Morgunblaðið - 28.11.2007, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2007 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
NOKKURRA mínútna kvikmynd af
jesúítaprestinum og rithöfundinum
Jóni Sveinssyni, Nonna, fannst fyrir
rúmlega hálfum mánuði í Hollandi
og var sýnd á málþingi um hann í
Þýskalandi um liðna helgi. Myndin
er svarthvít og hljóðlaus.
„Það var ótrúlega gaman að sjá
þetta. Ég hef kynnt mér Nonna
mjög vel en þarna opnaðist alveg
ný vídd. Myndin er ómetanleg
heimild fyrir íslensku þjóðina,“
sagði Brynhildur Pétursdóttir,
safnstjóri í Nonnahúsi, við Morg-
unblaðið. Þetta er eina hreyfimynd-
in sem vitað er um af Nonna.
Það var gömul, hollensk kona
sem fann kvikmyndina á heimili
sínu fyrir um það bil tveimur vikum
en myndin var tekin þegar hún var
ung stúlka. Móðir hennar tók
myndina á heimili þeirra árið 1942,
þegar Nonni var að verða 85 ára og
átti tvö ár eftir ólifuð.
Í kvikmyndinni sést Nonni ganga
út úr klaustrinu í Valkenburg í Hol-
landi, þar sem hann bjó á þessum
tíma, og síðan er sýnt frá heimsókn
hans til fjölskyldunnar. „Hann er
enn uppreistur og flottur þótt hann
sé orðinn svona gamall. Hann geng-
ur niður tröppur, með tvo stafi, en
grípur síðar harmonikku og leikur
fyrir börnin,“ sagði Brynhildur.
Myndin verður sýnd á laugardag-
inn í Ketilhúsinu á Akureyri, þar
sem verður dagskrá um Nonna.
Hreyfimynd
af Nonna
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
UM 80% útgjalda Aðalsjóðs Akur-
eyrarbæjar á næsta ári fara í þrjá
málaflokka; fræðslumál, æskulýðs-
og íþróttamál og félagsmál – alls
rúmir fimm milljarðar. Þar af fara
3,6 milljarðar í fræðslumál. Áætlað-
ar heildartekjur Akureyrarbæjar
verða 12,3 milljarðar og gjöld um 12
milljarðar, skv. fjárhagsáætlun.
Fyrri umræða um fjárhagsáætl-
unina fór fram í bæjarstjórn í gær.
Oddvitar meirihlutaflokkanna, Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar, Sig-
rún Björk Jakobsdóttir og Hermann
Jón Tómasson, sögðu áætlunina ein-
kennast af miklum vexti og góðri
þjónustu, þegar þeir kynntu hana
fyrir fjölmiðlum í gær. Þeir segja að
ráðist verði í umfangsmiklar fjár-
festingar í grunngerð samfélagsins.
Á því sviði á að framkvæma fyrir 2,2
milljarða á næsta ári. Þar af eru 385
milljónir vegna fræðslu- og uppeldis-
mála en hafist verður handa við
byggingu Naustaskóla í nýjasta
hverfi bæjarins.
„Áfram verður haldið að treysta
undirstöður þeirrar miklu og góðu
þjónustu sem Akureyrarbær býður
íbúum sínum upp á, á öllum sviðum.
Akureyrarbær hefur þau forréttindi
að annast rekstur málefna fatlaðra,
aldraðra og heilsugæslu auk annarra
hefðbundinnar þjónustu sveitarfé-
laga. Samþætting þjónustu á fjöl-
mörgum sviðum hefur vakið lands-
athygli og er fyrirmynd annarra
sveitarfélaga,“ segir í tilkynningu
meirihlutaflokkanna.
Fjárhagsáætlun ársins 2008 gerir
líka ráð fyrir miklum fjárfestingum í
grunngerð samfélagsins og er það í
samræmi við málefnasamning meiri-
hlutaflokkanna, segir þar.
Í menningarhúsið Hof fara 800
milljónir kr. á næsta ári, til æsku-
lýðs- og íþróttamála verður varið 627
milljónum til framkvæmda, þar af
fara 260 milljónir kr. til byggingar
íþróttahúss Giljaskóla og 262 millj-
ónir til uppbyggingar íþróttavalla í
tengslum við Landsmót UMFÍ sem
haldið verður á Akureyri 2009.
