Morgunblaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 60
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 353. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Spáir miklum hækkunum á matvælaverði  Hækkanir á hráefnisverði erlend- is hafa alls ekki skilað sér að fullu hér á landi þótt matvælaverð hafi hækkað umtalsvert undanfarna mánuði, að sögn Marteins Magn- ússonar, markaðsstjóra heildsöl- unnar Eggerts Kristjánssonar hf. Hann segir mjög miklar verðhækk- anir enn í uppsiglingu. » Forsíða Selur allt að 95% hlut  Tillaga Samfylkingarinnar og Vinstri grænna um að selja Orku- veitu Reykjavíkur allt að 95% hlut af eign Hafnarfjarðar í Hitaveitu Suð- urnesja var samþykkt á fundi bæj- arstjórnar Hafnarfjarðar. Tillaga Sjálfstæðisflokksins um að selja all- an hlut bæjarins í hitaveitunni var felld. » 6 Zuma sigraði Mbeki  Thabo Mbeki, forseti Suður- Afríku, tapaði í leiðtogakjöri Afríska þjóðarráðsins fyrir Jacob Zuma sem hann vék úr embætti varaforseta vegna ásakana um spillingu. » 18 SKOÐANIR» Staksteinar: Kvennafæð í stjórnum Forystugreinar: Sjálfstæðisflokkur og orkumál | Til hnífs og skeiðar Ljósvakinn: Hlutverk ljósvakamiðla UMRÆÐAN» Hugsaðu um heyrnina … Fíkn og hinn frjálsi vilji Gögnin sem má ekki nefna Það vinna ekki loddarar hjá LV                        ! !    ! "#$%  !           &'(()*+ ,-*(+. /0.& #).)&)&'(()*+ &1. # #*2.) .'* # #*2.) 3. # #*2.) 4+ . 5*).#+ 6)/). #, 6-. &* -4*) -.+ 4 +,)() Heitast 8 °C | Kaldast 3 °C  Suðaustan og síðar sunnan 10-18 m/s, hvassast við ströndina. Víða rigning eða súld, úrkomulítið á A-landi. » 10 Hinn íslenski Þursa- flokkur og CAPUT æfa nú af kappi fyrir sameiginlega tón- leika í Höllinni í febrúar. » 51 TÓNLIST» Þursar og Caput æfa FÓLK» Jóli fær ekki frið fyrir vergjörnum konum. » 52 Ítalir misskilja Er- lend lítillega í Mýr- inni en kunna þó vel að meta karlinn, sér- staklega í líki Ingv- ars E. » 57 KVIKMYNDIR» Ítalir og Erlendur KVIKMYNDIR» Fyrsta Bond-stúlkan fyr- ir Bond nr. 22. » 57 KVIKMYNDIR» Verður Raquela drottn- ingin í Berlín? » 50s reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Börn fá Range Rover í jólagjöf 2. Starfsfólk stelur helmingnum 3. Lofa slæmum þáttum eftir áramót 4. Eiður telur Messi bestan í heimi  Jólasveinar | 29 Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „KONAN mín hafði samband við lögregluna því henni var hætt að lít- ast á blikuna. En svo fundu þeir mig, blessaðir drengirnir, en þá átti ég bara örfá hús eftir svo þeir fylgdu mér síðasta spölinn,“ segir Sverrir Júlíusson, 78 ára blaðberi Morgun- blaðsins, sem lét ekki í minni pokann fyrir óveðrinu um helgina. Hann var rúma fimm klukkutíma að bera út einn morguninn. Varð ansi smeykur Kona Sverris, Guðrún Dagný Ágústsdóttir, var ekki á því að hleypa honum út í óveðrið, en Sverr- ir var viss um að veðrinu myndi slota. „En svo herti bæði vind og regn, ég komst varla áfram og varð að finna mér skjólpunkta eins og bíl- skúrsveggi, þaðan gat ég hlaupið í húsin og til baka. Blöðin voru nú orð- in heldur deig, en ég vona að fólk hafi fyrirgefið mér það,“ segir Sverrir, sem ber út í Suðurhlíða- hverfinu í Reykjavík. Hann segist hafa orðið ansi smeykur á tímabili, „þá