Morgunblaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING VERÐ, GÆÐI OG PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA Vinnufatabúðin Laugavegi s: 551 5425 Byggðasögur mega kallastvegahandbækur, því þærvísa veginn um byggðir landsins. Þær eru sannkallaðar sveitahandbækur. Það er forvitni- legt að fletta þeim, þær eru fræð- andi og skemmtilegar af ýmsu efni sem skotið er inní meginmálið. Það eru skemmtileg ferðalög sem farin eru á síðum byggðasagna og góður kostur að geta horfið frá þeim, þeg- ar þarf, og komið til þeirra aftur, þegar það hentar. Þá er ómetanlegt að geta gripið til þessara ritverka, þegar leita þarf einhverra ákveð- inna atriða. Á blaðamannsferli mínum hef ég átt því láni að fagna að fara um hverja byggð landsins nema Vopna- fjörð. Það lá svolítill spenningur í loftinu, þegar styttra var en ekki í að takmarkið næðist og hringnum lokað. Af þessum ferðalögum á ég miklar og margbrotnar minningar, sem leiftra af kynnum af fólkinu og landinu. Þau kynni eru mér lykill að bókum eins og byggðasögum; gera mér kleift að fara í ferð án ferðalags, þvælast um sveitir fram og aftur og skyggnast heim á hvern bæ.    Við höndina hef ég tvær byggða-sögur; Byggðir og bú Suður- Þingeyinga og Byggðasögu Skaga- fjarðar, fjórða bindi, sem fjallar um Akrahrepp. Þetta er þriðja útgáfa af byggðasögu Suður-Þingeyinga eftir Ragnar Þorsteinsson, sem Jón Benediktsson segir í ávarpi til les- enda að hafi ævinlega verið nefnd Búkolla í daglegu tali. Upplýsing- arnar í þessari útgáfu eru frá árinu 2005. Mynd er af hverju býli og sagt frá staðháttum, húsakosti og bú- stofni og ábúendatali fylgir mynd af flestum núverandi ábúendum. Auk upplýsinga um jarðir og ábú- endur er gerð grein fyrir starfsemi Búnaðarsambands Suður-Þingey- inga, sem er útgefandi byggðasög- unnar, og stærstu dráttum í þróun landbúnaðar á svæðinu sem bókin nær yfir frá 1960 fram yfir alda- mótin. Byggðir og bú kemur út í tveim- ur bindum, tæpar 1.150 blaðsíður og fylgja staðanafnaskrá og mannanafnaskrá. Efni er allt skil- merkilega fram sett og litmyndir bókarprýði. Bókin um Akrahrepp segir til muna meir af bændum og búaliði en Byggðir og bú Suður-Þingeyinga, og er fjallað um þennan eina hrepp á 576 blaðsíðum með rúmlega 800 ljósmyndum, þ.m.t. litmyndum af bæjum og ábúendum, teikningum og kortum, þ.á.m. teikningum og olíumyndum Jóhannesar Geirs list- málara frá atburðum Sturlungu- aldar. Þarna er á ferðinni hafsjór af fróðleik, sem ekki einasta bætir les- andann og kætir heldur bregður líka ljósi á söguna og sveitina.    Bókin hefst á sveitarfélagslýs-ingu, en síðan er farið með bæjum, jörðum lýst, byggingum og búháttum og bústofni og talsvert er dregið að af nýjum fróðleik og eldri, sem gæðir bókina auknu heimildalífi og gerir hana skemmti- legri aflestrar. Hún er hins vegar í stærra broti en svo að vera þægi- legur ferðafélagi. Ritstjóri og aðal- höfundur verksins er Hjalti Pálsson frá Hofi, en meðhöfundur hans Egill Bjarnason. Hjalti segir í formála að hann hafi sem jafnan áður heimsótt hverja einustu jörð og ábúendur þeirra og komið margsinnis á sum- ar. Það er gaman að feta í fótspor hans um Akrahrepp á síðum bókar- innar og