Morgunblaðið - 28.11.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2007 21
leikinn er aldrei meiri.
En í dag finnst Vík-
verja sem jólin gætu
orðið alveg hreint ágæt
og auglýsingar Ikea
um að jólin byrji þar
fara ekki einu sinni í
taugarnar á honum.
x x x
Víkverji er svo káturað hann nennir
ekki að tuða eina ferð-
ina enn yfir lélegri
þjónustu Icelandair við
grænmetisætur og því
þegar flugfélagið gaf
honum hrátt brokkólí
og blómkál á leið til
Lundúna á dögunum. Og ekki sér
hann ástæðu til að hrópa upp yfir sig
hvurn fjárann menn séu að ætla með
því að breyta fyrrverandi bílastæð-
inu Kolaportinu aftur í bílastæði.
Víkverji ætlar miklu frekar að deila
með lesendum sínum öllu því sem
gleður sálartetur hans þessa dag-
ana. Fyrst má nefna þetta klassíska:
Að Víkverji á þak yfir höfuð nú þeg-
ar óðaþenslan byggir fullt af þökum
sem enginn hefur efni á að vera und-
ir og að Víkverji er við góða heilsu
og á góða að. Víkverji
hló líka um daginn
þegar hann spjallaði
við róna sem sagði:
„Veðrið er bara alveg
eins og ég, alltaf að
detta íða.“
x x x
Í ofanálag er Víkverjiánægður neytandi
enda fer hann orðið
bara í búðir sem hon-
um líkar við. Verslunin
Brynja er ofarlega á
lista, eiginlega svo of-
arlega að Víkverji ger-
ir sér stundum upp er-
indi til að líta þar við,
og hvetur fólk sem er að versla gjaf-
ir til að gefa góð og eiguleg verkfæri.
Víkverja finnst líka skemmtilegt að
hanga í Fótógrafí, ljósmyndabúðinni
á Skólavörðustígnum, þar sem hægt
er að skoða og kaupa stórkostlegar
ljósmyndir. Víkverji er eiginlega
kominn á það að verkfæri og ljós-
myndir séu jólagjafirnar í ár. Til að
halda andliti vill Víkverji þó taka
fram að honum leiðast jólin og ástin
og börn og kettir og allt sem al-
mennt gerir fólk hamingjusamt.
Víkverji á það til að vera frekargeðstirður maður. Það fer hon-
um einfaldlega vel að hafa allt á
hornum sér. Hann er bara svo
skemmtilegur þegar hann er fúll.
En Víkverji er engu að síður sann-
færður um að einn besti mælikvarð-
inn á geðheilsuna sé hversu margt
fer í taugarnar á honum. Þannig get-
ur Víkverji orðið alveg snarbrjál-
aður yfir bílum sem er lagt uppi á
gangstétt og enn meira yfir jeppum
sem eru fyrir honum þegar hann
reynir að hjóla niður Laugaveginn.
Þá sjaldan að Víkverji ferðast um
akandi getur hann aftur á móti orðið
mjög pirraður yfir hjólreiðamönnum
og gangandi vegfarendum sem eru í
vegi fyrir honum. M.ö.o. fer Víkverji
í taugarnar á sjálfum sér á sínum
verstu dögum.
x x x
En Víkverji er hins vegar ein-staklega kátur í dag og veit
eiginlega ekki hvers vegna. Ekki er
það út af jólunum sem eru í nánd
enda er Víkverji langt frá því að vera
jólabarn. Satt best að segja leiðist
honum þessi hátíð þegar óham-
ingjusömustu fjölskyldur þykjast
vera hamingjusamar og einmana-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.isaf germönskum uppruna (mennhafa þurft að nota hugmyndaflugið
til að skapa fjölbreytni í kringum
hina gríðarlegu kartöfluneyslu áður
fyrr). Nægir að nefna í því tilliti
hinar rómuðu kartöflubollur (Kloße)
frá Thüringen (sem heita svo aftur
Knöderli í Austurríki), kartöflusalöt
af ýmsum gerðum og hinar ómót-
stæðilegu Rösti-kartöflukökur.
Þessar svissnesku kartöflu-
pönnukökur eru fínar með hrásalati
eða sem meðlæti með ýmiss konar
kjöti og pylsum. Ef vill má bæta
steiktum lauk og beikonbitum sam-
an við rifnu kartöflurnar og þá
verður rétturinn matarmeiri. Í upp-
skriftinni hér að neðan er gorgon-
zola-osti bætt ofan á, ásamt vín-
berjahelmingum, en hægt er að
nota annan ost eftir smekk, t.d.
brie. Í stað vínberja má einnig nota
steikta kóngasveppi eða venjulega
sveppi. Rösti bragðast einnig
dásamlega með slettu af sýrðum
rjóma og reyktum laxi.
Rösti með gorgonzola
og vínberjum
fyrir fjóra
8-12 kartöflur (u.þ.b. 800 g)
salt, pipar og ögn af fersku tímían
100 g smjör
100-150 g gorgonzola-ostur
nokkur vínber, blönduð rauð og
græn, skorin langsum í tvennt og
kjarni fjarlægður
Léttsjóðið kartöflurnar, afhýðið,
rífið gróft niður (má einnig nota
hráar ef vill), leggið inn í tvö visku-
stykki til þurrkunar. Kryddið svo
með salti, pipar og tímían (eða öðr-
um kryddjurtum).
Hitið smjörið á tveimur teflon-
pönnum, deilið rifnum kartöflunum
á þær og þjappið þeim vel saman
svo þær myndi þéttar pönnukökur.
Steikið við vægan hita þar til neðra
byrði þeirra er orðið ljósbrúnt og
stökkt, snúið þeim þá við og bakið
hinum megin.
Skerið ostinn í litlar sneiðar og
komið sneið fyrir ofan á hverri og
hálfum vínberjum af hvorum lit of-
an á. Stingið augnablik undir grill
og berið fram.
Helstu kartöflusöfn í Þýskalandi:
Kartoffelmuseum,
Grafinger Straße 2, München
www.kartoffelmuseum.de
Deutsches Kartoffelmuseum
Hauptstraße 65, Fußgönheim,
www.kartoffelmuseum.kendzia.de
Thüringer Kloßmuseum
Im Dorf 1, Heichelheim/Weimar
www.klossmuseum.de