Morgunblaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 37 MINNINGAR ✝ Hjalti Ragn-arsson fæddist á Ísafirði 12. jan- úar 1925. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð 11. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ragnar Bene- diktsson Bjarna- son, afgreiðslu- maður á Ísafirði, f. á Nesi í Norðfirði 23. maí 1899, d. 18. febrúar 1941, og kona hans Guðrún Arnbjörg Hjaltadóttir, f. á Ísafirði 25. júní 1903, d. 27. janúar 1995. Föð- urforeldrar Benedikt Stef- ánsson Bjarnarson, versl- unarmaður á Ísafirði og bakari á Akranesi, og kona hans Jar- þrúður Jónsdóttir. Móðurfor- eldrar Hjalti Jóhannesson, sjó- maður og verkamaður á Ísafirði, og kona hans Rannveig Guðnadóttir verkakona. Hjalti ólst upp á Ísafirði að mestu hjá ömmu sinni og afa. Hann var elstur af sjö systkinum. Systkini hans eru Jóhann Pétur, f. 5. júlí 1926, Ragna Guðrún, f. 19. ágúst 1928, Guðni Jóhannes, f. 29. september 1929, Þórunn Maggý, f. 19. júlí 1933, Stefán Ævar, f. 20. janúar 1936 og Karen, f. 2. maí 1937. Hjalti kvæntist hinn 15. apríl 1953 Sigríði Ellen Konráðs- dóttur, f. í Reykjavík 23. mars 1932. Foreldrar hennar voru Konráð Stefán Óskar Guð- mundsson, vélstjóri og kyndari í Reykjavík, f. í Reykjavík 9. ágúst 1906, d. 11. febrúar 1944, og kona hans Aðalheiður Nanna Einarsdóttir, ráðskona í Reykja- vík, f. á Bassastöðum í Kaldr- ananeshreppi í Strandasýslu 29. maí 1907, d. 1. sept. 1984. Hjalti og Sigríður eignuðust fjögur börn, þau eru: a) Konný Rann- veig, f. 26. október 1953, gift Óskari Guðjónssyni, f. 10. júní 1952. Börn Sigurður Heiðar, f. 26. júní 1976, búsettur í Dan- mörku ásamt unn- ustu og syni, drengur, f. 15. júlí 1985, d. 4. október 1985 og Edda Ósk, f. 26. nóvember 1986. b) Hjalti Heiðar, f. 23. sept- ember 1957, kvæntur Margréti Jónsdóttur, f. 6. september 1955. Börn Sara Ellen, f. 14. september 1978, búsett í Las Vegas ásamt eig- inmanni og þremur börnum, Jón Ágúst, f. 8. febrúar 1981, Einar, f. 23. júní 1984 og Jó- hann Markús, f. 15. nóvember 1994. c) Sigurður Ingvar, f. 19. ágúst 1962, kvæntur Magneu Helgu Magnúsdóttur, f. 31. mars 1964. Börn Andrea Rakel, f. 2. október 1992, Alexander Helgi, f. 8. apríl 1996 og Að- alsteinn Freyr, f. 6. nóvember 2002. d) Aðalheiður Íris, f. 2. september 1965, gift Árna Árnasyni, f. 2. ágúst 1966. Börn Hjalti Stefán, f. 19. júlí 1987 og Þórir Róbert, f. 26. maí 1993. Hjalti lauk Gagnfræðaskóla Ísafjarðar 1941, vélvirkjanámi í Héðni 1952, vélstjóraprófi í Vél- skólanum í Reykjavík 1954 og rafmagnsdeild 1955. Hann var aðstoðarvélstjóri hjá Eimskipa- félagi Íslands hf. 1955-66, verk- stjóri hjá Fjölvirkjanum hf. og Loftorku sf. 1966-70. 