Kirkjuritið - 01.09.1975, Page 5

Kirkjuritið - 01.09.1975, Page 5
I GÁTTUM Nefnd starfar að endurskoðun starfshátta kirkjunnar. Hefti þetta ker það með sér með nokkrum hætti. Ekki er nema gott um það að segja. Þjóðfélagið tekur stórfelldum breytingum um þessar ^undir. Öldin er byltingaöld, og þess gætir í öllu mannlífi. Hin skipulagða, jarðneska kirkja þarf að gæta þessa. Það er rétt- ^æt spurning, hvort hún muni ekki einnig þurfa byltingar við. hverju skal þá bylta? einskis er að hefja breytingar og byltingar nema Ijóst sé, ^vað muni horfa til bóta. Og það liggur ekki ætíð í augum uppi. k*ar er reynslan ólygin. Róttækar breytingar á messuformi og ^essusöng í kapphlaup: við tíðarandann hafa t. d. ekkert orðið nema skoplegir tilburðir, varla leitt til annars en þess að innræta ^önnum þann vafasama vísdóm, að öllu megi breyta og ekkert Se hafið yfir móð og tízku. Þótt annað sé stundum fullyrt, er ^'klu fremur raunin sú, að fastheldni við hefðir ellegar aftur- ^Varf til gamalla siða hafi eflt kirkjusókn og kristna tilbeiðslu. ^a9a íslenzkrar kristni er orðin þúsund ára. Það, sem síra S'9rriar Torfason hefur lagt af mörkum til þessa heftis, er góð arninning þessa. Og margt hefur breytzt og þurft að breytast a svo löngu skeiði. En spyrja mætti, hvort allar breytingar hefðu 0rðið til bóta. Kynni ekki að vera, að sums staðar hefði orðið Su afturför, að þörf væri að hverfa aftur að fyrri háttum og skipan? það er Ijóst, að þjóðkirkjan er grátlega fáliðuð að starfi. Því til sfaðfestu ætti að vera nóg að bera saman fjölda presta á landinu °9 fjölda þeirra, er vinna að menntun þjóðarinnar. Sagt er, að O0fta fámenna prestalið sé illa nýtt. Það kann að vera satt. Og oa verður spurning til hvers prestar skuli vera. Þeirri spurning 0arf að svara, áður en nokkru er breytt eða bylt. G. Ól. Ól. 163

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.