Kirkjuritið - 01.09.1975, Side 80

Kirkjuritið - 01.09.1975, Side 80
NIÐURLAG Þegar frásögn Jahveritsins (Gen. 2 og 3), sem er eldri, var tengd hinni yngri frásögn Prestaritsins í samantekt rit- safns Mósebókanna fimm, Fimmbóka- ritinu. þá veitum við athygli því, sem einkennir vitnisburð allrar Biblíunnar um skapara og sköpun. Þessi vitnis- burður er margvíslegur og áherzlan hvílir á mismunandi þáttum, samt spannar hann yfir alla sögu viðskipta Guðs við lýð sinn. Við höfum beint athygli okkar að nokkrum þessara þátta. í Genesis 1 höfum við veitt athygli nokkrum þáttum, sem eru sér- staklega skýrir. Við sáum að í Presta- ritið var felld eldri framsetning. Við verðum þó að minnast þess, að í þess- um kafla höfum við aðeins íhugað einn drátt í heildarmynd Biblíunnar um skapara og sköpun og verðum því að íhuga aðra drœtti þessarar myndar einnig. Túlkun okkar á Genes- is 1—3 sýndi það, að vitnisburður Biblíunnar um skapara og sköpun fylgir föstu mynstri. Það, sem er ó- hagganlegt í þessu mynstri og rœður því, er lofgjörð um skaparann eða viðurkenning á Guði sem skapara, eða trú á hann. Það, sem hins vegar er breytilegt, er gerð framsetningar eða ályktana um það, hvernig sköp- unin hafi átt sér stað. Þess vegna er ekki hœgt að takmarka trú okkar á skaparann við einn þátt í þessu mynstri. Okkur leyfist ekki að segja, að ein hinna mismunandi og mörgu frásagna sköpunarinnar sé hin eina rétta og hinar séu rangar. Þyki okkur, að yngstu frásöguna, þá, sem er i Prestaritinu Genesis 1 og leggat áherzlu á sköpun heimsins og alls, sem í honum er með skipun; sem fram er borin, beri að taka fram yfir aðrar, þá getum við þó ekki sagt, að aðrar frásagnir séu rangar: t. d. frásögnin af því, að Guð hafi myndað manninn af leiri jarðar, — eða, svo annað dœmi sé tekið, sem er mjög óllkt að efni — það, að sköpunin sé afleiðing goðsögulegs (mythological) bardaga, sem oftar en einu sinni er minnzt a 1 Biblíunni (t. d. í Jesaja 51:9: „Varst það eigi þú, sem banaðir skrlmslina (Rahab) og lagðir I gegn drekann?")- Annað dœmi: Upphafið á ávarpi Guðs I 38. kap. Jobsbókar er áhrifamikil lýsing á sköpun heims, en I veigamikl- um atriðum vlkur hún þó frá frásögn- inni I Genesis 1. Ekki getum við sagh að Genesis 1 sé rétt lýsing og Job. 38 röng eða öfugt. Það skiptir nœsta litlu máli staðhœfa að frásagnir af sköpuninm hafi breytzt I tímans rás. í báðum sköpunarsögunum verðum við v°r þeirrar tilhneigingar að varðveita þann leyndardóm, sem sköpun Guðs er. Tilgangur frásagnanna er ekki að 238

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.