upplifa sveitina og söguna með honum í máli og myndum. Bólu Hjálmar er eitt þekktasta barn Akrahrepps. Þar átti hann heima í hálfa öld, þetta stórbrotna skáld sem engum gat vægt og reisti sveitungum sínum aldraður óbrot- gjarnan minnisvarða: ... eru því flestir aumingjar en illgjarnir þeir sem betur mega. Fleiri skáld hafa búið í Akra- hreppi og skal hér nefndur til Magnús Kr. Gíslason á Vöglum, sem m.a. orti Undir Bláhimni. Kvæðið Stiklur orti hann um staði og atburði í Akrahreppi og þar í er þessi vísa sem vefur Skagfirðinga og þá með Akrahrepp og íbúa hans mýkri voð en þá sem skáldið í Bólu óf: Gróa á hjalla grösin smá grænka vallarbörðin. Nú er falleg sjón að sjá sól um allan fjörðinn. Ferð án ferðalags AF LISTUM Freysteinn Jóhannsson » Byggðasögur erulykill að landinu. freysteinn@mbl.is Lyklar Síður úr byggðasögunum, sem gera lesanda kleift að fara um sveit- ir Árneshrepps og S-Þingeyjarsýslu og skyggnast heim á hvern bæ. SMEKKFULLT var á fyrri Tón- sprotatónleikum SÍ af tvennum á laugardag og að vonum mikið af barnafólki, enda dýrðlegur jóla- ævintýraballett Tsjækovskíjs löngu sígildur og fastur fjölskylduliður á desemberdagskrám tónleikahúsa víða um heim. Skemmtileg tilbreyt- ing var að öllu ungviðinu í kringum mann, og virtust jafnvel hinir yngstu hafa gaman af, því oft heyrðist varla frá þeim hósti né stuna. En auðvitað hjálpuðu líka til þokkafullur dans nemenda List- dansskólans og kynningar Barböru trúðs milli atriða. Trýðan kankvísa vakti oft mikla kátínu er hún sprangaði elegant um svið með leik- rænum tilburðum, þó að talið skilaði sér betur á eðlilegri máltíðni en þeg- ar henni lá hæstur rómur á ómæld- um uppboðshraða. Jólaforleikur Leroys Andersons (1908-75) rann ljúflega niður á und- an ballettatriðunum, og lítil furða hjá einhverjum slitþolnasta hljóm- skálakompónista Vesturlanda. Fróðleikskorn tónleikaskrár um að hann hefði numið forníslenzku við Harvard(!) – e.t.v. forsenda starfs hans sem útvarpsritskoðara Banda- ríkjahers hér á stríðsárunum? – kveikti í fljótu bragði hugboð um e.k. „víkingamúsík“ úr fórum hans, er hefði orðið hressileg tilbreyting við þveröfuga nálgun Jóns Leifs. En ekki veit ég þó til þess að ókönnuðu. Dansatriðin 11 úr Hnotubrjótnum – s.s. fleiri en úr samnefndri svítu en ekki allur ballettinn – fóru glæsilega fram á stærsta danspalli Háskóla- bíós til þessa. Voru þau sannkallað augnayndi, og ekki spillti að hljóm- sveitin lék þessa oft býsna kröfu- hörðu skemmtitónlist á engu lakari gæðastaðli en háalvarlegustu hljóm- kviður. Það mátti efalítið að miklu þakka vel völdum hljómsveitar- stjóra, því hinn bandaríski Gary Berkson ku þegar þaulreyndur á ballett- og óperusviðum Norður- landa. Og til marks um síaukið jarð- samband SÍ mætti aukreitis nefna diskógrafíu tónleikaskrár um Hnotubrjótinn. Lítið en lofsvert dæmi um þá eftirfylgni sem þarf til að byggja upp almennan áhuga á list listanna hér á stækustu út- sölutímum skrumsins. Glitrandi barnagull TÓNLIST Háskólabíó Leroy Anderson: Jólaforleikur. Tsjækovs- kíj: Þættir úr Hnotubrjótnum. Sinfóníu- hljómsveit Íslands ásamt dönsurum frá Listdansskóla Íslands. Stjórnandi: Gary Berkson. Laugardaginn 15. desember kl. 