Morgunblaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 17 ERLENT JÚLÍA Tímósjenkó var formlega kjörin forsætisráðherra Úkraínu á þingi landsins í gær eftir að flokkur hennar og flokkur Viktors Jústsj- enkós forseta náðu samkomulagi um kjörið. Tímósjenkó hlaut 226 at- kvæði, naumari gat meirihlutinn ekki verið, en 450 þingsæti eru á þinginu, Rada. Fyrir viku vantaði Tímósjenkó eitt atkvæði og heyrðust þá ásak- anir um að föndrað hefði verið við rafrænan kosningabúnað þingsins til að stöðva hana. Að þessu sinni var því beitt gamalli aðferð, handa- uppréttingu. Tímósjenkó er umdeild en þykir almennt vera einn litríkasti stjórn- málaleiðtogi landsins. Hún studdi af alefli „appelsínugulu bylting- una“ 2004 þegar þjóðaruppreisn varð til þess að ógiltar voru forseta- kosningar þar sem vitað var að beitt hafði verið svikum. Í kjölfarið var Jústsjénkó valinn forseti. Varð Tímósjenkó forsætisráðherra eftir sigurinn 2005 en misklíð kom síðan upp milli hennar og Jústsjenkós sem varð til þess að hún hvarf frá völdum. Helsti keppinautur Jústsjenkós, Viktor Janúkóvítsj, sem vill auka samstarf við Rússland, hefur verið forsætisráðherra sl. misseri en flokkur hans hafnaði í stjórnarand- stöðu eftir kosningarnar. AP Loksins! Júlía Tímósjenkó fagnar þegar úrslit kosninganna á þinginu í Kíev voru ljós. Stjórnarandstaðan hunsaði kosningarnar. Tímósjenkó kjörin í embætti forsætisráðherra Úkraínu SMÁAPAR af tegundinni Macaque eru næstum því jafngóðir í að leysa einföld samlagningardæmi og framhaldsskólanemar, að sögn vís- indamanna við Duke-háskóla í Bandaríkjunum. Fyrir nokkru sögðu japanskir vísindamenn frá því að simpansar hefðu í tilraunum slegið þarlendum framhaldsskóla- nemum við þegar mælt var skamm- tímaminni. „Við vitum að dýr geta metið magn en það er minna um vísbend- ingar um að þau geti leyst flókin reikningsdæmi, eins og samlagn- ingu,“ sagði Jessica Cantlon við Duke-háskóla. „Rannsókn okkar sýnir að það geta þau.“ Þátttakendur sátu við tölvuskjá. Fyrst var sýndur skjár með ákveðnum punktafjölda, síðan skjár með öðrum fjölda. Þá var sýndur skjár með tveimur kössum, í öðrum var tala er sýndi samanlagðan fjölda punktanna, í hinum allt önn- ur. Aparnir reiknuðu rétt í 76% til- fella, nemarnir í 94% tilfella. Reuters Skynugur Macaque-api reynir að leysa lífsgátuna. Apar geta reiknað FIDEL Castro gefur nú í skyn að hann muni setjast í helgan stein og láta af völdum sem leiðtogi Kúbu en bróðir hans gegnir nú embættinu til bráðbirgða. Castro segist hafa þeirri skyldu að gegna að „halda ekki dauða- haldi um stjórnartaumana og enn síður koma í veg fyrir að yngra fólk komist til valda“. Fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC, að fréttaskýrendur líti á þessa yfirlýsingu Kúbuleiðtog- ans, sem lesin var upp í kúbverska ríkissjónvarpinu og sýnd á skjánum með undirritun kommúnistaleiðtogans, sem vísbendingu um það að hann muni senn láta af emb- ætti sem leiðtogi Kúbu. Castro, sem er 81 árs gamall, hefur átt við erfið veikindi að stríða. Raul, yngri bróðir hans, sem er 76 ára, tók tímabundið við stjórnvelinum í fyrra vegna veikinda Castros. Síðan þá hefur eldri bróðirinn ekki komið fram opinberlega. Hann varð leiðtogi landsins í kjölfar byltingarinnar 1959. Er Castro að hætta? Fidel Castro YFIRMAÐUR Alþjóðabankans, Ro- bert Zoellick, segir að Kína og önn- ur þróunarríki verði að leggja mun meiri áherslu á að laga sig að lík- legum loftslagsbreytingum. Aðlögun mikilvæg UM 200 manns frá austanverðri Afríku, fólk í leit að betra lífi í öðr- um löndum, eru látnir eða týndir eftir að tveir bátar fórust við strendur Jemens um sl. helgi. Fórust við Jemen GEORGE W. Bush Bandaríkja- forseti hyggst fara í fyrstu op- inberu heimsókn sína til Ísraels og Vesturbakkans í ferð um Mið- Austurlönd 8.