1. yfirvél- stjóri hjá Eimskip 1970-76, gerði út og var yfirvélstjóri á ms. Berglind 1976-81. Var 1. yf- irvélstjóri hjá Hafskipum hf. 1981-84, yfirvélstjóri hjá Nes- skipum hf. 1985-90. Var 1. yf- irvélstjóri hjá Jöklum hf. 1987- 88, rak fyrirtækið Skipavara- hluti 1990-91 en hætti þá störfum vegna veikinda. Hann ásamt öðrum stofnaði félag Heilablóðfallsskaðaðra 1994 og var fyrsti formaður þess. Útför Hjalta fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Hjalti Ragnarsson er allur og hon- um fylgir hlý þökk svo margra nú við leiðarlok. Kynni mín af Hjalta hófust er við vorum báðir í heilsudvöl á þeim ágæta stað Reykjalundi. Þar var Hjalti í endurhæfingu eftir heilablóð- fall og þeir félagar Eyjólfur K. Sig- urjónsson og hann kölluðu einn dag- inn á mig til spjalls um hugmyndir þeirra. Það var einkar ánægjulegt að finna þann hugmóð sem að baki bjó hjá báðum, víl og vol var ekki til í þeirra orðabók, þrátt fyrir alvarlegt áfall. Hugmyndirnar sneru að því að stofna félag þeirra sem fyrir heila- blóðfalli hefðu orðið og þeir létu ekki sitja við orðin tóm, heldur varð þetta félag að veruleika fyrir þeirra góðu tilstuðlan og Hjalti Ragnarsson tók þar farsæla forystu, en því miður naut félagið Eyjólfs alltof skamman tíma. Ég minnist ánægjulegra stunda með þeim félögum við undirbúning og lagasmíð þar sem Hjalti var óþreytandi í öllu. Hann sat ekki auð- um höndum en vann félaginu allt er hann mátti, stuðlaði að útgáfu fræðsluefnis um heilablóðfall og sá um dreifingu þess á heilsustofnanir af sínum mikla áhuga og dugnaði. Fé- lagið stóð einnig fyrir fræðslufundum þar sem færustu aðilar reifuðu mál og endurhæfingarstofnanir voru heimsóttar, svo aðeins nokkuð sé nefnt. Ég minnist notalegu fundanna hjá Hjalta þar sem þess var freistað að fræða og kynna sem bezt og um leið að eiga hlýja og gefandi samveru- stund. Fyrir það þakka margir í dag og full ástæða til að halda vel á lofti fórnfúsu frumkvöðulsstarfi sem skil- aði mörgum miklu. Um leið og ég sendi hinni ágætu konu Hjalta, sem átti þarna sinn ríka þátt og þeirra fólki mínar innilegustu samúðarkveðjur, þakka ég gjöfula samfylgd hins glaðbeitta baráttu- manns sem átti hugdirfð og glaða lund að góðum förunautum. Blessuð sé minning Hjalta Ragn- arssonar. Helgi Seljan. Hjalti Ragnarsson✝ Hilmar Garðarslögfræðingur fæddist á Akureyri 5. desember 1922. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Eir á 85 ára afmælisdag- inn sinn, 5. desem- ber síðastliðinn. Foreldrar hans voru Garðar Þor- steinsson, hæsta- réttarlögmaður og alþingismaður, f. 29.10. 1898, d. 29.5. 1947, og kona hans Anna Pálsdóttir húsmóðir, f. 25.8. 1896, d. 11.10. 1978. Systkini Hilmars eru Rannveig María, f. 1.9. 1927, Hreinn Þorsteinn, f. 4. maí 1929, d. 7. október 2001, og Anna, f. 23.11. 1939. Árið 1945 kvæntist Hilmar Þor- gerði Jörundsdóttur frá Hrísey, f. 21. janúar 1923. Foreldrar hennar voru María Sigurðardóttir, hús- freyja, f. 8. júní 1888, d. 18. októ- ber 1940, og Jörundur Jörunds- son, útgerðarmaður, f. 20. júní 1885, d. 24. nóvember 1961. Þor- gerður og Hilmar eignuðust þrjú börn, þau eru: 1) Jörundur, dokt- or í málvísindum og dósent við í gamla bænum í Reykjavík fyrstu árin fluttist fjölskylda Hilmars að Vesturgötu 19 sem verið hefur í eigu fjölskyldunnar æ síðan. Garðar, faðir Hilmars, var þing- maður Eyfirðinga og féll frá ungri fjölskyldu í flugslysinu í Héðinsfirði 1947. Þá var Hilmar 24 ára laganemi. Við fráfall