14. Jólatónleikar bbbbn Ríkarður Ö. Pálsson METNAÐUR þykir oftast lofs- verður, en getur verið tvíeggjaður þegar reynir á getu. Það lá við á fullsetnu tónleikum Kórs Nes- kirkju á fimmtudag, þar sem kór og hljómsveit áttu stundum það fullt í fangi með að skila 100% kröfuhörðustu köflum – t.a.m. í innkomum – að ekki virtist hafa verið vanþörf á einum til tveim aukasamæfingum. Raunar ævin- legt vandamál á hérlendum dverg- markaði þar sem m.a.s. stönd- ugustu kórum er þröngur fjár- stakkur skorinn, jafnvel þegar kemur að þekktustu meistara- verkum. Samt gekk heildardæmið undra- vel upp. Enda verður að viður- kenna að þegar „vaulting ambi- tion“ Makbeðs temprast af jafn- snjallri fundvísi á enn jafnlítt þekkta eyrnakrás og L'allegro… (í þokkabót lík- lega Íslandsfrumflutta), hljóta brúnir viðtakenda að lyftast. Því þó að óratóría Händels frá fimbulvetr- arárinu 1740 stæðist ekki ári yngri Messíasi hans snúning að vamm- lausri stórsnilld, bauð hún samt upp á það mörg og frumleg glæsi- númer að minnti á nýfengna gás- húðarreynslu af Ísrael í Egypta- landi. Og þar kemur að aðalfúleggi undirritaðs. Í væntanlegri von um að skapa jólastemmningu með myrklögðu kirkjuskipi tókst um leið að aftra að hlustendur gætu notið stórkostlegrar textamálunar Händels á litríku kvæði Miltons í samantekt Jennens. Slíkt þarf að upplifa í rauntíma. Það er of seint að rýna í ljóðin eftir á, þegar hlust- minnið tekur að dofna. Mér varð hins vegar til happs að geta fært mig aftur um set eftir hlé og náði þá, þótt írónískt hljómi, beinna sambandi við tónsköpunina í les- vænni anddyrisbirtunni. Verkið er nefnilega ekki sviðs- dramatískt fyrir fimmaur – en lum- ar á margs konar innri uppljómun á móti. Örlítið dæmi væri 44. atriði, trompetaría þar sem „measure, time, and place“ … „in due propor- tion“ var steint kostulegum rytm- ískum hemíólum. M.ö.o. verk sem sökkva má sér endalaust dýpra í. En kannski jafnframt skýringin á því hvers vegna það náði aldrei heimsfrægð, þrátt fyrir staka tíð- fluttara atriði eins og fugltíst- aríuna miklu Sweet bird (nr. 13), þar sem kattliðug barokkflauta Martials Nardeau kvaðst á við barkagull Mörtu Halldórsdóttur af ómótstæðilegum næturgalasjarma. Þrátt fyrir ýmsa góða spretti í hljómsveit og kór (að vísu svolítið hráan og með fullgrunna bassa) mynduðu einsöngvararnir sterk- asta framlag kvöldsins með oft frá- bærri túlkun undir innsætt sveigj- anlegri stjórn Steingríms Þór- hallssonar. Að kollegum ólöstuðum fannst mér inntakstúlkun Mörtu og Hrólfs Sæmundssonar bera af, að viðbættum skýrum textaframburði baritónsins. En skærasta stjarnan var þó verkið sjálft. Þessi allegóríski „óð- ur til hófsins“ skartaði nefnilega þvílíkum töframætti á köflum að langgleymska hans sætti vægast sagt furðu. Töfrandi Óður til hófsins TÓNLIST Neskirkja Händel: Óratórían L’Allegro, il Penseroso ed il Moderato. Hallveig Rúnarsdóttir S, Marta Halldórsdóttir S, Eyjólfur Eyjólfs- son T og Hrólfur Sæmundsson Bar. ásamt Kór Neskirkju og 19 manna barokksveit. Stjórnandi frá sembal: Steingrímur Þór- hallsson. Fimmtudaginn 6. desember kl. 20. Kórtónleikar bbbmn Ríkarður Ö. Pálsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.