Morgunblaðið - 28.11.2007, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
og litla kók. Svo horfðum við saman
á Löður og fleiri þætti í sjónvarp-
inu. Ég var alltaf hjá ömmu fyrir jól
og á Þorláksmessu sátum við saman
eftir bæjarferð í borðstofunni henn-
ar, rjóðar í kinnum og þreyttar.
Hún pakkaði inn jólagjöfum, ég
horfði á og dáðist að hæfileikum
hennar þegar hún skreytti pakkana
af sinni alkunnu snilld. Þarna sátum
við saman og hlustuðum á jólalög
sem eiga alltaf eftir að minna mig á
hana. Amma var mikið jólabarn og
hún smitaði okkur stelpurnar sínar
af þessum mikla jólaáhuga.
Amma lifði mjög viðburðaríku lífi
sem ung kona. Hún var dómari í
Ungfrú Ísland, Ungfrú Evrópa og
Miss World, hún var sýningarstúlka
af og til sem þótti mjög fínt í þá
daga. Amma Karó vann hjá Flug-
leiðum í 31 ár og hún ferðaðist út
um allan heim að kenna á tölvukerf-
in sem þá voru að stíga sín fyrstu
skref í heiminum. Við ferðuðumst
einnig með henni til útlanda. Við
fórum tvær saman til Danmerkur
þegar ég var 12 ára og áttum þar
góða tíma. Einnig höfum við allar
farið með henni til útlanda bæði sér
og saman. Ég hef alltaf litið upp til
hennar enda var hún forkunnarfög-
ur kona og alltaf svo flott klædd, al-
veg fram á það síðasta. Þó að hún
væri orðin svona lasin þá var hún
alltaf fín, allt straujað í skápunum
og aldrei rykkorn að sjá. Svona var
hún amma mín. Guð veri með þér
elsku hjartans amma mín og sofðu
rótt. Ég vil þakka starfsfólki Selja-
hlíðar fyrir hversu hlýtt og yndis-
legt það hefur reynst henni ömmu
minni þessi fjögur ár sem hún hefur
búið á Seljahlíð en hún talaði um
það iðulega.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson)
Elena Kristín Pétursdóttir.
Elsku amma mín, óskaplega
finnst mér sárt að þú skulir vera
farin frá okkur, ég á eftir að sakna
þín alveg ógurlega mikið, þú sem
reyndist okkur svo vel alla tíð. En
þú varst búin að berjast svo lengi
við þín veikindi og hefur nú loks
fundið frið.
Mig langar svo að minnast þín í
fáum orðum. Góð, hlý, falleg og
fórnfús eru þau orð sem koma upp í
huga mér þegar ég hugsa um þig,
líka glettin og gáskafull jafnvel.
Ég á margar fallegar og góðar
minningar um þig, m.a. þegar við
systurnar komum og gistum hjá þér
í Bogahlíðinni, það voru nú ekki ófá-
ar helgarnar það, einnig um páska
og áramót. Alltaf var jafn gott að
koma til þín og hlusta á þig fylgjast
með enska boltanum, meðan við sát-
um og lékum okkur í dúkkulísuleik
eða einhverju þvíumlíku. Ég er svo
heppin að hafa átt þig og ég er svo
þakklát fyrir það, elsku amma mín.
Mig langar líka að þakka starfs-
fólkinu á Seljahlíð fyrir alla þá um-
hyggju og blíðu sem þau sýndu okk-
ur öllum á erfiðum tíma.
Nú hverfi oss sviðinn úr sárum
og sjatni öll beiskja í tárum,
því dauðinn til lífsins oss leiðir,
sjá, lausnarinn brautina greiðir.
(Þýð. Sigurbjörn Einarsson.)
Arna Hildur Pétursdóttir
(Adda).
Elsku hjartans Karó mín. Þú
varst stoð mín og stytta í lífinu.
Alltaf varstu svo fín og falleg. Ég
gleymi því aldrei þegar ég átti von á
mínu fyrsta barni, þú keyptir á mig
falleg óléttuföt og varst alltaf svo
smekkleg.
Mikið hlakkaðir þú til að eignast
þitt fyrsta barnabarn, sem var fal-
leg lítil stúlka.
