Morgunblaðið - 28.11.2007, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
EITT mikilvægasta pólitíska úr-
lausnarefnið á alþjóðavísu um þess-
ar mundir er loftslagsmál. Í sunnu-
dagsblaði
Morgunblaðsins birt-
ist viðtal við Þórunni
Sveinbjarnardóttur
umhverfisráðherra
undir yfirskriftinni
„Sérhagsmunir auka-
atriði“.
Í viðtalinu kemur
fram mikill metnaður
af hálfu ráðherrans í
þá veru að taka á
þessu alheimsvanda-
máli og draga úr
gróðurhúsaáhrifum.
Hún vill ekki að Ís-
land verði eftirbátur
annarra í þeim efnum.
Þar er ég sammála
ráðherranum. Við eig-
um að leggja okkar af
mörkum enda höfum
við mikið fram að
færa. Ég er á hinn
bóginn ósammála
henni og finnst slæm-
ur málflutningur af
hálfu ráðherrans að
hún skuli bera það á
borð að við stöndum
okkur illa í þessum
efnum. Enn verra er
ef ráðherrann ætlar
að tjá sig með þessum
hætti gagnvart alþjóðasamfélaginu.
Óendanleg virðing er borin fyrir
Íslandi vegna þeirrar stefnu sem
hér hefur verið framfylgt með nýt-
ingu á endurnýjanlegri orku. Yfir
90% af húsum á Íslandi eru hituð
upp með jarðvarma. Við fram-
leiðum eingöngu endurnýjanlega
orku og 70% af heildarorkunotkun
hér á landi eru endurnýjanleg,
græn og ómengandi. Auk þess
hlaut Ísland nýlega sérstök heið-
ursverðlaun Alþjóðavetnissam-
starfsins á Alþjóðaorkuþinginu í
Róm fyrir framlag til framþróunar
og kynningar á alþjóðavetnissam-
félaginu.
Þröng sýn
Þrátt fyrir allt þetta virðist um-
hverfisráðherrann horfa þröngt á
tölur á blaði og segir að við meng-
um meira en flestir aðrir. Hún er
líka ósátt við það að Ísland skyldi
fá undanþágu við gerð Kyoto-
samkomulagsins sem nemur 10%
aukningu á losun í almennri notk-
un. Sú undanþága fékkst vegna
þess að við höfðum þá þegar gengið
í gegnum byltingarkenndar breyt-
ingar í upphitun húsa með notkun
jarðvarma.
Umhverfisráðherra segir að það
sé brýnt að skoða þessi mál í stóru
samhengi en bætir síðan við að það
sé rangt að setjast niður við samn-
ingaborð og leggja strax fram „sér-
kröfu“. Þarna fer málflutningur
ráðherrans í kross að mínu mati.
Það sem liggur til grundvallar því
að þessi mál verður að skoða í
stóru samhengi er að við eigum
bara einn lofthjúp og þess vegna
verður m.a. að taka tillit til þess
hvar skynsamlegast er, með tilliti
til losunar gróðurhúsalofttegunda,
að stunda orkufreka starfsemi.
Þess vegna er ekki hægt að horfa
einvörðungu á landstölur eins og
ráðherrann virðist gera. Það er
a.m.k. ekki gert í flugsamgöngum
og flutningi kaupskipa
sem eru undanskilin
reikningshaldi í dag,
hvað sem verður til
framtíðar.
„Íslenska ákvæðið“
Eins og staðan er
nú þá teljast um 30%
af útblæstri tengd
þeim þjóðum sem eru
þátttakendur í Kyoto-
samkomulaginu. Þess
vegna skiptir sköpum
til framtíðar að þjóðir
á borð við Bandaríkin,
Ástralíu, Indland og
Kína taki þátt í næsta
áfanga.
Það sem er hins
vegar rangt hjá ráð-
herranum er að „sér-
kröfur Íslands“ séu
eitthvað til að skamm-
ast sín fyrir á al-
þjóðavísu og séu til að
þjóna íslenskum hags-
munum eingöngu.
Ástæða þess að stjórn-
völd annarra þátt-
tökuþjóða féllust á
svokallað „íslenskt
ákvæði“ er ekki sú að
þau hafi viljað vera
sérstaklega góð við Ísland. Ástæð-
an er sú að þau sáu að þetta var
skynsamlegt fyrir heildina. Þess
vegna er einnig rangt af ráðherran-
um að leggja áherslu á að losun
gróðurhúsalofttegunda á manns-
barn sé meiri hér en hjá flestum
Evrópuþjóðum. Deila má um hvort
íslenska ákvæðið, sem telur 1,6
milljónir tonna, eigi í rauninni að
teljast með í þeirri tölu. Fram-
leiðsla hér á landi sem nýtir þenn-
an útblásturskvóta mengar þannig
umtalsvert minna en ef sama fram-
leiðsla ætti sér stað annars staðar,
með nýtingu orku úr kolum eða ol-
íu. Ef ál er tekið sem dæmi er
hægt að framleiða ákveðinn fjölda
tonna á ári innan þessara meng-
unarmarka. Ef sama magn væri
framleitt með nýtingu kola eða olíu,
sem því miður er of algengt, næmi
losun gróðurhúsalofttegunda 12-15
milljónum tonna. Svo einfalt er það.