Gert er ráð fyrir 642 milljónum í
ýmsar gatnaframkvæmdir.
Í B-hluta eru 952 milljónir áætl-
aðar til framkvæmda og munar þar
mestu um hlut Norðurorku eða sem
nemur 521 milljón og framkvæmd-
um við fráveitumál sem nema 300
milljónum króna.
Skatttekjur Aðalsjóðs ásamt
framlagi úr jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga eru áætlaðar tæpir 6,3 milljarð-
ar króna og aðrar tekjur Akureyr-
arbæjar eru rúmir 6,9 milljarðar skv.
samstæðureikningi.
Bæjarráð leggur til að útsvars-
prósenta í staðgreiðslu opinberra
gjalda verði óbreytt frá fyrra ári,
13,03%.
Góðar undirstöður
treystar enn frekar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Framkvæmdir Menningarhúsið Hof sem er í byggingu á Akureyri. Bærinn
leggur 800 milljónir króna í verkefnið á næsta ári skv. fjárhagsáætlun.
Í HNOTSKURN
»Fjárhagsstaða Akureyr-arbæjar er mjög góð að
sögn bæjarstjórans og lang-
tímaskuldir ekki að hækka.
»Bærinn seldi hlut sinn íLandsvirkjun á árinu fyrir
3,3 milljarða króna.
Bæjarbúum hefur fjölgað um
tæplega 2.200 manns á 10 árum, og
aldrei á þeim tíma eins og í ár – um
360 manns. Hugsanlega hefur aldr-
ei fjölgað jafnmikið í bænum á einu
ári. Minnsta fjölgunin á þessum
áratug var í fyrra, þegar bæjarbú-
um fjölgaði aðeins um 86 manns.
Fjölgun bæjarbúa í ár þakkar bæj-
arstjórinn m.a. því að fyrirtæki
eins og Saga Capital fjárfesting-
arbanki opni höfuðstöðvar sínar í
bænum og barnafjölskyldur komi
þess vegna í bæinn.
Niðurgreiðslur til foreldra, vegna
vistunar barna hjá dagforeldrum,
lækka um 7.000 krónur um áramót,
en upphaflegar hugmyndir skóla-
nefndar voru að lækkunin yrði
12.000 kr. Foreldrar sem eru giftir
eða í sambúð munu frá áramótum
greiða 29.325 kr. á mánuði fyrir 8
klst. vistun daglega og á móti
greiðir Akureyrarbær kr. 38.964.
Tekjur bæjarins af þeim rekstri
sem hann innir af hendi fyrir ríkið
eru tveir og hálfur milljarður króna
á ári. Sigrún Björk Jakobsdóttir
bæjarstjóri segir það hafa gefist
mjög vel að bærinn sinni þessum
félagslegu verkefnum og rétt sé að
færa þau til sveitarfélaganna.
„Þessi mál hafa einmitt verið í um-
ræðunni upp á síðkastið. Reynslan
hér í bænum síðustu 10 ár er mjög
góð. Okkar dæmi sannar það að
málaflokkurinn á heima hjá sveit-
arfélögunum.“
Aldrei
meiri
fjölgun?
AKUREYRI
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
Holtagarðar | Á slaginu klukkan tólf
í dag mun ný verslun Hagkaupa
verða opnuð í Holtagörðum. Saga
húsnæðisins hefst þó ekki með opnun
verslunarinnar, heldur var IKEA-
verslunin þar áður, og enn áður var
stórmarkaðurinn Mikligarður, sem
Samband íslenskra samvinnufélaga,
SÍS, rak, í sama húsi. Verslunin er
engin smásmíði, 8.000 fermetrar, en
til samanburðar má nefna að verslun
Hagkaupa í Smáralind er 10.000 fer-
metrar.
