Morgunblaðið - 28.11.2007, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2007 43
PETE Doherty er að vinna í sinni
fyrstu sólóplötu. Hinn 28 ára
söngvari Babyshambles hefur
skrifað tólf lög sem hann planar á
væntanlega plötu og hefur þegar
tekið upp þrjú þeirra með upp-
tökustjóranum Jake Foir.
Foir segir að þeir taki tvo til þrjá
klukkutíma í einu, vanalega á nótt-
unni, til að taka upp. „Þetta er
hægari og innilegri tónlist en Baby-
shambles leikur. Pete er að semja
alþjóðlegri tónlist en áður, ekki um
persónulega reynslu,“ sagði upp-
tökustjórinn. Doherty fékk blessun
bandmeðlima sinna til að vinna að
þessu sólóverkefni og þeir vilja
endilega allir leggja sitt af mörkum
til að þessi plata verði að veruleika.
En ekki eru allir jafn ánægðir,
því útgáfufyrirtæki Babyshambles,
Parlophone, er ekki sátt við þessa
ákvörðun Doherty. Foir sagði í við-
tali við NME-tónlistartímaritið;
„Við ætlum að klára að taka plöt-
una upp og kynna hana svo fyrir
Parlophone þegar hún er tilbúin til
útgáfu, en þeir eru ekki mjög
ánægðir með að Pete skuli vinna
fyrir utan þeirra stjórn.“
Foir segir Doherty í toppformi
þrátt fyrir nýleg eiturlyfjavand-
ræði. Vandræðarokkarinn og fyrr-
verandi unnusti Kate Moss náðist á
myndband sprauta sig með heróíni
og taka kókaín í nös stuttu eftir að
hann yfirgaf meðferð í seinasta
mánuði.
„Ég hef aðeins eytt helgunum
með honum og hann er í góðu
formi og stendur sig vel,“ sagði
Foir.
Babyshambles eru nú í átta daga
tónleikatúr um Bretland.
Doherty með sólóplötu
Reuters
Vandræðaseggur Pete Doherty.
OFURFYRIRSÆTAN Claudia
Schiffer er ekki tilbúin til að gefa
út ævisögu sína. Hún hefur verið
hvött til þess nokkrum sinnum en
hefur aldrei látið freistast af þeim
tilboðum.
„Ég hef fengið
svo mörg tilboð
en mér finnst ég
ekki tilbúin. All-
ir skrifa ævisögu
sína svo ungir
þessa dagana en
ég held að það sé
ekki rétt fyrir
mig,“ sagði hún
á dögunum.
Schiffer er aðeins 37 ára og ekki
mikið fyrir að deila einkalífi sínu
með almenningi. „Í ævisögu þarftu
að segja frá mörgu mjög persónu-
legu en ég hef alltaf haldið lífi
mínu fyrir mig. En hver veit, einn
daginn verð ég kannski tilbúin að
deila lífi mínu með fólki.“
Schiffer á tvö börn, fjögurra ára
soninn Caspar og þriggja ára dótt-
urina Clementine, með eiginmanni
sínum, leikstjóranum Matthew
Vaughn.
Auk þess að forðast það að
skrifa hefur Schiffer engin plön
uppi um það að hætta fyrirsætu-
störfunum fyrir leiklistina. „Ég vil
ekki vinna sem leikkona, mín vinna
er í tískuheiminum.“ Schiffer hef-
ur aðeins komið fram á hvíta tjald-
inu undanfarin ár í smærri hlut-
verkum.
Engin ævisaga
á leiðinni
Claudia Schiffer
HUGSANLEGT er að Jackson
Five kæmi saman og færi í tón-
leikaferð á næsta ári með Michael
Jackson í fararbroddi. Það er BBC
sem hefur þetta eftir Jermaine,
einum Jackson-
bræðra.
„Okkur finnst
við þurfa að
gera þetta einu
sinni enn. Við
skuldum aðdá-
endum og al-
menningi það,“
sagði Jermaine.
Jackson-
bræðurnir, Tito,
Marlon, Jackie, Jermaine, Michael
og Randy, fóru síðast í tónleika-
ferð árið 1984.
Orðrómur um endurkomu hefur
flogið um undanfarin ár, Jermaine
staðfesti að endurkoman hefði
frestast út af ákærum á hendur
Michael um barnamisnotkun.
„Það hefur mikið gengið á og
við verið að ná okkur eftir hasar-
inn sem réttarhöldin yfir Michael
sköpuðu En við erum sterkir sem
aldrei fyrr. Ég segi takk, takk,
takk við alla aðdáendur okkar sem
hafa stutt okkur.“
Jermaine söng aðalröddina í
bandinu þangað til yngri bróðir
hans, Michael, tók við. Hann sagði
von á nýju efni frá bræðrabandinu
og gaf í skyn að þeir dveldu í upp-
tökuveri um þessar mundir.
Jackson-
bræður á ferð
Michael Jackson
Líkamsleifar finnast við uppgröft húss sem fór undir ösku í
eldgosinu í Eyjum. Grunsamlegt andlát konu í Reykjavík
sumarið 2007. Og Þóra Guðmundsdóttir lögmaður glímir
við spurninguna: Hvernig tengjast þessi voðaverk? Mögnuð
glæpasaga eftir Yrsu Sigurðardóttur en bækur hennar koma
nú út á meira en 30 tungumálum í yfir 100 löndum.
„Ný
drottning
glæpa-
sögunnar“
7. SÆTI
ALLAR BÆKUR
Í HAGKAUPUM
19.11-26.11.
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Yrsa beint á
metsölulista!
Funahöfða 1 • Opið virka daga kl. 10:00-18:30 • Laugardaga kl. 12:00-16:00
M
bl
9
42
11
5
Dodge Ram 2500 Hemi 4X4, árg. 2006, ek. 42 þús. km, 37"
breyttur, Bedslider, skápar í húsi, kastarar á húsi, NMT tengi,
loftdæla og loftnet. Verð 3.990 þús. kr., stgr. Tilboð 3.500 þús. kr.
Einn góður á fjöll. Veiðibíllinn sem allir vilja!!