútvegs- og menntamála að
vinna að stofnun skipafrið-
unarsjóðs. Minna þeir á að gömul
hús séu varðveitt vegna menning-
ararfsins; ekki sé síður mikilvægt
að huga að varðveislu fiskiskipa.
Vilja skipa-
friðunarsjóð