Menntamál


Menntamál - 01.03.1935, Side 76

Menntamál - 01.03.1935, Side 76
74 MEN NTAMÁL fyrir alla, og sérslakiega fyrir þá, sem hefja vilja bar- áttu gegn hinu mikla sjónleysi hér á landi. Stjórn fél. hefir keypt það, sem enn er ósell af þessum bækling og mun kappkosta, að sem flestir lesi hann. Félagið nýtur styrks úr ríkissjóði, enda greiðir það laun kennara og umsjónarmanni skólans og vinnustof- unnar, einnig kappkostar það að láta hina blindu fá sem mest fyrir vinnu sina. Fjárhagur félagsins er held- ur þröngur, og þarf það að njóta meiri og almennari stuðnings og vinsælda út um land en hingað til. Félags- gjald er aðeins 2 krónur á ári. Stjórn félagsins skipa nú: Sig. P. Sívertsen, formaður, frú Margrét Rasmus, gjaldkeri, ungfrú Halldóra Bjarnadóttir, ritari, Guðm. R. Ólafsson úr Grindavík, ritari, Þórsteinn Bjarnason, framkvæmdastjóri. Norrænt kennaramót hið 14. i röðinni, verður lialdið í Stokkhólmi dagana 6., 7. og 8. ágúst 1935. Auk fyrirlestra og umræðna um kennslu- og uppeldismál verður sýning á kennslutækj- um og skólavinnu nemenda. Þátttökugjald er 10 sænsk- ar krónur fyrir einstaklinga, en 15 kr. fyrir hjón. Þátt- takendur í kennaramótinu geta þeir orðið, sem stunda kennslu, hvort sem það er við hærri skóla eða lægri, opinbera skóla eða einkaskóla. Siðasta Alþingi veitti 5000 krónur handa barnakenn- urum til þess að sækja mót þetta. Þar sem gera má ráð fyrir, að allmargir harnakennarar sæki mótið, þá verður fjárhæðinni slcipt á milli þeirra kennara, sem erfiðasta aðstöðu hafa. Gera má og ráð fyrir, að af-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.