Morgunblaðið - 19.12.2007, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 19.12.2007, Qupperneq 26
hollráð um heilsuna 26 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Bráðum koma blessuð jólin,börnin fara að hlakka til“segir í þekktu jólakvæðiog sem betur fer hlakka flest börn til jólanna. Nú er sá tími þegar samfélagið er á ferð og flugi og jólaundirbúningurinn í hámarki. Við fullorðna fólkið reynum flest hvað við getum til þess að gera þennan tíma sem skemmtilegastan. Það er verið að baka, föndra, kaupa, skreyta og gleðjast með vinnu- félögum, vinum og vandamönnum. Eitt af því sem einkennt hefur jól- in fyrir börn sem fullorðna eru jóla- siðirnir. Sama skrautið, sami mat- urinn, sömu sætin við jólaborðið, sömu smákökurnar, sömu fjöl- skylduboðin og sömu jólaskemmt- anirnar svo eitthvað sé nefnt. Þessir föstu liðir eins og venjulega eru það besta við jólin að margra mati, þó svo að sumum geti þótt ágætt að bregða út af vananum öðru hvoru. Auðveldum börnum breytingar Börn eru sérstaklega fastheldin á jólasiði, það munum við fullorðna fólkið frá því við vorum sjálf á barns- aldri. Á íslenskum heimilum veldur undirbúningur jólanna oft annasöm- um tímum og þeim fylgir gjarnan óróleiki og streita, sem ung börn eru mjög næm fyrir. Eins getur margt hafa breyst frá síðustu jólum í lífi barnanna og þeirra nánustu af ýms- um ástæðum. Mörgum börnum finnst jólin erfið vegna breytinga sem orðið hafa á fjölskylduhögum þeirra, s.s. vegna skilnaðar (sambúð- arslita) foreldra og þeirrar stað- reyndar að fjölskyldan býr ekki lengur saman eins og síðustu jól. Þá gætu þau hafa orðið fyrir ástvina- eða vinamissi og því er ekkert sem fyrr. Allar breytingar eða missir geta raskað tilveru ungra barna. Börn vilja hafa stöðugleika og reglu á hlutunum, það veitir þeim ör- yggiskennd. Skilnaður foreldra get- ur verið barni mikið áfall og í kjöl- farið getur það orðið áhyggjufullt, reitt og vantreyst öllu og öllum. Ein- kenni og viðbrögð barna eru þó mis- munandi og fara eftir því á hvaða aldri og þroskaskeiði þau eru. Mörg hafa tilhneigingu til að taka mikla ábyrgð á líðan foreldranna, bæði þess foreldris sem þau búa hjá og þess sem er flutt. Einnig reyna þau oft að fá foreldrana til að taka saman aftur og reyna að miðla málum. Mik- ilvægt er að fullvissa barnið um að það beri enga ábyrgð á skilnaði for- eldra sinna. Vert er einnig að hafa í huga að ef foreldrarnir sýna sjálfir sínar eigin tilfinningar hjálpa þeir börnunum að segja hvernig þeim líð- ur og minnka hættuna á að þau loki sig af með einmanakennd og söknuð sem kemur oftast upp. Hvað vill barnið? Þegar um skilnað er að ræða koma foreldrarnir sér oftast saman um hvar barnið skuli vera yfir jól og áramót. Þótt ákvörðunin sé tekin í sátt og samlyndi foreldranna sjálfra þarf niðurstaðan ekki að vera sú besta að mati barnsins. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hlusti á langanir og vilja barna sinna og virði þær eins og kostur er þó svo að barnið kjósi annað en foreldrarnir hafa í huga. Það að vilja t.d. vera hjá einu foreldri segir ekki endilega að það vilji ekki vera hjá hinu foreldr- inu. Mikilvægt er að setja börnin ekki í þá erfiðu stöðu að spyrja: „Hvers vegna viltu ekki vera hjá mér um jólin?“ Slík spurning for- eldris gæti valdið óþarfa kvíða og sektarkennd hjá barninu. Tillitssemi og skilningur foreldra og ættingja skiptir þess vegna sköpum fyrir barnið og mikilvægt er að gefa því tækifæri til að tala um aðstæður sín- ar, líðan og tilfinningar og setja það ekki í þá stöðu að velja á milli for- eldranna. Vonandi verða jólin og áramótin sem flestum gleðileg og til þess fallin að efla fjölskyldu- og vinabönd og bjartsýni á nýju ári. Guðrún Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Geðræktar hjá Lýðheilsustöð Morgunblaðið/Golli Breytingar Það að barnið vilji vera hjá einu foreldri segir ekki endilega að það vilji ekki vera hjá hinu foreldrinu. Hugum að líðan barnanna okkar um jólin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.