Morgunblaðið - 28.11.2007, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2007 39
Stærsta kvikmyndahús landsins
Rendition kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Elizabeth kl. 5:30
Eastern Promises kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
Syndir Feðranna Síðustu sýningar kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Veðramót Síðustu sýningar kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 6 og 8
Taktu út refsinguna með Mr.Woodcock
ENGIN MISKUN
Kauptu bíómiða í Háskólabíó á
Sýnd kl. 10 B.i. 16 ára
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
eeee
- R. H. – FBL
Hlaut Edduverðlaunin sem besta
heimildarmynd ársins
eeee
- B.B., PANAMA.IS
eeee
- S.V., MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 7 og 10 B.i. 16 ára
HVERNIG TÓKST EINUM
BLÖKKUMANNI AÐ
VERÐA VALDAMEIRI
EN ÍTALSKA MAFÍAN?
eeee
- LIB, TOPP5.IS
Miðasala á www.laugarasbio.is
A.T.H. BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM.
Dóri DNA - DV
eeee
- S.V., MBL
www.haskolabio.is Sími 530 1919
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sýnd kl. 5:30, 8 og 10:30 B.i. 16 ára
Áhrifamikil mynd um aðferðir
Bandaríkjamanna í baráttunni
gegn hryðjuverkum.
Hvað ef sá sem þú elskar...
Hverfur sporlaust?
Hvað ef sá sem þú elskar... Hverfur sporlaust?
Kauptu bíómiða í Háskólabíó á
eeee
- S.V., MORGUNBLAÐIÐ
eeee
- T.S.K., 24 STUNDIR
eeee
- L.I.B., TOPP5.IS
FRÁ LEIKSTJÓRANUM
DAVID CRONEBERG
eee
- L.I.B., TOPP5.IS
ÓPERUPERLUR
WWW.OPERA.IS
MIÐASALA 511 4200
AUKASÝNING!!!
FÖSTUDAGSKVÖLD, 30. NÓVEMBER, KL. 20
Athyglisvert viðtal við BjörkGuðmundsdóttur birtist ídagblaðinu New Zealand
Herald á mánudaginn. Björk hafði
nýverið lokið tónleikaferð um Suð-
ur-Ameríku, og sagðist hún taka
eftir því í auknum mæli að áheyr-
endur eyði gríðarlegum tíma í að
taka myndir á símana sína, eða
jafnvel í að taka tónleikana upp. Í
viðtalinu kom fram að Björk er
ekkert sérlega ánægð með þessa
hegðun tónleikagesta, ekki vegna
þess að hún sé hrædd um að tón-
leikarnir verði birtir á Youtube,
heldur vegna þess að hún vilji að
áheyrendur einbeiti sér að stað og
stund á tónleikunum.
Björk sagði meðal annars: „Égvil ekki vera ókurteis, ég skil
að fólk komi á tónleika og vilji eiga
minningar um þá, og ég kann að
meta það. En eftir tvö eða þrjú lög
finn ég mig knúna til að segja: Ef
þið viljið að ég sé hérna núna, þá
verðið þið líka að vera hérna.“
Síðar í viðtalinu líkti Björk þessu
við að fara út að borða með ein-
hverjum, sem síðan tekur upp sím-
ann og fer að senda skilaboð.
Flestir þeir sem farið hafa ápopp- eða rokktónleika hafa
eflaust tekið eftir þessu, eða það
sem líklegra er; gert þetta sjálfir.
Fólk virðist ekki hafa eins mikla
þörf fyrir að lifa í núinu á tón-
leikum líkt og áður var því nú er
hægt að taka tónleikana upp á sím-
ann, eða taka myndir af þeim, og
„njóta“ þeirra svo seinna. Í gamla
daga var það auðvitað ekkert hægt,
fólk fór á tónleika, naut þeirra í
botn, og svo lifðu þeir í minning-
unni og hvergi annars staðar. Í dag
hljómar það eins og fjarlæg róm-
antík.
Þetta á ekki bara við í tónlistinni.Fyrir örfáum árum fór und-
irritaður í mikla ferð á San Siro-
knattspyrnuvöllinn í Mílanó og sá
þar leik AC Milan og Deportivo La
Coruna í Meistaradeild Evrópu.
Með í för var hópur Íslendinga, og
nokkrir þeirra gerðu nánast ekkert
annað á meðan á leiknum stóð en að
taka myndir og hringja heim til Ís-
lands og segja hvar þeir voru. Þeir
höfðu sem sagt engan tíma til að
njóta leiksins. Að vísu einskorðaðist
þetta við Íslendingana því þegar
maður leit í kringum sig sá maður
auðvitað engan annan hegða sér
með þessum hætti. En það er önnur
saga.
Mergurinn málsins er sá að tækn-
in virðist vera að gengisfella tón-
list, að minnsta kosti að einhverju
leyti. Og þetta er ekki eina dæmið.
Aukið aðgengi að tónlist gerir það
að verkum að hún er ekki eins dýr-
mæt fyrir fólki og áður var. Hér áð-
ur fyrr hlustaði fólk á plöturnar
eða diskana sína „í ræmur“ og
kunni öll lögin utan að, ekki bara
fyrsta lagið. Í dag nær fólk í plötur
á netinu, hlustar á þær einu sinni
eða tvisvar, og vill svo fá eitthvað
nýtt til að hlusta á.
Þessi þróun er auðvitað eðlileg,en það er ekki þar með sagt að
hún sé af hinu góða. Fólk tekur sér
ekki eins mikinn tíma í að njóta tón-
listar og áður, og það sem verra er,
fólk pælir ekki eins mikið í henni og
áður. Þetta getur valdið því að
smátt og smátt muni létt popp-
tónlist sem hefur ekkert að segja
tröllríða öllu, á meðan tónlist-
armenn sem hafa eitthvað að segja
fá enga áheyrn. En sú þróun er að
vísu löngu hafin.
Tæknileg gengisfelling
AF LISTUM
Jóhann Bjarni Kolbeinsson
» Aukið aðgengi aðtónlist gerir það að
verkum að hún er ekki
eins dýrmæt fyrir fólki
og áður var.
Reuters
Er einhver að hlusta? Björk á tónleikum í Lima í Perú 13. nóvember s.l.
jbk@mbl.is
BANDARÍSKA söngkonan Ashlee
Simpson er mjög ánægð með sam-
band sitt við rokkarann Pete Wentz,
en þau munu hafa verið saman í
rúmt ár. „Við erum sálufélagar og
perluvinir. Við styðjum hvort annað
og það er mjög mikilvægt í sam-
böndum,“ segir Simpson.
Perluvinir
Hamingjusöm Ashlee Simpson.