Menntamál


Menntamál - 01.03.1935, Side 55

Menntamál - 01.03.1935, Side 55
MENNTAMÁL 53 láta nemöndunum nægilega lausan tauminn, til a'Ö þeir gefi sig vinnunni á vald. Til þess þarf fyrst og fremst þetta: aÖ þora að breyta til. Slík vinnubrögÖ kosta að vísu kennarann meiri árvekni, hugkvæmni og áreynslu, en gamla aðferðin. En þau halda honum hressum og ungum í starfinu í staðinn. Játað skal það, að það er allt annað en hægðarleikur, að vinna skynsamlega í íslenzkum skóla, jafnlítið og nemendur þar geta fengið í hendur af heimildum til að vinna úr. Við höfum ekki einu sinni, aumir menn, jafnsjálfsagða hluti og landkortabók eða vísi að alfræðihandbók. En nauðsynjarnar koma smátt og smátt, ef okkur er sjálfum ljóst, að ekki er unnt að vinna eins og hugsandi maður án þeirra. Og guð hefir skapað örðugleikana handa mönnunum að sigrast á. (Myndirnar, sem fylgja, eru úr vinnubókum nemenda höf.). Aðalsteinn Sigmundsson. Heimavistarskólar. I. Reykjanes við fsafjarðardjúp. Aðalsteinn Eiríksson, skólastjóri í Reykjanesi við ísafjarðar- djúp, hefir á síðustu árum tekið fræðslumál sveitanna til al- varlegrar rannsóknar, í þeim tilgangi að vinna að endurbótum á þessu sviði. Hefir hann með stuðningi fræðslumálastjórnar og í samráði við hana, látið gera teikningar að skólahúsum i sveitum, sem eiga að vera í fullu samræmi við breytt skipu- lag við kennsluna og svara kröfum tímans. Eftir athuganir sínar ritaði Aðalsteinn allítarlega um málið og flutti erindi um það í útvarpið. Ritgerðir hans um þessi efni birtust í Menntamálum og Skinfaxa. Eins og lesendur Menntamála kannast við af ritgerðum A. E., gerir hann ráð fyrir, að heimavistarskólarnir verði miðstöð menningar sveit- anna, ekki einungis barnafræðslunnar, heldur einnig unglinga- fræðslunnar og félagsskapar; — þá gerir hann ráð fyrir nám-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.