-16. janúar. Hann fer m.a. til Kúveit og Sádi-Arabíu. Bush til Ísraels VÍSINDAMENN hafa uppgötvað risastóra rottu í frumskógum Nýju- Gíneu og er hún um 1,4 kíló að þyngd. Verið að rannsaka hvort um sé að ræða nýja rottutegund. Risarotta AP Gæf Risarotta í fangi vísindamanns. MAHMOUD Abbas Palestínuforseti styður hugmynd Frakka um að sent verði alþjóðlegt lið til efla örygg- issveitir hans. Hamas-samtökin á Gaza fordæma hugmyndina. Vill liðsstyrk Arbil. AFP, AP. | Her Tyrklands sendi hundruð hermanna til Norður-Íraks í gær og talið er að þetta sé í fyrsta skipti sem tyrkneskar hersveitir eru sendar þangað frá því að þing Tyrk- lands heimilaði það til að ráðast á kúrdíska uppreisnarmenn sem gert hafa mannskæðar árásir í Tyrklandi. Abdullah Gul, forseti Tyrklands, sagði að herinn gerði „það sem nauð- synlegt er í baráttunni gegn hryðju- verkamönnum“. Hernaðurinn skyggði á óvænta Íraksferð Condoleezzu Rice, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, en flugvél hennar lenti í olíuborginni Kirkuk í Norður-Írak um það leyti sem skýrt var frá innrásinni. Rice sagði að Bandaríkjamenn, Írakar og Tyrkir litu á það sem „sameiginlegt hagsmunamál“ að binda enda á árásir kúrdískra upp- reisnarmanna. Loftárásum mótmælt Forseti sjálfstjórnarsvæðis Kúrda í Norður-Írak, Massoud Barzani, ákvað hins vegar að hunsa Rice og mæta ekki á fyrirhugaðan fund með henni til að mótmæla afstöðu Banda- ríkjastjórnar til árása tyrkneska hersins. „Það er óviðunandi að Bandaríkja- menn, sem annast eftirlit með loft- helgi Íraks, skuli hafa heimilað Tyrkjum að varpa sprengjum á þorp okkar,“ sagði Nechirvan Barzani, forsætisráðherra sjálfstjórnarsvæð- is Kúrda, og skírskotaði til loftárása Tyrkja á Norður-Írak um helgina. Kúrdískir embættismenn í Norð- ur-Írak sögðu að um það bil 300-500 tyrkneskir hermenn hefðu farið um þrjá kílómetra yfir landamærin fyrir dögun í gær. Forsetinn hunsaði Rice Tyrkir sendu hundruð hermanna yfir landamærin til N-Íraks HAGKERFI Kína er mun minna en talið hefur verið og hefur það verið of- metið um á að giska 40%, að sögn vef- síðu breska ríkisútvarpsins, BBC, sem vitnar í skýrslu frá Alþjóðabank- anum. Eftir sem áður er hagkerfi landsins þó hið næststærsta í heim- inum, um hálfdrættingur á við það bandaríska. Meðalárstekjur á mann í Kína reyndust vera um 4.100 Bandaríkja- dollarar en um 41.000 dollarar í Bandaríkjunum. Vegna mannfjöldans í Kína, þar sem búa um 1300 milljónir manna, en um 300 í Bandaríkjunum, er munurinn á heildarframleiðslu ríkjanna hins vegar mun minni. Niðurstaðan hefur áhrif á ýmsar ákvarðanir, þ. á m. aðstoð bankans við Kína. Þess má geta að Kínverjar hafa farið fram á aukna aðstoð í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og notað sem röksemd að Kína sé enn þróun- arland. Notuð er að þessu sinni aðferð við útreikningana sem tekur mið af mismunandi verðlagi í löndunum, svonefnd PPP-aðferð, til að reikna út landsframleiðsluna. Var bent á að í eldri skýrslum hefði verið miðað við úreltar tölur um verðlag. Fimm dýrustu lönd heims eru Ís- land, Danmörk, Sviss, Noregur og Ír- land. Þau fimm ríki sem aðallega áttu þátt í vaxandi hagvexti í Afríku voru Suður-Afríka, Egyptaland, Nígería, Marokkó og Súdan. Ef lögð er saman landsframleiðsla í fimm öflugustu ríkjunum, Bandaríkjunum, Kína, Japan, Þýskalandi og Indlandi, sáu þau um nær helming allrar fram- leiðslu. Kína fá- tækara en talið var Hagkerfið 40% minna þegar tekið er mið af verðlagi Tónlist í símann Milljón íslensk og erlend lög sem þú getur eignast Gríptu augnablikið og lifðu núna Sony Ericsson W910i Fullkominn Walkman tónlistarspilari. Örþunnur sleðasími. 3G, EDGE, 1 GB minniskort. Fer á netið með Vodafone live! Fæst í “Havana Gold” og svörtu. 39.900 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.