Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1980, Blaðsíða 49

Náttúrufræðingurinn - 1980, Blaðsíða 49
mestu magni á flestum stöðvum. I Varmá í Mosfellssveit bar mikið á vor- flugulirfum (Apatania zonella, Limneþhilus affinis) og steinfluguungviði (Caþnia vidua) ofan við byggðina, en þessi dýr hurfu við dælustöðina. Þar fækkaði öðrum tegundum en rykmýi og ánum (Oligochaeta, mest Tubifex sp.), sem fjölgaði mikið í skólpinu. Bitmýi (Sirnu- lium vittatum) fjölgaði mikið í skólpinu frá Syðri-Reykjum, en fækkaði síðan verulega þar sem frárennslið frá dælu- stöðinni kom í ána. Fyrir neðan Ala- fossverksmiðjuna hurfu næstum öll dýr úr ánni, sennilega vegna mengunar frá ullarþvottinum. I árósnum bættust við tvær marflóartegundir (Gammarus due- beni, G. zaddachi), sem eru útbreiddar í árósum (Agnar Ingólfsson 1977b). Svipaðrar tilhneigingar gætti í Varmá í Ölfusi (6. mynd). Steinflugu- ungviði og bitmýslirfur Simulium aureum hurfu þar sem áhrifa frá byggð fór að gæta, og lirfum S. vittatum fækkaði verulega þar sem skólpið og frárennsli Ullarþvottastöðvarinnar runnu í ána. Talsverð aukning varð á ánum og vatnabobbum (Lymnaea þeregra) í ánni neðan við skólpræsin, en ánar lifa á líf- rænum leifum og vatnabobbar á þör- ungum. Einnig varð töluverð aukning á rándýrum, vatnamaurum (Hydra- chnellidae) og blóðsugum (Helobdella stagnalis). ÁLYKTANIR Áhrif mengunar á dýralíf i Varm- ánum virðast vera töluverð. I Varmá í Mosfellssveit hafði hitamengun frá dælustöð Hitaveitu Reykjavíkur tals- verð áhrif. Þar getur áin orðið allt að 30°C. Hiti getur haft mjög skaðleg áhrif á lífverur. Hver tegund hefur sinn kjör- hita, þ. e. ákveðið hitastig þar sem teg- undin dafnar best, en það getur verið misjafnt hve tegundirnar þola frávik frá kjörhita. Sennilega hafa íslensk straum- vatnsdýr ekki mjög vítt hitasvið, vegna þess hve árstíðasveiflur hitastigs eru litlar hérlendis, og tiltölulega fá íslensk dýr þola 30°C til lengdar, enda hefur Tuxen (1944) sýnt fram á að mjög fá dýr lifa í vatni sem hefur hærra hitastig en 35°C og ekkert dýr þolir 42°C. Hækk- aður meðalhiti getur haft þau áhrif á hraða lífsferla, að skordýr fari að skríða úr púpum þegar veðurskilyrði og árs- tíðir eru óhagstæðar. I báðum ánum gætir mikillar líf- rænnar mengunar (Tafla I, 3. og 4. mynd) og verður rnikil aukning á dýrum sem lifa á lífrænum leifum, svo og rán- dýrum. Áhrif mengunarinnar voru miklu greinilegri í Varmá í Mosfells- sveit, enda var mengunin meiri þar (Taflal). Efnamengun frá ullarþvotti var miklu meiri í Varmá í Mosfellssveit og neðan við Álafossverksmiðjuna var mengunin orðin svo mikil að dýr hurfu nærri því alveg. Efnamengun hefur mikil áhrif á lífverur almennt (sjá Hynes 1960). Mörg efni verka sem eitur á líf- verur. Þvottaefni, köfnunarefnis- og fosfórsambönd í skólpinu og þvottasódi og súlfúrsápur frá verksmiðjum geta haft ntikil áhrif á lífverusamfélögin í ánum. Rykmýslirfur virtust þola þessi efni illa, þar sem þær hurfu svo til alveg neðan Álafossverksmiðjunnar í Mos- fellssveit og fækkaði verulega neðan frárennslis Ullarþvottarstöðvar SÍS í Hveragerði. Varmárnar eru í þeim flokki vatna sem mest áhersla er lögð á að vernda 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.