Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1931, Blaðsíða 183
183
alveg öruggar né nákvæmar, sýna þær þó í aðaldráttum,
hvernig stórstafahandritin eru dreifð á aldirnar“.
Ef lýsa ætti öllum þeirn liandritum, sem hér er um að ræða,
myndi það verða of langt fyrir þessa ritgerð, og þó að ekki
væri nema skrá yfir þau, myndi lnm taka nokkurt rúm og
ekki verða að miklu gagni. Má vísa í liandhægar skrár í rit-
um Dobschútz (Nestles Einfúhrung) og' .Tacquiers, og mjög
greinilega i Gregory: Textkritik. Má nota til þessa heimilda-
skrá þá, sem fylgir þessari ritgerð. Hér verður á hinn bóg-
inn hallazt að þeirri aðferð, að lýsa nokkurnveginn greini-
lega merkustu handritunum, og segja stultlega frá þeim liand-
ritum, sem eitthvað er við sérstakt, eða telja má næst hinum
miklu liandritum, en sleppa hinum alveg. Þar sem handrit-
in hafa nöfn, eru þau notuð, og sett á eftir merki þeirra, eftir
kerfum þeirra Gregorys (endurbætta kerfið) og v. Sodens
(v.Sd.).
Codex Sinaiticus.
N eða 01, v. Sd. ð 2. Handrit þetta á einkennilega
sögu. — Árið 1844 var textarannsóknarinn frægi Constan-
tinus Tischendorf á ferð í Austurlöndum, og kom þá í Ivat-
rínarklaustrið á Sínaí. Hann varð þá var við, að safnað liafði
verið saman i körfu allmiklu af blöðum, sem ætluð voru til
þess að kveikja upp eld. Fór liann að skoða blöðin, því að
hann var i liandritaleit, og kannaðist við, að verðmæt hand-
rit finnast oft á ólíklegustu stöðum. Fann liann þá þarna 43
blöð úr bókfellshandriti af LXX (sjötíumannaþýðingunni af
G.-t.), og sá þegar, að liér var um afar fornt og vandað hand-
ril að ræða. Yar honum sagt, að húið væri að nota talsvert af
þessu handriti í þessn lofsverða skvni, að halda við eldin-
um í hlóðunum, en samt var mikið eftir. Fékk hann að sjá
part af því, og var þar á handrit af Jesaja og Makkabeabók-
unuin, en á blöðunum, sem hann hafði fundið voru 1. Kron.,
Jeremía, Nehemía og Esterarbók. Þessi blöð, sem brenna átti,
fékk Tischendorf til eignar, cn ekki var að tala um, að hann
fengi meira, því að munkarnir sáu nú á honum, að þetta
mundi vera merkilegt og verðmætt handrit. Blöð þessi hafa
siðan verið í Leipzig, undir nafninu Codex Friderico-Au-
gustanus, eftir þjóðhöfðingja þeim, sem kostaði för Tischen-
dorfs.
Árið 1853 kom Tischendorf aftur í klaustrið ó Sínaífjalli,
en ]>á tókst honum ekki að finn;a neina ögn af þessu handriti