flaug í gegn- um huga mér að ég yrði bara að standa mig, halda í kerruna og láta ekki undan, en ég hélt að ég myndi hreinlega takast á loft. Það var ekki þurr þráður á mér þegar ég kom heim og það var gott að komast í heita sturtu,“ segir Sverrir. Sverrir starfaði lengi í fjármála- ráðuneytinu, einnig í íslenska sendi- ráðinu í Brussel og loks í utanríkis- ráðuneytinu. Hann kvaðst vera mjög ánægður í blaðberastarfinu. „Þetta er mjög þakklátt starf og mér þykir vænt um að fá að bera út á meðan ég er við góða heilsu. Konan mín er nú slæm í fótunum, en við berum stund- um út saman þegar vel viðrar,“ segir Sverrir Júlíusson. Margeir Sveinsson lögregluþjónn er annar þeirra sem aðstoðaði Sverri við útburðinn síðasta spölinn. „Hann gaf sig ekkert og vildi klára sitt,“ segir Margeir. Hann segir mestu furðu hvað Sverri hafi tekist að halda blöðunum þurrum, hornin hafi verið aðeins blaut. Sjálfur hafi Sverrir hinsvegar verið orðinn hundblautur og kaldur og þeir hafi viljað koma honum sem fyrst í hús. Blaðberi í Suðurhlíðunum gafst ekki upp í óveðrinu „Varð að standa mig“ Morgunblaðið/RAX Samviskusamur Sverrir Júlíusson ásamt eiginkonu sinni Guðrúnu Dag- nýju Ágústsdóttur sem fékk lögregluna til að leita Sverris í óveðrinu. ALLIR fulltrúar í bæjarstjórn Kópa- vogs samþykktu í gær að styðja til- lögu um byggingu óperuhúss í Kópa- vogi. Gert er ráð fyrir að óperuhúsið verði boðið út sem einkaframkvæmd og að Kópavogsbær, einkaaðilar, Ís- lenska óperan og ríkisvaldið standi sameiginlega að fjármögnun. Hins vegar er miðað við að ríkisvaldið fjár- magni reksturinn og að bæjarfélagið beri enga fjárhagslega ábyrgð á rekstri hússins. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópa- vogi, segir að það sé mikið fagnaðarefni að full samstaða hafi náðst um málið í bæjarstjórninni. Hann segist ekki hafa trú á öðru en að ríkisvaldið samþykki að leggja fjár- muni í byggingu hússins og bendir á að það hafi lagt mikla peninga í byggingu menningarhúss á Akureyri. Gunnar segir að óperuhúsið verði ekki aðeins notað til að setja á svið óperur. Þar verði einnig hægt að setja upp söngleiki, danssýningar og fleira. Hönnun hússins taki mið af því að hægt verði að nýta það undir fleiri list- greinar. Hönnuðum hússins er gert að hanna hús sem má ekki kosta meira en 2,5 milljarða króna. Samkeppni um hönn- un verður kynnt í febrúar á næsta ári. Gert er ráð fyrir að þá verði fjármögnun lokið. | 55 Samstaða um óperuhúsið Gunnar I. Birgisson BROSTIN lögreglustjarna á forsíðu Lögreglublaðsins er táknræn fyrir ástandið í lögreglunni og lögreglu höfuðborgarsvæðisins (LRH), sam- kvæmt ritstjórapistli blaðsins. „Það eru komnir alvarlegir brestir í liðsheildina og yfir 30 lög- reglumenn hafa sagt upp störfum hjá embættinu nú í ár og ekki er nægur fjöldi umsækjenda til að fylla lausar námsstöður í lögreglu- skólanum. Segja má að þeir sem starfi í lögreglu nú séu þar vegna áhuga en ekki vegna launa,“ segir m.a. í pistlinum. Þá er bent á að þótt vaktsvæði LRH sé það langfjölmennasta á landinu sé fjöldi lögreglumanna álíka og var í Reykjavík einni áður. Stjarna Forsíða Lögreglublaðsins. Brostin stjarna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.