föður síns tók Hilmar yfir margþætta eignaumsýslu og atvinnustarfsemi sem verið hafði á könnu föður hans og annaðist mál móður sinn- ar og ungra systkina. Hann gerði þess vegna hlé á laganáminu um sinn en lauk því nokkrum árum síðar. Þegar árið 1947 varð hann forstjóri Gamla bíós eftir föður sinn og átti eftir að gegna því starfi í 35 ár eða allt þar til Ís- lenska óperan keypti Gamla bíó 1981. Árið 1982 réðst Hilmar til starfa hjá Gjaldheimtunni í Reykjavík og var þar skrif- stofustjóri fram til ársins 1993. Hilmar gerðist ungur félagi í Oddfellowreglunni og lét sig mál- efni hennar miklu varða. Þar gegndi hann margháttuðum trún- aðarstörfum og komst til æðstu metorða. Síðustu tæp fjögur árin hafa Hilmar og Þorgerður búið við gott atlæti á Hjúkrunarheim- ilinu Eir. Útför Hilmars verður gerð frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Háskóla Íslands, f. 15. mars 1946, d. 13. ágúst 1992. Hann á þrjú börn, þau eru: Þorgerður, myndlist- arkona og barna- bókahöfundur, móðir hennar er Jóhanna Pétursdóttir; Þor- steinn, lögfræðingur í Ósló, móðir hans er Randi Skansbo; og Jörundur, grunn- skólanemi, móðir hans er Þuríður Elfa Jónsdóttir. 2) Anna María þýðandi, f. 27. ágúst 1948. Börn hennar eru Jóhanna þróun- arstjóri Sjá, faðir hennar er Sím- on Pálsson (látinn); og Steinunn, MA í þjóðfræði, faðir hennar er Guðmundur Björgvinsson. 3) Þor- steinn, heimspekingur og upplýs- ingafulltrúi Landsvirkjunar, f. 11. janúar 1957, kvæntur Guðrúnu Sóley Guðjónsdóttur og börn þeirra, Hilmar, lögfræðinemi, og Hallgerður Helga, grunn- skólanemi. Barnabarnabörn Hilm- ars og Þorgerðar eru níu. Hilmar fluttist kornabarn til Reykjavíkur með foreldrum sín- um. Eftir búsetu á ýmsum stöðum Hilmar tengdafaðir minn lést þann 5. desember síðastliðinn á 85 ára af- mælisdegi sínum. Þegar við Þorsteinn sonur hans og síðar eiginmaður minn kynntumst fyrir um 30 árum var Anna móðir Hilmars á lífi og hélt heimili á Vesturgötu 19. Þegar Garðar faðir hans lést var Hilmar 24 ára laga- nemi, elstur fjögurra systkina. Fráfall föður hans hafði mikil áhrif á unga manninn en ábyrgðin á heimilinu og utan þess, sem faðir hans hafði borið, féll að mestu á elsta barnið. Þetta var ekki létt verk því Garðar hafði verið umsvifamikill athafnamaður. Hilmar gerði það sem nauðsyn bar til og gerði hlé á námi sínu. Hann stóð sem klett- ur við hlið móður sinnar með systkini sín þrjú og var þeim stoð og stytta. Hann greiddi úr málum og tók við starfi föður síns í Gamla Bíói. Þessi reynsla tel ég að hafi sett mark sitt á Hilmar sem var ávallt vakinn og sof- inn yfir velferð annarra. Hilmar var mikill gæfumaður í einkalífi en konu sinni Þorgerði kynntist hann er hún leigði herbergi á Vesturgötu 19, þá komin í bæinn frá Hrísey til að stunda nám. Einlæg ást og gagnkvæm virðing ríkti á milli þeirra hjóna alla tíð og nú síðustu árin þegar Þorgerður hefur átt við mikil veikindi að stríða var samband þeirra afar fallegt og einlægt. Hilmar var sérlega elskur að börnum sínum og barnabörnum. Lát sonar þeirra Jör- undar fyrir 15 árum