Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1953, Blaðsíða 38

Ægir - 01.01.1953, Blaðsíða 38
32 Æ G I R H.f. Eimskipafélag íslands. Aðalfund ur. Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélag Islands verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík. laugardaginn 6. júní 1953 og hefst kl. 1.30 e. h. 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfs- tilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1952 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra sem, úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 2.— 4. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Oskað er eftir, að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skrá- setningar, ef unnt er 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en 26. maí 1953. Reykjavík, 28. janúar 1953. S T ] Ó R N I N . Tilkynning frá H.f. Eimskipafélagi Islands um endurmat á hlutabréfum félagsins. Stjórn H.f. Eimskipafélags íslands hefir samþykkt að leggja fyrir næsta aðalfund félagsins tillögu um, að öll hlutabréf í félaginu verði innkölluð og í stað núgildandi hlutabréfa fái hluthafar ný hlutabréf, sem verði að fjárhæð tífalt núverandi nafnverð hlutabréfanna. Stjórn félagsins hefir orðið þes áskynja, að einhver brögð séu að því að leitað sé eftir kaupum á hlutabréfum félagsins. Álítur stjórnin það illa farið, ef hlutabréfin safnast á fáar hendur, því að það hefir frá stofnun félagsins verið talið mikilvægt fyrir þróun þess og vin- sældir, að sem allra flestir landsmenn væru hluthafar. Það er álit stjórnarinnar, að endurmat á verðmæti hlutabréfanna geti átt þátt í þvt að aftra sölu þeirra. Reykjavík, 28. janúar 1953. Stjórn H.f. Eimskipafélags Islands.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.