Gríðarleg losun
framundan í Asíu
Samkvæmt nýrri skýrslu Al-
þjóðaorkumálastofnunarinnar verð-
ur eftirspurn eftir orku 50% meiri
árið 2030 en hún er í dag. Kína og
Indland munu þurfa 45% af þessari
aukningu. Talið er að 84% af aukn-
ingunni verði vegna notkunar á olíu
og kolum. Í dag nota Kína og Ind-
land 45% af öllum kolum í heim-
inum og aukningin verður fyrst og
fremst hjá þessum þjóðum. Í þess-
ari alvarlegu stöðu leggur stofn-
unin til að framleitt verði meira af
orku úr endurnýjanlegum orku-
gjöfum en þeir leggja jafnframt til
stóraukna framleiðslu kjarnorku til
að draga úr mengun. Í Kína eru
rúmlega 2000 kolarafmagnsver og
áætlanir eru uppi um að byggja 500
til viðbótar. Ígildi þriggja Kára-
hnjúkavirkjana bætast þar við í
hverri viku, knúnar áfram með kol-
um.
Ósamstæð ríkisstjórn
Í þessari stöðu segir íslenska rík-
isstjórnin pass og ætlar ekki að
hugsa hnattrænt. Forsætisráð-
herra segir að það sé nægur tími til
stefnu og telur að það dugi að rík-
isstjórnin verði búin að koma sér
saman um markmið Íslands þegar
fundur aðildarríkjanna verður
haldinn í Kaupmannahöfn árið
2009. Umhverfisráðherrann segir
svo að það sé siðferðilega rangt að
setjast að samningaborði og leggja
strax fram „sérkröfur“. Henni virð-
ist fyrirmunað að horfa hnattrænt
á málið. Þetta bendir til þess að
ríkisstjórn Íslands ætli að þegja
þunnu hljóði á aðildarríkjaþingi
Loftslagsstofnunarinnar sem haldið
verður á Balí í Indónesíu í næstu
viku.
Í þessu máli fara saman þjóð-
arhagsmunir og hagsmunir ann-
arra íbúa jarðarinnar. Svoleiðis
hagsmuni telur ósamstæð rík-
isstjórn Íslands ekki ástæðu til að
taka upp.
Umhverfisráðherrann og
þjóðarhagsmunir
Valgerður Sverrisdóttir
skrifar um loftslagsmál
» Þetta bendirtil þess að
ríkisstjórn Ís-
lands ætli að
þegja þunnu
hljóði á aðild-
arríkjaþingi
Loftslagsstofn-
unarinnar sem
haldið verður á
Balí í Indónesíu
í næstu viku.
Valgerður Sverrisdóttir
Höfundur er þingmaður.
SUÐURSTRANDARVEGUR
verður boðinn út í janúar næstkom-
andi. Vegurinn verður væntanlega
boðinn út í tveimur áföngum. Sá hluti
vegarins sem er tilbú-
inn í útboð, um 20 km
kafli frá Þorlákshöfn
að Krýsuvík verður
boðinn út í janúar, en
seinni hlutinn frá
Krýsuvík að Ísólfs-
skála skammt frá
Grindavík ætti að geta
verið boðinn út í vor.
Þar er eftir að hæð-
armæla veglínu og
verkhanna um 30 km
kafla að Ísólfsskála, en
lokið er vegalagningu
frá Grindavík fyrir Fe-
starfjall að Ísólfsskála, um 4 km
kafla.
Það sér því fyrir endann á Suður-
strandarvegi og er kominn tími til en
framkvæmdin hefur verið í ótrúlegu
limbói í 7 ár. Varðandi 30 km kaflann
þarf að breyta aðalskipulagi, en lög-
saga þess svæðis heyrir undir
Grindavík og Hafnarfjörð og mik-
ilvægt er að engar tafir
verði í þeim ferli, nóg er
nú komið í þeim efnum af
hálfu ríkisvaldsins.
Þá sér nú fyrir lang-
vinnar deilur um hinn
svokallaða Lyngdalsheið-
arveg, en búið er að taka
ákvörðun um þá fram-
kvæmd eftir endalausar
kærur sem heyra nú sög-
unni til. Bláskógabyggð á
væntanlega eftir að
breyta aðalskipulagi
vegna nýja vegarins, en
það ferli ætti að geta unnist innan
hálfs árs og þá er ekki eftir neinu að
bíða og vegalagning um Lyngdalsheiði
á að geta hafist næsta sumar, verkið
er í raun tilbúið til útboðs og pening-
arnir bíða tilbúnir, aldrei þessu vant.
