Morgunblaðið - 12.06.2008, Page 44
44 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI
THE INCREDIBLE HULK kl. 5:30D - 8D - 10:30D B.i. 12 ára DIGITAL
THE INCREDIBLE HULK kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára LÚXUS VIP
SPEED RACER kl. 5:30 - 8:30 LEYFÐ
THE FORBIDDEN KINGDOM kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
/ ÁLFABAKKA
INDIANA JONES 4 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára
IRON MAN kl. 5:30 - 8 B.i.12 ára
NEVER BACK DOWN kl. 10:30 B.i.14 ára
THE HAPPENING kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
SPEED RACER kl. 5D - 8 - 10:50 LEYFÐ DIGITAL
SEX AND THE CITY kl. 5 - 8 - 10:50 B.i. 14 ára
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR FRÁ
M. NIGHT SHYAMALAN LEIKSTJÓRA THE SIXTH SENSE OG SIGNS
SEM HELDUR BÍÓGESTUM Í HELJARGREIPUM FRÁ BYRJUN TIL ENDA!
Jackie Chan og Jet Li eru loksins mættir
í sömu mynd þar sem snilli þeirra
í bardagaatriðum sést glöggt.
Nú er spurning hvor er betri?
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
FRÁBÆR MYND MEÐ EDWARD NORTON
Í HLUTVERKI HULK Í EINNI FLOTTUSTU
HASARMYND SUMARSINS.
SÝND Í ÁLFABAKK OG SELFOSSI SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
AIM Festival er skammstöfun fyrir
Akureyri International Music Festi-
val sem er nú haldin í þriðja sinn.
Hátíðinni hefur vaxið fiskur um
hrygg í gegnum árin en að vanda er
boðið upp á tónlistaratriði af fjöl-
skrúðugum toga frá ýmsum þjóð-
löndum. Í ár syngur t.d. Mót-
ettukórinn, ástralska
djasspönksveitin Hoodaangers spil-
ar, djúpbassinn rússneski Vladimir
Miller syngur (en hann ku einn af
fáum sem nær dýpsta tóninum sem
mannlegur máttur ræður við) og
Mannakorn, Hvanndalsbræður og
Víkingur Heiðar eiga einnig inn-
slög, svo sitt hvað sé nefnt. Þá leik-
ur og hin elskaða sveit Hjálmar á
hátíðinni.
Hið sjóðandi heita útgáfufyr-
irtæki kimi records, sem á varn-
arþing á Akureyri, er þá með sér-
stök kvöld á föstudeginum og
laugardeginum á Græna hattinum.
Þar koma fram Sjálfsprottin spé-
vísi, Sick Bird og Múgsefjun (á
föstudegi) og svo Retro Stefson,
Mugison og Helgi og hljóðfæraleik-
ararnir (á laugardegi).
Baldvin Esra Einarsson, fram-
kvæmdastjóri kimi records, segir
að Mugison verði í fjölskylduferð
og ætli því að troða einn upp með
gítarinn, eitthvað sem hann hafi
ekki lengi gert.
„Retro Stefson verða svo með
plötu hjá okkur í haust og gaman
að hetjur heimahagana, Helgi og
hljóðfæraleikararnir, troði líka
upp.“
Baldvin segir hátíðina mik-
ilvæga, og teygst hafi nokkuð á
henni. Ákvörðun hafi verið tekin að
færa hana nær þjóðhátíðardeginum
enda margt aðkomumanna á Ak-
ureyri þessa helgi. Stemning sé í
bænum og þá er ekki handónýtt að
hafa hljómlist í hverjum skúr.
Einsamall Mugison
Norðlenska útgáfan kimi records er
með sérstakt kvöld á AIM Festival sem
hefst norður á Akureyri í dag
Morgunblaðið/G.Rúnar
Mugison Ætlar að spila einn og
óstuddur á Akureyri.
Hátíðin stendur til 16. júní en nán-
ari upplýsingar má nálgast á aim-
festival.is og kimirecords.net.
ELÍN Edda Árnadóttir leikmynda-
og búningahöfundur sendi í gær frá
sér yfirlýsingu um að hún muni ekki
sækja verðlaunahátíð Grímunnar í
ár. Gerir hún þetta til að mótmæla
meðalmennsku og röngum áherslum
í íslensku leikhúslífi
Elín Edda, sem hreppti Grímuna
fyrir bestu búninga árið 2004 kallar
síðasta leikár það rýrasta í lengri
tíma. Hún segir engan hafa þorað að
stíga fram til þessa og líkir ástand-
inu við Nýju fötin keisarans. „Ég sé
svipaða þróun á hinum Norðurlönd-
unum og veit ekki hvað veldur, en
ástandið minnir of mikið á markaðs-
torg. Ótrúleg einhæfni er í íslensku
leikhúsi og undantekning ef einhver
reynir að slíta sig frá þeirri með-
almennsku sem er ríkjandi.“
Elín Edda gerir m.a. athugasemd
við þau sjónarmið sem liggja að baki
tilnefningum til Grímuverðlaunanna
og kunna að eiga þátt í því hvernig
ástatt er: „Það er afar mikilvægt að
fagmennska sé höfð að leiðarljósi
þegar kemur að forvali til tilnefn-
inga. Ég velti því fyrir mér hvort
ekki sé ástæða til að koma á fót fag-
ráðum sem hafi atkvæðisrétt í
tengslum við útnefningar til Grím-
unnar. Mikill auglýsingaáróður og
stýring er á bak við tjöldin í dag,
hvaðan sem það kemur, og virðist
einhvers konar Séð og heyrt-stefna
ráða för,“ segir Elín Edda. Með mót-
mælum sínum vonast hún til að
koma af stað umræðu: „Skoða þarf
þessi mál í víðu samhengi og koma í
veg fyrir að íslenskt leikhúslíf verði
markaðstorg meðalmennskunnar.“
Mótmælir röngum
áherslum í leikhúslífinu
Ætlar ekki að fara
á Grímuna
Morgunblaðið/ÞÖK
Mætir ekki Elín Edda Árnadóttir.