Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1997, Page 12

Ægir - 01.07.1997, Page 12
Samtök fiskvinnslustöðva án út- gerða, S.F.Á.Ú., voru stofnuð árið 1994 og er innan þeirra að finna all- ar stærðir fyrirtækja, allt frá fyrir- tækjum sem velta hundruðum millj- óna og eru með tugi starfsmanna í vinnu og niður í einyrkja. Samnefnt eiga þessi fyrirtæki að byggja sína vinnslu á viðskiptum við fiskmark- aðina. Óskar Þór Karlsson, formað- ur samtakanna, segir að á sínum tíma hafi samtökin orðið til þar sem hópur fiskverkenda hafi ekki talið hagsmunum sínum borgið innan Samtaka fiskvinnslustöðva þar sem þau samtök hafi stutt kvótaviðskipti sem bitnuðu á starfsemi þeirra sem lifðu á viöskiptum á fiskmörkðun- um. Stóra hagsmunamálið hjá Sam- tökum fiskvinnslustöðva án útgerð- ar segir Óskar vera að fá fram sann- gjarna samkeppnisstöðu í fisk- vinnslu gagnvart útgerð. Óskar Þór Karlsson segir mikið barátturnál samtakanna að satnkeppnisstaða sé jöfn á mörkuðunum, þ.e. að aðilar geti ekki fénýtt veiðiheimildir til samkeppni við þá á mörkuðum sem engar heimildir hafi. Óskar telur líklegt að samtökin láti ekki við niðurstöðu Samkeppnisstofminar sitja, en hún hafrtaði sjónarmiðum þeirra, heldur verði málið sent til dómstóla. Myndir. jóh Samtök fiskvinnslustöðva án útgerða ætla að uppfræða sjómenn um gildi fyrsta flokks meðferðar á fiski úti á sjó: „Aukin hráefnisgæði skila hundruðum milljóna” segir Óskar Þór Karlsson, formaður „Okkur finnst ekki hægt að menn geti fénýtt veiðiheimildir til að kaupa fisk á mörkuðunum í samkeppni við okkur. Þar er stóri agnúinn og er ósanngjörn samkeppni," segir Óskar um þau atriði sem urðu til stofnunar Samtaka fiskvinnslustöðva án útgerð- ar. „Við settum á sínum tíma fram kröfur um eðlilegt verðmyndunarkerfi og erum sannfærðir um að fyrir grein- ina í heild er mögulegt og hagkvæmt að taka upp sem afgerandi þátt að fisk- ur sé seldur á mörkuöunum þannig að viðskiptin séu á jafnréttis- og sam- keppnisgrundvelli. Skorturinn á þessu hefur verið mesti bölvaldurinn í sjáv- arútveginum á undanfömum árum. Gamli íslenski hugsanagangur sjálf- þurftarbúskapar leiddi til að hráefnis- verðið var ákveðið með miðstýrðum ákvörðunum og sérhæfingin varð eng- in. Lykill að því að hér eru fyrirtæki sem starfa með viðskiptum við fisk- markaði er sérhæfing sem þýðir að vinnslurnar eru að ná betri árangri en þekktist áöur," segir Óskar. „Sjáum framfarir í gæðamálum" „Gæðamálin eru okkar megin við- fangsefni í dag og þá er ekki bara verið að tala um gæðamál á fiskmörkuðun- um heldur er fyrsta stigið alltaf úti á sjó. Staðreyndin er sú að frágangi á fiski úti á sjó er áfátt og öll atriði sem finnast í ólagi, jafnt þvottur, röðun, frágangur á ísun, merking og fleira. Við í S.F.Á.Ú. teljum að auðveldlega megi auka verðmæti hrráefnis sem kemur að landi um hundruð milljóna á ári með betri meðferð á afla,"segir Óskar. -Er meirihluti bátanna með þessi at- riði í ólagi? „Við merkjum hægar breytingar til 12 ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.