Suðurstrandarvegur
og vegur um Lyngdals-
heiði í startholunum
Árni Johnsen skrifar um Suður-
strandarveg og Lyngdalsheiði » Suðurstrandarvegurverður boðinn út í
janúar og vegalagning
um Lyngdalsheiði á að
geta hafist næsta sumar.
Árni Johnsen
Höfundur er alþingismaður Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Endurnýjuð 2ja herb. 52,2 fm
íbúð ásamt 5 fm sérgeymslu í
kjallara, í litlu fjölbýli á þess-
um vinsæla stað. Íbúðin skipt-
ist í: Forstofu, eldhús, borð-
stofu, stofu, svefnherbergi og
baðherbergi. Endurnýjað bað-
herbergi, öll gólfefni, íbúð ný-
máluð & ný eldavél. V. 18,6
m.
REKAGRANDI
- GÓÐ FYRSTU KAUP
Vönduð & snyrtileg 2ja herb.
70,4 fm íbúð á 2. hæð í ný-
legu lyftuhúsi við Laugarveg
Íbúð skiptist í: Forstofu,
þvottaherbergi, baðherbergi,
stofu/borðstofu með eldhús-
krók, svefnherbergi, sér-
geymsla á hæð við hlið íbúð-
ar. Svalir að Laugarvegi. V.
27,9 m.
LAUGAVEGUR - NÝ ÍBÚÐ
4ra herb. 101 fm íbúð á 3ju
hæð í Kópavogi. Íbúð er 89,5
fm (birt stærð) ásamt 12 fm
sérgeymslu í kjallara. Skiptist
í: Hol með skáp, stofur eru
stórar og bjartar og útsýni yfir
Fossvogsdal. Eldhús með búri
innaf. Baðherbergi með flísum
á veggjum og gólfi. Þvottahús
með flísum á gólfi. Þrjú svefnherbergi með góðum skápum, parketi á
gólfi. V. 23,9 m.
KJARRHÓLMI – ÚTSÝNI
4ra herb 106 fm rúmgóða
endaíbúð á 3ju hæð í Hafnar-
firði. Sérinngangur af suður-
svölum. Íbúðin er forstofa,
gangur, vel búið eldhús,
stofa/borðstofa, þvottahús, 3
svefnherbergi, geymsla og
góðar svalir til vesturs. Vand-
að parket og steinskífa á gólf-
um. Nýtískuleg og glæsileg í
alla staði og mikið útsýni í allar áttir. V. 29,9 m.
SVÖLUÁS – ÚTSÝNI
Glæsileg 3ja herb. 121,7 fm
íbúð í fjölbýli með sérinngangi
af svölum og stæði í lokaðri
bílageymslu. Íbúð skiptist í:
Forstofu, eldhús, baðherb.,
stofu, borðstofu, þvottaherb.,
2 svefnherb., vinnuaðst., 2
svalir, 2 sérgeymslur & stæði í
bílageymslu. Allur frágangur á
húseign er til fyrirmyndar og
með öllum nútímaþægindum.
V. 31,9 m.
TRÖLLATEIGUR - MOSF.BÆR
6 herb. 137,2 fm auk 23,8 fm
bílskúrs sem er innréttaður
sem íbúð og er í útleigu, sam-
tals 161 fm. Nánari lýsing:
Forstofa m/herb. innaf. Aðal-
hæð skiptist í stofu, borð-
stofu, eldhús og þvottahús úr
stofu er útgengi á verönd
snyrtilegt eldhús með nýl. inn-
réttingu. Á þriðja palli eru tvö svefnherb. útg. á svalir úr báðum, baðherb.,
stórt herb. og setustofa. V. 39,1 m.
MARBAKKABRAUT
– LEIGUTEKJUR
í sölu mjög vel staðsett alls
243 fm parhús í efstu götu í
Kórahverfinu. Glæsilegt útsýni
til suðurs og vesturs. Húsið er
rúmlega tilbúið til innréttinga
en nánast fullbúið að utan.
Efri hæð er: Forstofa, herb.,
gesta-wc, eldhús, stofa/borð-
stofa, suðursvalir. Á neðri hæð er: sjónvarpsrými, 3 herb., 2 baðherb.,
þvottahús, geymsla, útgengi í garð.
KLEIFAKÓR
– LAUST TIL AFHENDINGAR
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
M
b
l 9
42
18
0
Upplýsingar veitir Sveinn Eyland sölumaður Fasteign.is
í síma 6-900-820