Morgunblaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 6. M A Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 131. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is ER KOMIÐ ÚT! HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK R E Y K J A V Í K U N I V E R S I T Y W W W .H R .I S HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK TÍMARIT «CANNES KYNLÍF, KREPPA OG GORDON BROWN «FRÆGÐARFÖR BAGGALÚTUR FÓR TIL VESTURHEIMS Þriðja hljóðversplata Radiohead, OK Computer, olli straumhvörfum í bresku rokki þótt útgefendur hafi kallað hana óseljanlegan andskota og markaðslegt sjálfsmorð. LESBÓK Sgt. Pepper X- kynslóðarinnar Leikstjórinn Benedict Andrews er spútnik í leikhúsinu í Sydney. Hann setti upp ofurvinsæla sjö tíma Shakespearesýningu og segir ekki hægt að vera trúr Shakespeare. Tekur klassíkina nýjum tökum Konur eru afar sýnilegar í listasöl- um landsins. Konur sem tilheyra ólíkum kynslóðum, frumkvöðlar, konur sem eru rísandi og hafa náð langt á ferli sínum. Myndlistarkonur í sviðsljósinu Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME) hefur vísað málum sem varða sam- skipti Sjóvár og Milestone, eiganda félagsins til skamms tíma, til viðeig- andi embættis innan stjórnsýsl- unnar vegna gruns um að refsiverð háttsemi hafi átt sér þar stað. FME getur vísað málum sem þessum annaðhvort til embættis sér- staks saksóknara eða efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra. Rannsóknin sem nú stendur yfir snýr að stjórnum og stjórnendum Sjóvár og Milestone. Á meðal þess sem verið er að skoða er hvort að- koma þeirra að fjárfestingum Sjóvár varði mögulega við lög. Enginn enn yfirheyrður Enn sem komið er hefur enginn verið yfirheyrður né fengið stöðu grunaðs manns. Gagnaöflun, byggð á upplýsingum frá FME, er þó í full- um gangi, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Viðkomandi emb- ætti tekur síðan ákvörðun um hvort tilefni sé til frekari rannsóknar. Mál Sjóvár og Milestone er eitt tíu mála sem FME hefur sent frá sér til rannsóknaraðila í kjölfar banka- hrunsins. Eins og Morgunblaðið hefur áður greint frá, er Sjóvá meðal annars í vanda vegna eigna, sem eigandinn Milestone setti inn í félagið á móti viðskiptaskuld, sem til varð í tengslum við kaup Milestone á Mod- erna í Svíþjóð. Eignirnar hafa rýrn- að mikið í verði. Tíu milljarða vantar upp á að félagið uppfylli lágmarks- kröfur um gjaldþol. Samkvæmt upplýsingum frá FME verður Sjóvá áfram undir sér- tæku eftirliti „þar til ákvörðun verð- ur tekin um annað“. Mál Milestone og Sjóvár til rannsóknar Fjármálaeftirlitið hefur vísað um tíu málum til opinberrar rannsóknar Í HNOTSKURN »Rannsóknin snýr m.a. aðfjárfestingum Sjóvár »Enginn hefur fengið stöðugrunaðs manns »Sjóvá er enn undir sér-tæku eftirliti FME  Tryggingarisi | 26 LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík var sett með pomp og prakt á Kjarvalsstöðum í gærkvöldi, og mun standa yfir næstu tvær vikurnar. Hátíðin í ár er afar fjöl- breytt og er sjónum ekki aðeins beint að einni ákveðinni listgrein, eins og áð- ur hefur verið. Fjölmargt verður í boði, svo sem mexíkósk-kanadíska söng- konan Lhasa de Sela, Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari, Hjaltalín ásamt kammersveit, götulistamenn, gjörningar og fjölbreyttar myndlistarsýningar, svo fátt eitt sé nefnt. Á myndinni má sjá götulistamenn frá Ástralíu, sem nefna sig Forboðna ávexti, speglast í flygli við Kjarvalsstaði í gærkvöldi. All- ar upplýsingar um hátíðina má finna á listahatid.is. Spegill listarinnar Morgunblaðið/Golli Listahátíð í Reykjavík sett í gær  ÞAÐ var Hrafna Hanna Elísa Herberts- dóttir, 21 árs stúlka frá Djúpavogi, sem fór með sigur af hólmi í fjórðu seríu söng- keppninnar Idol-stjörnuleit- ar, en úrslitin fóru fram í beinni útsendingu Stöðvar 2 í gærkvöldi. Þar sigraði Hrafna hina 24 ára Önnu Hlín Sekulic. Mikil fagnaðarlæti brut- ust út á Djúpavogi þegar úrslitin lágu fyrir, en múgur og marg- menni var saman komið á Hótel Framtíð þar sem úrslitin voru sýnd á risaskjá. Mikil fagnaðarlæti á Djúpa- vogi vegna úrslita í Idolinu Hrafna Hanna El- ísa Herbertsdóttir  „ÉG ætla ekki að tjá mig um at- kvæðagreiðsluna í þinginu á þessu stigi en ég tel að það sé lýðræð- islegur réttur alls almennings að taka afstöðu til þessa máls. Reyndar finnst mér að þjóð- aratkvæðagreiðslu ætti að innleiða í miklu ríkari mæli en gert er,“ seg- ir Svandís Svavarsdóttir, spurð hvort hún muni greiða atkvæði með þingsályktunartillögu um viðræður við ESB. »30 Tjáir sig ekki um atkvæðagreiðslu Svandís Svavarsdóttir  HÓLMFRÍÐUR Þorgeirsdóttir sérfræðingur hjá Lýðheilsustöð segir hugmyndir um sykurskatt í anda áherslu stöðvarinnar um lýð- heilsu. Um fimmtungur íslenskra grunnskólabarna er yfir kjör- þyngd. „Það er hærra en er í næsta nágrenni okkar en bandarísk börn eru þyngri en hér,“ segir hún. „Við vorum mjög á móti því að afnema vörugjöld á gosdrykkjum á sínum tíma,“ segir Hólmfríður og væri þetta leiðrétting á því. Rann- sóknir hafa sýnt að ef sykraðra gosdrykkja er neytt í óhófi tengist það aukinni tíðni ofþyngdar og of- fitu. „Og svo bætist tannheilsan við.“ »8 Tennurnar eru skemmdari og börnin eru þyngri EFTIR að Milestone, fyrrum eigandi Sjóvár, keypti félagið breyttist það úr hefðbundnu vátryggingafélagi í fjárfestingafélag. Milestone eignaðist Sjóvá að fullu 2006. Það ár tvöföldust eignir félagsins, ekki síst vegna aukn- ingar fjárfestingaeigna sem voru fasteignir víðs- vegar um heim. Skuldir hækkuðu einnig. Bóta- sjóðurinn stækkaði hins vegar lítið þannig að vátryggingastarfsemi hefur ekki vaxið mikið. Sama þróun varð á árinu 2007. Ekki hafa verið birtir opinberlega reikn- ingar fyrir árið 2008. Í lok árs 2007 voru fjárfestingaeignir Sjóvár orðnar tæpir 50 milljarðar króna. Breyttist í fjárfestingafélag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.