Í framsetningu vöruflokka hafa að
einhverju leyti verið fetaðar nýjar
slóðir í Holtagörðum. Bílastæðið hef-
ur verið stækkað, er nú á tveimur
hæðum, og rými á efri hæð hússins
er nýtt undir raftækjaverslunina
Max. Sem fyrr er Bónus-verslun í
hinum enda hússins, og bakarí Jóa
Fel. hefur verið opnað við hlið Bón-
uss.
Gunnar Ingi Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Hagkaupa, segir að nú
hafi þótt tími til kominn að opna nýja,
stóra verslun, síðast hafi verið opnað
í Smáranum í Kópavogi. „Þá voru Ís-
lendingar 270.000 en eru nú komnir
yfir 300.000,“ segir Gunnar Ingi.
Allir flokkar á sama stað
„Verslunin er í megindráttum
byggð upp á vöruvali. Hins vegar var
horft til þess hér að allir flokkar
væru á sama stað. Þegar dömur
koma hér inn er allt fyrir þær þar við
höndina; barnavörur eru allar á sama
stað og þar er flokkað eftir aldri,“
segir Gunnar Ingi. Hann segir hug-
myndafræðina á bak við verslunina
vera að hægt sé að fá allt á sama stað,
í einni ferð. „Við leggjum áherslu á
þann punkt, í rauninni getum við
sagt að við séum ódýrust þegar horft
er til þess að fólk þarf ekki að fara á
fjóra staði, bensínið kostar jú sitt í
dag.“ Gunnar Ingi nefnir t.d. að fólk
geti komið í þessa verslun og klárað
jólainnkaupin „… á sex tímum, get-
um við sagt. Allt eftir því hversu iðnir
menn eru,“ segir hann og hlær.
Ný vídd í verslun á Íslandi
„Neei, en við horfum rosalega mik-
ið til þess að vera einfaldlega með
mesta vöruúrvalið,“ segir Gunnar
Ingi aðspurður hvort þetta sé lúx-
usverslun. „Hins vegar kostar alltaf
að halda úti miklu vöruúrvali,“ bætir
hann við. „Viðskiptavinurinn vill fjöl-
breytni og nýja hluti. Ég held að
segja megi að við séum komin í nýja
vídd með þessari búð.“
Innan raftækja- og skemmti-
efnadeildar verður athvarf fyrir
þreytta viðskiptavini. Þar verður
hægt að setjast niður, glugga í blöð-
in, kíkja á boltann eða annað sjón-
varpsefni.
Að miklu leyti verður verslunin í
Holtagörðum byggð upp eins og aðr-
ar Hagkaupaverslanir. Þó segir
Gunnar Ingi að miklu dýpra sé farið í
ákveðnum vöruflokkum og nefnir
sem dæmi sterka áherslu á heilsu-
vörur. „Við erum líka með öll snyrti-
vörumerkin, svo til, sem í boði eru á
markaðnum. Hér er fyrsta Lata-
bæjarbúðin, held ég að segja megi í
heiminum, við höfum einmitt hugsað
okkur að tengja Latabæ inn í græn-
metið með Latabæjartilboðum,“
segir Gunnar Ingi og bætir því við
að kannski þyki það dálítið djarft að
opna núna verslun þar sem er lands-
ins stærsta kjötborð, „svona miðað
við það hver þróunin hefur verið
með kjötborð, hún hefur frekar verið
aftur á bak heldur en hitt.“
Gunnar Ingi hefur verið viðloð-
andi Hagkaup langa tíð. Hans fyrsta
starf var að tína saman kerrur árið
1981. Í gær voru óteljandi iðn-
aðarmenn að leggja lokahönd á
verkið og framkvæmdastjórinn
Gunnar Ingi var á hlaupum eins og
annað starfsfólk verslunarinnar við
að koma öllum hlutum á sinn rétta
stað.
Jólainnkaupin
kláruð á sex
klukkustundum?
Morgunblaðið/Frikki
Framkvæmdastjórinn Gunnar Ingi Sigurðsson var, eins og aðrir starfsmenn verslunarinnar, á þönum við að
koma öllu á sinn stað áður en hin nýja verslun Hagkaupa verður opnuð á hádegi í dag.
Morgunblaðið/Frikki
Tengingar Lögð er áhersla á að skyldir hlutir séu á svipuðum slóðum.