Þú varst svo hamingjusöm og
komst alltaf til mín eftir vinnu til
þess að horfa á litlu telpuna þína
enda var hún skírð sama nafni og
þú. Hvað þú varst ánægð að halda
henni undir skírn þó að hún Karól-
ína yngri grenjaði eins og ljón. Svo
kom önnur lítil stúlka og svo þriðja
stúlkan. Mikið er ég rík, sagðir þú
Karó mín og gleðin skein úr augum
þínum.
Þú varst mér sem móðir og
kenndir mér marga hluti eins og t.d.
í matargerð og heimilisstörfum.
Þegar við fluttum svo í Hafnar-
fjörð þegar stelpurnar voru litlar þá
varst þú alltaf hjá okkur. Jólin voru
alltaf sérstök hjá okkur, þú kenndir
mér að elda jólamatinn og þá tala ég
sérstaklega um brúnuðu kartöflurn-
ar sem við gerðum á sérstakan hátt.
Manstu eftir öllu rafmagnsleysinu
þegar allir voru að elda á sama
tíma, þvílíkt stress, en maturinn
kom samt alltaf á endanum.
Mig langar til þess að þakka þér
fyrir alla fallegu kjólana sem þú
hefur keypt handa stelpunum mín-
um í gegnum árin. Þær voru alltaf
þær allra fínustu á jólunum. Manstu
eftir því þegar þær sátu þrjár sam-
an stilltar og prúðar inni í stofu
þegar við vorum að ganga frá eftir
jólamatinn. Við fengum okkur alltaf
gott kaffi í gullbollunum sem voru
svo fínir. Þú last alltaf á pakkana,
sem voru nú ekkert smáræði því að
þú keyptir svo mikið handa okkur
öllum.
Vil ég þakka þér sérstaklega fyrir
það að gera jólin svona ánægjuleg
fyrir okkur.
Að lokum, elsku hjartans Karó
mín, guð gefi þér frið og ró, ég mun
aldrei gleyma hversu mikið þú
hjálpaðir mér. Við hittumst síðar
elskan mín.
Ég votta þér Pétur minn, stelp-
unum mínum og barnabörnum mína
dýpstu samúð.
Þín
Katla.
Fleiri minningargreinar
um Karólínu Pétursdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Karólína Pétursdóttir
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Antík
Nýjar vörur í Maddömunum
Nýtt í búðinni frá Danmörku og
Svíþjóð, m.a. íkon frá Rússlandi -
dúkkuvagn - dúkkur - Rosenborg o.fl.
o.fl. www.maddomurnar.com.
Langur laugardagur 1. des.
Garðar
Lóðir & lagnir
Einn verktaki
í allt verkið
Tökum að okkur
verk fyrir:
fyrirtæki, stofnanir,
húsfélög og
einstaklinga.
Grunnar, dren, skolp-
lagnir, jarðvegs-
skipti, efnissala
og smágröfuleiga.
Gerum föst verðtilboð.
Guðjón 897 2288.
Heilsa
Lr- kúrinn er tær snilld.
Léttist um 22 kg á 6 mánuðum. Aukin
orka, vellíðan, betri svefn og þú los-
nar við aukakílóin. Uppl. hjá Dóru í
s. 869 2024 eða www.dietkur.is
Nudd
Nuddbekkir og aðrar vörur
Ferðabekkir frá 45 þús. Rafmagns-
hitateppi, gæruskinn, púðar og aðrar
vörur.
Nálastungur Íslands ehf.
www.nalar.net
s. 520 0120 & 863 0180.
Húsgögn
Mjög vel með farið queen-rúm
með nýlegri latexdýnu (dýnan kostar
ný 35 þús.). Rúmið hefur aðeins verið
notað af fullorðnum einstaklingum.
Rúmteppi og púðar fylgja með.
Verð: 40 þúsund. Upplýsingar í síma
557 3162 eða 662 1706.
Húsnæði í boði
Íbúð í Hveragerði
80 fermetra nýleg íbúð til leigu frá
1. desember. Eitt svefnaherbergi,
borðstofa,stofa, þvottahús, bað, 7
ferm. geymsla og 15 fermetra svalir.
Íbúðin er á 3.hæð, með sérinngangi
úr opnu stigahúsi. Upplýsingar í
gsm 891 7565.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Iðnaðarmenn
Múrverk, flísalagnir,
utanhúsklæðningar,
viðhald og breytingar.
Sími 898 5751.
