Menntamál


Menntamál - 01.03.1935, Side 42

Menntamál - 01.03.1935, Side 42
40 MENNTAMÁI, Bezt er aÖ gera sér þaÖ ljóst, aÖ þrátt fyrir þaÖ, þótt skyn- samlegustu leiÖir verÖi farnar, má telja víst, aÖ það taki all- langan tíma að finna nokkurnveginn áreiðanlegar aðferðir til að velja nemendur til háskólanáms. Og því aðeins mun það takast, að til framkvæmdarinnar fáist sérfróðir menn og vitrir. Einn þátturinn í starfi þeirra myndi verða sá, að skrá og bera saman alla þá reynzlu, sem smátt og smátt fengist við bættar aðferðir hér á landi og annarstaðar. Hverskonar próf, t. d., gefi bezta raun, borið saman við það, hvernig úr mönnunum, sem undir þau hafa gengið, rætist síðar, hvaða kennarar komast næst því að spá um nemendur sína, og hvernig þeir rökstyðja með- mæli sín o. m. fl. Austurbæjarskólanum, 2. jan. 1934. Sigurður Thorlacius. Eg þakka háttv. greinarhöfundum fyrir það, sem þeir hafa lagl hér til málanna. Auk þess vil eg henda lesend- um á þau mikilvægu alriði, sem liöf. eru sammála um. Það er sameiginlegt álit þeirra, að prófum þurfi að breyta til muna, að aðstöðumunur vegna fátæktar eða fjarlægðar eigi að hverfa og vitsmunapróf í einhverri mynd verði að koma að meira eða minna leyti í stað gömlu prófanna, og að þjóðfélaginu beri skylda til, að sjá gáfuðustu og hæfileikamestu unglingunum fyrir ókeypis framhaldsnámi, svo að tryggara verði að hvert sæti í ábyrgðarstöðum þjóðfélagsins verði skipað hinum beztu mönnum. Menntamál munu fylgja þessum kröfum fast fram. Verður nánar rætt um málið í næsta hefti. G. M. M.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.