var þeim hjónum mikill harmleikur. Okkur Hilmari varð vel til vina frá fyrstu tíð og alltaf var notalegt að koma á heimili þeirra Þorgerðar. Hilmar var skarpgreindur maður, hreinskiptinn, örlátur og hafði ríka kímnigáfu. Hann hafði einlægan áhuga á fólki og hafði gaman af að spjalla og tók sjálfan sig ekki of hátíð- lega. Margir leituðu ráða hjá honum bæði um lögfræðileg álitaefni og önn- ur mál og var hann ávallt boðinn og búinn að aðstoða. Þegar sonur minn Hilmar og síðar dóttir mín Hallgerður Helga fæddust sá hann ekki sólina fyrir þeim en það átti að sjálfsögðu einnig við um hin barnabörnin. Hann sat með Hilmari löngum stundum bæði við tafl og spil og hvaðeina sem Hilmari yngri datt í hug að biðja afa sinn um. Hallgerður naut hins sama í ríkum mæli eftir að hún komst á legg. Hilm- ar spurðist fyrir um gengi barnanna, fylgdist með af áhuga, tók öllu vel og hrósaði óspart. Gaman var að fylgjast með honum í fyrra þegar Hilmar yngri tók þátt í spurningakeppni í sjónvarpinu. Þá sat Hilmar við skjá- inn og fylgdist stoltur og glaður með góðum árangri þótt hann ætti orðið erfitt með að horfa á sjónvarp. Það er enginn vafi á því að barnabörnin hafa fengið fjársjóð sem þau munu búa að alla ævi. Að lokum vil ég þakka fyrir sam- veruna með Hilmari í öll þessi ár og allt sem hann gerði fyrir mig og þá virðingu og alúð sem hann sýndi mér og mínum. Haf þú þökk fyrir elsku Hilmar, Guðrún Sóley Guðjónsdóttir. Mig langar að minnast afa míns með nokkrum orðum. Skemmtilegast finnst mér að rifja upp minningar frá þeim tíma þegar afi og amma bjuggu í Mosfellssveitinni. Ég var mikið hjá þeim og fannst það frábært, bæði að vera með þeim því þau voru mér svo góð en svo var líka svo margt skemmtilegt að gera fyrir krakka í nágrenninu. Þarna var mikil sveitasæla og náttúrulíf og við krakk- arnir gátum hlaupið um frjáls og leik- ið okkur út í móa. Minnisstæðar eru líka bílferðirnar milli Reykjavíkur og Mosfellssveitar sem mér finnst ein- hvern veginn að hafi verið miklu lengri þá en í dag. Oft var það afi sem keyrði mig og sótti og við áttum oft góðar stundir saman á þessari leið. Við höldum áfram að heilsa álfunum í álfasteininum eins og hann gerði allt- af. Jólin með ömmu og afa eru mér sérstaklega minnisstæð, í Mosó á meðan þau buggu þar og líka á Sel- tjarnarnesinu. Það voru haldnar mikl- ar veislur þar sem fjölskyldan var saman komin. Það var mikil pína fyrir börnin að bíða á meðan afi og hitt full- orðna fólkið kláraði að borða rjúpurn- ar áður en hægt var að fara að huga að pökkunum. Þannig var okkur börnun- um strítt og við héldum auðvitað þess- um sið eftir að við fullorðnuðumst. Hann afi var örlátur maður og ein- staklega bóngóður, vildi allt fyrir mann gera og var sífellt að gefa manni skemmtilegar gjafir. Hann var traust- ur sem klettur og maður vissi að alltaf var hægt að leita til hans með vanda- mál af öllu tagi og reiða sig á aðstoð hans. Hann átti ýmsa skjólstæðinga utan fjölskyldunnar, fólk sem leitaði til hans og virti hann mikils. Afi var mikill húmoristi, hafði gam- an af