Námskeið
PMC Silfurleir
Búið til módelskartgripi úr silfri –
Grunnnám helgina 8 og 9 des.-
Tilvalin jólagjöf, falleg gjafakort í
öskju. Skráning hafin fyrir janúar og
febrúar. Uppl. í síma 6950405 og
www.listnam.is
Til sölu
Tékkneskar og slóvenskar
kristalsljósakrónur. Mikið úrval.
Frábær verð.
Slóvak Kristall, Dalvegi 16b,
201 Kópavogi, s. 544 4331.
www.skkristall.is.
ELLA RÓSINKRANS
Glerlist – Málmlist
Sýningarsalur: Miklubraut 68,
105 Rv. Opið kl.10.00 – 22.00.
Vinnustofa: Súðarvog 26, 104 Rv.
Orb collection – Kúpt glerverk.
Gluggaverk eftir máli, sérpantanir,
sími 695 0495.
Arcopédico
Gjöfin fyrir ömmu.
Opið þriðjud. – föstud. kl. 13 -18.
Ásta skósali,
Súðarvogi 7,
sími 553 60 60.
Óska eftir
Óska eftir 4 gömlum gámum!
20 - 40 fet, einnig Toyota yaris
gömlum og vindrafstöð. Á sama stað
til sölu dráttarvél Dave brown.
Upplýsingar í síma 8211160.
Ýmislegt
580 7820
Innrömmun
strigaprentun
HÚFUR, TREFLAR OG
VETTLINGAR
Skarthúsið, Laugavegi 12
sími 562 2466
Flókaskórnir vinsælu komnir aftur.
Svo ótrúlega hlýir og góðir!
stærðir: 36 - 48 Verð aðeins. 2.450.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Opið mán.-föst. 10-18, lau. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Fallegar og nettar teygjubuxur í
stærðum S,M,L,XL,XXL í litum hvítt,
svart og húðlitt á kr. 1.590,-
Góðar teygjubuxur í stærðum
S,M,L,XL í litum húðlitt og svart á kr.
1.950,-”
Teygjubuxur í stað leggings, líka
góðar í ræktina, fást í svörtu á kr.
2.750,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán-fös 10-18, lau 10-14
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is.
D&D málari ehf.
D&D málari ehf. er fyrirtæki sem
sérhæfir sig í öllu sem viðkemur
málningarvinnu, skreytingum og
þrifum. Vel unnið verk er okkar mark-
mið. Upplýsingar í síma 691 6972 og
691 7016.
20% afláttur af öllum vörum.
Opið í dag, 13-18.
GreenHouse, Rauðagerði 26.
Bílar
MMC GALANT, ÁRGERÐ 1999
2,0, ssk., ekinn aðeins 69 þús.
Nýskoðaður og nýtt í bremsum. Mjög
vel með farinn. Vel búinn bíll í topp-
standi. Uppl. í síma 866 9266.
M Benz Vito, TDI, toppeintak
DIESEL (eyðir litlu), toppeintak, topp-
lúga, CD, bíll í flott standi, verð 570,
fyrstur kemur fyrstur fær. 695 2015.
Honda Ac. Tourer, árg. 2004
ek. 48 þús. km. Vel með farinn, silfur-
litur, fjölskyldubíll. Aukab. krókur,
dekktar rúður, álfelgur. Vetrar+sumar-
d. V. 1,65, áhvíl. ca. 1,3 millj. bílalán.
Afborg. ~34.000/mán. S.: 660-2233.
Einn snotrasti skutbíll landsins
er til sölu. Dodge Magnum RT, nýskr.
júní 2006, ekinn 14þkm. Vél 5.7l
Hemi, 365 hestöfl. Vetrar og sumar-
dekk á 18" felgum ásamt 22" sumar-
blingurum. Mikið breyttur bíll,
myndir og nánari upplýsingar má
finna á vefnum: http://maria.blog.is
/album/magnum og http://maria.
blog.is/ blog/maria/entry/302467.
Verð: 4.5 milljónir. Nánari upplýsingar
veitir Ólafur í síma 864-4943.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla - akstursmat.
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '06 .
892 4449/557 2940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '06.
696 0042/566 6442.
Kristófer Kristófersson
BMW.
861 3790.
Sigurður Jónasson
Toyota Rav4 ‘06.
822 4166.
Vélhjól
Bombardier DS 650x Baja
árg. 2004, geggjað tæki, með öllu
aukadótinu ... toppeintak, verð 760,
ath. skipti. Sími 695 2015.