góðum sögum. Hann hafði gam- an af að spjalla við fólk og átti auðvelt með að kynnast því og ná til allra manna þar sem hann kom við. Hann hafði líka einstakt lag á því að vefja fólki um fingur sér og fékk alls staðar bestu þjónustuna. Afi hafði alla tíð gaman af tækninýj- ungum og var sífellt að koma heim með undarlega hluti sem áttu að spara tíma og vinnu. Þetta var uppspretta endalausrar kátínu í fjölskyldunni sem hafði gaman af þessum uppá- tækjum afa. Hann var með á nótunum og ég get ekki ímyndað mér að það séu margir afar á áttræðisaldri sem fjárfesta í fartölvu til að geta vafrað á netinu þótt það gengi stundum brösu- lega. Afi vildi fylgjast með og reyndi eftir bestu getu, hann var líka ófeim- inn við að biðja um aðstoð ef ekki gekk nógu vel. Elsku amma mín, það er erfitt fyrir þig að missa hann afa frá þér í þínum veikindum. Við munum öll sakna hans. Jóhanna Símonardóttir. Í dag er kvaddur mætur félagi Oddfellowreglunnar á Íslandi; Hilm- ar Garðarsson. Hilmar gekk til liðs við Regluna tæplega tuttugu og fimm ára gamall árið 1947 og varð strax öt- ull liðsmaður hennar. Hilmar var alla tíð, meðan starfs- kraftar leyfðu, dugmikill þátttakandi í líknar- og mannúðarstarfi Oddfellow- reglunnar og sér verka hans víða stað innan Reglunnar. Hann var um margt frumkvöðull og átti þátt í stofn- un nokkurra deilda Reglunnar. Eins og að líkum lætur hlóðust á Hilmar margháttuð trúnaðarstörf í þágu Oddfellowreglunnar. Hann gengdi öllum helstu embættum í æðstu stjórn Reglunnar um margra ára skeið, síðast sem æðsti stjórnandi hennar og lauk starfsferli sínum í Oddfellowreglunni árið 1993 rúmlega sjötugur að aldri. Fyrir hönd okkar allra sem störf- um innan vébanda Oddfellowreglunn- ar eru fjölskyldu Hilmars og ástvin- um færðar samúðarkveðjur og við minnumst góðs félaga með þakklæti. Blessuð veri minning Hilmars Garðarssonar. Gylfi Gunnarsson. Örfá orð um samferðamann. Það mun hafa verið árið 1966 að ég kynntist Hilmari Garðarssyni og fjöl- skyldu hans og ýmsum mönnum úr Oddfellowreglunni. 40 ára minningar eru um fjölda samverustunda hér heima og erlendis. Hilmar var einn af forystumönnum I.O.O.F. um árabil og um tíma stórsír. Hann gekk í regluna 1947, þá ungur að árum. Kunnur er stuðningur Odd- fellowa við ýmis líknar- og velferðar- mál. Var Hilmar þar í forystu ásamt fleiri ágætismönnum. Í áratugi spiluðum við bridge sam- an vikulega, ætíð á 4. hæð í húsinu við Vonarstræti ásamt Hilmari nafna hans Sigurðssyni, Ólafi Helgasyni og Vilhjálmi Björnssyni, sem nú eru allir látnir. Í kaffihléinu (?) voru ætíð fjör- ugar umræður um þjóðmál og það sem efst var á baugi hverju sinni. Ekki vorum við alltaf sammála, þó oftar um flest mál. Mér hefur verið sagt að á yngri ár- um hafi Hilmar verið afbragðs golf- leikari, en aldrei spiluðum við þó golf saman. Ótal hugljúfar minningar eru frá öllum þessum árum. Hafðu þökk fyrir þær allar. Við Erna vottum fjölskyldu Hilm- ars okkar dýpstu samúð við fráfall hans. Páll Vígkonarson. Hilmar Garðars Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.